Morgunblaðið - 12.09.1982, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.09.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. SEPTEMBER 1982 23 Bærinn Hraun í Ölfusi, eins og þar er umhorfs í dag, en heimilLsfólk þar kom mjög við sögu þegar Giötheborg strandaði á Hraunsskeiði haustið 1718. Karl bóndi á Hrauni horfir eftir gamla sjávarkambinum sem hann nefnir í viðtalinu. svona fjölbreytt, það hlýtur að vera gífurleg vinna að setja það saman?" Ég játa því, að það sé ekki á eins manns færi að skrifa Morgunblað- ið, en neita því hins vegar alfarið, að strand Giötheborg sé hégómi, þótt ef til vill megi flokka það undir dægurmál. En okkur er ekki til setunnar boðið því nú skal haldið niður á Hraunsskeið, sem sumir kalla Hafnarskeið, og líta á strandstaðinn og aðstæður þar. Ökufært er svo til alveg niður í flæðarmálið en um það bil kíló- metra þar fyrir ofan bendir Karl mér á grjótkamb sem liggur til beggja hliða og segir: — „Þetta lætur ekki mikið yfir sér, en þetta er greinilega gamall sjávarkamb- ur sem liggur alveg austur að ölf- usá. Þetta er lábarið grjót, sem sjórinn hefur barið til og hér hef- ur því ströndin eitt sinn verið. En það var auðvitað löngu áður en herskipið strandaði, en ströndin hefur alltaf gengið fram og skipið er þess vegna núna á þurru." Á leiðinni ökum við einnig framhjá sandnámi og þar sýnir Karl mér að dýptin niður á mel er um það bil sex metrar og dýpra getur því skipið ekki legið. Þegar komið er niður á Hraunsskeið sýn- ir Karl mér staðinn þar sem talið er að Giötheborg hafi verið hleypt á land og er það um þrjá til fjóra kílómetra austur af Þorlákshöfn. „Á þessu svæði og vestur í hávík- ina er talið að skipið liggi, eða byssurnar, því það er líklega lítið eftir af skipinu," segir Karl. „En það er ekki ólíklegt að byssurnar séu svo til óskemmdar því að kop- arinn lætur sig ekki svo auðveld- lega.“ Um leið og við höldum aftur til baka að bílnum spyr ég Karl hvort hann hafi sjálfur aldrei haft áhuga á að grafa eftir byssunum: — „Ég veit það ekki. Það hefur stundum verið talað um að fara með tæki niður á sandinn en aldrei orðið neitt úr því. Þó eru þetta víst tiltölulega einföld tæki. Bergur Lárusson gæti ef til vill tekið þetta að sér þegar hann er búinn á Skeiðarársandinum. Hann þarf að minnsta kosti ekki að fara eins vítt og þar til að finna skip- ið...“ — Sv.G. til þess vantar áhöld, því að viðir eru þungir og negldir með stórum boltum ...“ í frásögn Árna Óla er þess getið, að sagt hafi verið, að þegar Jón Árnason var bóndi í Þorlákshöfn, hafi hann eitt sinn séð ofan á stykki mikið úr kopar í sandinum á Skeiði. Var þá háfjara. Giskaði hann á að þarna mundi vera ein fallbyssan úr Giötheborg, en þótti óvinnandi verk að reyna að bjarga henni. Liggur því þessi fallbyssa þar enn, en hinar sandorpnar þar úti fyrir. Ekki liggur fyrir nákvæm lýsing á Giötheborg, en eftir því sem næst verður komist er ekki ólík- legt að 24 fallbyssur hafi verið hvoru megin eða alls 48 kopar- fallbyssur, og er þá miðað við al- geng herskip á þeim tímum, með þremur fallbyssuþilförum hvoru megin og átta fallbyssum á hverju þilfari. Auk þess má reikna með að kopar hafi verið í kjölfestu skipsins eins og tíðkaðist í mörg- um skipum á þessum tímum, auk ýmissa annarra málma sem til- heyrðu í herskipi sem þessu. Kopar er dýr málmur og eyðist ekki þótt orpinn sé sandi í langan tíma. Það yrði því ekki ónýtt að hafa upp á fallbyssunum úr Giötheborg nú og væri það verð- ugt verkefni fyrir „gullleitar- mennina" á Skeiðarársandi, þegar þeir hafa grafið upp hollenska „gullskipið", eða þá aðra fram- takssama menn, sem ekki horfa í fyrirhöfnina sem því fylgir að grafa góðmálma úr jörðu. — Sv.G. V\ Vestfrost FPYST1K1STUR eru DÖNSK gceóavaro í'-'Xh LÍTRAR 201 271 396 506 BREIDD cm 72 92 126 156 DYPT cm án HANDFANGS: 65 65 65 65 HÆÐ cm 85 85 85 85 FRYSTIAFKÖST pr SÓLARHRING kg. 15 23 30 30 ORKUNOTKUN pr. SÓLARHRING kWh. 1,2 1,4 1,6 1,9 201. Itr. 271. Itr. 396. Itr. 506. Itr. 201 Itr. kr. 7.157.- 271 Itr. kr. 7.845.- 396 Itr. kr. 8.896.- 506 Itr. uppseld VESTFROST frystikisturnar eru búnar hinum viðurkenndu Danfoss frysti- kerfum. Hverri VESTFROST frystikistu fylgja 1-2 geymslukörfur. Aukakörfur fáan- leg^ir á hagstæðu veröi. VESTFROST frystikisturnar eru allar búnar sérstöku hraðfrystihólfi og einnig má læsa kistunum. Innrabyrði er úr rafgalvanhúðuðu stáli með inn- brenndu lakki. VESTFROST verksmiðjurnar i Esbjerg er ein af stærstu verksmiðjum sinnar tegundará Norðurlöndum. Síðumúla 32 Sími 38000 Affsláttarverð vegna útlitsgalla Roadstar bíltæki UTSALAztw Nú er rétti tíminn til aö fá sér græjur í bílinn, áöur en vetur skellur á og allra veöra veröur von. Þetta sett, sem hér er sýnt er toppurinn frá Roadstar, hausttilboö- iö er kr. 9.500.- í staö kr. 12.000.-. Svona má lengi telja, en sjón er sögu ríkari og eitt er víst þú verður líka ríkari, svo láttu sjá þig. ísetning samdægurs Roadstar í bílinn VERSLIO I SÉRVERSLUN MEÐ LITASJÓNVÖRP OG HLJÓMTÆKI SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.