Morgunblaðið - 03.06.1986, Page 68

Morgunblaðið - 03.06.1986, Page 68
68 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ1986 Sýning stóðhestastöðvarinnar: Ljóri og Kjarval báru af sem gull af eir ÞAÐ MA með sanni segja að stóð- hestamir Kjarval frá Sauðár- króki og Ljóri frá Kirkjubæ hafi bjargað sýningu stóðhestastöðv- arinnar í ár svo góðir sem þeir voru. Eftir tvær framúrskarandi sýningar i fyrra og hittifyrra þótti mönnum sýningin nú nokkru lakari þegar á heildina er litið. Upphaflega var ætlunin að sýna 13 fola frá stöðinni en tveir reyndust ekki ganga heilir til skógar svo þeir voru 11 sem nú komu fram. Olli það mönnum nokkrum vonbrigðum að ekki var hægt að sýna Otur frá Sauð- árkróki sem er undan sama hesti og Kjarval en faðir þeirra er Hervar 963 frá Sauðárkróki. Einnig var sýndur Blakkur 977 frá Reykjum en hann hefur verið i þjálfun á stóðhestastöðinni i vetur og verður væntanlega sýndur á landsmótinu i sumar. En svo vikið sé að ungu folunum þá voru það Kjarval og Ljóri sem báru af eins og áður segir. Ekki voru gefnar upp einkunnir þeirra þar sem þeir koma fram á landsmót- inu og þótti ekki æskilegt að fara að opinbera í tölum gæði þeirra á þessari stundu. Þó sagði Þorkell ráðunautur um Kjarval að hann væri ekki langt frá 8.70 fyrir hæfi- leika sem er sennilega hæsta hæfi- leikaeinkunn sem 5 vetra stóðhest- ur hefur fengið. Telja verður líklegt að hann muni standa efstur í sínum flokki á landsmótinu í sumar. Er sama hvar borið er niður hjá þessum hesti í hæfileikum, allar gangteg- undir eru framúrskarandi góðar og frábært geðslag og vilji gera það að verkjum að allt nýtist til hins ýtrasta. Á síðasta ári var fundið nokkuð að því hjá Kjarval hversu bolstuttur hann er en heldur virðist hafa tognað úr honum og töldu fróðir menn að lengdin væri orðin viðunandi. í fyrra fékk hann fyrir byggingu 7.78 og verður fróðlegt að sjá hvort hann á eftir að hækka. Þótt Ljóri frá Kirkjubæ sé í alla staði góður hestur stóð hann Kjar- val að baki hvað hæfileika varðar en ekki er ósennilegt að hann dæmist hærra fyrir byggingu. Hann sannaði ágæti sitt á fjórðungsmót- inu í Reykjavík sl. sumar er hann stóð efstur í flokki 4 vetra stóð- hesta. Á sýningunni nú má segja að hann hafi undirstrikað og staðið við þær vonir sem gerðar hafa verið til hans. Af öðrum hestum sem þama komu ffarn má minnast á Sikil frá Stóra-Hofi en sá er undan Sörla 653 og Nýpu frá Oddhóli. Hann er 4 vetra og kom fram hjá Þorkeli ráðunaut að hann kæmist inn á landsmót en lágmarkseinkunn fyrir 4 vetra hesta er 7.80. Nokkuð kom á óvart að Ljómi frá Björk sem sýndur var með Ljóra á fjórðungsmótinu í fyrra skyldi ekki ná inn á landsmót en hann hlaut í einkunn fyrir byggingu 7.90 og fyrir hæfileika 7.76 sem gerir 7.83 í aðaleinkunn. Var almennt talið að þessi hestur væri líklegur til að ná inn á landsmót. Aðrir hestar sem komu fram þóttu frekar lítið spennandi eins og þeir komu nú fyrir. Reyndar spillti veður nokkuð fyrir en töluverður vindur var og kalt. Ástæður þess að ekki tókst eins vel með þessa sýningu og hinar fyrri má e.t.v. rekja til þess að í haust var tekin sú ákvörðun á stöðinni að fara vægar í sakimar með 4 vetra folana og verður það að teljast skynsamleg ákvörðun þótt óneitanlega komi það niður á gæðum sýningarinnar. Áhorfendur, sem nú eins og venju- lega skiptu hundmðum, eru orðnir góðu vanir og má búast við að einhverjir hafi ekki verið fullkom- lega ánægðir með heildarútkom- una. Telja verður sanngjamt að yngstu hestunum sé sýnd þolin- mæði fyrsta árið í tamningu því eins og dæmin sanna getur orðið mikil breyting á hróssi á einu ári á þessum aldri. En hér í lokin eru kynntir þeir hestar sem ekki hefur áður verið minnst á og einkunnir sem þeir hlutu. Þröstur frá Stóra-Hofi undan Blæ frá Sauðárkróki og Sunnu frá Stóra-Hofi hlaut í einkunn fyrir byggingu 7.74, fyrir hæfileika 7.44, aðaleink. 7.59. Geisli frá Meðalfelli undan Viðari 979 frá Viðvík og Sunnu frá Meðalfelli hlaut í einkunn fyrir byggingu 7.83, fyrir hæfíleika 7.70, aðaleink. 7.77. Sorti frá Bæ, Höfðaströnd, undan Fáfni 897 frá Fagranesi og Blesu frá Vogum hlaut í einkunn fyrir byggingu 7.79, fyrir hæfileika 7.21, aðaleink. 7.50. Om frá Vík, Mos., undan Hrafni 802 og Kolfreyju 4599 hlaut í ein- kunn fyrir byggingu 7.80, fyrir hæfíleika 7.31, aðaleink. 7.56. Hörði frá Hörðubóli undan Ófeigi 818 og Perlu 4922 hlaut í einkunn 7.64, fyrir hæfileika 7.66. Aðaleink. 7.65. Austri frá Mýnesi undan Mána 949 frá Ketilsstöðum og Freyju 3426 hlaut í einkunn fyrir byggingu 7.78 fyrir hæfileika 7.50, aðaleink. 7.64. Glói frá Gunnars- holti undan Hrafni 802 og Snerpu frá Gunnarsholti hlaut í einkunn fyrir byggingu 8.18, fyrir hæfileika 7.34 (skeiðlaus), aðaleink. 7.76. Svarri frá Gunnarsholti var ekki sýndur sökum helti en hafði verið dæmdur um leið og hinir folamir skömmu áður og hlaut hann í eink- unn fyrir byggingu 7.86, fyrir hæfíleika 7.79, aðaleink. 7.83. Svarri er undan Hrafni 802 og Prinsessu 4846. Einnig hafði verið gerð úttekt á Otri frá Sauðárkróki og þar sem talið var að hann væri landsmótstækur voru ekki gefnar upp einkunnir hans. Otur er undan Hervari 963 frá Sauðárkróki og Hrafnkötlu 3526 frá sama stað. . Moigunblaðið/Vaidimar Sýningin á Ljóra frá Kirkjubæ tókst vel í alla staði en hann er undan Hóla-Blesa og Söru frá Kirkjubæ. Knapier Helgi Eggertsson. Nú líður að því að hestamenn fari að sleppa hrossum í stórum stO. Staldrað við í Tryggvaskála Nú um helgina voru nokkrir hópar ríðandi manna á leið með hross í hagagöngu fyrir austan fjall. Meðfylgjandi mynd var tekin við Tryggva- skála á Selfossi en þar höfðu nokkrir ferðalang- ar áð og er það ekki í fyrsta skipti sem hesta- menn staldra þar við. Morgunbiaðið/Valdimar Kjarval á Sauðákróki, undan Hervari 963 og Hrafnhettu frá Sauðákróki einn at- hyglisverðasti stóðhestur landsins. Knapi er Einar Öder Magnússon. SikiU frá Stóra-Hofi kom best út af yngri folunum og sagði Þorkell ráðunautur að hann kæmist inn á Landsmót. Knapi er Einar Öder Magnússon.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.