Morgunblaðið - 07.05.1991, Síða 13
JCfíI lAM .T ÁU9AQU10ÚI4 aiQAjaV:'JOHOM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1991
St
13
Við viljum að þú reynsluakir þessari bifreið!
INNI í HLJÓMKVIÐUNNI
Bókme.intir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Carmen Laforet: Hljómkviðan ei-
lífa
Sigxirður Sigurmundsson frá
Hvítárholti þýddi
Höfundur þessarar bókar er fædd-
ur í Barcelona 1921 og sendi frá sér
þessa bók 1944 undir títlinum
„Nada“. Á kápusíðu segir að sama
ár hafi hún fengið merkustu bók-
menntaverðlaun Spánar fyrir hana
og hún hafi náð mikilli útbreiðslu
um hinn spönskumælandi heim. Mér
er ekki kunnugt um annað en þetta
sé fyrsta bók Laforet sem hefur
komið út á íslensku.
Þetta er mikil og óvenjulega sögð
saga. Unga stúlkan Andrea kemur
til Barcelona og sest að á heimili
fjölskyldu sinnar sem hún hefur ekki
vitjað lengi. Þar býr gömul amma
hennar, veikburða og skrítin, óbuguð
en beygð af mótlæti og harðræði,
frænka hennar Angustias, stjómsöm
án þess að hafa á neinu stjóm og
síst sjálfri sér; veit ekki hvort hún
á að láta undan ófullnægðum líkam-
legum þrám eða gefast guði sínum.
Þar eru synirnir Román, listrænn
og hæfileikaríkur sem allar stundir
hefur haft eitthvert ægivald yfir
konum og yngri bróðir hans Juan,
skapbráður rugludallur sem mis-
þyrmir einlægt Gloriu eiginkonu
sinni vegna léttúðar hennar og
ótryggðar. Skuggaleg vinnukona og
hundur. Ungt barn Gloriu og Juan
og eru þá upptaldar persónur húss-
ins. Húsið og heimilið er í þvílíkri
niðurníðslu að Andreu verður ekki
um sel, en það sem er þó sýnu verra
sú niðurníðsla er ekkert hjá því
hvernig fjölskyldan er á sig komin.
Myrkur og ógæfa grúfir yfír þessu
heimili og öllum sem þar hafast við
og hvort Andrea sleppur heil frá
hlýtur að vera vafamál.
Hún eignast vinkonu í skólanum
Styrkir veittir til
hreinsunar starfa
Á FUNDI borgarráðs 30. apríl sl. var ákveðið að veita 500 þús. kr.
til stuðnings ibúasamtökum og hverfafélögum í borginni vegna hreins-
unar- og fegrunardaga sem fara fram í flestum hverfum borgarinnar
nú í maímánuði.
Stuðningurinn miðast við þátt-
töku í kynningum og auglýsingum,
grillveislu, leiktækjum og hljóðkerfi
í tengslum við hreinsunardaga og
hverfahátíðir.
' Óskir um stuðning þurfa að ber-
ast til upplýsingafulltrúa Reykjavík-
urborgar, Ölafs Jónssonar.
(Fréttatilkynning)
110 K KBÁNl) II)
leikur fyrir dansi
til kl. 03.00
Þrírétta glæsilegur
matseðill
Miðasala og
borðapantanir í síma
687111.
EKKf SÖMU OG t MYfiD
er stærsta ógæfan eftir.
Þetta er mögnuð saga um kúgun
og niðurlægingu fjölskyldu. sem eitt
sinn var virðuleg og sú niðurlæging
verður ekki léttbærari þegar manni
verður ljóst að hún er sprottin af
þeirri eyðileggingarhvöt sem þau
hafa í sér svo allt er að rotna innan
frá. Þegar einhver ætlar að leita sér
frelsunar er það dæmt til að mistak-
ast. Þó er trúlegt að Andrea sleppi
undir lokin, höfundur leyfir okkur
að minnsta kosti að vona það.
Persónurnar svo ógeðfelldar sem
þær eru verða ákaflega skýrar og
þær eru listilega gerðar af höfundi
sínum og verða eftirminnilegar, sitja
um kyrrt löngu eftir að lestri er lokið
Bókin er ekki nægilega skilmerki-
lega uppsett, samtöl lítt afmörkuð
hver segir hvað og ekki alltaf ljóst
hvar óbein ræða hefst eða samtöl
enda. Þetta er lýti á bókinni og trufl-
ar lesanda altjent við fyrsta lestur.
Þýðing Sigurðar Sigurmundssonar
er unnin af mikilli kostgæfni. Orða-
röð er stundum óíslenskuleg en forði
hans á íslensku er mikill og ég hef
trú á að sagan skili sér. Það hefur
dregist úr hömlu að geta um þessa
bók og er það miður. Að henni er
óumdeilanlegur fengur og þýðandi á
lof skilið fyrir frumkvæðið.
Hvað sagði Yoko Ono
um stórsýninguna
Rokkað á himnum?
Sigurður Sigurmundsson
Enu og bindur allar sínar ungu von-
ir við þann vinskap og því verður
það þungbært áfall þegar Ena virð-
ist laðast að Roman, þessum spillta
frænda hennar; kannski líka vegna
þess að hún gerir það sjálf mjög
gegn vilja sínum. Þegar Ángustias
sem heldur heimilinu í greipum sér
á ytra borði fer í klaustur hefur
heimilið þá ekki losnað úr álögum?
Það mætti halda það, en þá fyrst
Volvo 940 er ríkulega útbúin lúxusbiffeið. Sem dæmi um
staðalbúnað í Volvo 940 má nefna: 2.3 lítra 130 hestafla vél
með beinni innspýtingu og fullkominni mengunarvörn,
sjálfskiptingu, vökvastýri, læst drif, samlæsingu á hurðum,
rafstýringu á rúðum og speglum, álfelgur, útvarp og segulband
með fjórum hátölurum og innbyggðan barnabílstól í aftursæti
sem ekki er fáanlegur í nokkurri annari bifreið en Volvo.
Þetta eru áþreifanlegir hlutir, en þegar komið er að því að lýsa
hvernig tilfinning það er að aka Volvo 940 mega orð sín lítils.
Þess vegna viljum við bjóða þér í ógleymanlegan reynsluakstur
- vertu velkomin(n)!
VOLVO
- Bifreið sem þú getur treyst!
BRIMB0RG
FAXAFfil 8 - SÍMi 91 - 68 58 70