Morgunblaðið - 23.12.1956, Side 6
MORCUNBLAÐIÐ
Sunrmdagur 23. des. 1956
LÁRUS SIGURBJÖRNSSON, S K J A L AVÖ RÐ U R:
GAMLAR
UiiMHH IHIIiUU UUIIUIII UIIIUIIIJ IUIIIIIIII IIIIHUlll UIIIHIil UUIIIIU
REYKJAVfkllR-
IUYIMDIR
HAUSTIÐ 1945 keypti bæjar-
stjórn Reykjavíkur úr dán-
arfc>úi Jóns biskups Helgasonar
Reykjavíkurmyndasafn hans, mál
verk og teikningar, sem hann
hafði gert ýmist eftir eldri fyrir-
nayndum eða frumgert eftir
minni og sjón, af húsum og göt-
u*n í bænum. Er þetta mikið
safn, 118 teikningar og málverk
talsins, og segir það á sinn hátt
byggingarsögu bæjarins frá því
bærinn fékk kaupstaðarréttindi
1786 og fram á fyrstu ár tuttug-
ustu aldar. Olíumálverkin eru 38
að tölu,, vatnslitamyndir 29 og
ÍH teikning með blýanti eða
penna. Safn þetta er einstakt í
súani röð og má segja, að það
myndskreyti á fagurlegan hátt
hin mörgu og greinargóðu rit
Jóns biskups Helgasonar um
Reykjavík, ævistarf hans unnið
við hliðina á embættisstörfum,
fræðimennsku, sem lengi mun í
hávegum höfð. Hefur enginn einn
maður unnið sögu Reykjavíkur
eins mikið og gott starf og Jón
biskup, en þess má geta, að hinn
mikli eljumaður átti auk Reykja-
víkurmynda sinna mikið safn
teikninga og málverka af kirkj-
um lendsins, sem hann hafði gert
í yfirreiðum sínum á kirkjustaði,
og ar það önnur myndaroð, sem
mun halda á lofti minningunni
lun hinn drátthaga biskup.
Með því að festa kaup á Reykja
víkurmyndum Jóns biskups var
lagður grundvöllurinn að minja-
og byggðarsafni Reykjavíkur-
bæjar. Á styrjaldarárunum komst
skriður á að safna skjölum og
bókum bæjarstjórnar og stofnana
bæjarins á öruggan stað og ganga
frá til geymslu, því að Þjóð-
skjalasafnið hafði þá um langan
tíma ekki haft húsrum aflögu
fyrir nýrri skjalagögn. Upp úr
þessu myndaðist skjalasafn bæj-
arins og var því fengið til vörziu
myndasafn biskups. Frá því haust
M5 1949 hefur safnið verið til
húsa í kjailara hússins Ingólfs-
stræti 5, en í því húsnæði hefur
alls ekki verið hægt að hafa opið
safn fyrir almenning eða sýning-
ar á myndum og munum, sem
safnið á, sökum þrengsla og ó-
hentugs aðbúnaðar í alla staði.
Minja- og skjalasafn Reykjavík-
urbæjar hefur þó aukist verulega
á undanförnum árum, en lang-
stærst viðbót við safnið kom frá
Þjóðskjalasafni, er það afhenti
Minja- og skjalasafninu bækur
og skjöl bæjarmálefna samkvæmt
ákvæðum laga frá 1946 um héraðs
skjalasöfn.
Kjallara-húsnæði safnsins var
vitanlega ófullnægjandi til lengd-
ar enda stendur fyrir dyrum að
safnið flytji í ný og rúmgóð sal-
arkynni í hinni nýju skrifstofu-
byggingu bæjarins við Skúlatún.
Verður safnið þar á neðstu hæð
og standa vonir til þess að minja-
og byggðarsafnið fái bjartan og
rúmgóðan sýningarsal til umiáða.
Trúlegast verða Reykjavíkur-
myndir biskupsins um langan
aldur ekki einaeta aðal-uppístað-
an í Minjasafninu, heldur líka
eitt hið girnilegasta trl fróðleiks.
Bæjarsagan er þar sögð á
skemmtilegan hátt, einkum aá
þátturinn, sem snertir byggingu
bæjarins. Gildi þeirrar sögu, sem
biskupinn segir með blýant og
pensli, má auka og dýpka með
því að leita uppi gamlar myndir,
helzt Ijósmyndir, og síðan bæta
við nýjum myndum af þeim stöð-
um, húsum og götum, sem hann
hefur augum leitt í myndum sín-
um. Hlýtur það að verða eitt
aðal-viðfangsefni Minjasafnsins í
hinu nýja húsnæði að auka
myndasafnið stórlega og setja al-
menningi fyrir sjónir á skilmerki
legan hátt.
Hér á ekki heima að ræða um
listgildi málverka Jóns biskups,
það væri líka óréttmætt, því að
listamaðurinn hefur ekki haft
listina fyrst og fremst í huga,
heldur söguna, að draga upp sem
nákvæmast og skýrast fyrir sjálf-
an sig og aðra myndir af því sem
hann hafði séð eða hafði glöggar
heimildir um. Það er eftirtekt-
arvert, að fyrsta myndin, sem
hann teiknar og er í safnmu nú,
er mynd „tekin út um“ glugga í
Latínuskólanum í kennslustund í
6. bekk. Hugur skólapiltsins hef-
ur ekki verið við námið þá sund-
ina, meðal annars sér hann á
Lækjargötunni framan við hús
dr. Jónassens dömu að þeirra
tíðar hætti með „parasoll“ og í
„krínólíni". Annars gnæfir upp
yfir þakið á Jónassens-húsinu þá
nýreist stórhýsi Magnúsar snikk-
ara Ólafssonar, kallað „Hæsti-
réttur“ af almenningi. Mann renn
ir grun í, að þetta útsýn hafi
verið meira spennandi en náms-
greinin. En nú lagði Jón Helga-
son fyrir sig guðfræði og það
með þeirri afleiðingu, að hann
varð biskup, svo að segja má að
námsgreinin hafi . orðið heldur
betur ofan á. En hann afneitaði
aldrei listamanninum, svo að
jafntrúlegt er, að hefgii hann siglt
upp á handverk eða til að full-
nema sig í dráttlist, hefði hann í
verki orðið mikill byggingar-
meistari þessarar borgar, sem
hann hefur uppteiknaða látið í
tvöföldum skilningi, í ritum sín-
um og myndum.
n.
Einhver ákjósanlegasti og
skemmtilegasti leiðsögumaður
um bæinn eins og hann var í
byrjun þessarar aldar er „leiðar-
vísir“ Benedikts skálds Gröndals
„Reykjavík um aldamótin 1900“,
sem birtist í 6. árgangi Eimreið-
arinnar, en síðar sérprentuð og
nú af nýju í öðru bindi Ritsafns
Gröndals (Isafoldarprentsmiðja,
1951). Gröndal var ágætlega
drátthagur, en því miður liggja
ekki eftir hann margar Reykja-
víkurmyndir. Hann var þó við
uppmælingar fyrir bæinn og seg-
ir sjálfur frá, þegar hann lítur
yfir bæinn frá Skólavörðunni og
sér Grænuborg: „Þar átti ég einu
sinni að mæla fyrir bæjarstjórn-
ina“, en þegar sást til mín frá
„borginni”, þá kom einhver kerl-
ing staulandi með áköfum óhljóð-
um — hefur víst hugsað að nú
væri bæjarstjórnin að láta gera
einhvern galdurinn; — en ég vai
búinn að öllu þeim megm áður
en hún kom“. Minjasafnið á ein-
mitt þennan uppdrátt af Þingholt-
unum eða allri byggð sunnan
Skólavörðustígs og Bakarastígs
1884. Þetta er árið áður en Jón
biskup situr í 6. bekk og lítur
yfir húsin næst sér við Austur-
völl. „Þá er að minnast á Aust-
urvöll", segir Gröndal „hann er
í miðjum bænum og var áður
eintóm flög og jarðföll og gryfj-
ur, sem fylltust vatni á veturna,
og var þar þá illt yfirferðar, þeg-
ar engin Ijós voru til að lýsa á
götunum". Síðan telur Gröndal
upp húsin umhverfis Austurvöll
að sunnan og norðan. Við aust-
urhliðina er húsahyrfingin, sem
skólapilturinn sér út um glugga
sinn. Leiðarvísir Gröndals fer út
í aðra sálma, og er hér stíft aft-
an af lýsingunni. „Að austan-
verðu og inni í garði nálægt húsi
dr. Jónassens er lítið hús, þar sem
nú búa systur Magnúsar lands-
höfðingja; áður bjó þar Hendrik
Hansen*) mágur Hannesar John-
sens, og síðan Teitur Finnboga-
son og Jón Jónsson (Álaborg)
landritari; allir þessir hafa and-
ast þar. Þétt við Austurvöll er
hús Kristjáns assessors, sem þeir
létu byggja Guðmundur Thor-
grimsen og Tómas Hallgrímsson
læknir, mjög vandað hús og
stórt, einloftað; þar andaðist
Tómas.“ Þetta hús sést ekki á
myndinni en það er við lýði enn,
þó breytt. Lengra til norðurs kem
ur gamla pósthúsið, upphaflega
byggt af Hallgrími Scheving yfir-
kennara, en hinum megin við
vesturhlið Austurvallar „er fyrst
Lyfjabúðin (Apótekið), gamalt
hús en allgott, einloftað með
kvisti; þar var fyrst Möller lyf-
sali, móðurbróðir Vilhjálms
Finsens; síðan Randrup, hann
var Frakka-konsúll og var þar
þá krökkt af Frökkum; eftir nann
kom Krúger og lét hann gera
útbyggingu við innganginn og
svalir uppi og prýða með mynda-
styttum; þá var frelsistími í apó-
tekinu, því þá gat maður fengið
allt receptslaust: blásýru og
klóral og arsenik og allt og allt,
en nú fæst ekkert receptlaust
nema saltsýra og brennisteins-
sýra og kamfórudropar“. Bene-
dikt Gröndal vissi eins og Jón
Helgason biskup að saga húsanna
í bænum er saga fólksins, húsin
bera keim af íbúunum á hverjum
tíma, þess vegna er það þýðingar-
mikið að eiga myndir biskups-
ins og lýsingar Gröndals.
Ferðasaga Gröndals um bæinn
aldamótaárið hefst hjá Skólavörð
unni og verður honum fljótt geng
ið niður á Laugaveg, því að eng-
in byggð er til austurs að sjá
nema „barónsfjósið", en við
Laugaveginn „hefur Gísli Þor-
bjarnarson búfræðingur byggt
snoturt hús og einkennilegt og
yrkt land þar í kring“. Niður
Laugaveginn liggur leiðin fram
hjá mörgum merkilegum húsum
bæði af sjálfum sér og eigend-
unum. „Eru þau öll til komin á
örstuttum tíma og þar með auk-
inn fólksfjöldi“. Þar er stórt og
stæðilegt hús tvílofta, sem Samúel
Ólafsson söðlasmiður hefur látið
byggja, „það liggur fyrir öllum
sveitamönnum, sem koma þenna
*) Það er misritun hjá Gröndal,
að Hansen kaupmaður hafi heitið
Hendrik að forna'fni. Hanp hét
Símon. — L.S.
veg til bæjarins“. Þar er hús,
„sem minnir á „skýskafara" í
Chicago, allt járnklætt“ og þar
er annað hús frægt af eigandan-
um, Benedikt sótara, sem er
„einhver mesti kvæðamaður og
einn af þeim fáu, sem heldur uppi
rímunum, sem hin yngri skáld og
fagurfræðingar hafa viljað út-
skúfa og róið að því öllum árum
að svifta fólkið þessari litlu
skemmtun, sem það hefur lengi
haft, og komið inn hjá því óbeit
og fyrirlitningu fyrir því, sem
þjóðlegt er, en ekki getað sett
neitt í staðinn nema lélegar
þýðingar, útlent rómanarusl og
kvæðarusl með útlendu siði“.
Svóna verða útúrdúrar Gröndal*
einatt, nema hvað þessi er enn
þá lengri, því að hann þarf að
hella sér yfir nýju skáldin í neð-
anmálsgrein að auki. Fram hjá
furðuverkum í sýningarglugga
Péturs Hjaltesteds úrsmiðs, þar
sem eru „gluggarúður svo stórar,
að heila klukkustund þarf til að
horfa á hverja þeirra", víkur leið-
in að lokum í einn punkt neðst
á Laugaveginum, en þar á vega-
mótum við Skólavörðustíginn
„stendur hið reisulega hús Hall-
dórs Þórðarsonar, tvíloftað og
með útskotum á hornunum, eitt-
hvert hið vandaðasta og skaut-
legasta hús, og liggja höggvin
steinstig með grindum beggja
megin upp að dyrunum. Þar byr
Halldór Þórðarson og þar bjó
Þorsteinn Gíslason, ritstjóri hins
margþjáða „fslands", sem dó af
því enginn borgaði“. Vegamótin,
sem verða við þetta hús, ein hin
merkilegustu í bænum, eru alveg
óbreytt fram á þennan dag, sem
sjá má á einum þremur teikn-
ingum Jóns biskups, enda má
segja, að þessi vegamót og Bak-
arastígurinn, sem nú heitir Banka
stræti, hafi legið næst æskustöðv-
um hans og verið honum hugleik-
in. Nú sem oftar standast á lýs-
ingar Gröndals og teikningar
biskups. „Vér staðnæmumst þá
aftur við hús Halldórs Þórðar-
sonar“ — með Gröndal — „og
gefur þá að líta hús háyfirdómara
Jóns Péturssonar (Laugavegur 1,
nú verzlunin Vísir); þar býr nú
(1900) ekkja hans, frú Sigþrúður,
og tveir synir hennar, Sturla
kaupmaður og Friðrik, cand.
theol.; hafa þeir prýtt húsið mjög
bæði utan og innan með dýrindis-
málverkum og ýmsu sktauti, ea
í hallanum þar iyrir neðan er
fagur aldingarður skrýddur morg
um tegundum fagurra blóma og
jurtagróða; er hann upp'naflega
lagaður af mági þirra, Guðmundi
lækni Guðmundssyni, sem bjó á
Laugardælum. Sá garður er
einna skrautlegastur og þægileg-
astur allra garða hér, því að ja. o-
Smiðja Jónasar í Bankastræti og Þingholtabæirnir, um 1870.