Morgunblaðið - 28.03.1965, Síða 23
Sunnudagur 28. marz 1965
MORGUNBLAÐIÐ
23
Anna G. Torfadóttir — Minning
AÐ MORGNI 21. marz lézt Anna
Guðrún Torfadóttir eftir þunga
legu um þriggja mánaða skeið.
Hún hafði verið mjög hraust og
bognaði lítt, þótt á móti blési, en
brotnaði nú að fullu í bylnum
etóra seinast, svo að ég bregði
fyrir mig orðum Stephans G.
Stephanssonar.
Anna fæddist í Kollsvík í
Rauðasandshreppi 6. des. 1894.
Foreldrar hennar voru Torfi
Jónsson bóndi og sjómaður þar
og kona hans Guðbjörg Guð-
bjartsdóttir.
begar Anr»a var 9 ára gömul,
varð hún fyrir fyrsta stóra áfall-
inu, er hún sá föður sinn
drukkna í brimlendingu í Kolls-
vík, 4. apr. 1904. Var hann þá
við annan mann að sækja trjá-
við í nýjan bæ.
I ---
tneð 13 börn. Heimilinu var
haldið saman, og bróðir Guð-
bjargar, sá er af komst, er Torfi
drukknaði, tók við búsforráðum.
Þegar Anna var telpa, fór hún
til heyskapar að Krókshúsum að
Rauðasandi. Fegurð staðarins
heillaði hana, og greip hana
löngun til að komást þangað til
langdvalar.
Þegar hún hafði aldur til, réð
hún sig í kaupavinnu á hið
(þekkta heimili Saurbæ á Rauða-
sandi, en þá bjuggu þar Ólafur
Thorlacius og kona hans.
Samtímis var þar á heimili
Ólafur Einarsson, búfræðingur,
bróðir Sigurvins alþingismanns
og þeirra systkina. Síðar felldu
(þau Ólafur og Anna hugi saman.
Þau giftust 1918 og fóru að búa
i Stakkadal. Heimili þeirra var
rómað fyrir myndarskap og
hreinlæti. Eftir 18 ára sambúð
missti Anna mann sinn, og hafði
(þeim þá orðið átta barna auðið
og voru sjö á lífi.
ólafur átti góðvin, Halldór
Júlíusson, sem verið hafði kaupa-
maður þeirra hjóna í Stakkadal.
Þegar Ólafur sá, að hverju fór
og var lagztur banaleguna, bað
hann Halldór vin sinn að annast
konu og börn. Halldór mun hafa
gefið fyrirheit um það og efndi
af frábærum drengskap.
Halldór lézt að Hrafnistu 11.
jan. sl. Hann hafði þá gengið
sjö börnum í föðurstað, því
yngsta frá því að það var á
fyrsta ári.
Börn Önnu og ólafs eru: Torfi,
bankafulltrúi, Reykjavík, Guð-
björg Ólína, húsmóðir, Reykja-
vík, Elín Erna, húsmóðir, Lamb-
haga, Ölfusi, Halldóra Guðrún,
saumakona, Reykjavík, María,
húsmóðir, Vindhæli, Skagaströnd
Kristín, hjúkrunarkona, Reykja-
vík.
Anna átti ekki kost á skóla-
námi að lokinni barnafræðslu,
en hún var bókhneigð og list-
hneigð. Hún lærði að leika á
orgel hjá Guðnýju Þorvaldsdótt-
ur, prests í Sauðlauksdal, og að
því námi loknu lék Anna á orgel
Saurbæjarkirkju á Rauðasandi í
þrjátíu ár.
Anna hafði glöggt auga fyrir
náttúrufegurð og unni börnum
og blómum. Blómareiturinn í
Stakkadal vitnaði um þann , sem
annaðist hann, oft að loknum
löngum vinnudegi, þegar aðrir
hvíldust. Keppzt var um að koma
börnum til dvalar til Önnu í
Stakkadal vitnaði um þann, sem
fjögur börn auk heimabarna.
Anna var snjöll hannyrðakona
á útsaum, hekl og prjón og seinni
árin varði hún miklum tíma til
að vinna fatnað á barnabörnin.
Anna flutti frá Stakkadal að
Saurbæ árið 1945 og bjó þar í
fjögur ár. Þá brá hún búi og
fluttist til Reykjavíkur og hafði
heimili með yngri dætrum sínum.
Þær giftust og fluttust burt og
síðustu árin bjó hún með Krist-
ínu dóttur sinni að Hofteigi 38.
Mjög náið samband hefur þó
ávallt verið á milli Önnu og
barna hennar, enda voru þau
henni allt og hún þeim. Börnin
þurftu oft að leita til hennar, allt
til hins síðasta, og öðrum fremur
leysti hún vanda þeirra.
Tólf ár eru nú liðin, síðan
fundum okkar Önnu bar fyrst
saman, og mér hefur orðið æ
ljósara, hve ágæta konu hún
hafði að geyma. Ég flyt börnum
og barnabörnum samúðarkveðju
og þakka góð kynni, en í hugum
okkar munu geymast Ijúfar minn
ingar um greinda og hjálpfúía
konu og móður, sem var styrkust,
þegar mest á reyndi, trúuð og
raungóð.
Almáttugan guð biðjum við að
blessa hana í nýjum heimkynn-
um.
Magnús Sigurffsson.
Húsasmiðir!
Viljum ráða flokk trésmiða við byggingu okkar.
Uppmælingarvinna. — Upplýsingar gefur Þórður
Jasonarson sími 16362 og 18551.
IÐNGARÐAR H.F.
Auglýsing frá bæjar-
verkfræðingnum í Kopavogi
Breiðholtsvegur verður lokaður á næstunni fyrir
neðan vegamót Nýbýlavegar og Breiðholtsvegar.
FÉLAGSHEIIHILI
Skemmtikvöld í kvöld
★ SKEMMTIATRIÐI
★ VEITINGAR
★ DANS, TÖFL, SPIL, BLÖÐ
og BÆKUR.
Komið í hin nýju og þægilegu húsakynni
HEIMDALLAR í Valhöll.
Heimdallar
BIIMGÚ - BIIMGÓ
Bingó í Góðtemplarahúsinu í kvöld kl. 9. — Aðalvinningur eftir
vali. 12 umferðir. — Borðpantanir í síma 13355 eftir kl. 7:30.
Góðtemplarahúsið.
Borgfirðingar - Húnvetningar
Húnvetninga- og Borgfirðingafélögin í Reykjavík
halda skemmtun í Sigtúni þann 1. apríl n.k. kl.
8,30. Til skemmtunar verður:
1. Vísnaþáttur í nýju formi.
2. Los Comuneros del Paraquay.
3. Einsöngur og tvísöngur: Guðmundur Guð-
jónsson og Ingveldur Hjaltested.
4. D A N S .
Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti.
ATH.: Borð ekki tekin frá.
Skenimtinefndin.
Við sjóinn
falleg 6 herb. íbúðarhæð í smíðum á 1. hæð í
tveggja hæða húsi við Miðbraut á Seltjarnarnesi.
Allt sér. Kynding, inngangur og þvottahús.
Útborgun kr. 450 — 500 þús.
STEINN JÓNSSON
lögfræðistofa — fasteignasala
Kirkjuhvoli — Símar 14951 og 19090.
Afgreiðsluslúlka óskost
STRAX. — Tjpplýsingar ekki í síma
á morgun mánudag kl. 6—7 í verzluninni.
TFZJhHJtJ
” f WLJ ■ r'" m I ■ 'M
T*ÆKJAR.ðÖTU 63
Afgreiðslustúlku ósknst
strax eða um mánaðamótin, helzt vön.
ÍUUí, Ucllcli,
Laugavegi 82.
Innritun daglega
Sími: 2-05 65.
Kennsfa
hefsf
1. apríl
6 vikna námskeið
Snyrtinámskeið
Megrun
Aðeins 5 í flokki.
TÍZKGSKÓLI ANDREIJ