Morgunblaðið - 11.05.1984, Side 1
64 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
106. tbl. 71. árg.
FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Aðstoð ákveðin
við M-Ameríku
Washington, 10. maí. AP.
Reagan Bandaríkjaforseti vann mikilvægan sigur er
fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í kvöld með
naumum meirihluta eins milljarðs dollara hernaðar- og
efnahagsaðstoð við Mið-Ameríkuríki. Einnig felldi
deildin tillögur er hefðu fryst aðstoð til El Salvador þar
til tryggðar hefðu verið úrbætur í mannréttindamálum.
Reagan bað þjóð sína í sjón-
varpi í gærkvöldi um stuðning
við stefnuna í Mið-Ameríku og
tillögur um aðstoð við E1 Salva-
dor, til að koma í veg fyrir að
þar verði komið á „ógnarstjórn
kommúnista".
Karpov
tapaði
London. 10. maí. AP.
KARPOV, heimsmeistari í
skák, gaf biðskák sína gegn
Eugenio Torre frá Filipseyjum
úr 11. umferð alþjóðaskákmóts-
ins í London. Gaf hann skákina
áður en til þess kæmi að þeir
settust að tafli. Þótt tapið sé
túlkað sem áfall fyrir Karpov
nægir honum samt jafntefli til
sigurs í mótinu, sem lýkur á
föstudag.
Reagan sneri sér til þjóðar-
innar þar sem stefna hans hef-
ur mætt andstöðu í þinginu.
Þingmenn spáðu að Reagan
fengi aðeins hluta þess fjár,
sem hann bæði um handa E1
Salvador, og sögðu að vandamál
Mið-Ameríku yrðu ekki leyst
með hernaði.
Reagan varði stefnu sína í E1
Salvador og sagði vinstrisinn-
aða skæruliða, er nytu aðstoðar
Kúbumanna, grafa undan stöð-
ugleika í Mið-Ameríku. Banda-
ríkjamönnum hefði tekist að
koma í veg fyrir að ríkin féllu í
hendur kommúnista, en meira
þyrfti til. Ef ekki yrði spyrnt
við fæti, myndi E1 Salvador og
fleiri ríkjum blæða hægt og ró-
lega út.
Reagan sagði að her E1
Salvador væri ekki nógu vel
vopnum búinn til að kljást við
skæruliða og að óbreyttu mundi
herinn ekki standast sókn
skæruliða og Kúbumanna, er
ráðgerð væri með haustinu.
Nýja ríkisstjórnin í Líbanon á sínum fyrsta fundi í sumarhöll Amins Gemayel forseta. Er þetta í fyrsta sinn sem
leiðtogar hinna ýmsu fylkinga í Líbanon koma saman undir sama þaki í Líbanon frá því borgarastríöið braust út fyrir
niu arum.
AP/Símamynd.
Eining í Líbanon
eftir níu ára ófrið
Beirút, 10. maí. AP.
HIN nýja ríkisstjórn Líbanons kom
saman til síns fyrsta fundar í dag
og var þar ákveðió að verða við
meginkröfu fyrrum stjórnarand-
stæðinga um myndun sérstaks ráðs
til að sameina Líbanonsher undir
Rússar reyna að
róa í íþróttafólki
Moskvu, Washington, 10. maí. AP.
RÚSSAR reyndu í dag öðlast stuðning íþróttafólks og þjálfara við þá ákvörðun sína
að hætta við þátttöku í Ólympíuleikunum í Los Angeles, eftir að Austur-Þjóðverjar
tilkynntu, eins og við hafði verið búizt, að þeir sætu heima. Juan Antonio Samaranch,
leiðtogi ólympíuhreyfingarinnar, óskaði í dag eftir áheyrn hjá Chernenko, leiðtoga
sovézka kommúnistaflokksins, til þess að reyna fá ákvörðun Sovétmanna og fylgi-
þjóða þeirra breytt.
eitt merki og að allir ráðherrarnir
sætu í ráðinu. Þetta er í fyrsta sinn
sem leiðtogarnir koma saman undir
sama þaki í Líbanon frá því
borgarastríð braust þar út fyrir níu
árum.
Rashid Karami forsætisráð-
herra sagði eftir fundinn að ein-
ing um varanlegan frið væri ein-
kennandi fyrir stjórnina og að á
fundi hennar á föstudag yrði
gengið frá opnun samgönguleiða
milli austurs- og vesturhluta
Beirút og opnun flugvallarins og
hafnarinnar.
Á fundinum var skipuð nefnd
fimm ráðherra, sem fékk það
hlutverk að setja saman starfs-
áætlun stjórnarinnar, en það
plagg verður síðan lagt fyrir þing
landsins. Jafnframt var gengið
frá valdssviði Nabih Berris, sem
fer með málefni suðurhluta
landsins í stjórninni, en þess
hluta Líbanons ráða ísraelar yfir
þessa stundina.
Stjórnin sat á fundum á
fimmtu klukkustund. Bardagar
brutust út í morgun í Beirút, en
aðilar lögðu niður vopn skömmu
áður en fundur skyldi hefjast.
Eftir fundinn ræddust Gemayel
forseti og Walid Jumblatt drúsa-
leiðtogi einslega við í 20 mínútur,
en Jumblatt hefur ítrekað kröfur
um afsögn forsetans.
I tilkynningu höfuðstöðva
ólympíuhreyfingarinnar segir, að
Samaranch hafi fengið formlega
tryggingu Bandaríkjaforseta varð-
andi öll ágreiningsatriðin, og sé því
vel í stakk búinn til að liðka fyrir
því að íþróttaæska allra landa mæti
til keppni í Los Angeles.
Leiðtogar ungversku og tékkn-
esku ólympíunefndanna fóru til
Moskvu í dag og er ferð þeirra talin
standa í beinu sambandi við þá
ákvörðun Rússa að sitja heima og
tilrauna þeirra til að fá fleiri ríki til
að fylgja í kjölfarið. Jafnframt því
að fá aðrar þjóðir til fylgis við sig
fengu Rússar helztu íþróttastjörnur
sínar og þjálfara til að koma fram í
sjónvarpi í dag og lýsa stuðningi við
ákvörðunina.
Austur-Þjóðverjar tilkynntu í
morgun að íþróttamenn yrðu ekki
sendir til leikanna og var orðalag
tilkynningarinnar það sama og í yf-
irlýsingu Rússa í fyrradag. Fjar-
vera Rússa og A-Þjóðverja mun
setja mikinn svip á leikana, eins og
fjarvera Bandaríkjamanna og fleiri
þjóða í Moskvu 1980.
Jesse Jackson, sem keppir um út-
nefningu demókrata við forseta-
kosningar í haust, beitti sér í dag
fyrir þvl að Rússar endurskoðuðu
ákvörðun sína, með því að ræða við
Dobrynin, sendiherra Sovétríkj-
anna, í Washington. Sagði hann eft-
ir fundinn að þótt ákvörðun Rússa
væri ekki alveg endanleg, virtist
þátttaka þeirra nánast úr sögunni.
Dobrynin ítrekaði við Jackson
helztu ástæður fyrir ákvörðuninni,
sem væru ótti við ónógt öryggi
íþróttamannanna meðan á leikun-
um stæði.
Leiðtogar ólympíunefnda nokk-
urra ríkja hvöttu sovézkan stall-
bróður sinn til að firra ólympíu-
hreyfinguna „dauðahöggi“ með því
að beita sér fyrir þvi að ákvörðun-
inni verði breytt. Jafnframt var
sagt i Japan að meðal diplómata
víða um heim væru hafnar tilraunir
til að fá Sovétmenn og fylgiþjóðir
þeirra til að endurskoða hug sinn og
mæta til keppni f Los Angeles.
AP/Símamynd.
Tom Bradley borgarstjóri í Los Angeles á fundi með blaðamöanum, þar sem
hann hvatti Sovétmenn til að endurskoða ákvörðun um að hætta við þátttöku
í Ólympíuleikjunum.
Aftur met
dollars gagn-
vart pundinu
London, 10. maí. AP.
DOLLAR hækkaði enn á gjald-
eyrismörkuðum í Evrópu, þrátt
fyrir ákafar tilraunir seðlabanka
V-Þýzkalands og Ítalíu til að
stemma stigu við hækkuninni.
Helstu ástæður fyrir hækkun-
inni eru hækkun forvaxta í
Bandaríkjunum og verkfallsboð-
un v-þýzkra málmiðnaðarmanna
sem veikir stöðu marksins.
Um tíma féll verð á sterl-
ingspundi niður í 1,3760 dollara,
sem er lægsta verð þess nokkru
sinni, en í lok dagsins bætti
pundið stöðu sína örlítið þótt
það væri sýnu lægra en í gær.
Þegar fréttir um verkfall
málmiðnaðarmanna bárust til
Frankfurt urðu þær til þess að
dollar snarhækkaði á nokkrum
minútum gagnvart markinu og
var hækkunin meiri en nokkru
sinni í þrjá mánuði. Gerðist
þetta enda þótt seðlabankinn
þýski byði 200 milljónir dala til
kaups til að hjálpa markinu.
Vaxtahækkuninni í Banda-
ríkjunum hefur verið harðiega
mótmælt af hálfu ríkja róm-
önsku Ameríku. Afborgarnir
þeirra af erlendum skuldum
aukast um hundruð milljónir
dollara vegna vaxtahækkunar
innar, sem var prósentustig.