Morgunblaðið - 11.05.1984, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1984
8
Sjálfstæöisflokkur-
inn og húsnæðismálin
— eftir Friðrik
Friðriksson
Hart er deilt á mannamótum
og langhundar eru settir á í blöð-
um um réttarstöðu félagasam-
taka sem byggja leiguíbúðir. Á
alþingi er deilt um túlkun á 33.
gr. frumvarps til laga um Hús-
næðisstofnun ríkisins, en sú grein
skilgreinir hvaða aðilar eigi rétt
á lánum úr Byggingarsjóði verka-
manna. Mikið er í húfi, hags-
munalega séð fyrir marga. Ef
félagasamtök sem byggja leigu-
íbúðir, s.s. Búseti, fá lán úr Bygg-
ingarsjóði verkamanna er verið
að tala um 80% verðtryggð lán til
42 ára með 'h % vöxtum.
Ef félög eins og Búseti falla á
hinn bóginn utan við verka-
mannabústaðakerfið þurfa þeir
að sæta kjörum hins almenna
húsnæðislánamarkaðar, þar sem
iánin eru nú tæplega 30%, til 26
ára, verðtryggð með 2,5% vöxt-
um.
Stefna Sjálf-
stæðisflokksins
Grundvallarstefna Sjálfstæðis-
flokksins í húsnæðismálum er sú,
að sérhverri fjölskyldu verði gert
kleift að eignast og búa í eigin
húsnæði. Aðgerðir allra vinstri
stjórna á Islandi hafa verið and-
stæðar þessari stefnu. Stefna fé-
lagsmálaráðherra síðustu ríkis-
stjórnar var að knýja ungt fólk
til þess að leita á náðir ríkiskerf-
isins. Dregið var verulega úr lán-
um til þeirra er vildu kaupa eða
byggja sjálfstætt og fólki beint
inn í hið svokallaða félagslega
kerfi. Það er stefna Sjálfstæðis-
flokksins, að lán til þeirra ein-
staklinga sem eignast íbúð í
fyrsta sinn verði í áföngum
hækkuð í 80% af kostnaðarverði,
og lánstími lengdur, hvort sem
um er áð ræða nýbyggingu eða
kaup á eldra húsnæði.
í tíð núverandi ríkisstjórnar
hafa spor verið stigin í þessa átt.
Hin almennu lán Byggingarsjóðs
ríkisins hafa hækkað úr 19,7% í
29,1% af staðalíbúðarverði. Það
er því mikið verk enn óunnið, fólk
bíður of lengi eftir afgreiðslu
lána, allt lánið kemur til útborg-
unar á of löngum tíma. Þetta þarf
að bæta og Sjálfstæðisflokkurinn
leggur höfuðáherslu á, að til þess
að ofangreint meginmarkmið ná-
ist þurfi umfram allt að bæta
fjárhag Byggingarsjóðs ríkisins.
Einungis á þann hátt verður
lánshlutfall til húsnæðismála
hækkað og afgreiðslu flýtt.
Ef t.a.m. Búseta er hleypt inn í
hið félagslega kerfi gerist annað
tveggja: Að færri verkamannabú-
staðir eða húsnæði á almennum
markaði verður byggt á meðan.
Tökum fyrra tilvikið. Að því
gefnu að peningarnir spretta ekki
á trjánum munu 100 nýjar Bú-
setaíbúðir fela í sér að 100 færri
íbúðir eru byggðar í verkamanna-
bústöðum. Vilja menn það?
Hitt tilvikið leiðir til svipaðrar
niðurstöðu að því gefnu að fram-
lög til Byggingarsjóðs verka-
manna verði óskert, þrátt fyrir
Búseta. Þá kemur þessi viðbót
niður á hinu almenna kerfi. Það
vill segja, að hækkað lánshlutfall,
sem er okkar markmið, næst
seinna, tafirnar á afgreiðslu lán-
anna lengjast. Getur flokkur
einkaframtaks og eigin húsnæðis
staðið að lagasetningu sem hyglir
einum aðila á kostnað annars, á
kostnað einstaklinganna sem
vilja eignast eigið húsnæði? Nei.
Og það er af þessum sökum sem
Sjálfstæðisflokkurinn skapar sér
sérstöðu innan þingsins við af-
greiðslu þessa frumvarps.
Tvö kerfi í stað þriggja
Við höfum tvö kerfi í húsnæðis-
málum í dag. Hið almenna lána-
kerfi Byggingarsjóðs ríkisins og
Byggingarsjóð verkamanna. Til
þess að njóta sérkjara Bygg-
ingarsjóðs verkamanna verða
umsækjendur að uppfylla tvö
meginskilyrði. Tekjumörk eru til-
tekin og umsækjandi má ekki
eiga íbúð fyrir. í lögum Búseta er
Friðrik Friðriksson
„Grundvallarstefna
Sjálfstæðisflokksins í
húsnæðismálum er sú,
að sérhverri fjölskyldu
verði gert kleift að eign-
ast og búa í eigin hús-
næði.“
ekki að finna ákvæði af þessu
tagi. M.ö.o. félagar í Búseta geta
bæði verið hátekjumenn og íbúð-
areigendur. Ef Búseti fær aðgang
að útsölufjármagni úr Bygg-
ingarsjóði verkamanna opnast
allar flóðgáttir og kerfin verða
þrjú í stað tveggja. Þá geta í raun
hverjir sem vilja stofnað með sér
svipuð félög og fallið undir hið
félagslega kerfi, alþingismenn
jafnt sem kennarar, ungir sjálf-
stæðismenn jafnt sem ungir
framsóknarmenn. Er ekki nær að
efla kerfin tvö sem fyrir eru og
efna loforðin um að kjörin á al-
mennum lánum Byggingarsjóðs
ríkisins batni.
Búseti á fullan rétt
á sér, en ...
f sjálfstæðisstefnunni felst
frelsi til að velja um gerð hús-
næðis jafnt öðru. Sigtúnshópur-
inn sem hávær var sl. haust var
hópur húsbyggjenda, hann krafð-
ist hærri lána í hinu almenna
kerfi í samræmi við kosningalof-
orð stjórnarflokkanna. Búseta-
hópurinn sem nú er hávær krefst
aðildar og aukinna framlaga til
hins félagslega kerfis. Hann vill
láta lögbinda mismunun sér til
handa og maður spyr: Hvar er
Sigtúnshópurinn nú?
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
ekki snúist gegn Búseta. Hann
styður framtak fólks og sjálfs-
bjargarviðleitni, en ekki á kostn-
að annarra. Sjálfstæðisflokkur-
inn vill að kerfin verði tvö, al-
mennt kerfi og félagslegt kerfi.
Búseti verður að ganga til þessa
leiks samkvæmt sömu leikreglum
og aðrir, mismunun ber ekki að
líða.
Með jafnri aðstöðu og aðgangi
að fjármagni kemur í ljós hverjir
vilja búa í eigin húsnæði og
hverjir vilja leigja. Þá er ég viss
um að margir munu velja Búseta-
fyrirkomulagið, frjálst val án
mismununar. Á þessu grundvall-
ast afstaða Sjálfstæðisflokksins á
túlkun 33. gr. frumvarpsins um
Húsnæðisstofnun ríkisins. Frá
þeirri afstöðu verður ekki hvikað.
Friðrik Frióriksson er fram-
kræmdastjóri þingflokks sjálf-
stæóismanna og 1. raraformaður
Sambands ungra sjilfstæðis-
manna.
Sverrir Kristjánsson
Hús Verslunarinnar 6. hæö.
Logm Hafsteinn Baldvinsson hrl. )
Engihjalli — 4ra herb.
Til sölu ca. 100 fm ibuö á 7. hæö. Skipti
á 2ja—3ja herb. ibúö i austurbæ koma
mjög vel til greina.
3ja herb. íbúöir
Háaleitisbraut
Til sölu 127 fm 4ra herb. íbúö á 4. hæö. Rúmg. innb. bílskúr. Stórar suöursvalir.
Mikiö útsýni. íbúöin í mjög góöu ástandi. Ákv. sala.
Margar aörar eignir á söluskrá
Einbýli
Heiðvangur Hf. — Einb.
Ca. 290 fm hús á tveimur hæöum ásamt
45 fm bilskúr Á hæöinni er forstofa,
gesta wc., hol, stofa, eldhús, búr. Á
sérgangi er þvottaherb., stórt baö, lín-
herb., 3 svefnherb. í kjallara 3 herb.,
stofa, sauna, geymslur o.ffl. Möguleiki á
séribúö. Til greina kemur aö taka minni
eign uppi.
Vantar — Vantar
Hef kaupanda aö góöu einbýlishúsi i
Reykjavík.
Raðhús
Kjarrmóar — Raðhús
Ca.170 fm fallegt raöhús m. 4 svefn-
herb Utsýni.
Vantar — Vantar
Hef kaupanda aö góöri 5 herb. íb.
eöa hæö innan Elliöaáa.
Bárugata — 3ja herb.
Til sölu nýuppgerö og glæsileg 3ja
herb. ibúö á 1. hæö i steinhúsi. 1.
flokks innr. m.a. á gólfum, flísar,
marmari, parket. Fallega innréttaö
baö og eldhús
Engihjalli — 3ja herb.
Falleg 3ja herb. íbúö á 8. hæö. Tvennar
svalir. Mikiö útsýni.
Langholtsv. — 3ja herb.
Ca. 80 fm jaröh. Laus fljótt.
5 herb. íbúðir
Skipholt — 5 herb.
Góö ibúö á 1. hæö. Suöursvalir. Laus í
ág., sept
Breiðvangur Hf. - 5 herb.
Til sölu 122 fm góö ibúö á 3. hæö.
Suöursvalir. Þvottaherb. og búr innaf
eldhusi. Utsýni. Laus fljótt. Ákv. sala.
Gaukshólar — 5 herb.
135 fm á 4. hæö í lyftuhúsi ásamt bil-
skúr. 4 svefnherb.
4ra herb. íbúðir
Ugluhólar — 4ra herb.
Til sölu mjög rúmgóö 4ra herb. íbúö á 2.
hæö.
Baldursgata — risíbúð
Falleg nýendurb. 3ja herb. ibúö
suöursvalir, arinn í stofu. Laus
fljótlega.
2ja herb. íbúðir
Einstakl.íbúðir við
Álfhólsveg Kóp. og
Lindargötu.
Reykás —
2ja herb. í smíöum
Ca. 80 fm. Afh. tilb. undir tróverk. Verö
1400 þús.
Efstaland — 2ja herb.
Ca. 50 fm jaröhæö Sér lóö. Laus.
Austurberg — 2ja herb.
65 fm 4 hæö suöur svalir. Laus fljótt.
Verö 1350 þús.
Vantar eignir í sölu
I i loíruíiml U
Askrifkirshninn er 83033
Sumar-vetrarbústaður
Vorum aö fá til sðlu óvenju vandaöan bústaö í nágrenni borgarinn-
ar. Um er aö ræða 45 fm bústaö og 19 fm hús sem er smíöastofa,
geymsla og rými fyrir sauna-bað. Stór verönd. 4ra ha eignarland.
Vegna staösetningar er auövelt að stunda vinnu í bænum en njóta
alls þess er sveitin býður upp á. Gæti verið kjöriö fyrir hestamenn.
Verð aöeins 1 millj. sem má greiöa á nokkrum árum.
Fdsteignaþjónustan
Austurstræti 17, s. 26600
Kári F. Guðbrandsson
Þorsteinn Steingrímsson
lögg. fasteignasali.
Raðhús viö Hlíöarbyggö Garöabæ
Vorum að fá til sölu 137 fm vandaö raöhús. Húsiö
skiptist m.a. í rúmgóöa stofu, vandaö eldhús meö
þvottaherb. og búri innaf. 3 góö svefnherb. Vandaö
baöherb. Gesta baö. Innb. bílskúr. íbúöarherb. og
wc. í kjallara. Fallegur garöur. Verð 4 millj.
FASTEIGNA ff
MARKAÐURINN
Oömsgotu 4, simsr 11540—21700.
Jón Guömundss , L*ó E. Lóve lögfr
Ragnar Tómmon hdl.
usava
FLÓKAGÖTU 1
SÍMI24647
i
Snorrabraut
2ja herb. kjallaraíbúö. Ný teppi
á stofu og gangi. Nýr dúkur á
svefnh. Sór geymsla. Eigna-
hlutdeild i þvottah. Laus strax.
Verö 900 þús.
Hveragerði
Raðhús viö Heiðabrún. Tilbúin
undir tréverk og máln. 5 herb.
Bílskúr. Skipti á íbúö í Reykja-
vík kemur til greina.
Einbýlishús
í Vogum á Vatnsleysuströnd 5
herb. 140 fm. Bílskúr 50 fm.
Verötilboð óskast.
Hesthús
í Mosfellssveit fyrir 6 hesta
ásamt hlööu.
Sumarbústaður
Til sölu sem er skammt frá Hálsi
i Kjós, 35 fm. 2 herb. og eldhús.
Lóö 'h hektari.
Holgi Ólafsson,
löggiltur fasteignasali,
kvöidsimi: 21155.
Þú s\rilar lestraiþörf dagsins
Tilboð sem verður ekki endurtekiö
Gildir til 19. maí ’84.
30% staðgreiðsluafsláttur
af öllum vörum verzlunarinnar
ATH:
OPIÐ:
alla daga frá kl. 9—6 laugard. 12.5 og 19.5 opið frá kl. 10—3 e.h.
Tilboðið veröur
ekki endurtekið.
K.M. Húsgögn
Langholtsvegur 111 — Símar 3701 0— 37144 — Reykjavík.