Morgunblaðið - 10.12.1985, Page 63

Morgunblaðið - 10.12.1985, Page 63
63 lést árið 1928, þá aðeins 55 ára gamall, þegar þau voru að byggja upp í Hrísey. Á þeim árum þótti gott ef ekkjur gátu séð fyrir börn- um sínum, en þurftu ekki að senda þau frá sér, því engar voru trygg- ingarnar í þá daga. En Jónína Schiöth lét sér ekki nægja að sjá um börnin sín og byggja stórt íbúð- arhús, heldur stofnaði eigin at- vinnurekstur. Með stálvilja og útsjónarsemi byggði hún húsið Asgarð í Hrísey, þrílyft steinhús með stórum, fal- legum garði, og rak það sem hótel íeyjunni. Hún horfði bjartsýn fram til þess tíma þegar börnin hennar yrðu komin upp og gætu stutt hana í rekstrinum, en enn átti eftir að reyna Jónínu Schiöth. Árið 1940 missir Helga dóttir hennar ungan eiginmann sinn, Gísla Vigfússon, frá ungum syni þeirra, Rafni Halldóri, eftir tæp- lega tveggja ára hjónaband og í nóvember 1942, í seinni heims- styrjöldinni, ferst Hinrik sonur hennar, þá stýrimaður, með Sæ- borgu frá Hrísey. En Jónína Schiöth stóð sig nú sem endranær. Það má líkja henni við klettinn í hafinu sem slípast og verður fallegri við ágang nátt- úruaflanna. 23. september 1943 giftist Helga dóttir hennar Sigurði Brynjólfs- syni frá Hrísey, sem reyndist Jón- ínu stoð og stytta þegar á þurfti að halda. Þau Helga eignuðust saman 3 börn: Gísla Hinrik, f. 16. desember 1944, Sigurjónu, f. 14. desember 1947 og Astu, f. 15. júní 1957. Fjölskyldan bjó öll í Ásgarði, húsinu sem Jónína byggði, fram til ársins 1959 er þau fluttu suður til Kópavogs. Þar bjó Jónína hjá þeim Sigurði og Helgu til ársins 1965 er hún fluttist á Hrafnistu í Reykjavík. Það er mikil lífsreynsla að lifa jafn háan aldur og Jónína Schiöth. Fyrir 20 árum, eða þegar hún flutt- ist að Hrafnistu, leit hún svo á að nú væri hún að mestu búin að ljúka sínu ævistarfi, enda á níræðisaldri, en það átti fyrir henni að liggja að lifa í 20 ár til viðbótar og þurfa síðustu árin að taka því að vera upp á aðra komin, — nokkuð sem var andstætt hennar eðli. Helga, eða Dedda eins og hún er kölluð, hugsaði um móður sína af einstakri umhyggju og sá til þess að hún hefði alltaf nóg af bakkelsi og öðru því sem hún hafði gaman af að bjóða gestum og stuðl- aði þannig að því að Jónína gæti notið sín og haldið reisn sinni og höfðingsskap eins lengi og unnt var. Jónína var skapmikil og vilja- sterk alla tíð, en á árunum sem MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985 hún dvaldist á Hrafnistu var góða skapið og sjálfsbjargarviðleitnin hennar aðalsmerki. Kýmnigáfan og að geta gert góð- látlegt grín að sjálfri sér kom manni oftast til að líta veröldina léttari augum. Ef hún ruglaðist eða gleymdi einhverju þegar hún var að tala, sló hún því bara upp í grín; „æ, hausinn á mér er bara orðinn alveg eins og gatasigti, ég man ekkert stundinni lengur", og svo skellihlógum við að öllu saman. Myndarskapurinn og gestrisnin voru svo samofin hennar eðli; „amma mín, hættu nú, við komum bara til að tala við þig,“ var oft viðkvæðið þegar hún var búin að gefa okkur smákökur og kaffi og var að tína fram brjóstSykur og konfekt eða ávexti og rjóma. Þá settist hún hlýðin smástund, en var von bráðar búin að gleyma sér við að tína fram sokka eða vettl- inga sem hún prjónaði í massavís og þá ekki aðeins handa sínum afkomendum, heldur þeirra vinum og skyldmennum. Það var hennar bjargfasta sann- færing að fyrir handan tækju ást- vinir hennar á móti henni og er það sannarlega notaleg tilhugsun að vita af henni til að taka á móti sér þegar þar að kemur, það mundi hún örugglega gera af þeim mynd- arskap sem við öll þekktum. Oft hefur okkur langað til að hennar ævintýralega lífssaga yrði fest á blað, en það þurfti oft lag við hana og hún vildi alltaf fá að stjórna framkvæmdum. Eitt sinn átti að hafa við hana blaðaviðtal og mynda hana af því tilefni. Ljós- myndarinn gerði henni ekki boð á undan sér, taldi sjálfsagt ekki mikið mál að smella mynd af gamalli konu á elliheimili, en Jón- ína Schiöth var ekki aldeilis á því. Henni fannst sjálfsögð tillitssemi að gera boð á undan sér, þannig að hún gæti haft sig til og sendi hann til baka og sagði honum að koma seinna, en stressaðir blaða- menn eru að sjálfsögðu ekkert að eltast við svoleiðis hluti, þannig að ekkert varð af viðtalinu. Svona var hún, eins og drottning, hvort sem hún var að stjórna hótelinu sínu úti í Hrísey eða í herberginu sínu á Hrafnistu. Það var að morgni 1. dags aðventu að hún kvaddi í faðmi dóttur og dóttur- dætra. Það var heiðskírt veður og fjallasýnin tignarleg út um gluggann hennar á Hrafnistu. Langri og viðburðaríkri ævi var lokið. Jónína Schiöth dó södd líf- daga, á 102. aldursári, sátt við allt og alla og með bjargfasta sann- færingu um annað líf. Eftir sig skilur hún bjartar minningar og hóp afkomenda sem telja sér mikinn feng í að leitast við að viðhalda hispurslausum lífs- skoðunum hennar úr óbilandi kjark í mótlæti, gott skap og heil- brigt mat á lífinu og tilverunni. Við kveðjum hana með þakklæti og virðingu. Sigga og Gísli Ellert Kristjáns- son — Minning Fæddur 9. desember 1930 Dáinn 30. nóvember 1985 Pabbi okkar, Ellert Kristjáns- son, er allur, og þar hefur kvatt okkar traustasti vinur. Það sem einkenndi pabba helst var hvað hann var afskiptalaus, hann leyfði manni að eiga sitt daglega líf í friði, en ef í nauðarnar rak var hann á vakt, tilbúinn með útrétta hönd. Það bar ekki mikið á að hann fylgdist með okkur börnunum, en hann sá samt allt og vissi. Pabbi átti ýmsa eiginleika, einn þeirra þótt okkur sérlega vænt um, hann var sá að hann setti sig aldrei í dómarasæti. Það var sama hvað gerðist á stóru heimili, í gegnum þykkt og þunnt sá maður skína í jafningjann. Pabba fannst hann fyrst og fremst hafa það hlutverk í sínu jarðneska lífi að sjá fyrir sínu stóra heimili. Guð blessi minningu þess manns sem hefur verið okkur hvað kær- astur. Börnin MANN VINURINN RAIIBI KROSS ÍSLANDS REYKJAVÍKURDEILD. Allt á einum stað: AMSTRAD CPC 6128 128k með diskdrifi og litaskja 32.980 kr. AMSTRAD CPC 464 64k með segulbandi og litaskjá 21.980 kr. AMSTRAD DISKDRIF með tengi 12.995 kr. AMSTRAD diskdrif nr. 2 ................. 8.200 kr. AMSTRAD talbox og 2 sterio hatalarar . 2 495 kr AMSTRAD Ijosapenm 960 kr AMSTRAD telex-tengi 3 950 kr AMSTRAD sjonvarps-tengi 2.320 kr AMSTRAD styripinni 850 kr SKAKTÖLVAN 2001. skæður keppmautur. 12 styrkleikastig 16 935 kr COMMODORE 64k meö segulbandi 9.950 kr COMMODORE diskdrif 11.500 kr COMMODORE litaskjar . . . 14.800 kr. COMMODORE 64k meö segulbandi og skja 23.350 kr. SINCLAIR SPECTRUM ♦ 48k 7.650 kr. Allar taknilegar upplysingar fást i tölvudeild Laugavegi 118 v/Hlemm. S:29311,621122 ■jr •**« AUGLST BJARNA D

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.