Morgunblaðið - 10.12.1985, Síða 80

Morgunblaðið - 10.12.1985, Síða 80
EfTTKDRT AU5SIMMR öoö <£ull & ^tlfur í)/f L\l < . \\i:í .1KHVK.I.WIK S in62() ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. Albert fer fram á opinbera rannsókn á ásökunum í sinn garð: Albert á ekki að víkja segja stjórnarleiðtogar Stjórnarflokkarnir sammála um að rannsókn fari fram utan Alþingis ALBERT Gudmundsson iAnadarráðherra óskaði eftir því við ríkissak- sóknara í gær að hann láti fara fram opinbera rannsókn vegna þeirra ásakana sem fram hafa komið í hans garð, um refsiverða háttsemi, meðan hann gegndi starfi formanns bankaráðs Útvegsbankans. I*eir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og Þorsteinn Pálsson fjár- málaráðherra eru sammála um að Albert eigi ekki að víkja úr ríkis- stjórninni á meðan rannsókn málsins fer fram. Þingflokkar stjórnar- flokkanna vilja að rannsókn á viðskiptum Hafskips og Útvegsbankans verði framkvæmd af „óvilhöllum aðilum“ utan Alþingis. í bréfi sínu til ríkissaksóknara rekur Albert stuttlega þær ásak- anir sem fram hafa komið á hann að undanförnu. Því næst segir iðnaðarráðherra: „Hér eru mjög alvarlegar sakargiftir hafðar uppi. Ég tel mig með engu móti geta setið undir ásökunum af þessu tagi.“ Fer iðnaðarráðherra þess því á leit við ríkissaksóknara að hann láti fara fram opinbera rann- sókn vegna þessara ásakana í hans garð og leggur áherslu á að sú rannsókn gangi hratt fyrir sig. í samtölum blaðamanns Morg- unblaðsins við forsætisráðherra og fjármálaráðherra í gær kom fram að þeir telja ekki nauðsynlegt að iðnaðarráðherra víki úr ríkis- stjórn á meðan rannsókn fer fram. Eru þeir jafnframt þeirrar skoð- unar að ríkisstjórnin verði að sjá til þess að málið verði upplýst að fullu á þann hátt að almenningur geti treyst þeim vinnubrögðum sem beitt verður. Þingflokkar stjórnarflokkanna fjölluðu um það á fundum sínum í gær með hvaða hætti þeir telja að rannsókn á viðskiptum Haf- skips og (Jtvegsbankans eigi að fara fram, og varð niðurstaða fundanna sú að ráðherrar flokk- anna fengu umboð til að ákveða Hugsanlegt flug People Express til Lúxemborgar: Gæti haft alvarlegar af- leiðingar fyrir Flugleiðir — segir Sigurður Helgason, forstjóri BANDARÍSKA Hugfélagið People Express hefur fengið leyfi banda- rískra yfirvalda til að fijúga til fimm borga í Evrópu, auk Lundúna og Brussel, sem félagið flýgur nú til. Þessar fimm borgir eru Shannon á írlandi, Amsterdam í Hollandi, Ziirich í Sviss, Frankfurt í Þýska- landi og Lúxemborg. Leyfið er háð samþykki yfirvalda í viðkomandi löndum, og ekki Ijóst enn, hver verður endanleg niðurstaða varð- andi þetta aukna Evrópuflug People Express. Mun áhugi forráðamanna félagsins einkum beinast að flugi til Ziirich og Frankfurt. Að sögn Sigurðar Helgasonar, forstjóra Flugleiða, gæti það haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir Flugleiðir, ef niðurstaðan yrði sú að bandaríska flugfélagið hæfi flug til Lúxemborgar. „Við höfum haldið uppi flugi milli Bandaríkj- anna og Lúxemborgar í þrjátíu ár og allan þann tíma verið einir á þeirri flugleið. Það er því ljóst að það gæti haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir okkur að fá þetta bandaríska flugfélag við hliðina á okkur,” sagði Sigurður. Hann sagði að þegar People Express hefði hafið flug til Brussel í september síðastliðnum hefði það þegar haft áhrif á farþegafjölda Flugleiða á milli Lúxemborgar og New York og í september og október hefði farþegum hjá Flugleiðum fækkað um rúmlega 20% á þessari flugleið. hvernig rannsóknin verður. Er búist við að ákvörðun þar að lút- andi verði tekin á ríkisstjórnar- fundi í dag. Sjá fréttir á bls. 2 og forystugrein í miðopnu blaðsins. Langþráð stund Á rayndinni hér fyrir neðan blað- ar Margrét Jónsdóttir, ekkja Þórbergs Þórðarsonar, í fyrsta eintakinu af íslenskri samheita- orðabók, sem stjórn styrktar- sjóðs Þórbergs og Margrétar færði henni á Droplaugarstaði í gær. Margrét sagöi, að þetta hefði verið langþráð stund, ekki aöeins fyrir sig, heldur hefði Þórbergi verið útkoma slíkrar bókar mikið hjartans mál. Hún hefði því betur komið út fyrir löngu, en betra væri seint en aldrei. „Mér þykir vænt um að bókin er komin út,“ sagði Margrét. Sjóðsstjórnin kynnti samheitaorðabókina á blaða- mannafundi í gær og mun Morg- unblaðið skýra frá honum síðar. Morgunblaðið/Bjarni Páll Pétursson formaður þingflokks Framsóknarflokksins: Gjörbreytir tillögu sinni um frystingu kjamavopna PÁLL Pétursson, formaður þing- flokks Framsóknarflokksins, varð á þingflokksfundi í gær að lúta í 'Skiptaréttur biður um lagabreytingar SKIPTARÉTTUR í Reykjavík hefur óskað eftir því við ríkisstjórnina að hún beiti sér fyrir lagabreytingum sem auðveldi skiptarétti rannsókn og gagnaöflun í gjaldþrotamálum. Þessi ósk er í beinum tengslum við störf skiptaráðenda, Markúsar Sigur- — hjörnssonar og Ragnars Hall, í Haf- skipsmálinu. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að verða við þessum tilma-l- um. „Við teljum nauðsynlegt að þær breytingar sem skiptaréttur óskar eftir, nái fram að ganga, þannig að skiptarétturinn hafi beinar heim- ildir til þess að ná þeim upplýsing- sem hann telur sig þurfa á að Talda, en þurfi ekki að fara fyrir aðra dómstóla til þess að ná þeim,“ sagði Þorsteinn Pálsson fjármála- ráðherra í samtali við Morgun- blaðið. Hann sagði að ríkisstjórnin myndi beita sér fyrir því að löggjöf um þetta efni verði samþykkt nú á næstunni. „Þessar lagabreytingar verða fyrst og fremst til þess að skipta- ráðandi geti ákveðið lengri frest, þegar um marga erlenda kröfuhafa er að ræða, og sömuleiðis að hann geti krafist ýmiskonar upplýsinga, án þess að þurfa að fara í gegnum rannsóknarlögregluna," sagði Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra í samtali við Morgun- blaðið um þetta mál. Sjá bls. 4: Endurskoðendur ráðnir til aðstoðar við bókhaldsathugun. lægra haldið, hvað varðar afstöðu til breyttrar afstöðu íslands á allsherj- arþingi Samcinuðu þjóðanna til til- lögu Svía, Mexíkóbúa og fleiri þjóða um frystingu kjarnorkuvopna. Varð niðurstaðan málamiðlun þess efnis, að Páll, ásamt 7 öðrum þing- mönnum Framsóknarflokksins, flyt- ur þingsályktunartillögu þess efnis að Alþingi lýsi þeirri skoðun sinni að ísland eigi að leitast við að ná samstöðu með öðrum ríkjum Norð- urlanda um frystingu á framleiðslu kjarnavopna og bann við tilraunum með kjarnavopn. ísland skuli hafa frumkvæði um tillöguflutning á vett- vangi SÞ um þau mál á grundvelli ályktunar Alþingis 23. maí 1985. Meðflutningsmenn Páls eru Ingv- ar Gíslason, Stefán Valgeirsson, Haraldur Ólafsson, Þórarinn Sigur- jónsson, Guðmundur Bjarnason, Jón Kristjánsson og Davíð Aðal- steinsson. Orðalag upphaflegu tillögunnar sem Páll dreifði meðal þingmanna á Alþingi í gær var svohljóðandi: „Alþingi lýsir þeirri skoðun sinni, að eðlilegt sé að ísland hafi sam- stöðu með öðrum ríkjum Norður- landa í atkvæðagreiðslu á þingi Sameinuðu þjóðanna um tillögu Mexíkó, Svíþjóðar og fleiri ríkja um frystingu kjarnavopna." „Nei, alls ekki. Þetta er sam- komulagsatriði,“ sagði Páll, þegar hann var spurður hvort hann hefði beðið lægri hlut á þingflokksfundi Framsóknarflokksins í gær. Páll játaði því þó að orðalag þeirrar tillögu sem ákveðið hefði verið að hann legði fram væri vægara en á upphaflegu tillögunni. Hann sagði jafnframt að þingmenn Fram- sóknarflokksins hefðu óbundnar hendur í atkvæðagreiðslu um til- lögu Alþýðubandalagsins um breytta afstöðu. „Það er raunalegt að sjá hvernig Framsókn lætur beygja sig í þessu máli og þessi loðmulla hans Páls er auðvitað ekkert annað en til- raun til að bjarga andlitinu," sagði Hjörleifur Guttormsson þing- maður Alþýðubandalagsins. Hann kvaðst myndu leggja fram sína þingsályktunartillögu strax í dag og leita eftir að fá hana tekna á dagskrá sem fyrst. „Við beitum aldrei þrýstingi, heldur sannfæringarkrafti," sagði Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra, þegar hann var spurður hvort hann hefði þurft að beita formann þingflokksins mikl- um þrýstingi til þess að breyta svo mjög orðalagi þingsályktunartil- lögu sinnar. Forsætisráðherra var spurður hvort einhugur hefði verið um nýju tillöguna í þingflokknum. „Ég skal ekki segja sagði Stein- grímur, það voru ekki greidd at- kvæði um hana.“ DAGAR TILJÓLA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.