Morgunblaðið - 02.11.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1980
29
krafti og magni gosefna þeirra
eldgosategunda sem verða á ís-
landi.
Smágos geta orðið afdrifarík ef
þau verða nálægt byggð (Heimaey)
eða ef öskufall verður á viðkvæm-
um árstíma fyrir landbúnað (Hekla
1970). Önnur og jafnvel meiri gos
valda engum skaða öðrum en þeim
að skapa falska öryggiskennd og
leiða fólk í þá villu að halda að
eldgos á Islandi séu nánast
skemmtan ein og dægradvöl (Askja
1961, Surtsey 1963, Hekla 1980,
Krafla mars og júlí 1980).
í öðrum flokki eru talin þau gos
sem verða á aldabili. Á síðustu
tveim öldum hafa tvö slík gos orðið,
Skaftáreldar 1783 og Öskjugosið
1875. Stórleikur þessara gosa er
með allt öðrum hætti en smágos
þau sem við höfum orðið vitni að.
Ef litið er lengra aftur í tímann eru
dæmi um slík gos nokkur á sögu-
legum tíma. Þar má nefna gosið í
Eldgjá á 10. öld, sem var af
svipaðri stærð og Skaftáreldar,
Vatnaöldugosið á 9. öld og Veiði-
vatnagosið á 15. öld. Þau tvö
síðastnefndu ollu truflunum á
rennsli Tungnaár og hefðu við
nútíma aðstæður haft veruleg áhrif
á orkuframleiðslu í landinu.
I þriðja flokki eru talin gos, sem
verða á árþúsundabili. Heklugosið
1104 og gosið í Öræfajökli 1362
koma í þann flokk í sögulegum
tíma. Hraungos á þessum flokki
eru með þeim hætti, að erfitt er að
gera sér grein fyrir stórleik þeirra,
en magn gosefna getur verið all-
miklu meira en í Skaftáreldum.
Flestir hafa séð Skjaldbreið ofan
við Þingvelli og geta gert sér í
hugarlund hvað til þarf til að
mynda slíkt fjall í einu eldgosi.
Síðast varð gos af þessu tagi fyrir
um 4000 árum á Mývatnsöræfum
og skóp Ketildyngju en á tímabil-
inu frá því fyrir 4000 til 10000
árum verða til margar dyngjur
landsins.
Engin ástæða er til að ætla að sú
tegund eldgosa sé undir lok liðin
fremur en eldvirkni í Vestmanna-
eyjum sem lá niðri í 5000 ár.
Eldgosasaga
og öskulög
Engin þjóð, sem býr i eldfjalla-
landi, á viðlíka vel skráða sögu
náttúruhamfara í landi sínu og
íslendingar. Forn bréf, annálar og
jafnvel stórar ritgerðir greina frá
eldgosum, segja frá hvenær þau
urðu og gefa oft greinargóða lýs-
ingu á viðburðinum (sbr. Eldrit sr.
Jóns Steingrímssonar). Þorvaldur
Thoroddsen varð fyrstur til að
safna þessari þekkingu í skipulegt
rit um sögu íslenskra eldfjalla (Die
Geschichte der Islándischen Vulk-
ane, Köbenhavn 1925).
Síðan hefur Sigurður Þórarins-
son grandskoðað þau gögn sem lúta
að einstökum eldstöðvum, svo sem
Heklu, Kötlu, Öræfajökli og
Grímsvötnum. Sigurður hefur til-
einkað sér vinnubrögð nútíma
sagnfræði og tengir þau þeirri
vísindagrein, sem hann hefur sjálf-
ur skapað, og ryður sér nú til rúms
víða um heim: Tímatal á grundvelli
gjóskulaga (tefrokronologia eða
gjóskulagatímatal) gefur mögu-
leika til sjálfstæðrar staðfestingar
á upplýsingum fornra rita og getur
oft stuðlað að nýjum skiiningi á því
sem þar greinir frá. Einnig hefur
rannsókn gjóskulaga frá sögu-
legum tíma leitt til þess að nú er
vitað um allmörg eldgos, sem engar
ritaðar heimildir eru til um. Á
þcnnan hátt hefur Sigurði tekist að
rekja nákvæma sögu þeirra eld-
stöðva sem að ofan greindi, en
rannsókn hans miðast einkum við
þann tíma sem liðinn er síðan land
byggðist. í stórum dráttum gefur
gossaga eldstöðvar upplýsingar um
tíðni gosa, þ.e. hve mörg gos hafa
orðið á einhverju ákveðnu tímabili.
Til viðbótar kemur svo vitneskja
um stórleika gossins, sem best er
að dæma eftir heildarmagni gos-
efna sem upp koma, en magnið er
mælikvarði á þá orku sem losnar
úr læðingi við eldgosið.
Frá iðrum jarðar er sístreymi
orku, sem myndast við kíofnun
geislavirkra efna. Fast berg er
mjög slæmur varmaleiðari og sú :
varmaorka, sem jörðin getur losn-
að við með hægfara varmastreymi
til yfirborðs og þaðan út í geiminn,
er mun minni en varmaframleiðsl-
an. Orkan safnast saman og hita-
stig verður það hátt að berg
bráðnar. Þar sem bráðið berg er
ætíð eðlisléttara en fast berg leitar
það upp og fær útrás í þeim
öryggisventlum jarðar, sem við
köllum eldstöðvar. Ef við getum
staðhæft að orkuframleiðslan sé
jöfn, þá leiðir af því að orkulosun
fylgi einhverju reglulegu mynstri.
Það er þetta mynstur, sem eldgosa-
sagan leitast við að finna, í þeirri
von að gossaga eldstöðvar gefi
ábendingar um hegðun hennar í
framtíðinni.
Til eru reikniaðferðir sem notast
við töluleg gögn um fyrri atburði
til að fá hugmynd um líkindi þess
að hið sama endurtaki sig. Áreið-
anleiki útreiknings fer þá eftir því
hversu löng reynslan var og hversu
tíðir atburðirnir, sem um er fjallað.
Þeim mun lengur sem ákveðinn
atburður hefur endurtekið sig með
jöfnu millibili, þeim mun meiri
líkur á því að hið sama gerist aftur
á þekktum tíma. Þessum reikniað-
ferðum beitti Prof. F.E. Wickman á
mörg eldfjöll víða um heim, en
niðurstaða hans var sú, að skráð
reynsla væri of stutt, atburðirnir
of fáir, til þess að unnt væri að
gera nákvæma sptum hegðun
þessara eldfjalla í framtíðinni. Um
Heklu hefur hann það að segja, að
líkurnar á eldgosi byrji ekki að
aukast að neinu ráði fyrr en 20 ár
eru liðin frá siðasta gosi. Gosið nú í
ágúst eftir aðeins 10 ára goshlé
sýnir kannski best eðli þessarar
aðferðar. Enda þótt útreikningar
sýni að líkur á gosi eftir 10 ára
goshlé séu mjög litlar, þá er ekki
þar með sagt að líkurnar séu engar.
Ef nota á útreikninga af þessu tagi
til hjálpar við ákvarðanatöku, þá
verður að taka mið af því að aldrei
er unnt að útiloka einhverja áh-
ættu, og þeim mun meiri verður
áhættan, sem þekkingin er minni.
Vöktun eldstöðva
Saga eldvirkninnar og það
mynstur sem hún sýnir, skapar
grundvöll til að stíga næsta skref.
Með söguna að leiðarljósi er unnt
að draga ályktanir um hvaða eld-
stöðvar séu líklegar til að gjósa
næst. Þetta er mjög mikilvægt
þegar þess er gætt, að öll íslensku
gosbeltin eru virk að því marki að
þar geta eldgos orðið hvar sem er.
Ef hægt er að leiða rök að því að
eldgos verði ekki á stórum hluta
þess svæðis á næstu áratugum er
hægt að beina mjög takmörkuðu
rannsóknarfjármagni að ákveðnum
stöðum í stað þess að drepa því á
dreif. Þrátt fyrir slíka útilokunar-
aðferð við val verkefna verða all-
margar eldstöðvar eftir í þeim hópi
sem eru líklegar til að gjósa á
næstunni. Þar er Kröflueldstöðin
efst á blaði, en síðan Askja, Katla,
Kverkfjöll, Grímsvötn, Öræfajök-
ull, Reykjanes og Vestmannaeyjar.
Röðin er nokkurn veginn í sam-
ræmi við minnkandi líkur. Búist er
við gosi í Kröflueldstöðinni nú á
næstu vikum. Vitað er um mikil
umbrot í Öskju, goshlé Kötlu er
það næstlengsta sem þekkist frá
sögulegum tíma, goshlé er orðið
mjög langt í Kverkfjöllum, Gríms-
vötnum, Öræfajökli og á Reykja-
nesi, og Heimaeyjargosið sex árum
eftir Surtseyjargos eykur reikn-
ingslega séð líkurnar á þriðja
gosinu á þessu svæði.
Fjárhagsleg geta þeirra stofn-
ana, sem fást við eldfjallarann-
sóknir á íslandi, er með þeim hætti
að útilokað er að framkvæma
umfangsmiklar rannsóknir á öllum
þessum eldstöðvum samtímis.
Verkefnavalið byggist á tvenns
konar viðmiðun. I fyrsta lagi hvaða
verkefni hafi umtalsverða félags-
lega þýðingu og í öðru lagi hvaða
verkefni sé líklegt til að skila
mestri þekkingu. Ef þessi tvö atriði
fara ekki saman þá er félagslega
sjónarmiðið látið ráða.
SJÁ NÆSTU SÍÐU
5v>tJ&^'pe
boW'O*'-
V'a'ts\bö'°n'„
u Wn*V rb'e9 n
i o9
on9u
«**!$þ*?*L
vjeföd
Nýlegar plötur
The Ðeatles — Ðallads
Ðette Midler — The Rose
Cliff Richard — l'm no hero
David Ðowie — Scary Monsters
Earth, Wind & Fire — Faces
Fame — Kvikmyndatónlist
Gary Numan — Telecon
The Jacksons — Triumph
Bruce Springsteen — The River
Marianne Faithful — Broken English
Jethro Tull — „A"
John Martin — Grace & Danger
Kate Bush — Never for Ever
Madness — Absolutely
Sally Oldfield — Celebration
Thin Lizzy — Chinatown
Time Square — Ýmsar nýjar rokkgrúppur
Tom Waits — Heartattack and Wine
Van Morrison — Common One
Village People — Can’t Stop the Music
X-Los Angeles
Country
Anne Murray — Greatest Hits
Bronco Bllly — Merle Haggard, Clint Eastwood.
Ronnie Milsap o.fl.
Hank Williams — The Very Ðest of Hank
WilNams
Kenny Rogers — Kenny
Kenny Rogers — Singles Album
Roy Acuff sings Hank Williams
Waylon Jennlngs — Music Man
Silver Meteor — Clarence White, Everly Broth-
ers o.fl.
Þessar hljómplötur eru fáanlegar í verslunum um land allt.
Við sendum samdægurs í póstkröfu
FALKIN N
Suöurlandsbraut 8 — sími 84670,
Hevniiisfang ................ Laugavegi 24 - sími 18670,
Austurveri — Sími 33360.