Morgunblaðið - 23.12.1956, Side 7
Sunnudagur 23. des. 1956
MORCUNBLAÐIÐ
▼el þótt hann liggi þétt við veg-
inn, þá er hann samt út af fyrir
sig, með því líka allhár grjót-
garður skýlir honura við vegin-
um, og má þar njóta friðar og
kyrrðar, þótt sífelld umferð sé
á veginum af fótgangandi og ríð-
andi mönnum, eða þá vögnum.
Þá er til vinstri handar og þar
gagnvart hús Sveins Sveinssonar
snikkara, biskupsbróður (síra
Hallgríms), allsnoturt hús og vel
byggt, því að Sveinn er mesti
smiður; það hús er einloftað, en
mjög rúmgott og vel um vandað.
Gagnvart því eða lítið eitt á ská
er stórt hús með kvisti, mjög
reisulegt, þar bjó Bergur Thor-
berg amtmaður, en húsið var til-
höggvið í Noregi og flutt þá til
Stykkishólms, því Bergur sat þar
þá; en er hann flutti til Reykja-
víkur, þá lét hann og flytja hús-
ið og setja þar upp, sem það nú er.
Eftir lát Bergs landshöfðingja
keypti síra Helgi Hálfdánarson
húsið og þar andaðist hann, og
býr nú ekkja hans, frú Þórhild-
ur, dóttir Tómasar Saemundsson-
«r, og síra Jón Helgason guð-
fræðikennari, sonur þeirra. Það
er mikilhæft hús og liggur þai
til garður með blómum og hvanr.a
lundi“. Ekki þarf að minna á,
að þetta hús stendur enn við
Bankastræti og sómir sér Vel, en
þar hafa verið verzlanir árum
saman, fyrst Málarinn og nú
Hljóðfærahúsið. Það yrði oflangt
mál að taka upp alla lýsmgn
Gröndals á Bankastrætinu, en
hann telur þar upp hvert hús:
sláturhús Jóns Þórðarsonar, vind-
mylnuna og smiðju Jónasar tón-
skálds Helgasonar, en dvelst
einna lengst við hús Sigurðar
Kristjánssonar bóksala, sem
Landsbankinn var í um tíma og
gaf þá götunni hið nýja nafn
Bankastræti, „sem bráðum mun
verða úrelt nafn og óskiljanlegt
eftirkomendunum, nema þeir lesi
það, sem hér hefur verið ritað“,
segir Gröndal, og hittir naglann
rétt einu sinni á höfuðið, því hve
mörg ágætis örnefni hafa ekki
týnst og farið forgörðum hér í
bæ vegna þess að eftirkomend-
urnir hættu að skilja nafngift-
irnar?
m.
Það er ágætt að eiga bæjarlýs-
útgu Gröndals og Reykjavíkur-
myndir biskupsins, en það er ekki
alveg nóg. Gömlu húsin eru að
hverfa, flestum er breytt svo að
þau eru nær óþekkjanleg, önnur
verða að víkja fyrir nýjum bygg-
ingum. Hvert gamalt hús, sem
hverfur fyrkr straumkasti tímans,
tekur með sér minningar um það
fólk, sem þar lifði og dó. Meðan
enn er tími til að bjarga e*n-
hverjum af hinum helztu sögu-
ríku húsum, verður að stefna «8
því að finna þeim nýtt umhverfí,
fagran og vel skipulagðan reit
sem næst bænum, og xlytja þau
þangað í heilu lagi eða sundur-
tekin og byggja upp að nýju eins
og þau voru, er saga þeirra gerð-
ist. Þá eignast Reykjavík verð-
ugt byggðarsafn — „gamla bæ-
inn“ endurbyggðan í smækkaðri
mynd, en sannan utan og innan.
Vegamótin Laugavegur—Bankastræti, um 1894.
I GLEÐILEG JÖL!
Skinasmíðastöðin DRÖFN h.f.,
Bygginarfélagið ÞÓR h.f., Hafnarfírðl
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt komandi ár, með þökk fyrir við-
skiptin á því liðna.
Efnalaugin GYLLIR,
Langholtsvegi 14
GLEÐILEG JOL!
Vélsmiðjan KLETTUR h.f.,
Hafnai-firðL
ALLT Á SAMA STAÐ
Sparið tíma, eldsneyti og peninga, notið aðeins
CHAMPION KERTI
Það er sama hvaða bílatcgund þér eigið, það borgar sig að nota ný
CIIAMPION KERTI
••
Oruggari ræsting, meira afl og allt að 10 % eldsney tissparnaður
Það er um loo.ooo.ooo.— hundrað milljón
CHAMPION KERTI
daglega í notkun í heiminum
EGILL VILHJÁLMSSÖN HF. Laugaveg 118 — Sími 81812