Morgunblaðið - 11.05.1984, Qupperneq 15
MOBGU^BIwVÐ^'B'OSTiWAUV'Rll^AÍ^, -
Símamynd AP
Nýir flóðgarðar í Tempsá
Elísabet Englandsdrottning vígði í fyrradag nýja og umfangsmikla
flóðgarða í Tempsá í Lundúnum, en garðar þessir eiga að hindra
flóð í borginni um alla framtíð. Nýju flóðgarðarnir eru tíu tröllauk-
in flóðhlið úr steinsteypu og nam kostnaður við byggingu þeirra 450
milljónum sterlingspunda, sem er jafnvirði tæplega 19 milljarða
ísl. króna.
Einvígi Karpovs og Kasparovs:
Hefst í Moskvu
10. september
Loearno, 10. maí. AP.
MOSKVUBORG bar fram eina til-
boðið um að halda heimsmeistara-
einvígið í skák, sem fyrirhugað er að
fram fari í september milli heims-
meistarans Anatoly Karpovs og
áskorandans Garry Kasparovs.
Frestur til þess að koma fram með
tilboð í einvígishaldið rann út í dag.
Gert er ráð fyrir, að Campom-
anes, forseti FIDE, Alþjóðaskák-
sambandsins, muni samþykkja
þetta tilboð sjálfkrafa, en hann
hafði áður ákveðið, að einvígið
skyldi hefjast 10 september nk. f
tilkynningu frá FIDE segir, að
verðlaunafé verði greitt „í sam-
ræmi við reglur FIDE“.
Samkvæmt því ber þeim, sem
einvígið heldur, að leggja fram 1
millj. svissneskra franka í verð-
laun (um 13 millj. ísl. kr.). Sigur-
vegarinn fær 5/8 verðlaunafjárins
en sá sem tapar 3/8. Þeir Karpov
og Kasparov hafa nú þrjár vikur
til þess að koma sér saman um
einvígisdómara, sem valinn verður
af lista, er FIDE sendir þeim.
Komi þeir sér ekki saman um
dómara, hefur Campomanes vald
til þess að ákveða hann.
Bretland, Venesúela og Ítalía
höfðu sýnt mikinn áhuga á að
halda einvígið, en komu þó ekki
fram með tilboð, segir í tilkynn-
ingu FIDE.
Alþjóðadómstólliiw f Haag:
Bandaríkjamenn hætti
að leggja tundurdufl
við strönd Nicaragua
Haag, 10. maí. AP.
Alþjóðadómstóllinn í Haag kvað í
dag upp þann úrskurð að Banda-
ríkjamenn ættu að hætta sérhverjum
þeim aðgerðum sem verði til þess að
takmarka eða stöðva samgöngur til
Nicaragúa, þ.á m. lagningu tundur-
dufla við hafnir eða fyrir utan
strendur landsins.
Bandaríkjamenn halda því fram
að dómstóllinn hafi ekki lögsögu
um ákæru stjórnar Nicaragúa frá
9. apríl, en þar eru Bandaríkja-
menn sakaðir um vopnaða árás
sem miði að því að steypa stjórn
landsins. í úrskurbinum í dag felst
að dómstóllinn neitar að fallast á
þessa skoðun Bandaríkjastjórnar.
Carlos Arguello, sendiherra
Nicaragúa í Hollandi, hefur fagn-
að úrskurðinum og segir hann
„siðferðilegan sigur" fyrir stjórn
sandinista i Managúa.
Deila Hondúras og Nicaragúa magnast:
Sendiherra Hondúras í
Managúa kallaður heim
Managúa, 10. maí. AP.
RÍKISSTJÓRN Hondúras hefur
kvatt sendiherra sinn í Nicaragúa
heim og hótað að slíta stjórnmála-
og viðskiptasambandi landanna í
kjölfar þess að hermenn stjórnar-
liðsins í Nicaragúa skutu í gær
niður þyrlu frá Hondúras skammt
frá hafnarbænum Potosi við Fons-
ecaflóa.
Um borð í þyrlunni voru átta
manns, þar af þrír óbreyttir
borgarar, og létust þeir allir.
Utanríkisráðherra Nicaragúa
segir að þyrlan hafi verið á
ólögmætu flugi í lofthelgi lands-
ins, en yfirvöld í.Hondúras segja
að hún hafi verið á venjulegu
eftirlitsflugi í grennd við flota-
stöð Hondúrasmanna í Fonseca-
flóa og sterkir vindar hafi hrak-
ið hana yfir landamæri Nicar-
agúa. Þau segja að stjórnvöld í
Nicaragúa hafi ekki gefið full-
nægjandi skýringu á því af
hverju þyrlan var skotin niður
og benda á að engin vopn hafi
verið um borð.
Herstjórnin í Nicaragúa
fyrirskipaði hernum í dag að
SENDINEFND stjórnar Swazi-
lands kom í dag til Höfðaborgar í
Suður-Afríku til viðræðna við stjórn
landsins, sem miða að því að
treysta frið og öryggi í sunnanverðri
Afríku. Þá fór sendinefnd frá
Suður-Afríku í dag í sama augna-
miði til Mósambik til að ræða við
stjórnvöld þar.
Talsmaður utanríkisráðuneyt-
isins í Jóhannesarborg sagði að
vera í viðbragðsstöðu og segja
heimildir AP að það sé vegna
ótta við að þyrlumálið kunni að
leiða til ókyrrðar á landamær-
um Nicáragúa og Hondúras.
fyrirhugaðar væru viðræður við
stjórnvöld í Lesotho og Bots-
wana, en dagsetningar þeirra
hefðu ekki verið ákveðnar.
Friðarhorfur í sunnanverðri
Afríku hafa mjög aukist eftir að
stjórn hvítra manna í Suður-
Afríku og stjórnir marxista í
Angóla og Mósambik gerðu með
sér friðarsamkomulag og griða-
sáttmála í febrúar sl.
Friðarviðræður í
sunnanverðri Afríku
JóhannesarborK, 10. maí. AP.
%
1984
%
HJ0LAÐ I ÞAGU ÞEIRRA
SEM GETA EKKI HJÓIAÐ
Mæting kl. 12 í eftirtöldum skólum þar sem lögregla skoðar hjólin:
Melaskóli, Hvassaleitisskóli, Hlíðarskóli, Langholtsskóli, Réttarholtsskóli, Laugarnes-
skóli, Breiöholtsskóli, Árbæjarskóli, Fellaskóli, Kópavogsskóli og Kársnesskóli.
Lagt veröur af stað kl. 13.30 og hjólað að Lækjartorgi.
Þeim börnum sem óska verður séö fyrir fari heim.
Utihátíð á Lækjartorgi.
Allir krakkar fá Coke, Frón- og Holtakex.
Icebrakers dansar.
Alli og Olli skemmta.
Skólahljómsveit Kópavogs leikur.
Lúðrasveit Laugarnesskóla leikur.
Fimleikaflokkur frá Gerplu sýnir.
Viö hvetjum ykkur enn til að taka tillit til hjólreiðafólksins sem
Varmárskóli Mostellssveit
Mæting í Reykjadal, Reykjum, Hlíöartuni, Shell- og Olís-bensínstöövum.
Lagt af stað kl. 14.00.
Viö Varmárskóla veröur á dagskrá m.a. leikur skólahljómsveitar, hjólreiöarþrautír,
boðhlaup o.fl.
Barnakórinn hefur til sölu heitar pylsur og gos í anddyri skólans.
JltotgttiiMjiMfe
G()dan daginn!