Morgunblaðið - 03.06.1986, Page 62

Morgunblaðið - 03.06.1986, Page 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ1986 fclk í fréttum Móðir Teresa: Ég get ekki hjálpað heiminum — en ég get rétt nokkrum einstaklingum hjálparhönd ■■ g get ekki hjálpað heiminum en ég get rétt nokkrum einstakl- ingtun hjálparhönd. Ég get annast þá og veitt þeim heimili." Móðir Teresa er lágmælt og hún heldur varlega um hendur mínar og með ástúð, skrifar danska blaða- konan Ellen Amstad. Og þannig hefur móðir Teresa haldið í hönd þúsunda fátæklinga í fátækrahverf- um Kalkútta. Guð veri með þér, segir hún oft og mörgum sinnum. Samfundur okkar átti sér stað í „Húsi móður- innar" þar sem móðir Teresa býr ásamt samstarfsfólki sínu í miðju fátækrahverfi Kalkútta. Um 250 systur starfa þar ásamt móður Teresu. Það hvílir einkennilegur friður yfir byggingunni. Hér virðist eng- um liggja mikið á, enginn talar hátt eða veldur ónæði. Það er helst að ónæði stafi frá öllum þeim flölda sem daglega kemur til að sjá móður Teresu. Flestir verða að láta sér nægja að sjá hana í svip, en margir fá þó að taka í hönd hennar. Hvítklæddar nunnur ganga framhjá með bænabók í hendi. Þær eru á leið til miðdagsguðsþjónustu og skömmu síðar heyrist sálma- söngur frá herberginu þar sem nunnumar biðjast fyrir. Móðir Teresa gengur berfætt í hvítum sari með bláum röndum. Andlit hennar er hrukkótt og hin 75 ár hafa sett mark sitt á hana. En augun eru skír og heit. Það eru aðeins nokkur hundruð metrar frá „húsi móðurinnar" til bamaheimilis móður Teresu í Kal- kútta. Þangað koma daglega 200 sjúkar og fátækar manneskjur. Hér fær fólkið mat og drykk í ílát sem það hefur með sér. Gamlir menn standa í biðröð og bíða eftir mat en konur og böm sitja á hækjum sér og bíða þess að komi að þeim. Innan bamaheimilisins er einnig verið að útdeila mat. Indversk smá- böm á aldrinum 4-5 ára sitja í röð - þau þakka kurteislega fyrir sig þegar systumar koma með matar- bakkana, brosa og hlægja. í einni deild bamaheimilisins em hvítvoðungamir og sofa sætt í vöggu sinni. Það er líka sérstök deild fyrir veik og fötluð böm. Alls rekur móðir Teresa sjö fátækra- heimili. Húm kallar þau ekki stofn- anir eða spítala, heldur „heimili". Hið þekktasta þeirra er heimilið fyrir hina deyjandi; heimili fyrir deyjandi öreiga. Það er svalt í þessum stóra sal sem er þéttskipað- ur rúmum. Hinir fátækustu meðal fátæklingana deyja venjulega á vegbrúninni eða í skúmaskotum og enginn kærir sig um að hjálpa þeim. Systumar taka þá upp af götunni, unga og gamla. Þeim er komið í rúm og þeir fá nógan mat. Hér fínnur þetta fólk ást og umhyggju. Og hér getur það dáið í friði. Þama er að vísu fátt um þægindi en þetta samt dásamlegur griðastaður fyrir marga hinna sjúku. Kalkútta er bara ein af mörgum borgum þar sem móðir Teresa rekur góðgerðarstarfsemi. Fátækraheim- ili hennar em einnig til staðar í borgum Evrópu, í Englandi, Þýska- landi, Hollandi, Júgóslaviu, Italíu, Spáni og Belgíu. Sjálf er móðir Teresa fædd í Júgóslavíu hinn 27. ágúst 1910. Skímamafn hennar er Agnes Gonxha Bojaxhiu en árið 1931 var henni gefíð nafnið „Teresa". Tólf ára gömul ákvað hún að gerast nunna. Átján ára gekk hún í reglu Loreto-systrana í Dublin á írlandi. Móðir Teresa hefur heitið að fórna öllu Iífi sínu í þjónustu við hina fátækustu meðal fátækra. Sagt er að PáU páfi II hafi komist mjög við er hann heim- sótti heimiU móður Teresu fyrir deyjandi öreiga í Kalkútta. Sjálf sagði hin 75 ára gamla nunna að heimsókn páfa hefði verið stæðsta stundin í lífi sínu. Salur hinna deyjandi — þarna er fátt um þægindi en samt er þetta dásamlegur griðastaður fyrir marga. Soltnar mæður biða þolinmóðar eftir mat ásamt börnum sínum. Um tvöhundruð manns koma þarna daglega til að fá mat í ílát sin. Hún var send til Indlands og þar tók hún út reynslutíma sinn. í 20 ár kenndi hún við St. Maríuskólann í Kalkútta allt fram til 1946 þegar straumhvörf urðu í lífí hennar. Hún segist hafa fengið guðlega köllun er hún ferðaðist með lest milli Kalkútta og Darjeeling, köllun um að gefa allt sem hún átti og fóma öllu sínu lífí fyrir hina fátækustu meðal hinna fátæku. Móðir Teresa fékk leyfí páfans sjálfs til að starfa utan klaustursins í fátækrahverfum Kalkútta. Þegar hún tók við friðarverðlaununum 1979 sagði hún: „Ég lít á þessi verðlaun er mér hafa verið veitt sem viðurkenningu á tilveru hinna fá- tækustu í heiminum. Þau eru viður- kenning á tilvist okkar fátæku bræðra og systra. Og þau em viður- kenning á því að starf sem unnið er í kærleika er einnig starf í þágu heimsfriðar." Móðir Teresa er dáð og virt, Sjálfur páfínn fór í heimsókn til „heimila“ hennar í Kalkútta fyrr á þessu ári. Móðir Teresa leyfír sér engan munað og er sístarfandi. Nunnurnar lifa við strangan aga - þær hafa til dæmis ekki leyfi til taka við bréfí nema einu sinni í mánuði. Og þær fá ekki leyfí til að fara heim í frí fyrr en þær hafa leyst af hendi átta ára þjónustu. En nunnumar em áhugasamar og starfsandinn er góður. Systumar óska þess sjálfar að lifa í fátækt og bæn. Og þær hafa sjálfar kosið að þjóna guði í þjáningu. Mat útdeilt fyrir framan barnaheimilið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.