Morgunblaðið - 02.11.1980, Side 40
AKAI
HLJÓMTÆKI
ORUnDICi
LITTÆKI
100.000 kr. staðgr. afsláttur
eða 300.000 kr. útborgun
í flestum samstæöum
AKAI er hágnða merki é góðu veröi.
100.000 kr. staögr. atsláttur
eöa 300.000 kr. útborgun.
Gildir um öll littæki.
GRUNDIG vegna geðanna.
ffl il BCOIH F
Ófært
austur
á land
ÓFÆRT var austur á land
í gær þegar hluti hring-
vegarins í Berufirði fór í
sundur á tveimur stöðum.
I gær var unnið að viðgerð
og að sögn Hjörleifs
Ólafssonar hjá Vegagerð
ríkisins stóðu vonir til að
viðgerð yrði lokið í gær-
kvöldi.
„Það urðu vatnavextir á Austur-
landi en annars staðar tók snjó
upp og var fært,“ sagði Hjörleifur.
A Austurlandi var ófært í Breið-
dal og Skriðdal og hefst viðgerð
strax upp úr helginni. Þá var
ófært í Fljótsdal og vegurinn milli
Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar
fór í sundur og var unnið að
viðgerð í gær.
Þá var símasambandslaust milli
Héraðs og fjarðanna fyrir austan.
Símalínur fóru í sundur á Fagra-
dal og í Reyðarfirði. Unnið var að
viðgerðum í gær.
Get ekki tjáð
mig um málið
- segir dr. Selma Jóns-
dóttir, formaður safn-
ráðs Listasafns Islands
„Ég get ekki tjáð mig um þetta
mál eins og sakir standa en
safnráð Listasafns íslands mun
gera það síðar," sagði dr. Selma
Jónsdóttir, formaður safnráðs
Listasafns íslands i samtali við
Mbl. í gær, þegar hún var spurð
um ástæður þess, að Listasafn
íslands hefði afþakkað tæplega
600 málverk, sem hjónin Helga
Jónsdóttir og Sigurliði Kristjáns-
son ánöfnuðu safninu í erfðaskrá.
Mynd eftir
Svavar seld
til Venezuela
MÁLVERK eftir Svavar
Guðnason var nýlega selt til
Venezuela fyrir 2,7 milljónir
króna.
bað var stórt fyrirtæki í
Venezuela sem sendi fyrir-
spurn hingað um það hvort
mögulegt væri að fá kcypt
verk eftir Svavar. Listmuna-
verziunin Kiausturhólar hafði
milligóngu í málinu og var
mynd eftir Svavar frá árinu
1947 send til Venezuela. Kaup-
verðið var 2.7 milljónir eins
og fyrr segir.
SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1980
Bandaríkjadollar
hefur hækkað um
113,1% frá ágúst 78
HÆKKUN dollarans gagnvart íslenzkri krónu frá því í
ágústmánuði 1978 er 113,1%, en sé miðað við hækkun
dollars, sem ferðamaður fær keyptan í gjaldeyrisbanka
á þessum sama tíma er hækkunin 124,4%. Gengisskrán-
ing Bandaríkjadollars í ágústbyrjun var 260,40 krónur
fyrir hvern dollar, en er nú um 555 krónur fyrir hvern
dollar. Á Jerðamannagengi er dollarinn nú rúmlega 610
krónur. Á þessum sama tíma er hækkun framfærsluvísi-
tölu miðað við síðasta útreikning vísitölunnar 123,8%,
en sé miðað við áætlaða 12% hækkun hinn 1. nóvember
er hækkun framfærsluvísitölunnar orðin 138,7%.
Á þessum sama tíma hefur
verðbótavísitala, frá 1. september
1978 til jafnlengdar 1980 hækkað
um 86,39% og vantar því 37,4
prósentustig til þess að hækkun
verðbótavísitölu hafi verið hin
sama og hækkun vísitölu fram-
færslukostnaðar miðað við síðustu
útreikninga beggja visitalnanna.
Ef tekið er mið af vísitölu
byggingarkostnaðar þá er hækkun
hennar frá 1. október 1978 til 1.
október 1980 124,6%. Vísitalan var
þennan dag 240 stig fyrir tveimur
árum, en nú við siðasta útreikning
var vísitalan 539 stig.
Póstur og sími:
Stofngjald síma komið
í á annað hundrað þús.
- talfæri og uppsetning ekki innifalin
Póst og símamálastofnunin hefur fengið heimild til
hækkunar póst- og símagjalda frá 1. nóv. 1980 um sem
næst 9%.
Helstu breytingar á sima-
gjöldum verða sem hér segir:
Stofngjald fyrir síma hækkar
úr kr. 96.330 í kr. 104.975 og
símnotandi greiðir þar að auki
fyrir talfæri og uppsetningu
tækja. Gjald fyrir umfram-
30 milljónir,króna fyrir
vel taminn Islandsfálka
Reynt að múta formanni Fuglafriðunar-
nefndar til aðstoðar við fálkasmygl
FÁLKAR virðast stöðugt verða vinsælli i Arabalöndum, en einnig eru
þeir eftirsóttir i ýmsum löndum Mið-Evrópu. Háar upphæðir eru
gefnar fyrir vel taminn fálka og er íslandsfálkinn eða valurinn
vinsælastur. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins eru jafnvel
greiddar um eða yfir 30 milljónir króna fyrir góðan fugl.
Erfitt er að henda reiður á hversu
mörgum fálkum hefur verið smygl-
að héðan á síðustu árum, en hins
vegar hefur komizt upp um fjórar
tilraunir á síðustu fimm árum. í
samtali við blaðið sagði einn starfs-
maður Náttúrufræðistofnunar, að
þeir sem reyndu slíkt kæmust trú-
lega flestir upp með það. í Svíþjóð
er þetta orðið mikið vandamál og
líkja þarlendir þessari starfsemi við
vel skipulagt eiturlyfjasmygl.
í sumar reyndu þrír Austurrík-
ismenn að smygla héðan fálkaung-
um, en voru handteknir á Reykja-
víkurflugvelli. Mennirnir voru rekn-
ir úr landi, en nokkru síðar birtist í
austurrísku blaði viðtal við einn
mannanna og sagði hann þar frá
því, að íslenzkir veiðimenn skytu
árlega þúsundir fálka. Rétt er hins
vegar að taka fram að fálkastofninn
á Islandi telur varla þúsund fugla.
Fleiri grófar rangfærzlur voru í
þessu viðtali og í framhaldi af því
barst Ævari Petersen, fuglafræð-
ingi og formanni Fuglafriðunar-
nefndar, bréf frá Austurríkismann-
inum. Bauð hann Ævari stórfé fyrir
að aðstoða sig við fálkasmygl frá
íslandi.
Sjá nánar bls. 14-15:
Girnast fálkann sem
konungar forðum ...
skref hækkar úr kr. 35,82 í kr.
39,03. Afnotagjald af heimil-
issíma á ársfjórðungi hækkar
úr kr. 16.302 í kr. 17.784
venjulegt flutningsgjald milli
húsa á sama gjaldsvæði hækk-
ar úr kr. 48.165 í kr. 52.488.
Helstu breytingar á póst-
burðargjöldum eru þær, að
burðargjald fyrir almennt
bréf, 20 gr, innanlands og til
Norðurlanda hækkar úr kr.
150 í kr. 160, til Evrópu úr kr.
180 í kr. 200 og fyrir bréf í
flugpósti til landa utan Evr-
ópu úr kr. 320 í kr. 350, gjald
fyrir póstávísanir innanlands
og til Norðurlanda hækkar úr
kr. 350 í kr. 380.
I gæzluvarðhald
I gær var kveðinn upp í sakadómi
Reykjavíkur gæzluvarðhaldsúr-
skurður yfir skipstjóra og 1. vél-
stjóra eins af Fossum Eimskip, en
þeir eru grunaðir um aðild að
meintum stuldi á saltfiski.
Eins og fram kom í Mbl. í gær var
saltfiskurinn seldur í hafnarborg-
inni Ceuta í Marokkó og smyglgóss
keypt fyrir andvirðið. Mönnunum
var gert að sitja í gæzluvarðhaldi
fram til næsta miðvikudags.
Milljónatjón á Neskaupstað
NeskaupstaA 1. nóv.
Ofsaleg rigning var hér
í gær og fylgdi henni
10—12 stiga hiti svo aft
allur snjór hráðnaði í fjöll-
um. Fylgdu miklir vatna-
vextir veðrinu og urðu
talsverðar skcmmdir hér í
þorpinu.
Mestar skemmdir urðu
þegar vöxtur hljóp í svo-
kallaðan Konráðslæk en
hann hefur oft áður gert
skráveifur. Lækurinn renn-
ur rétt við rafstöðina og
félagsheimilið. Lækurinn
gróf í sundur götur svo að
ófært varð. Skiptir tjónið
milljónum króna. Enn
fremur urðu skemmdir
þegar aurflóð rann alla leið
niður í sjó við Urðarteig.
í dag er hér blíðuveður af
suð-vestan.
Ásgeir