Morgunblaðið - 10.12.1985, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 10.12.1985, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985 Svipmyndir úr borginni / Ólafur Ormsson „Hvað ertu með í brúna umslaginu?“ Flestir Reykvíkingar eiga erindi í miðborgina af og til, sumir dag- lega aðrir sjaldnar en þeir eru ekki margir sem koma þangað helst aldrei hafi þeir búið í borg- inni um árabil. Innan svæðisins frá Garðastræti að Frakkastíg er að finna stofnanir, fyrirtæki, þjón- ustumiðstöðvar og verslanir sem skipta máli í daglegu lífi Reykvík- inga og svo eru þarna Alþingis- húsið, Menntaskólinn við Lækjar- götu, kvikmyndahús, matsölustað- ir, bankar, ýmsar opinberar stofn- anir, stjórnarráðið og pósthúsið. Á síðari árum hefur sú þróun átt sér stað að byggðin í borginni hefur teygt anga sína í allar áttir. Mest voru umskiptin þegar byggðin í Breiðholti reis á tíu til fimmtán árum og hin siðustu ár er farið að reisa nýjar verslunarmiðstöðv- ar í úthverfum borgarinnar og senn líður að því að við Kringlu- mýrarbrautina rísi nýtt hverfi verslunar- og þjónustu. Á meðan gerist það að fyrirtæki og verslanir hverfa úr gamla miðbænum og haldi svo fram sem horfir er hætt við að hin eiginlega miðborg Reykjavíkur, eins og Reykvíkingar hafa þekkt hana á liðnum árum, gegni ekki því hlutverki sem áður var og í stað iðandi mannlífs og blómlegra viðskipta komi annars konar umhverfi og ólíkt því sem við höfðum þó kunnað ágætlega við. Hópur framtakssamra manna hefur stofnað félag til að hleypa nýju lífi í gamla miðbæinn og um daginn voru fréttamenn og ljós- myndarar kallaðir á vettvang, stofnaðilar myndaðir og markmið félagsins gerð fólki kunn. Ekkert vantaði á dagskrána annað en að Sigurður Steinþórsson í Gulli og silfri, Ásgeir Hannes Eiríksson í Pylsuvagninum, Guðlaugur Berg- mann í Karnabæ og Ásgeir Ás- geirsson í Kúnigúnd hefðu blásið í lúðra í tilefni dagsins á góðri stund. Það gera þeir síðar þegar þróuninni í gamla miðbænum hefur verið snúið við og hann er að nýju iðandi af mannlífi. Um miðjan nóvembermánuð á leið úr Landsbankanum um Póst- hússtræti, að morgni dags, leit ég sem snöggvast í glugga í Galleríinu og mér var bent á að ganga inn- fyrir. Það var kalt úti, sjö stiga frost og gott að koma inn í hlýjuna. Maðurinn var kominn í símann þegar ég gekk inn í salinn og af því hvernig hann talaði og útskýrði hin flóknu Iögmál viðskiptalifsins varð mér ljóst að þar var enginn viðvaningur á ferðinni. Þegar hann kom fram á skörina í Galleríinu með símann í hendi og ég horfði í áttina til hans neðan úr salnum sá ég að þar var kominn Úlfar Þormóðsson, sá er veitir Galleríinu forstöðu, kunnur athafnamaður og þúsundþjalasmiður, fyrrverandi ritstjóri Spegilsins og frímúrara- hrellir. Hann var að hella upp á niðri í kjallaranum og bauð mér í kaffí, við höfðum vitað hvor af öðrum síðan í barnaskóla í Kefla- vík fyrir um það bil þrjátíu árum. Stundin þarna í kjallaranum var skemmtileg og ég vil nota tækifær- ið og þakka fyrir kaffið, það var rótsterkt og bragðgott. Úlfar Þor- móðsson dró út nokkra rekka fulla af málverkum. Líklega á þriðja hundrað málverka voru þarna í kjallaranum { Pósthússtræti og myndir t.d. eftir meistara Kjarval, Gunnlaug Scheving, Ásgrím, Erró og fleiri kunna málara og Úlfar spjallaði um list þeirra eins og hann hefði þekkt þá persónulega árum saman og margt af því var fróðlegt. Hann fór eiginlega yfir allt safnið á milli þess sem við drukkum kaffið og spáðum í hver ungu myndlistarmannana sem þarna eiga einnig myndir verði fyrstur til að öðlast frægð. Gallerí Borg er smekklegur sýningarsalur í miðborg Reykjavíkur, staður sem setur svip á umhverfið og er þarna á réttum stað, menningin þarf auðvitað að blómstra eins og versl- unin, nú eða bankarnir. Miðborg Reykjavíkur hefur vissulega sinn sjarma þrátt fyrir að ekki sé sami svipurinn yfir umhverfinu og var t.d. fyrir um það bil tuttugu árum þegar „rúnt- urinn" var enn til og unga fólkið ók um í nýtísku tryllitækjum. Ás- geir Hannes, Guðlaugur Berg- mann og félagar ætla að snúa þró uninni við og blása nýju lífi í gamh miðbæinn og er það vel. Ótrúleg; margir sem eru á ferli í miðborg inni eiga erindi í banka í margs konar erindum. Um daginn hitti é| mann sem ég hef lengi þekkt o| var einmitt á leið í banka og uppú úlpuvasa stóð stórt og mikið brún umslag. Ég spurði svona af for vitni; Egilsstadin Hreppsnefnd heiðrar fyrrum sveitarstjóra Kgílsxtoóum, 30. nóvember. EINS og kunnugt er lét Guðmundur Magnússon af störfum sveitarstjóra Egilsstaðahrepps síðastliðið vor og í tilefni þess efndi hreppsnefnd Egils- staðahrepps til hófs f Valaskjálf í gær til heiðurs Guðmundi þar sem velflestir samstarfsmenn hans í gegnum tíðina voru komnir saman ásamt hreppsnefndarmönnum. Guðmundur Magnússon er fæddur 6. desember 1922 á Hjart- arstöðum í Eiðaþinghá. Hann stundaði nám í Alþýðuskólanum á Eiðum 1938—40 og síðan við Bú- fræðiskólann á Hólum. Sveinsprófi í múraraiðn lauk Guðmundur frá Iðnskólanum f Reykjavík 1950 og handavinnukennaraprófi frá Handíðaskólanum 1951. Guðmundur fluttist til Egils- staða árið 1951 og starfaði sem kennari hér allt til ársins 1972 er hann hóf störf hjá sveitarfélaginu sem framkvæmdastjóri og oddviti — en gerðist síðan sveitarstjóri þegar til þess starfs var stofnað árið 1974 — og gegndi því óslitið til síðastliðins vors er hann komst á eftirlaunaaldur. Guðmundur sat löngum í sveitarstjórn og oddviti var hann á árunum 1966—1974. Oddviti Egilsstaðahrepps, Sveinn Þórarinsson, þakkaði Guð- mundi vel unnin störf í þágu sveit- arfélagsins og færði honum að gjöf frá sveitarfélaginu Kjarvalsbækur Indriða G. Þorsteinssonar. Þá færði hann Aðaldísi Pálsdóttur, eiginkonu Guðmundar, veglegan blómvönd. Fyrrum oddvitar, Erl- ing Garðar Jónasson og Magnús Einarsson, tóku til máls og þökk- uðu Guðmundi ánægjulegt sam- starf á árum áður. Fleiri gestir í Morgunblaðið/ölafur Guðmundur Magnússon ásamt eiginkonu sinni, Aðaldísi Pálsdóttur, og oddvíta Egilsstaðahrepps, Sveini Þórarins- syni. heiðurshófi þessu tóku ennfremur til máls, Ásdís Sveinsdóttir, Sigfús Árnason og Sveinn Jónsson. Nærri mun láta að 50 manns hafi setið hófið — allt samstarfs- menn Guðmundar á einn eða annan hátt á þeim árum sem hann var í forsvari fyrir Egilsstaða- hrepp. Eftirmaður Guðmundar á sveit- arstjórnarstóli er Sigurður Símon arson. — Ólafur Öryggislykill sparifjáreigenda ítv€RZLUNflRBflNKINN -vúuuvi me& frén f AUK hf 43 87
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.