Morgunblaðið - 23.01.1986, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR1986
7
Fræðsluvika um
Krabbamein á
Kjarvalsstöðum;
Hvað er
krabba-
mein, hvern-
ig er það
greint og með-
höndlað?
Krabbameinsfélagið efnir tíl
„Fræðsluviku ’86“ að Kjarvals-
stöðum dagana 25. janúar til 2.
febrúar.
Á sýningarsvæði í austurhluta
Kjarvalsstaða verður komið fyrir
fræðslusýningu um krabbamein,
sem nnnin var í samvinnu við
nemendur á þriðja ári í auglýs-
ingadeild Myndlista- og handíða-
skóla íslands. Fjallað verður um
hvað krabbamein sé, hvað valdi
því og hvernig það er greint og
meðhöndlað.
Einnig er frætt um starfsemi
Krabbameinsfélagsins og framtíð-
arverkefni þess. Ætlunin er að
senda sýninguna víða um land á
næstu vikum. Þá verða sýndar
hundrað teikningar eftir 10—12 ára
skólaböm sem voru beðin að teikna
myndir af einhveiju sem þeim dytti
í hug þegar þau heyrðu talað um
krabbamein. Auk þess verða sýndar
kvikmyndir um krabbamein,
reykingar og btjóstamyndatökur og
litskyggnur um starfsemi Krabba-
meinsfélagsins.
Alla sýningardagana verða fyrir-
lestrar um krabbamein, og í tengsl-
um við suma þeirra verður kynning
á stuðningshópum krabbameins-
sjúklinga. Þrisvar í þessari fræðslu-
viku verða leiðbeiningar fyrir þá
sem vilja hætta að reykja, og
nemendur Tónlistarskólans munu
leika fyrir sýningargesti.
Fræðsluvika ’86 að Kjarvalsstöð-
um verður opin kl. 14 til 22 og lýkur
að kvöldi sunnudags 2. febrúar.
Sýning þessi markar upphaf að
undirbúningi landssöfnunar undir
kjörorðinu „Þjóðarátak þín vegna",
sem fram fer í apríl.
Salan á Sigurfara og
Sölva Bjamasyni;
Viðræður við
hæstbjóðendur
VIÐRÆÐUR stjómenda Fisk-
veiðasjóðs við hæstbjóðendur í
togarana Sölva Bjarnason og
Sigurfara eru nú hafnar. Farið
verður yfir tilboðin með viðkom-
andi bjóðendum og þau metin
áður en nokkur ákvörðun um
framhald verður tekin.
Bíldælingar voru á sínum fyrsta
fundi hjá Fiskveiðasjóði í gær, en
þeir buðu hæst í Sölva Bjamason,
150,5 milljónir króna. Skipið var á
síðustu misserum gert út frá
Bíldudal, en var í eigu Tálkna hf.
á Tálknafírði. Homfirðingar buðu
hæst, 190 milljónir króna í Sigur-
fara og em væntanlegir til viðræðna
ídag.
í frétt Morgunblaðsins féll út eitt
tilboðanna í Sölva Bjamason. Það
var frá Þorbimi hf. í Grindavík og
hljóðaði upp á 85 milljónir króna.
Það er nánast ótrúlegt að rlkulega
útbúinn Citroén Axel árgerð 1986
kostar aðeins kr. 290.000 !
Frakkar eru þekktir fyrir að koma
Ijúfustu sófasettum fyrir í bílum
sínum. Axel er þar engin undantekn-
ing. Að auki eru sætin prýdd góðum
höfuðpúðum og öll eru þau umvafin
öryggisbeltum.
Eigendur Axels hafa lofað góða
aksturseiginleika bílsins. Þú hrein-
lega líður áfram í Axel. Best koma
þessir eiginleikar fram við akstur í
snjó og á malarvegum. Þar standa
fáir Axel jafnfætis.
<
cn
—1
2
Á síðasta ári eignaðist Glóbus fjölda ánægðra
viðskiptavina, — þökk sé Axel, stóra smábílnum á
ótrúlega verðinu. I\lú erum við hjá Glóbus að fá
nýja sendingu af '86 árgerðinni. Verðið er enn
sérstaklega gott: frá kr. 290.000,-. Þá er innifalin
skráning, ryðvörn, hlífðarpanna undir vél og stút-
fullur bensíntankur. Einnig er boðið upp á góð
greiðslukjör, t.d. allt niður í 30% út og afganginn
á allt að tveimur árum.
Axel er sérstaklega rúmgóður. Hægt Við köllum Axel gjarnan stóra smábílinn því að
er að leggja aftursætin fram. Þá hann er bæði stærri og sterkbyggðari er margir
margfaldast farangursrýmið og þú dýrari smábílar. Líttu við hjá okkur í Lágmúlanum
getur auðveldlega notað bílinn til og reynsluaktu Axel, þá veistu hvað við eigum
sendiferða. við.
Þú ekur öruggur í Axel!
G/obusr
LAGMULI5,
SÍMI81555