Morgunblaðið - 10.12.1985, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 10.12.1985, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985 23 Ragnar S. Halldórsson Stjórnarfor- maður Samtaka álframleiðenda á Norðurlöndum RAGNAR S. Halldórsson, forstjóri íslenska álféiagsins hf., var kjörinn stjórnarformaður Skanaluminium, Samtaka álframleiðenda á Norður- löndum, á ársfundi samtakanna sem haldinn var í Osló 27. nóvem- ber sl. Samtökin Skanaluminum voru stofnuð árið 1969 að frumkvæði Árdal og Sunndal álverksmiðj- anna í Noregi. Aðilar að samtðk- unum eru fyrirtæki á Norðurlönd- um sem framleiða ál og vinna úr áli. Fráfarandi stjórnarformaður Skanaluminium er Ivar Hafsett, forstjóri Norsk hydro a/s. Landíð þitt ísland — lokabindi og lykilbók komin út SJÖTTA bindið í bókaílokknum „Landið þitt — ísland" er komið út. Það er jafnframt lokabindi og lykilbók að öllu ritverkinu. Bókaútgáfan Örn og Örlygur og Prentsmiðjan Óddi hf. kynntu útgáfuna í húsakynnum prent- smiðjunnar á Höfðabakka í Reykjavík. Þar greindi Þorgeir Baldursson forstjóri prentsmiðjunnar frá því að það hefðu verið mikil tímamót í íslenskri prentsögu þegar bókaút- gáfan ákvað að flytja prentun þessara bóka inn í landið, en tvö fyrstu bindin voru prentuð í Dan- mörku. Ástæðan fyrir þeirri ák- vörðunartöku bókaútgáfunnar hefði verið sú að prentsmiðjan hefði þá tekið í notkun nýjar og afkastamiklar prent- og bókbands- vélar sem gátu annað jafn viða- miklu verkefni. Þorgeir gat þess einnig að það væru að sama skapi mikil tímamót í íslenskri prent- sögu þegar lokið væri við frum- prentun allra sex bindanna því þetta verk ætti sér ekki hliðstæðu hérlendis. Örlygur Hálfdanarson bókaút- gefandi greindi frá efni hinnar nýju bókar og gaf jafnframt yfirlit varðandi umfang alls verksins. Hann gat þess að fyrri útgáfan, sem kom út 1966 og 1968, hefði verið tveggja binda verk, alls 696 blaðsíður. Uppflettiorð beggja bindanna voru 2.660, myndir voru 47 og allar svart-hvítar, staðanöfn voru 5.686 og nöfn á mönnum, verum og vættum 1.923. Nýja út- gáfan er sex bindi, blaðsíðurnar 1.869, uppflettiorðin um 4.600 og nöfn á mönnum, verum og vættum um 4.300. Aðalhöfundar fimm fyrstu bindanna eru þeir Þorsteinn Jósepsson og Steindór Steindórs- son en Helgi Magnússon bókavörð- ur annaðist ritstjórn. Lokabindið er 416 blaðsíður og hefst það á sérkafla um Bessastaði eftir Einar Laxness sagnfræðing. Þar rekur Einar sögu Bessastaða fram á þennan dag. Bessastaða- kaflinn er prýddur 100 ljósmynd- um, lituðum teikningum og upp- dráttum. Hér er um að ræða elstu teikningar sem til eru af mann- virkjum á Bessastöðum og hafa margar þeirra ekki birst á prenti áður svo vitað sé. Þá eru nýjar afstöðumyndir, teknar úr lofti, með innsettum örnefnaskrám og innimyndir frá forsetasetrinu eins og það er í dag. Auk sérkaflans um Bessastaði í lokabindinu eru í fyrri bindum sérkaflar um Reykja- vík, Þingvelli og Vestmannaeyjar. Annar kaflinn ber heitið „Leift- ur frá liðnum öldum“. Þar er með tugum ljósmynda og litaðra teikn- inga dregið fram það líf sem lifað var í landinu til sjávar og sveita. Verkmenning fyrri alda og kjör fólks eru sýnd með myndum er sýna hlóðaeldhús, eyðibýli, kvía- ból, hlaðnar fjárborgir, yfirgefin amboð, ferðabúnað og steinatök. Ein myndanna er úr baðstofunni í Glaumbæ í Skagafirði. Sú mynd fylgir einnig bókinni sérprentuð, 58x68 cm, ætluð til innrömmunar þeim sem það vilja. í síðari hluta bókarinnar er lykill að fyrri bindunum fimm. „Landið þitt — lsland“ er í hand- bókarformi og uppflettiorðin eru staðanöfn. Uppflettiorðin eru alls um 4.600, eins og áður sagði, en staðanöfn í öllum bindunum eru hins vegar 14.300. Þá eru í bókun- um um 4.300 nöfn á mönnum, verum og vættum. Það hefur því stundum viljað vefjast fyrir mönn- um að finna nöfn sem ekki eru uppflettiorð, en með þessum lykl- um, nafnaskrám bókarinnar, eru Frá vinstri: Ásgeir S. Björnsson útgófustjóri, Helgi Magnússon starfsmadur við útgáfuna, Steindór Steindórsson fyrrverandi skólameistari, örlygur Hálfdánarson bókaútgefandi og Þorgeir Baldursson prentsmiðjustjóri í Odda. úr þessu bætt. Auk heildarskrár- innar eru síðan skrár um staða- nöfn í einstökum sýslum sem auðveldar staðbundna notkun verksins, t.d. fyrir heimamenn og ferðalanga. Fram kom er bókin var kynnt að láta muni nærri að vinn- an við gerð lyklanna svari til sex ársverka. Ritstjórn skránna önn- uðust þeir Ásgeir S. Björnsson og Helgi Magnússon. Hvert bindi var í upphafi prent- að í 10.000 eintökum. Fyrsta og annað bindi hafa nú þegar verið endurprentuð í 10.000 eintökum hvort. Þriðja bindið er á þrotum og fer í endurprentun eftir áramót. Setning og umbrot lokabindisins var unnið í Prentstofu G. Bene- diktssonar. Litgreiningar vann Prentmyndastofan í Súðarvogi. Kápu hannaði Sigurþór Jakobsson að fyrirsögn Örlygs Hálfdanarson- ar. Kápumynd er eftir Jón Ögmund Þormóðsson. J Litli ljósálfurinn slær birtu á næturlífið. Elskan við hiiðina svífur ótrufluð á vit ljúfra drauma. A með- an festir þú litla ljósálfinn á bókina góðu. Þín bíður langur næturlestur í frá- bærum félaásskap. Litli ljósálfurinn kemur | viðar að góðum notum. 1 Hvert sem leið liggur. hafðu þennan upplýsta félaga með í för. Litll ljós- álfurinn gelur lika notast við rafhlöður og þannijg
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.