Morgunblaðið - 02.11.1980, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1980
3
b) Sýna með dæmum hvað raun-
verulega kostar að taka lán.
c) Upplýsa fólk sem vill ávaxta
sittpund um valkosti.
d) Utskýra skattalega meðferð
sparifjár og vaxta.
e) Veita svðr við hverskyns
spurningum sem upp kunna að
koma í þessum efnum.
I því skyni, að auðvelda fólki
að glöggva sig á fjármálum,
hefur verið útbúin mappa, sem
það getur tekið með sér heim,
með ýmsum gagnlegum upplýs-
ingum og formi til útfyllingar
fyrir greiðsluáætlun og heimilis-
bókhaíd. Mappan er nefnd Hag-
deild heimilisins. — Fjármála-
ráðgjöf fyrir fólk — og fæst hjá
öllum afgreiðslustofnunum
bankans án endurgjalds.
Hallgrímur Olafsson við-
skiptafræðingur hefur skipulagt
þetta verkefni og undirbúið og
sérþjálfað ákveðna starfsmenn
bankans til að veita þessa þjón-
ustu, sem Verzlunarbankinn von-
ast til að fólk noti sér.
(Fréttatilkynning)
Hveragerði:
Mikið um skemmdarverk
og allskyns strákapör
IIveraKerði 29. október
HÉR í Hveragerði heíur verið óvenjumikið um skemmd-
arverk og allskyns strákapör. Um síðustu helgi kvað þó
mest að þessum ófögnuði þá voru rúður brotnar í
mörgum húsum og mun tjónið nema háum upphæðum.
Hallgrímur garðyrkjubóndi á
Grímsstöðum kvað 12 rúður hafa
verið brotnar úr hans garðyrkju-
stöð og skemmdir unnar af sama
tagi á 4 öðrum stöðum. Þá voru
brotnar stórar rúður í Gagn-
fræðaskólanum, í Búnaðarbank-
anum, og verzluninni Reykjafossi
og gamla banaknum.
A laugardagskvöldinu var
dansleikur í Hótel Hveragerði og
voru þar brotnar tvær rúður og
unnar skemmdir á bifreið, sem
þar stóð og er í eigu eins hótel-
gestsins. Þá var lofti hleypt úr
hjólbörðum annarra bifreiða. Þá
eru benzínþjófnaðir mjög tíðir
hér.
Hjá Hallgrími Egilssyni voru
einnig brotnir járnstaurar af ný-
byggðum steinkanti umhverfis
lóðina, en eftir var að setja
tréverk á staurana. Þykir
mönnum að vonum erfitt að búa
við þann yfirgang, sem sifellt
færizt hér í vöxt. Jafnóðum er
eyðilagt það sem verið er að reisa
með miklum tilkostnaði til prýði
og sóma fyrir byggðarlagið. Má
t.d. nefna það, að í sumar lét
Búnaðarbankinn ganga frá lóð í
kringum nýja bankahúsið. Voru
þar sett upp hlaðin beð með
hinum fegursta gróðri, en stuttu
síðar var búið að rífa upp tré og
blóm og stórskemma, svo að þetta
augnayndi var svipur hjá sjón.
Hér í Hveragerði er engin föst
löggæzla, en lögregla Arnessýslu
á Selfossi lítur til okkar, þegar
þeirra aðstæður leyfa. Er óán-
ægja með þessa málsskipan svo
'míkil hér í þorpinu, að vart er um
annað talað þessa dagana.
í Hveragerði eru nú milli 12—
1300 íbúar og auk þess er Garð-
yrkjuskóli ríkisins að Reykjum á
næstu grösum með fjölda nem-
enda og starfsfólks og á Heilsu-
hæli N.L.F.Í. og Dvalarheimilinu
Ási eru a.m.k. 3—400 manns.
Margt er þetta lasburða fólk og
væri mikil þörf að sjúkrabíll væri
í bænum, en alla slíka aðstoð þarf
að sækja á Selfoss.
í Ölfusborgum, oriofshúsum
ASÍ, eru einkum yfir sumarið
margir gestir, sem sækja þjón-
ustu sína til Hveragerðis og
annar ferðamannastraumur er
mikill allt árið.
Hvergerðingar vona þvi fast-
lega að hér verði búsettir og
starfandi 2—3 lögreglumenn inn-
an tíðar.
— Sigrún.
Reykjavíkur-
prófastdæmi 40 ára:
Hátíðarsam-
koma í Bú-
staðakirkju
Á þessu ári eru liðin 40 ár frá
stofnun Reykjavíkurprófastdæm-
is og þriggja safnaða, sem stofn-
aðir voru með prófastdæminu,
Haligríms-, Laugarnes- og Nes-
safnaða.
Þessarra timamóta hefur verið
minnzt á margvíslegan hátt. Há-
tíðarsamkomur voru um síðustu
helgi í Hallgríms— og Nessöfnuði
og um helgina verður hátíðar-
samkoma í Laugarnessöfnuði. Þá
munu prestar minna á málefni
prófastdæmisins við guðsþjónust-
ur í dag og klukkan 17 í dag verður
efnt til hátíðarsamkomu í Bú-
staðakirkju fyrir presta og sókn-
arnefndir auk nokkurra gesta. Þar
á meðal eru kirkjumálaráðherra,
biskupar, oddvitar borgarstjórnar
Reykjavíkur og bæjarstjórna
Kópavogs og Seltjarnarness.
Á samkomunni verður ýmislegt
rifjað upp úr sögu prófastdæmis
og safnaða, auk þess sem tónlist
verður flutt og veitingar fram
bornar.
INNLENT
Leiðrétting
Félögin bera
ábyrgð á seinkijn
mótabókar HSI
ÞAU mistök urðu í Helgarviðtali
við Júlíus Hafstein, formann HSÍ,
að dómarar voru ranglega bornir
fyrir því að hafa tafið útgáfu
mótabókar HSÍ. Þetta kom fram í
fyrirsögn og eins í greininni.
Orðrétt sagði Júlíus, „Orsakir
þess, að útgáfa bókarinnar hefur
dregist á langinn er fyrst og
fremst aðildarfélögum HSÍ að
kenna." Mbl. biðst velvirðingar á
þessum mistökum.
heimsborgin, sem býöur eitthvað
við allra hsefi. Leiklist — tónlist —
myndlist — úrval matsölustaða — knatt-
spyrnuleikir — söfn — verzlanir og
fjölbreytt skemmtanalíf.
Enn sem fyrr býöur Útsýn hagstæð-
ustu kjörin vegna margra ára viðskipta
og hagkvæmra samninga við gististaði í
hjarta borgarinnar.
Starfsmaður Út-
sýnar Kristín
Hauksdóttir tek-
ur á móti farþeg-
um á flugvelii og
verður til aðstoð-
ar á meðan á
dvölinni stendur.
London
Vikuferðir
brottför alla laugardaga.
Verö frá kr. 300.100.-
Helgarferðir
brottför annan hvern
fimmtudag.
Verö frá kr. 266.800.-
Brottfarir til Kanaríeyja
veturinn 1980 - 1981
19. des., 9. jan., 30. jan.,
20. febr., 13. marz,
3. april, 24. apríl.
Miami
Brottför
1., 15. og 29. nóv.
St. Petersburg
Brottför alla laugardaga
Hvert sem
ferðinni er
heitiö getur
Útsýn spar-
að yðurfé
og fyrirhöfn.
Farseðlar og ferðaþjónusta
nuoinom
. . jtm freðingum í
i/1 /A ••ðlsútgáfu
/ihtai.a •*uPu,*flnmflu
Lufthansa
>
® Í3
S4S
SABENA
>Thoi
(Jfsýn hsfur á að
tkipa feruatu aár-
franömgum
•instaklmgafsrða
hvsrt asm sr í
heiminum. Með
hvsða flugfálagi
viltu fljúga?
utaýn utvagar þér
legata fáanlagt
Kiisoir * )<*•»•
viaaair fiugi.ie Bam Br *
. áaattunarleiðum
K allra halatu flugtá-
f»rö flugfaraaðil-
inn hvargi ðdýrsri
•n hjá Utaýn m*ð
hvaða flugfálagi
a«m þú flygur.
9
Austurríki:
Lech — Kitzbúhel
Júgóslavía:
Kranskja — Gora
Austurstræti 17,
símar 26611
og 20100.
:ÉIS