Morgunblaðið - 21.09.1986, Blaðsíða 1
C
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1986
BLAÐ
UM SAKAMALASÖGURNAR SEM BORGES SKRIFAÐI ASAMT VINI SINUM
IIKR
EFTIR ILLUGA JÖKULSSON
JORGE LUIS BORGES
„í hinum æsilegu
annálum
glæparannsókna fellur
sá heiður að vera fyrsti
spæjarinn sem er
tukthúslimur í skaut
don Isidoro.“ Það var
Jorge Luis Borges sem
skóp don Isidoro Parodi
ásamt Bioy Casares.
Þegar Jorge Luis Borges Iést í hárri elli
í sumar var hans að sjálfsögðu minnst
með viðeigandi hættium allan heim
og þar á meðal hér á íslandi. Tengsl
Borgesar við ísland voru flestum kunn:
hann dáði fornbókmenntir okkar og
menningararfínn, taldi Snorra Sturluson meira en
jafnoka Shakespeares og kom hingað nokkrum
sinnum í einskonar pílagrímsferðir að því er hann
sagði sjálfur. íslendingar þekkja því býsna vel til
Borgesar og rita hans en einn er þó sá þáttur á
ferli hans sem lítt er kunnur. Þegar Borges var til
þess að gera ungur maður og frægðin enn fjarri gaf
hann ásamt félaga sínum í Buenos Aires út safn
sakamálasagna og nefndu þeir bókina Sex ráðgátur
handa don Isidoro Parodi. Bókin vakti ekki mikla
athygli fyrir utan heimaland höfundanna, Argentínu,
en þegar Borges öðlaðist viðurkenningu um allan
heim fyrir sögur sínar og ljóð var hún að sjálfsögðu
dregin fram í dagsljósið á ný. Og sjá — Borges hafði
náttúrulega ekki mistekist við þetta form fremur en
önnur sem hann lagði gjörva hönd á. Unnendur
vandaðra sakamálasagna hafa líka ætíð nafn don
Isidoro Parodi í miklum metum.
Eins og nafnið á „leynilögreglumanni" Borgesar
og félaga hans gefur til kynna var ætlun þeirra
ekki síst að leika sér að formi sakamálasögunnar —
don Isidoro Parodi er vitanlega „paródía" eða
skopstæling á ótal leynilögreglumönnum sem komnir
voru til sögunnar á bókum áður en sest var við
skriftir í Buenos Aires. Ekki svo að skilja að Borges
hafi haft skömm á sakamálasögum, öðru nær; hann
las þær eða lét lesa þær fyrir sig alla ævi og hafði
af þeim mikla ánægju. Einn af eftirlætishöfundum
hans, Englendingurinn G.K. Chesterton, er nú hvað
þekktastur fyrir sakamálasögur sínar um föður
Brown, prestinn sem leysti morðgátur í frístundum
sínum og tekst bærilega upp þrátt fyrir óvanalegar
aðferðir. Það er þó vart hinn glaðbeitti og
fyrirferðarmikli faðir Brown sem er aðalfyrirmyndin
að don Isidoro, og hvað þá Sherlock Holmes sem
alltaf var á ferðinni með stækkunargler og jafnvel
skammbyssur. Nei, í leit að fyrirmynd leitaði Borges
Fjallað um
upphaf
vináttu
þeirra
Alec Guinness
og
John Gielgud
Þeir Sir John Gielgud og
Sir Alec Guinness eru úr
hópi þekktustu og
virtustu leikara
Stóra-Bretlands og eru
þeir jafnframt miklir
vinir, þó sú vinátta hafi
ekki hafist gæfulega.
ALEC GUINNESS
JOHN GIELGUD
Einar Guðmundsson skrifar
um hina árvissu listahátíð í
Amsterdam „Holland
Festival". Hátíðin byggist
aðallega á óperuflutningi,
konsertum, leiklist og dansi,
þar verður m.a. flutt óperan
„Brottnámið úr
kvennabúrinu" eftir W.A.
Mozart.
4
W.A. MOZART