Morgunblaðið - 11.05.1984, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1984
Lárus búinn að skrifa
undir tveggja ára samning
við þýska iiðið Uerdingen
— Ég er mjög feginn því aö
mín mál eru loksins komin á
hreint. Ég er búinn aö skrifa undir
tveggja ára samning viö 1. deild-
ar liðiö Bayer Uerdingen. Ég er
mjög ánægður meö alla þætti
samningsins sem að mér snúa og
get ekki sagt annaö en aö ég
hlakki til þess aö byrja meö
v-þýska 1. deildar liöinu. En ég
geri mér jafnframt Ijóst aö þaö
veröa geröar miklar kröfur til
mín. Það kom fram í samninga-
viðræðunum. Þannig að maöur
veröur aö leggja sig allan fram
viö aö standa sig sem best, sagöi
Lárus Guömundsson í gærkvöldi,
en þá var hann búinn aö ganga
frá öllum málum sínum varðandi
nýjan tveggja ára samning viö
Bayer Uerdingen.
Eins og Mbl. var búiö að skýra
frá þá voru tvö fólög á eftir Lárusi,
Bayer Uerdingen og Standard
Liege. Um tíma stóöu málin þannig
aö Standard bauð betur en Uerd-
ingen og því var pressa á Lárusi aö
fara þangaö. En síöan skipuðust
veöur í lofti og Standard gat ekki
selt leikmenn þá sem lentu í mútu-
málinu og hlutu dóm. En Uerding-
Siglingamenn
hef ja keppni
SIGLINGAMENN eru sem óöast
aö pússa ryk af bátum og
seglbrettum eftir geymslu vetr-
arins. Einnig eru þeir sem smíö-
aö eöa keypt hafa nýjar fleytur í
kappi viö tímann aö koma þeim
á réttan kjöl og ýta frá landi.
Þaö er oröin hefö aö Siglinga-
klúbburinn Vogur í Garöabæ
haldi „opnunarmót hvers keppn-
istímabils". Opnunarmótið 1984
verður haldiö nk. laugardag 12.
maí og hefst meö keppni kjöl-
báta kl. 10 f.h. Eftir hádegi, kl.
14.00 veröur keppni í kænu-
flokki, en aö henni lokinni verður
keppni á seglbrettum. Keppnin
veröur haldin á Arnarnesvog en
brautir lagöar út á Skerjafjörö,
jafnvel verður braut fyrir kjölbáta
lögö fyrir Seltjarnarnes inn aö
Viöey. Oft hefur „kænu-braut"
verið lögö inn á Lambhúsatjörn.
Aö lokinni keppni eru hátíöa-
höld í húsnæöi Siglingaklúbbsins
Vogs viö Ránargrund. Boðiö
veröur upp á veitingar, sem fé-
lagar í Vogi bjóöa fram, en árleg
þátttaka í móti og hátíö hefur
veriö mjög mikil og góöur félags-
andi einkennt allt samstarf sigl-
ingamanna.
• Lárus Guömundsson leikur
næsta keppnistímabil með 1.
deildar liöinu Bayer Uerding-
en í V-Þýskalandi. En meðal
félaga sem vildu fá hann í sín-
ar raðir voru lið á Ítalíu og í
Belgíu.
en vildi ekki missa af Lárusi,
hækkaöi tilboö sitt og náöi sam-
komulagi viö Watershcei. Eftir aö
félögin voru búin aö ná samkomu-
lagi um söluverð gekk Lárus tíl
samninga.
Bayer Uerdingen kaupir Lárus
frá Watershcei fyrir 850 þúsund
v-þýsk mörk, eöa um 8,5 milljonir
íslenskra króna. Mun Lárus fá ein-
hvern hluta af þessari upphæð í
sinn hlut, en ekki vildi hann segja
neitt til um þaö i gær hversu stór
hann væri.
— Þaö var reyndar eitt lið í
millitíöinni sem vildi fá mig og kom
inn í myndina. Þaö var 1. deildar
liöið Avellino frá Suöur-Ítalíu. Þaö
vildi gera viö mig samning, en
þrátt fyrir aö miklar peningaupp-
hæöir væru í boöi, mun meiri en í
boöi Uerdingen, þá fanst mér það
ekki vera nægilega traustvekjandi
tilboö. Peningarnir eru nú ekki
einu sinni allt í þessu. En þaö er
alveg ótrúlegt hversu vel stæö
peningalega ítölsku félögin viröast
vera. Tilboö þeirra eru engu lík,
sagöi Lárus.
Tilboö þau sem Lárus hefur
fengiö að undanförnu sýna aö
hann hefur veriö undir smásjánni
hjá ýmsum félögum enda búa
miklir hæfileikar í þessum 22 ára
gamla knattspyrnumanni sem von-
andi fá aö njóta sin til fulls í hinni
höröu v-þýsku deildarkeppni á
næsta keppnistímabili.
— ÞR.
• Guðrún F. Ágústsdóttir
• Vésteinn Hafsteinsson
• Þórdís Gísladóttir
• Bjarni Friðriksson
BijnrnmHnwfRi
nMfla
Islandsmeistarar FH
• Handknattleiksliö FH í 3. aldursflokki stúlkna varð íslandsmeistari á islandsmótinu sem lauk í lok apríl.
FH-stúlkurnar voru mjög sigursælar á keppnistímabilinu enda með sterkt liö. í úrslitakeppninni í þriöja
flokki tapaöi lið þeirra engum leik. Sigraði í fimm leikjum og geröi tvö jafntefli. Markatalan var 40-14 þeim
í hag og sýnir vel hversu mikla yfirburði liöiö hafði. Myndin hér að ofan er af íslandsmeisturunum í mótslok.
• íslandsmeistarar FH í þriöja aldursflokki kvenna í handknattleik. Efri röö frá vinstri: Ósk Sigurgunnars-
dóttir, Guöný Danivalsdóttir, Sandra Antonsdóttir, Björk Sigurjónsdóttir, Erla Magnúsdóttir, Berglind
Hreinsdóttir, Elín Margrét Guðmundsdóttir, Elfa Jónsdóttir. Neðri röð frá vinstri: Guðrún Ögmundsdóttir,
Soffía Dögg Halldórsdóttir, Brynja Brynjarsdóttir, Helga Sigurðardóttir, Elíasbet Markúsdóttir, Margrét
Andrésdóttir, Anna Birna Jónsdóttir. Þjálfari stúlknanna var hin kunna handknattleikskona Kristjana
Aradóttir.
ítalska 1. deildar liöiö Avelino gerði Lárusi tilboð: