Morgunblaðið - 23.01.1986, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR1986
Þór Vigfússon
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Það er allsérstæð sýning
skúlptúrverka sem blasir við þeim
er líta inn í Nýlistasafnið þessa
dagana.
Er hér um að ræða fimm natúr-
alískar mannamyndir, sem eru
unnar í gifs og síðan málaðar og
ráða þá einning natúralísk viðhorf
ferðinni um litaval. Fyrirmyndim-
ar eru sóttar í daglegt líf nútímans
svo sem það útleggst í fréttatil-
kynningu frá listamanninum, sem
er Þór Vigfússon.
Utfærsla myndanna og hug-
myndin að baki koma manni
nokkuð kunnuglega fyrir sjónir
því að svipað hefur áiður sést í
ýmissi mynd í pop-list svo og í
naivískri list aldarinnar.
Þó er eitthvað persónulegt við
þessar myndir, eitthvað fíngert
og ferskt, sem einkum kemur
fram í því hvemig Þór málar
styttumar, sem að öðru leyti eru
frekar klunnalega mótaðar.
Þá er myndunum vel komið
fyrir og sýningin virkar fyrir sumt
sem „installation". Ber þá að líta
á allt sem eina heild, uppsetningu,
lýsingu og umhverfí.
Það er rétt, sem segir einnig í
fréttatilkynningu, að allt frá tím-
um Fom-Grikkja hafí fjöldi
frægra myndhöggvara fengist við
hversdagslegar fyrirmyndir
samtímans. Er vísað til verka
Asmundar Sveinssonar svo sem
Vatnsberans og Jámsmiðsins en
það er _ nú ekki allskostar rétt
því að Ásmundur var hér að per-
sónugera horfna starfshætti og
stílfærði mjög í báðum tiivikum.
Er hér ólíku saman að jafna um
útfærslu og myndhugsun þótt
grunnhugmyndin sé hversdags-
leikinn i allri sinni nekt.
Þá vinnur Þór á mjög þröngu
og einhæfu sviði sem gerir mjmdir
hans fljótmeltar en þó skemmti-
legar í viðkynningu.
Mjmdimar em ónúmeraðar og
sýningarskrá er engin en ég vil
þó geta þess, að ég varð fyrir
sterkustum áhrifum af styttunni
af nakta manninum er heldur á
rósum fyrir aftan bak. Einfald-
leikinn er hér sláandi og það er
styrkur myndarinnar.
Rocky bræðir
rússnesk hjörtu
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Bíóhöllin: Rocky IV * * *
Leikstjóri og handrit Sylvester
Stallone. Tónlist Bill Conti. Kvik-
myndataka Bill Butler. Aðal-
hlutverk Sylvester Stallone, Dolp
Lundgren, Brigitte Nielsen, Carl
Weathers, Talia Shire, Burt
Young. Bandarisk frá United
Artists/MGM. 1985.
Sylvester Stallone er kominn í
einskonar vítahring því afkvæmi
hans frá árinu 1976, vandræða-
gemlingurinn Rocky Balboa, sem
barði kjötskrokka í Philadelphiu,
milli þess sem hann var Mafíunnar
innheimtumaður, er nú á góðri leið
með að verða ódauðlegur á hvíta
tjaldinu. Sú fjórða stefnir hraðbyri
að því að verða sú vinsælasta í
mjmdröðinni og víst er að við eigum
eftir að sjá þá fímmtu og sjöttu.
Rocky IV. um hnefaleikakeppni á
millum söguhetjunnar og rússnesks
heljarmennis, Drago. Áður hafði
þetta óhugnanlega vöðvafjall drepið
í hringnum besta vin og þjálfara
Rockys og fyrrverandi andstæðing,
Appollo Creed. Þannig fléttar hann
fortíðinni inn í sögumunstrið.
Síðan gerist fátt annað en fastir
liðir eins og venjulega. Rocky æfír
sig af miklum móð undir slaginn á
freðmýrum Síberíu en Drago hinn
ógurlegi nýtur allrar bestu tækni
sem völ er á í Moskvu. Að venju
er viss stígandi í þessum kafla sem
kemst á suðumarkið í keppninni í
Kreml, sem er vænn hluti myndar-
innar.
Það skeður það óvænta að Rocky
tekst þegar á líður, að bræða hin
rússnesku hjörtu með harðfylgi
sínu. Og Drago gerir sig líklegan
til að bíta einn kommissarinn á
barkann, gagnrýna þannig kerfíð á
þann hátt sem honum er eðlilegast-
Kafbátar í eltingarleik
Bókmenntir
GuðmundurH. Frímannsson
Tom Clancy
The Hunt for the Red October,
Berkeley Books, 1985.
Góðar spennubækur geta verið
prýðileg afþreying. Maður fylgist
með af vakandi athygli, hvemig
þráður atburðarásarinnar vefur
hvem hringinn á fætur öðrum,
hvemig söguhetjumar bjargast úr
hveijum lífsháskanum á fætur öðr-
um. Og síðan endar allt vel, að sjálf-
sögðu.
Á síðasta ári kom í pappírskilju
bókin Leitin að Rauða október
eftir Tom Clancy. Það er nokkuð
löng saga, upp á hálft fímmta
hundrað síðna, og fjallar um tilraun
Marko Ramiusar, sem er skipstjóri
á nýjum kafbát í sovézka sjóhem-
um, til að flýja til Bandaríkjanna á
bátnum. Til þess að það takist þarf
hann að sigla bátnum, helzt svo að
enginn taki eftir, frá Kóla-skaga
suður Atlantshafíð fram hjá íslandi
og til austurstrandar Bandaríkj-
anna, Norfolk eða annarrar stöðvar
flotans. Frá því að ákvörðunin er
tekin og þangað til sögunni lýkur
gerist margt og leikurinn berst víða.
Það er ástæðulaust að ræna tilvon-
andi lesendur ánægjunni af því að
fínna spennuna aukast eftir því,
sem á bókina líður, með því að segja
frá málalokum.
Bókin er byggð upp eins og kvik-
mjmd. Sagan gerist á mörgum
stöðum í senn og skipt ört á milli
sviða. Það gefur manni jrfírsýn jrfír
ólík viðbrögð í Washington og
Moskvu við þessum atburði og
maður fær ofurlitla tilfinningu fyrir
því, á hve litlum uppfýsingum
ákvarðanir em teknar, þegar átök
verða, hve snjallar getgátur geta
skipt sköpum. Allt þetta sér maður
líða fram hjá eins og á tjaldi.
Auðvitað er söguþráðurinn á köfl-
um mjög ótrúlegur, en það kemur
ekkert sérstaklega að sök.
Það, sem er forvitnilegt fyrir ís-
lendinga í þessari bók, er að sjá,
hvemig kafbátar á hafsvæðinu
kringum ísland athafna sig, hvað
þeir gera, hvemig þeir fylgjast hver
með öðmm. Það fer ekkert á milli
mála, að hafsvæðið kringum ísland
er þjóðbraut fyrir kafbáta stórveld-
anna og hlustunarstöðvar í kringum
ísland em lykilatriði í eftirliti Vest-
urveldanna með kafbátum Sovét-
ríkjanna. Ég hef það fyrir satt, að
í þessari bók sé farið rétt með öll
tæknileg atriði í kafbátum og kaf-
bátahemaði, að því lejrtinu megi
treysta þeim upplýsingum, sem í
bókinni em.
Rocky mættur í hringinn, að
um Drago.
Bændur slátra ekki sínum bestu
kúm. En framhaldsmjmdum fylgir
sá ljóður að þær þurfa að vera
einhvemveginn öðm vísi en sú
næsta á undan og handritsgerð er
ekki ein af sterku hliðum Stallone.
Hann grípur til þess ráðs í mjmd
nr. IV., að rifja upp fræg atriði úr
fyrri mjmdum og tengja þau þess-
ari.
Bragðið lukkast. Líkt og alþjóð
veit ömgglega orðið, þá fjallar
ER SJÁLFSKIPTINGIN
í BÍLNUM ÞÍNUM
FARIN AÐ SNUÐA?
Ef svo er, ættirðu að kynna þér tilboð okkar,
og þú munt komast að raun um að það borgar
sig að taka því - frekar en að láta
sjálfskiptinguna skemmast.
Tilboðið nær til allra bílaog í þvífelst
skoðun á eftirfarandi 10 atriðum
(varahlutir ekki innifafdir í verði);
* olía tekin af sklptingu
* skipt um pakkningu á pönnu
% ventlahús þrifið
% panna þrifin.skipt um síu
* skiptikambur athugaður og
stilltur
* bremsufaand stillt
* nýr vökvi settur á skiptingu
* stjórnbarkar og tengi stillt
* vakúmskipting athuguð
* bifreiðinni reynsluekiö
Allt þetta færðu fyrir kr. 2488
Þetta er tilboð okkar!
BlLVANGURsf-
HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
þessu sinni með rússneskajötnin-
ur. Það er ekkert skrýtið þó þessi
sullumbullslegi friðarboðskapur
hafí farið fyrir brjóstið á vesalings
Rússunum, það hefur fleimm flökr-
að.
En eftir stendur sú staðreynd að
þessi illþolandi leikari, sem sjálfur
segist hafa rödd eins og líkmaður
hjá Mafíunni, hefur tekist það eina
ferðina enn að standa margfaldur
að baki mjmdar sem hefur slíkt
aðdráttarafl að almenningur flykk-
ist á hana. Það er mikið afrek og
því má ekki gleyma að það em
menn eins og Stallone sem öðmm
fremur halda lífí í kvikmyndinni.
Leikstjórinn/handritshöfundur-
inn/framleiðandinn Stallone veit
hvað áhorfendur vilja fá fyrir aur-
ana sína þegar þeir kaupa miða á
mjmd um Rocky eða Rambo.
Óstöðvandi hasar frá upphafi til
enda, kryddaðan örlítilli ástarvellu,
(þó ég hafí það á tilfinningunni að
hann láti slátra sinni elskulegu
Adrian í næstu mynd, hún er orðin
út á þekju í þessum myndum) og
slegið á viðkvæma strengi, Appollo
drepinn. Þar með er samúðin vakin.
Síðan fær públikum andlega full-
nægingu, nötrandi í sætunum undir
blóði drifnu upgjöri milli góðs og
ills. Og formúlan virkar, hvort sem
mönnum líkar betur eða ver þá
hefur þessi Neanderdalsmaður
skapað hetju sem virðist eiga hug
og hjarta kvikmyndahúsgesta um
heim allan.
Rocky IV. hefur verið gagnrýnd
fyrir ofbeldi og það ekki að ástæðu-
lausu. Þó fer minna fyrir því og
betur farið með það en í fyrri
myndunum. Og hræsnislaust fæ ég
ekki betur séð þegar öllu er á botn-
inn hvolft að Rocky IV. sé hin
ágætasta afþreying.
Höfóar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!