Morgunblaðið - 02.11.1980, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1980
STOFNFUNDUR
Félags bókagerðar-
manna verður haldinn í
dag að Hótel Sögu, en
félagið, sem verið
hefur í undirbúningi í
nokkur ár, tekur við af
þremur stéttarfélög-
um, elzta stéttarfé-
lagi landsins, Ilinu
íslenzka prentarafélai
Bókbindarafélagi
lands, sem stofnað
var 1934 og Grafiska
sveinafélaginu, sem að-
eins er 7 ára og er
kannski barn þeirr-
ar tæknibyltingar,
sem orðið hefur og er að
verða í prentiðnaði.
Þessi félög ganga
nú saman í eitt stétt-
arfélag, sem á „að
standa vörð um hags-
muni félagsmanna
á vinnumarkaði og í
atvinnumálum al-
mennt.“
&
m
IIúspÍKn Illl’ aú IIvíTÍisKútu 21. som
vcrOur eisn hins nýja Fóíatrs hokaiícrOar-
manna. Uwm MM.: öi.k m
Stofnfundur Félags bókagerðarmanna er í dag:
I>rjú stéttarfélög sam-
einast í einu 720 manna félagi
Stjórn hins nýja félags og sam-
einingarnefnd félaganna þriggja
boduðu blaðamenn á sinn fund nú í
vikunni til þess að kynna þessi
tímamót í sögu prentiðnaðarins á
íslandi. Hið nýja félag, sem kemur
til með að telja 720 félagsmenn,
mun taka við eignum og skyldum
félaganna þriggja um áramót, en þá
verða gömlu félögin lögð niður.
Fyrsti formaður hins nýja félags er
Magnús Einar Sigurðsson og hafði
hann aðallega orð fyrir félögum
sínum á blaðamannafundinum, sem
haldinn var í húsi HIP, að Hverfis-
götu 21.
Sameiningin
Magnús Einar Sigurðsson rakti að
nokkru aðdraganda að sameiningu
félaganna og sagði m.a.: Fyrir
nokkrum árum sóttu offsetprentar-
ar um aðild að HÍP, en því miður
ríkti þá sú skammsýni í félaginu, að
aðild þeirra var hafnað, þar sem
prentarar þá töldu að starf offset-
prentara væri ekki þess virði að
geta kallast iðn. Þetta breyttist þó
fljótt og á árinu 1968 hófust fyrstu
alvarlegu viðræðurnar milli félag-
anna þriggja um stofnun eins félags
prentiðnaðar- eða bókagerðar-
manna. Upphaflega voru hugmyndir
uppi um stofnun sambands félag-
anna, en frá því var horfið og
síðustu 2 til 3 árin hefur eingöngu
verið unnið að því að stofna eitt
landsfélag bókagerðarmanna. Sex
menn hafa átt sæti í sameiningar-
nefndinni, 2 frá hverju félagi.
Magnús kvað margar iðngreinar
myndu sameinast í þessu félagi, auk
óiðnlærðs fólks. Því hafi verið
nauðsynlegt að hafa ýmsa varnagla
í lögum félagsins, a.m.k. fyrst í stað.
Félagið verður rammi þriggja iðn-
sviða og stjórnarmenn verða tveir
frá hverju þeirra, en síðan er það
látið ráðast, hvaðan formaðurinn
kemur. Með stjórn mun starfa
sérstök iðnréttindanefnd. Þessi tvö
atriði kvað Magnús Einar Sigurðs-
son sett i lög félagsins til þess að
eyða tortryggni innan félagsins og
til þess að tryggja að ekki sé gengið
á rétt neins hóps innan þess.
Tæknibreytingar
aðalástæðan
Magnús Einar kvað það von
aðstandenda hins nýja Félags bóka-
gerðarmanna, að stofnun þess
myndi gjörbreyta aðstöðu fólksins,
sem innan þess yrði. Hann kvað
nauðsyn sameiningar fyrst og
fremst vera vegna örra tæknibreyt-
inga, sem félagið yrði að takast á við
og það væri trú manna, að samein-
aðir geti prentiðnaðarmenn betur
tileinkað sér nýju tæknina og varið
það starfssvið, sem félagið ætti.
Hann kvað stöðugt fleiri og fleiri
starfshópa í þjóðfélaginu koma inn
á löghelgað svið bókagerðarmanna
og þetta væri ekki aðeins vandamál
einnar iðngreinarinnar, heldur allra
þriggja.
Formaður Félags bókagerðar-
manna taldi því næst upp þessi
vandamál. Hann kvað setningu eiga
sér stað nú áf ýmsum aðilum „úti í
bæ“, sem siðar væri notuð til þess að
framleiða prentgripi. Eitt stærsta
vandamálið kvað hann þó vera það,
að ýmis stór fyrirtæki hins opinbera
og í einkarekstri, hefðu komið sér
upp eigin prentsmiðjum til innan-
hússprents, sem síðar gæti verið
dreift til almennings. „Þetta er
óeðlileg þróun að okkar mati,“ sagði
Magnús Einar Sigurðsson.
Samstarf við önn-
ur launþegafélög
Félag bókagerðarmanna ætlar að
eiga samstarf og samvinnu við
önnur stéttarfélög og samtök. Fé-
iagið verður ekki sjálfkrafa aðili að
Alþýðusambandi íslands, en tvö af
gömlu félögunum þremur eru aðilar
að ASÍ, HIP og BFÍ. Magnús Einar
kvað skiptar skoðanir innan nýja
félagsins um aðild að ASÍ, en
ákveöið væri að efna eftir áramót til
allsherjaratkvæðagreiðslu meðal fé-
lagsmanna um aðild að Alþýðu-
sambandinu. Þá mun félagið eiga
samstarf við bræðrafélög á Norður-
löndum og verður það sjálfkrafa
aðili að Nordisk grafisk union, NGU
og International Graphical Federa-
tion, IGF, sem eru alþjóðasamtök
prentiðnaðarfólks.
Leitað verður eftir nánara sam-
starfi við fleiri launþegafélög, þar
sem störf bókagerðarmanna hafa
spunnizt mjög saman við störf
annarra á síðari árum. HÍP hefur
haft samstarf við nokkur stéttarfé-
lög og nefndi Magnús Einar þar
sérstaklega Blaðamannafélag ís-
lands, sem hann kvað hið nýja félag
verða að taka upp nána samvinnu
við til þess m.a. að koma í veg fyrir
að félögunum yrði att saman, þegar
um sameiginleg hagsmunamál
þeirra yrði að ræða. Kvað hann nýja
félagið myndu stefna að því að gera
samstarfssamning við Blaðamanna-
félagið. Sams konar samvinnu
myndi félagið vilja hafa við Verzl-
unarmannafélag Reykjavíkur, en öll
félögin þrjú yrðu að standa sameig-
inlega gegn atlögu atvinnurekenda í
framtíðinni.
Aukin útgáfu-
starfsemi
Hið nýja félag ætlar að auka mjög
útgáfustarfsemi innan félagsins.
Málgagn félagsins verður hið gamla
málgagn HIP, „Prentarinn", og
Frá blaðamannafundinum
að Hverfisgötu 21 í vikunni,
þar sem sameining félaganna
þriggja var kynnt.
■