Morgunblaðið - 11.04.1968, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 11.04.1968, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 196« /. J. linar á takinu um hönd mína, og stendur þá svo vel á, að ein „veran“ stendur alveg fyrir utan byrgið, og jeg er svo nálægt henni, að jeg þarf ekki að stíga eitt einasta skref, heldur aðeins standa upp og beygja mig áfram til þess að ná til hennar. Þetta tækifæri nota jeg, losa hönd mína og gríp um slæðuna, sem hjekk niður af hœgri handlegg „verunnar". Jafnskjótt sem jeg hafði náð taki á slæðunni var rikt fast á móti af „ver- unni“ — um leið og hún þaut inn í byrgið aftur — og fann jeg þá glöggt handlegg „verunnar“ leggjast ofan á höndina á mjer. En við það að „ver- an“ kippir handleggnum svona snögg- lega til baka, rifna slæðurnar. Heyrði jeg vel þegar þœr rifnuðu, og fann líka, að þœr lengdust um leið. ......„Á sama augnabliki og þetta gerðist, kippti hr. E.K. í mig og dró mig til báka í sœti mitt við hliðina á sjer, því að hann hjelt allan tímann um vinstri hönd mína. Jeg gat þá ekki við það ráðið, að jeg tók í öxlina á honum nokkuð harkálega og hvísl- aði að honum þessum orðum: „Guð hjálpi ykkur, hvað þið látið blekkjast. Eruð þér frá yður?“ Nei, nei“, svaraði hann. — „En nú skulum við vera róleg og syngja“. Jeg hallaði mjer þá aftur á bak í stólnum, og gerði enga frekari tilraun til þess að hreyfa mig“. Eftir þetta segir hún, aS talsverður óróleiki hafi verið meðal fundar- manna. Hafi sumir haft áhyggjur af því, að miðlinum mundi líða mjög illa af þessari truflun og var þá beðið í sameiningu fyrir honum og þeirri „veru“, sem orðið hefði fyrir truflun- inni. Einnig voru sungnir sálmar en af miðilsins hálfu gerðist ekkert fleira á fundinum. Þegar fram úr stofunni kom, varð Sigríður vör við, að mörgum fundar- manna var þungt til hennar fyrir að hafa valdið þessari truflun. Tilgreinir hún þá aðila, sem hafi borið af henni blak og sagt henni til afsökunar, að hún mundi ekki hafa vitað, að ekki mætti taka í slæðurnar.„Jeg' gekk svo fram á ganginn til fólksins og sagði: „Jeg get búist við, að sumt af þessu fólki, sem hjer er saman komið, ætlist til þess, að jeg geri afsökun mína fyrir það, sem jeg hefi gert, en það verð jeg að láta ykkur öll vita, að jeg get það ekki, því að jeg iðrast þess ekki, og jeg mundi gera nákvæmlega það sama í sömu „situation“. Þá segir frú Arnalds: „Við skulum ekki vera að tala um það meira, hún hefir ekki vit- að, að það mátti ekki taka á slœðun- um“. Þessu svaraði jeg svo, að ekki dytti mjer í hug að afsaka mig með því, svo mikið hafi jeg lesið um þetta mál, að jeg viti vel, að sagt sje, að ekki megi taka á slæðunum. Hr. E.K. snýr sjer þá að mjer og segir: „Þá er jeg hræddur um, að eftir þessa játningu eigið þjer erfitt með að kom- ast aftur á svona samkomu hjer“. Jeg svaraði því, að jeg ætlaði mjer ekki að reyna það. Þá vindur sjer að mjer hr. Sigurjón Pjetursson og talar til mín með tálsverðum þjósti. Hvernig hann byrjaði, man jeg ekki glöggt, en í meiningu orða hans fólst reiði yfir því, sem jeg hafði gert, og meðal annars sagði hann, að jeg gœti reitt á, að þetta mundi koma mjer í koll, þótt seinna yrði, og svo auðvitað miðl- inum líka. Jeg svaraði þá, að það væri náttúrlega ekki álveg ómögulegt að þetta kœmi miðlinum í koll, en það væri heldur ekki ómögulegt að það yrði á annan hátt en hann hjeldi“. Skýrslu Sigríðar lýkur með þessum orðum: „Að Tómasar-eðlið“ sje ríkt í mjer skal jeg að lokum fúslega játa, það er jafnvel svo magnað, að 'ef mjer til dæmis vœri sýndur hlutur, sem jeg með mínum eigin augum sœi, að væri svártur, mundi jeg ekki trúa því að hann væri nú samt sem áður hvítur, hvað margir prófessorar, sem hjeldu því fram“. Ljóst er, að frásögn Sigríðar hefur í öllum aðalatriðum verið rétt, það kemur fram í yfirlýsingu frá Einari H. Kvaran, er birtist í Morgunblaðinu 20. maí — yfirlýsingu, sem Sigríður svo svarar, en þar greinir þau einkum á um það hve lengi miðillinn var einn inni í byrginu áður en fram fór skoð- un á honum. Rannsóknarnefndin skipuð. Eftir að þessi atburður spurðist um bæinn og deilurnar hörðnuðu, tóku for ystumenn sálarrannsóknarfélagsins þann kost að skipa rannsóknarnefnd til að fylgjast með miðlinum og rann- saka hann á undan fundum. Af þeim mönnum, sem sæti áttu í rannsóknar- nefndinni eru aðeins tveir ennþá á lífi, læknarnir Guðmundur Thorodd- sen og Halldór Hansen. Þeir voru þá báðir ungir menn, viðurkenndir sér- fræðingar og mátti gera ráð fyrir, að þeirra dómi væri hægt að treysta. Halldór Hansen rifjaði upp fyrir okk- ur sinn þátt í málinu fyrir nokkru og sagðist enn engu nær um þau fyrir- brigði, er gerðust hjá Einari Nielsen. „Þegar Einar Nielsen kom hingað“, sagði Dr. Halldór, „hafði hann verið Aðalbjörg Sigurðardóttir ákærður í Oslo fyrir að vera svika- miðill. Hann hafði komið þar fram á nokkrum fundum, og þeir, sem at- huguðu hann, vildu halda því fram, að hann hefði geymt útfrymið eða slæðurnar, sem fram komu, í enda- þarminum. Þetta vissum við og því bað Haraldur Níelsson okkur Guð- mund Thoroddsen, hvort við vildum ekki vera á fundunum og fylgjast með honum. Við gengumst inn á það og rannsökuðum miðilinn með þeim hætti, að við færðum hann úr öllum fötum og leituðpm í endaþarminum og í hverri spjör hans. Við leituðum líka á stólnum, sem hann sat á og allt í kring í herberginu. Sérstaklega at- huguðum við vel allar rifur, saum- sprettur á fötunum og þar fram eftir götunum. Af lýsingu Sigríðar Þorláks- dóttur kom fram, að miðillinn mundi þurfa nokkra metra af tvíbreiðu gasi til að hylja sig í og þóttumst við ekki í vandræðum með að finna svo stóra gasrúllu, ef hún væri falin einhvers- staðar. Við leituðum allsstaðar, meira segja á þeim báðum, Einari Kvaran og Haraldi Níelssyni, en fundum ekkert. Þetta var, að mig minnir, fyr- ir 15. eða 16. fundinn, sem haldinn var með miðlinum, einhvern tíma um miðjan marzmánuð. En nokk- uð var, að á fyrstu tveimur til þremur fundum, sem við leituðum á miðlinum, gerðist ekki neitt. En mig minnir það hafi verið á fjórða fundinum, sem fram kom líkamningur, sem ég sá og mér sýndist vera ung stúlka í hvítum kyrtli. Ég gat mælt hæð henngr við vegginn. Stærri líkamningar komu fram á næstu fundum en aldrei nema einn í einu. Ég fór fram á, að við fengjum að lýsa inn á miðilinn, meðan vofan — eða hvað þetta nú var — væri frammi, — en það fékkst aldrei^ þeir sögðu það, Einar og Haraldur, að „kontroll- örinn” hinum megin frá, vildi ekki leyfa það. Ég man nú ekki á hvað mörgum fundum við Guðmundur vorum, en ég tel alveg útilokað, að nokkur hafi verið í vitorði með miðlinum. Svo var ég á almennum fundi hjá Einari Niel- sen; þar var fjöldi fólks, og á þeim fundi gerðust margir undarlegir við- burðir. Miðillinn hófst á loft og hlutir umhverfis hann fóru á hreyfingu. Við heyrðum klappað saman lófum fyrir ofan höfuð hans og ég man, að ég fékk blekbyttu í ennið einhversstaðar frá. Þetta var mikið hasarmál á sínum tíma — og svo vorum við kallaðir fyr- ir rétt. Það kom til málaferla út af skrifum um málið og Harald Níelsson. Hendrik Ottósson gaf út lítinn bækl- ing um Einar Nielsen og Kristjaníu- málið. (Þar vísaði hann m.a. í eina grein hegningarlaganna frá 1869. Þar segir: „Hegningu þeirri, sem sett er í 253. gr. skal sömuleiðis hver sá sæta, sem----------hefir af manni peninga eða fjármuni með signingum, þulum, særingum, spám eða fyrir önnur slík hindurvitni.“ Og neðanmáls segir H.O. í athugasemd um Sálarrannsókn- arfélag íslands: „Einkennilega lætur nafnið í eyrum, þar sem að félaginu standa aðeins menn trúaðir á þessi ,,fyrirbrigði“, svo sem próf. theol. Haraldur Níelsson, en hann verður vægast sagt að skoðast miður hæfur til slíkra rannsókna, einkum vegna trúar- ofsa og þröngsýni.“ — Einnig segir H.O.: „Hér dirfast þeir að koma fram með opinberan svikara“.) Harald- ur Níelsson fór í meiðyrðamál og krafðist þess að þau um- mæli, er Hendrik viðhafði um hann yrðu dæmd dauð og ómerk. Það var gert og auk þess fékk hann 50 króna sekt og varð að greiða máls- kostnað. En fyrir réttinum skýrðum við Guðmundur frá þeim athugunum sem við höfðum gert og því sem við höfðum fylgzt með á fundunum. Ég man, að ég stakk þá upp á þremur hugsanlegum skýringum á því, sem gerzt hafði í Osló, — skýringum, sem bent gætu til þess, að maðurinn hefði ekki vísvitandi farið með svik. I fyrsta lagi: Norðmennirnir höfðu komizt að þeirri niðurstöðu, að Niel- sen hefði geymt slæðurnar í enda- þarminum vegna þess, að þeir fundu hægðaagnir á fingrunum á honum. En þeir höfðu eins og við, rannsak- endaþarminn og ég lagði til að hugs- anlega hefðu þeir getað valdið „irri- tation" og maðurinn hefði ósjálfrátt og í athugunarleysi klórað sér. í öðru lagi benti ég á Crawfor- fyrirbrigðin. Þau gerðust í sambandi við frægan kvenmiðil, sem rannsakað- aður var. Höfðu þeir, sem athuguðu hana, sandker á miðju gólfi en síðan gerist það, að sandagnir úr því bárust inn í öll vit hennar og slím frá henni barst yfir í kerið. Tókst að Ijósmynda strauminn, sem lá milli konunnar og kersins. Þetta hafði ég lesið einhvers- staðar, en ég man ekki hvar það átti að gerast. í þriðja lagi benti ég á þann mögu- leika, að miðilsástand væri skylt dá- leiðslu og að miðilinn framkvæmdi ósjálfrátt það, sem væri ríkjandi hugsun í kringum hann. Og þegar allir í kringum hann væru sannfærðir um að hann sviki, — þá sviki hann. En sem sagt — sagði Dr. Halldór Han sen að lokum — við höfðum enga nátt úrulega skýringu á þeim fyrirbrigð- um. sem þarna gerðust. Ég er sann- færður um að þarna var eitthvað á seyði, en hvað það var veit ég ekki — og hvort það var eitthvað í sambandi við annað líf eða framliðna, er annað mál og erfitt að sanna. Allar byggingavörur á sama stað Timbur Steypust.járn st. 37 Kamstál ks. 40 Mótavír Bindivír Þakjárn Þilplötur alls konar Sími 41010 Verkfæri Saumur Hreinlætistæki Mósaik á veggi og gólf Veggflísar, enskar og þýzkar Gólfflísar Lím og margt fleira. Sími 41819 Byggingavöruverzlun Kópavogs KÁRSNESBRAUT 2 — KÓPAVOGI.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.