Morgunblaðið - 16.11.1985, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR16. NÓVEMBER1985
Bíllinn stöðvaðist á hamrabrúninni:
Ertu lifandi?
— spurðu báðir í einu
Akureyri, 13. nóvember.
TVEIR sölumenn, Magnús Krist-
insson og Kristinn Helgason, urðu
fyrir þeirri reynslu um hádegisbilið
í dag, að vera í bíl sem lenti út
af veginum í Ólafsfjarðarmúla og
kastaðist á annað hundrað metra
niður snarbrattar skriður. Bfllinn
stöðvaðist áður en hann kom fram
á brún sjávarhamra og hengiflugs.
Þá félaga sakaði Iftið sem ekkert,
enda báðir í bflbeltum.
„Við vorum á leið til Siglu-
fjarðar á Subaru-fólksbíl með
drifi á öllum hjólum,” sagði
Magnús Kristinsson í samtali við
Morgunblaðið í kvöld. „Færð var
ágæt og engin hálka alla leið frá
Akureyri og út fyrir Dalvík, en
þegar við komum í beygju sunn-
arlega í Múlanum seytlaði vatn
þar þvert yfir veginn og myndaði
glæru og flughálku á parti. Ég
fann að bíllinn tók að snúast og
varð það ósjálfrátt fyrir, að stíga
á hemlana. Það hefði ég vitan-
lega ekki átt að gera, því að við
það missti ég alla stjórn á bíln-
um.
Hann rann nokkurn spöl eftir
veginum, en síðan utan í vegar-
brúnina og barst kippkorn eftir
henni. Þá mun ég hafa sveigt
stýrið til svo að bíllinn ylti ekki
þannig að hann stefndi nú beint
ofan brekkuna og niður snar-
brattar skriðurnar. Víða er
árennilegra að vera í stjórnlaus-
um bíl en í ólafsfjarðarmúla svo
að við ætluðum að reyna að losa
bílbeltin og fleygja okkur út. Það
voru víst fremur óhugsuð við-
brögð en skynsamleg ákvörðun,
en til allrar hamingju vannst
okkur enginn tími til þess. Bíll-
MorRunbladid/Sv.P.
Magnús Kristinsson
inn stefndi með ofsahraða beint
niður á hamrabrúnina, steytti á
einhverri hindrun og enda-
stakkst yfir sig, en með svo
miklum krafti, að toppurinn kom
ekki niður. Bíllinn kom aftur
niður á hjólin og endastakkst enn
á sama hátt og áður, fór hring í
loftinu. Annars hefði hann lagst
saman og við orðið að klessu. Við
sáum hengiflugið nálgast og
endalokin blöstu við. En skyndi-
lega snarstansaði bíllinn, skorð-
aðist niður í skriðuna og fór ekki
lengra, brotinn, skekktur og
skældur.
„Ertu lifandi?" spurðum við
báðir í einu. Jú, við vorum báðir
snarlifandi, en máttfarnir eftir
hræðsluna, að minnsta kosti ég.
Það sem meira var, við vorum
næstum alheilir. Kristinn var
með smáskrámu á enni og aumur
í olnboga, en ég með smáskeinu
á hvirfli, eftir að hafa rekist í
spegilinn, og svo fæ ég sennilega
dávænt glóðarauga. En þetta eru
smámunir. Ég er sannfærður um
að bílbeltin björguðu okkur. Ef
við hefðum ekki verið með þau
spennt hefðum við áreiðanlega
kastast út úr bílnum, einhvern
staðar á leiðinni niður skriðurn-
ar því að hurðirnar voru að
opnast og skellast aftur í sífellu.
Að minnsta kosti fundum við
veskið hans Kristins utan við
bílinn.
Eftir að hafa jafnað okkur
svolítið bröltum við upp skrið-
urnar aftur og upp á veginn og
gengum í átt til Dalvíkur í norð-
vestan garra. Eftir um hálfs
kílómetra göngu komum við í
skýli Slysavarnafélags íslands
við veginn og gátum gert vart
við okkur þaðan. Eftir það þurft-
um við ekki að bíða lengi eftir
Dalvíkurlögreglunni, sem veitti
okkur nauðsynlega aðstoð.
En ég skil ekki enn hvers vegna
bíllinn stöðvaðist skyndilega
þarna i skriðunni. Þar var engin
sýnileg fyrirstaða og aðeins svo-
lítill spölur ófarinn niður að
hamrabrúninni. En við vorum
víst ekki feigir," sagði Magnús
Kristinsson.
Metsölubfað á hverjum degi!
ÞESSI mynd var tekin á Alþingishátíóinni á Þingvöllum árið 1930, og sýnir
þrjá meólimi svonefndrar Þingvallalögreglu, sem var sérstök sveit lögreglu-
manna, skipuó fyrir Alþingishátíðina. Ekki vitum við nöfn mannanna þriggja,
en Svavar G. Jónsson lögregluflokksstjóri biður þá sem gefið gætu upplýsing-
ar um það að hafa samband við sig, og einnig þá sem hafa undir höndum
lögreglubúninga eða muni sem tengjast lögreglunni.
Sýning á lögreglumunum í tilefni 50 ára
afmælis Lögreglufélags Reykjavíkur:
Oskað eftir búningum
og öðrum lögreglumunum
LÖGREGLUFÉLAG Reykjavíkur
verður 50 ára 16. desember næst-
komandi og í tilefni af afmælinu
verður haldin sýning á búningum og
ýmsum munum sem tengjast lögregl-
unni, að Hótel Loftleiðum dagana
6. til 16. desember næstkomandi.
„Við erum að reyna að komast
í samband við fólk sem á gamla
lögreglubúninga eða muni sem
tengjast lögreglunni fyrir þessa
sýningu," sagði Svavar G. Jónsson
lögregluflokksstjóri í samtali við
Mbl. nú á dögunum, en Svavar
skipuleggur sýninguna ásamt
Kristjáni Kristjánssyni lögreglu-
flokksstjóra. “Ókkur þætti mjög
vænt um að fólk sem hefur undir
höndum einhverja slíka muni,
hefði samband við okkur, því ætl-
unin er að hafa sýninguna sem
viðamesta. Annars fáum við stórt
safn erlendra búninga og muna
frá Edoard Kries lögreglumanni í
Lúxemborg, en hann hefur um
nokkurra ára skeið safnað munum
sem á einhvern hátt tengjast lög-
reglunni. Þannig var að Edoard
þessi var staddur hér á landi fyrr
á þessu ári og bauð þá lögreglufé-
laginu safn sitt að láni fyrir þessa
sýningu. Við fáum því frá honum
um 700 lögregluhúfur og um 50
búninga, en auk safns Edoards
verður uppistaðan I sýningunni
íslenskir búningar."
Er einhver íslenskur búningur
öðrum merkari?
„Það er nú erfitt að gera upp á
milli þessara muna, því allir eru
þeir merkilegir og allir eiga þeir
sína sögu,“ segir Svavar. „Annars
má geta þess að við erum meðal
annars með búning og merkilegt
höfuðfat, ásamt korða sem til-
heyrði Jóni Hermannssyni sem var
fyrsti eiginlegi lögreglustjórinn í
Reykjavík, en hann var settur í
embætti árið 1918.“
ÞU
LEGGUR
AFSTA
í flugferð er ströngum öryggisreglum fylgt og öll siglingatæki yfirfarin og kannað hvort þau
eru í fullkomnu lagi.
Einnig er öllum farþegum bent á hvar björgunarvesti og gúmmíbjörgunarbátar eru geymd.
REYNSLAN SÝNIR AÐ EKKERT KEMUR ( VEG FYRIR SLYS Á SJÓ NEMA
ÁRVEKNI, DÓMGREIND OG KUNNÁTTA SJÓMANNA SJÁLFRA.
öryggismAlanefnd sjómanna
midas