Morgunblaðið - 10.12.1985, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 10.12.1985, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985 Hnusað af bókum Bréf úr sveitinni til Jóhanns Hjálmarssonar eftir Bolla Gástavsson Löngum hefur það þótt bera vott um óviðurkvæmilega við- kvæmni, ef rithöfundar hafa látið eftir sér að svara þeim dómum um verk sín, sem þeim þóttu ómakleg- ir. Sú karlmennska hefur fremur þótt við hæfi að taka ábendingum gagnrýnenda með skilningi og ák- úrum með þögn og þolinmæði. Hinu er þó verra að kyngja ef í ljós kemur, að gagnrýnandi hefur ekki lesið bókina, sem hann fjallar um, heldur aðeins hnusað af henni. Þá er erfiðara að taka nokkurt mark á gagnrýninni og óþarfi að sitja á sér að leiðrétta augljósar rangfærslur, sem við blasa. Því miður varð ég fyrir þeirri reynslu, að rekast á kafla í gagnrýni Jó- hanns Hjálmarssonar um bók mína, Litið út um ljóra, sem birtist í Morgunblaðinu þann 3. desember sl. og bendir hann greinilega til þess, að gagnrýnandinn hafi þurft að flýta sér og ekki mátt vera að því að lesa. Þar á ég sérstaklega við umfjöllun Jóhanns um þátt af Karli ísfeld. Hann skrifar á þá leið: „En þó verð ég að mótmæla matinu á Svörtum morgunfrúm, einu ljóðabók Karls. „Virðist svo sem þetta ljóðakver hafi ekki orðið honum til vegs og valdið honum vonbrigðum," skrifar Bolli. Ég vil ráðleggja Bolla að lesa Svartar morgunfrúr á ný og íhuga gildi bókarinnar. Það eru fleiri ljóð í frúnum en það; sem ort er í orða- stað ritdómara. Bókin er á margan hátt betri en menn hafa viður- kennt. Ég er þeirrar skoðunar að hún sé verulega góð.“ Svo mörg eru þau orð og nægilega mörg til þess að færa mér heim sanninn um það, að ég hef lesið Svartar morg- unfrúr með betri eftirtekt, en Jó- hann Hjálmarsson. Ef hann tæki ljóðabókina og læsi hana, þá kæmist hann að raun um að téð kvæði, sem ort er í orðastað rit- dómara, er alls ekki að finna í Svörtum morgunfrúm. Og hefði Jóhann lesið þátt minn um Karl ísfeld með vakandi athygli, en ekki einungis hnusað af honum, þá stendur skrifað í beinu fram- haldi af hinu minnilega ljóði um ritdómarann: „Þetta Ijóð og fleiri, sem hér er vitnað til, er tekið úr syrpu óprentaðra Ijóða, sem Karl skildi eftir sig.“ (lesturbr. mín, B.G.) Því má svo bæta við, að í þeirri umsögn í þættinum, sem Jóhann bendir á, felst ekki nei- kvætt viðhorf mitt til gildis ljóða- bókar Karis. Þar er einungis bent á þá staðreynd að hún hlaut lakari viðtökur, en Karl hafði sjálfur vænst, og raunar erum við Jóhann sammála um, að bókin sé betri, en menn hafa viðurkennt. En þarna hafa ritdómaranum orðið á augljós mistök, sem ekki er ástæða tiLað þegjaum. / Annar þáttur gagnrýni J^fhanns, s'em mér er ógeðfelldur, eru dómar hans um álit manna, sem ég vitna til og koma viðfangsefni hans í ritdómum raunar ekkert við. Þótt Ólafur Jóhann Sigurðsson hafi lát- ið þau orð falla að dr. Sigurbirni Einarssyni hafi í ljóði Hjalmars Gullberg „Og ég mun láta yður verða mannaveiðara," tekist öðr- um betur að ná þeim sérstæða tóni, sem einkennir þetta frábæra sænska skáld, þá rýrir það á engan hátt orðstír Magnúsar Ásgeirsson- ar. Þessi persónulega skoðun ólafs Jóhanns verður með engu móti talin slík goðgá, að hún megi ekki sjást á prenti. Lít ég svo á, að ummæli Jóhanns Hjálmarssonar séu ómakleg móðgun við þá Ólaf Jóhann Sigurðsson og Sigurbjörn Einarsson, sem leitt sé að sjá á prenti. Þá hneykslast Jóhann einn- ig á því, að Kristján skáld frá Djúpalæk skuli gefa það í skyn, að Steini Steinar hafi þótt lítið til allra íslenskra skálda koma nema eins. Það vill svo til, að þarna vitna ég til orða Kristjáns, sem áður birtust í bók minni Fjögur skáld í för með presti. Um þá bók skrifaði Jóhann Hjálmarsson og þótti honum engin ástæða til að hneykslast á ummælum Kristjáns, nema hann hafi hnusað en ekki lesið í það skipti. Varðandi þá skoðun Jóhanns, að hneyksli sé að setja þessi ummæli á prent, þá undrast ég þá viðkvæmni hans, því Knattspyrnubækur: jr Islensk knattspyrna og saga West Ham Bókhlaðan hefur gefið út tvær knattspyrnubækur — fslensk knatt- spyrna 1985 og Saga West Ham. Höfundur fslenskrar knattspyrnu er Víðir Sigurðsson blaðamaður. Hann þýddi einnig Sögu West Ham. Þetta er fimmta bindið sem kemur út í bókaflokknum íslensk knattspyrna. Þessi bók er stærri og efnismeiri en fyrri bækur í þessum bókaflokki. Bókinni er skipt upp í kafla og er fjallað sér- staklega um hverja deild fyrir sig, landsleiki, Evrópukeppni, atvinnu- menn, bikarkeppni og fleira. Þá er í bókinni sérstakur kafli sem nefnist Saga íslenskrar knatt- spyrnu. í bókinni eru tæplega 300 mynd- ir og þar af Iitmyndir af öllum fslandsmeisturum í knattspyrnu 1985. Bókin er 158 bls. að stærð. Saga West Ham kemur út í fyrsta sinn hjá Bókhlöðunni. Bókin hefur að geyma sögu þessa fræga enska félagsliðs. Hún er 172 bls. að stærð og prýdd fjölda mynda. Gangandi dúkkur talandi dúkkur Hjá okkur fáið þið vönduðu ítölsku dúkkurnar frá SEBINO í ótrúlegu úrvali. Litlar dúkkur, stórar dúkkur, dúkkur, sem ganga, dúkkur sem gráta og dúkkur sem meira að segja tala íslensku! Póstsendum um land allt. Góð aðkeyrsla, næg bílastæði. TOmSTUnDflHUSID Laugavegi 164-Reykjavík- S: 21901 Bolli Gústavsson í ritdómi Mbl. fimmtudaginn 5. desember, kemst Jóhann sjálfur svo að orði um ungt skáld, sem að hans dómi iðkar djarflega könnun og krufningu: „Miðaldra skáld og eldri geta gælt við form í friði, enda vænta ungir menn sér einskis af þeim.“ Sá, sem svo skrifar, ætti að geta trúað að Steinn hafi stund- um fellt harða dóma. Sannfærður er ég um það, að ummæli Kristjáns frá Djúpalæk hefðu ekki hneykslað Stein. Það ræð ég af ýmsum þáttun hans í bókinni Við opinn glugga, sem ég hefi lesið oftar en einu sinni eða tvisvar. Þar fá fjölmargir mætir íslendingar lífs og liðnir að kenna á hárbeittu háði og hæpnum fullyrðingum. Við hljótum í mörg- um tilvikum að telja gagnrýni hans ómaklega og á mörkum þess að teljast prenthæfa, a.m.k. ef lagt er á það mat Jóhanns Hjálmars- sonar. Steinn Steinarr var tíma- mótaskáld og við getum heils hugar tekið undir orð dr. Sigur- björns Einarssonar er hann mælti yfir moldum hans: „Strengur er brostinn í hörpu ljóðalandsins, en ómur hans deyr ekki út meðan íslensk eyru heyra.“ Hinu getum við ekki haldið fram, að Steinn hafi verið varkár í dómum og tamið sér háttu helgra manna. — Að lokum vil ég láta þess getið, að hér í sveitinni þykir það óvirð- ing við bókmenntir að hnusa af þeim, jafnvel þótt menn taki ekki að sér það vandaverk að fjalla um þær á prenti. Við væntum þess eindregið af víðlesnasta blaði landsins, að það leggi ekki svo mikla og stranga vinnu á rit- dómara sína, að þeir komist ekki til að lesa þau rit, sem þeim er ætlað að fjalla um. Jóhanni Hjálmarssyni þakka ég hlýleg orð um manngæsku mína og umburð- arlyndi, sem ég verðskulda á engan hátt. Höfundur er prestur í Laufisi í Eyjafirði. Félagsstofnun stúdenta: Háskólakórinn heldur ljóðakvöld Háskólakórinn stendur fyrir Ijóðakvöldi í Félagsstofnun stúd- enta við Hringbraut í kvöld, þriðju- dagskvöld, kl. 20.30. Þar verður í formi kórsöngs og upplesturs flutt dagskrá úr ljóðum Þorsteins frá Hamri. M.a. verða frumflutt „Spjótalög" eftir Árna Harðarson og einnig nýleg „Cant- ata V“ eftir Jónas Tómasson, en bæði þessi verk eru samin við ljóð úr ljóðabókinni „Spjótalög á speg- il“, sem kom út árið 1982. Þá mun Guðmundur Ólafsson leikari lesa valin ljóð úr safni Þorsteins, eink- um úr hinum nýlegri bókum hans. Skáldið sjálft mun einnig koma og lesa af þessu tilefni nokkur ný, óbirtljóð. Loks kynnir Háskólakórinn ásamt Guðmundi ólafssyni nýja hljómplötu, sem Mál og Menning er að gefa út, en hún hefur að geyma upptöku á „Sóleyjarkvæði" Jóhannesar úr Kötlum við tónlist Péturs Pálssonar. Árni Harðarson, stjórnandi Háskólakórsins, bjó verkið til flutning fyrir kór og lesara og flutti kórinn það ásamt Guðmundi Ólafssyni í Félagsstofn- un stúdenta í nóvember og des- ember á sl. ári. Að þessu sinni verður lesinn og sunginn úrdráttur úr kvæðinu. Léttar veitingar verða í boði fyrir gesti ljóðakvöldsins frákl. 20.00. Utanríkisráðherra, Geir Hallgrímsson, undirritar Evrópusáttmála um sjálfstjórn sveitarfélaga, ásamt Evrópusamþykkt varðandi ofbeldi áhorf- enda og ótilhtýðilega hegðun á íþróttamótum, í Strassborg 20. nóvember sl. Til hægri á myndinni er Gaetano Adolfini, aöstoðarframkvæmdastjóri Evrópuráðsins. Utanríkisráðherra undirritar tvær samþykktir fyrir íslands hönd Geir Hallgrímsson utanríkisráð- herra undirritaði tvær samþykktir fyrir íslands hönd hjá Evrópuráð- inu í Strassborg 20. nóvember sl. Ráðherrann undirritaði Evr- ópusáttmála um sjálfstjóm sveit- arfélaga, en sáttmáli þessi kveður m.a. á um að opinber þjónusta skuli almennt falin stjórnvöldum, sem næst standa þegnunum, og að sveitarstjórnir skuli hafa ákvörðunarvald til að laga eigið stjórnkerfi að staðbundnum þörf- um. Einnig undirritaði ráðherrann Evrópusamþykkt varðandi of- beldi áhorfenda og ótilhlýðilega hegðun á íþfottamótum, sérstak- lega á knattspyrnukappleikjum. í samþykkt þessari, sem háð er fullgildingu íslenskra stjórn- valda, segir m.a. að aðildarríki Evrópuráðsins skuli samhæfa aðgerðir til að koma í veg fyrir ofbeldi og hafa stjórn á áhorfend- um á íþróttamótum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.