Morgunblaðið - 11.05.1984, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1984
11
Egilsstaöir:
Fagnaðarlæti á tónleikum
EgilsKtöðum, 5. maí.
FYRSTU áskriftartónlcikar Tón-
listarfélags Fljótsdalshéraös á ný-
byrjuðu starfsári þess voru í Vala-
skjálf 1. maí. I>ar komu fram tveir
ungir og efnilegir listamenn, Krist-
inn Sigmundsson bariton og Jónas
Ingimundarson píanóleikari. Var
þeim forkunnarvel tekið og fagnað-
arlæti áheyrenda mikil — enda
vart við öðru að búast.
Á efnisskránni voru margir
hugljúfir ljóðasöngvar — sem
ýmsir snillingar ljóðasöngsins, s.s.
John McCormack, hafa hafið til
fagurbókmennta. Má í því sam-
bandi nefna Maí-nótt eftir
Brahms, en auk þess fluttu þeir
félagar ljóðasöngva eftir Strauss,
Schubert og Beethoven. Þá vöktu
ensk þjóðlög í smellinni útsetn-
ingu Benjamins Britten verð-
skuldaða athygli áheyrenda. Á
efnisskránni voru einnig tvær arí-
ur — úr óperunum Tannháusar
eftir Wagner og Ástardrykknum
eftir Donizetti. Fulltrúar ís-
lenskra tónskálda á efnisskrá
þeirra félaga voru þeir Sveinbjörn
Sveinbjörnsson og Árni Thor-
steinsson. Þeir Kristinn og Jónas
þurftu að flytja mörg aukalög og
var sem áheyrendur ætluðu helst
ekki að sleppa þeim af sviðinu.
Húsfyllir var á þessum tónleik-
um.
Um kvöldið héldu þeir félagar
til tónleikahalds á Seyðisfirði —
og er vitað að nokkrir áheyrenda
eltu þá þangað til að fá meira að
heyra.
— Ólafur
Jónasi Ingimundarsyni og Kristni Sigmundssyni vel fagnað á Egilsstöðum.
Þérerboðiðá
fhimsýningu á 40 ára gamalli
Reykjavíkurkvikmýiid
í tilefni 40 ára afmælis Almennra Trygginga hf. þann 11. maí 1983 samþykkti stjórn
félagsins, aö láta endurgera og bjarga 40 ára gamalli Reykjavíkurkvikmynd sem
Loftur Cuömundsson Ijósmyndari tók, en haföi ekki lokið viö er hann lést.
Talið var aö myndin ónýttist, yröi ekkert aö gert.
Ressu umfangsmikla verki er nú lokið og fyrir dyrum stendur sýning
kvikmyndarinnar, sem er stórmerk heimild um bæjarlífið í Reykjavík, einmitt á þeim
tímum sem hlutafélagiö AlmennarTryggingar var stofnaö.
Stjórn félagsins er því sérstök ánægja aö bjóöa öllum sem áhuga hafa, aö sjá
myndina en hún hefur ekki komiö fyrir almenningssjónir fyrr en nú,40 árum síðar.
Fyrsta almenna sýning hennar veröur í Austurbæjarbíói, sunnudaginn 13. maí
kl. 14:00, og önnur sýning, sunnudaginn 20. maí á sama tíma.
Aðgangurer ókeypis og öllum heimill, meöan húsrúm leyfir.
...tíl almannaheilla í fjörutíu ár
ÆfTntgimíT?
TRYGGINGAR