Morgunblaðið - 04.10.1955, Síða 2
MORGUNBLAÐ19
Þriðjudagur 4. okt. 1955
r 2
Leitað tiiboða vegna kaupa á
10 nýjam vögnum handa S.V.R.
Strætisvögnunum hefur verið
neitað um hækkun fargjalda
BÆJARRÁÐ hefur samþykkt að leita tilboða í 10 nýja dieselvagna
handa Strætisvögnum Reykjavíkur og fáist að greiða vagnana
é ákveðnuin árafjölda. I sambandi við hin fyrirhuguðu kaup gaf
forstjóri Stræisvagnanna ýmsar upplýsingar um hag SVR.
NEITAÖ UM HÆKKUN
Á GJÖLDUM
S.V.R. hefur farið fram á að
mega hækka fargjöld um helm-
ing á almennum frídögum og eft-
ir kl, 8 á kvöldin, en sú hækkun
hefur ekki fengizt vegna mót-
stöðu fulltrúa Framsóknarmanna
í Innflutningsnefnd. Þessi hækk-
un er rökstudd með því að stór-
feldar kauphækkanir hafi orðið
hjá vagnstjórunum auk annara
almenr.ra verðhækkana. Sú leið
var valin að leita eftir hækkun
é frídögum og á kvöldin vegna
|>ess að það mundi snerta minnst
Jiapji mikla fjölda allskonar fólks,
eem notar vagnana til ferða til og
frá vinnustað.
AFIÆIBINGIN
ER REKSTURSTAP
Vegna þess að fargjöld hafa
ekki fengizt hækkuð er óhjá-
kvæmilegt að reksturstap hef-
ur orðið, sem nemur á fyrstu
8 mánuðum þessa árs um 1,2
millj, kr. Farþegum hefur
nokkuð fækkað og munu um
SöO þús. kr. af þessu tapi stafa
af því. Er illt til þess að vita
að S.V.R. skuli ekki geta borið
sig vegna þess að fyrirtækið
fær ekki eðlilcga og nauðsyn-
lega hækkun á fargjöldunum.
Það er stefna forráðamanna
bæjarins að fyrirtæki eins og
S.V.R. fái sannvirði fyrir þá
þjónustu, sem þau láta í té og
standi undir sér sjálf. Annars
er ekki á öðru völ en jafna
reksturshalla slíkra fyrirtækja
niður á bæjarbúa í hækkuðum
útsvörum. Það er öllum í óhag,
að brugðið skuli fæti fyrir
eðlilega þróun S.V.R. með því
að neita fyrirtækinu um sann-
gjarna hækkun fargjalda á
sama tíma, sem kaup og ann-
ar tilkostnaður hækkar, eins
og öllum er vitanlegt.
RANGHERMI ÞJÓÐVILJANS
Þjóðviljinn birtir s 1. sunnudag
grein um reksturstap S.V.R., en
greinin er sýnilega byggð á mis-
skilningi. Þar er því haldið fram
að S.V.R. hafi fengið hækkun á
fargjöldum á árinu, sem er rangt
og einnig að tapið stafi eingöngu
af fækkandi farþegum, sem er
einnig rangt með því að hallinn
stafar ekki af því, nema að hluta,
eins og áður er sagt.
Hvalveiðivertíðinni
í Hvalfirði lokið
411s veiddust 400 hvalir
AKRANESI, 26. sept.
400 HVALIR veiddust í sumar í Hvalfirði. Vertíðin hófst með
því að fyrstu hvalveiðibátarnir fóru út á hvítasunnudagskvöld og
lauk henni 20. þ. m.
Hval/eiðibátar stöðvarinnar
eru 4 með 56 mönnum á, 14 á
hverjum bát og allt eru það ís-
lendingar nú orðið. í sjálfri hval
veiðistöðinni unnu 40 manns í
surr.ar. Sumir eru nú farnir það-
an en aðrir eru eftir eins og vani
er, til þess að ganga frá, hreinsa
vélarnar og kippa ýmsu í dag,
eftir hvalvinnsluna.
f hvalstöðinni hafa fengist á
vertíðinni 220 lestir af íýsi og
hefir einn skipsfarmur 1000 lestir,
verið tekinn þar til útflutnings í
sumar. Svipað þungamagn hefur
stöðin gefið af sér af hvalkjöti og
rengi. Mest af hvalkjötinu eða
1800 lestir hefir Heimaskagi h.f.
á Akranesi hraðfryst, þó að nokk-
ur hluti þess hafi verið seldur til
innanlands neyzlu nýtt eða nið-
ursoðið.
Rúml. 1200 lestir af hraðfrysta
kjötinu hefur þegar verið flutt
út.
Hvalst-engi frá stöðinni er nú
selt í öllum matvöruverzlunum
lanthins.
Hvalsbeinin hafa nú verið soð-
in og þegar lýsið er runnið úr
þeim eru þau þurrkuð i 4 þurrk-
urum stöðvarinnar og jafnframt
möiuð. Komið hefur til tals að
notfæra sér mikið af hvalmjöl-
inu í ár fyrir skepnufóður innan-
land- til að bæta úr fjörefna-
ekorti heyjanna.
Skíðunum, sem eru 70—80 cm á
lengd er kippt upp úr dálkinum,
sekkjuð og flutt út og seld til
Frakklands.
í Þetta er met-ár um aflabrögð
hjá Hvalveiðistöðirtni. Var fram-
leitt á s.l. ári 700 léstir af hval-
mjöli en í ár komst hvalsmjöls-
framleiðslan upp í 1200 lestir eða
500 lestum meir en í fýrra. ^
Framkvæmdastjóri Hvalstöðv-
arinnar er Loftur Bjarnason út-
gerðarmaður í Hafnarfirði, stöðv
arstjóri er Jafet Hjartarson og
verkstjóri Þórir Þorsteinsson.
— Oddur.
S.L. FOSTUDAG birti Morguh-
blaðið þýðingu á ritstjórnar-
grein úr sænska blaðinu Express-
en, og telur þýðandinn greinina
vera „sanngjarna og fróðlega".
Fjallar hún að mestu leyti um
deilu þá, sem upp hefur risið
vegna uppsagnar Svía á loftferða
samningi íslands og Svíþjóðar. í
hinni „sanngjörnu og fróðlegu
ritstjórnargrein“ bregður m. a.
fyrir þessari furðulegu hugsmið,
og segir svo orðrétt: „Grunur
leikur á að SAS ætli að fara
krókaleiðir til þess að sigrast á
Loftleiðum. Það kvað vera í bí-
gerð að SAS efli hitt íslenzka
flugfélagið, Flugfélag íslands, til
Ameríkuferða, en með því móti
myndu hin litlu íslenzku flugfé-
lög ganga hvort af öðru dauðu í
nýrri samkeppni, en eftir það
kemur SAS til sögu og hirðir
hræin.“ Svo mörg voru þau orð.
Til þess að fyrirbyggja allan
misskilning telur Flugfélag ís-
lands rétt að taka það fram í
sambandi við ofangreind um-
mæli blaðsins, að félaginu er alls-
kostar ókunnugt um þau áform,
sem sögð eru vera á prjónunum
hvað áhrærir umrædda sam-
vinnu SAS og Flugfélags íslands.
Hefur hvorki fyrr né síðar verið
leitað til félagsins varðandi það
mál, er að framan greinir, og er
varla þörf að taka það fram, að
forráðamenn Flugfélags íslands
eru ekki og hafa aldrei verið til
viðræðu um slíka samninga.
Væntanlega getur hið sænska
blað gefið gleggri upplýsingar
um þetta mál, og væri þá ekki
úr vegi að geta heimildarmanna.
Ótrúlegt er, að þeir gangi lengi
dulbúnir, ef þeir hafa góðan mál-
stað að verja.
Flugfélag íslands h.f.
Gæziuleikvöilur
fyrir smábörn
GÆZLA smábarna verður nú
tekin upp til reynslu á leikvöll-
inum við Grettisgötu.
Á tímabilinu frá kl. 1,30 til 4
e. h. alla virka daga verður starf-
rækt gæzla fyrir börn á aldrin-
um 2—6 ára, en á sama tíma er
ekki ætlazt til að eldi börn sæki
leikvöllinn. Á öðrum tímum dags
ins en þeim, sem að ofan greinir,
verður völlurinn opinn börnum
á öllum aldri svo sem verið hef-
ur. — (Frá leikvallanefnd).
Mynd þessi var tekin í réttinni við ármót Laxár og Svínadals-*
ár, daginn, sem hún var fyrst tekin í notkun.
IMý rétt tekin í notkun
í Kjós fyrir 3000 fjár
VALDASTÖBUM í Kjós, 28. sept.
— í gær, miðvikudag, var tekin
í notkun hér í sveit ný fjárrétt.
Er hún úr járnbentri steinsteypu
og mun taka 3000 fjár.
Rétt þessi er byggð í landi
Möðruvalla, við ármót Laxár og
Svínadalsár. Að vísu er hún ekki
alveg fullbúin, eins og hún á að
vera. Er síðar ætlunin að byggja
skýli við hana og einnig gerði til
að reka fé í.
Réttin er steinsteypt. Hvíla
veggirnir á steinstólpum, sem
grafnir eru í jörð. Milli veggs og
jarðar loftar um 12 sentimetra.
Áætlað er að réttin taki 3000 fjár.
Byggingarkostnaður mun vera
um 100 þús. kr. í
Allmargir bændur smala fé
sínu heim til sín daginn áður en
réttað er, en úrgangurinn er síð«
an rekinn til hreppsréttar.
Yfirmaður við bvgginguna va®
Njáll Guðmundsson kennari. Etl
aðalsmiðir Sigurður Guðmunds-
son á Möðruvöllum og Jónmund<
ur Jónsson.
Fjölbreytt vetrarstarf-
r
senii Armanns að hefiast
«5
m m
OU vinna Hggur
niðrt í Klakksvík
Landssfjérnin neifar að verða við kröfum
verkdfýðsfélaganna
IDAG var ekkert unnið í Klakksvík nema það að opinberir starfs-
menn mættu til vinnu. Verkalýðsfélagið hafði boðað 24 stunda
vinnustöðvun frá morgninum og iðnaðarmannafélagið tilkynnti og
vinnustöðvun, og var ekkert tekið fram um það hve lengi hún
mundi standa. Félög þessi mótmæltu veru danska lögregluliðsins
í Klakksvík svo og því að freygátan Hrólfur kraki liggur þar við
festar.
VETRARSTARFSEMI Glímufé-
lagsins Ármanns hefst á mánu-
daginn. Eins og undanfarin ár
verður starfsemin mjög fjöl-
breytt. Æfingar fara fram í
íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar,
íþróttahúsi ÍBR við Hálogaland
og í íþróttahúsi KR við Kapla-
skjólsveg.
Fimleikar kvenna og karla, ísl.
glíma, hnefaleikar, þjóðdansar
og vikivakar verða í íþróttahúsi
Jóns Þorsteinssonar. Handknatt-
leikur kvenna og karla og körfu-
knattleikur í íþrótahúsi ÍBR,
frjálsar íþróttir í KR-húsinu,
sund og sundknattleikur í Sund-
höll Re.vkjavíkur, skíðaæfingar
frá skíðaskála félagsins í Jósefs-
dal og róður er æfður frá róðrar-
skýli félagsins við Skerjafjörð.
Kennarar verða frú Guðrún
Nielsen, sem kennir fimleika
kvenna, Vigfús Guðrandsson og
Hannes Ingibergsson fimleika
karla, Þorkell Magnússon hnefa-
leika, Stefán Kristjánsson, frjálð
ar íþróttir, Ásgeir GuðmundssoH
körfuknattleik.
Sérstök athygli skal vakin á 2.
fl. karla í leikfimi. sem verðus
fyrir byrjendur og þá aðra, serri
vilja liðka sig eftir innisetur og
erfiði. Þá verður drengjaflokkur.
og mun þar verða aðallega lögð
áherzla á áhaldaleikfimi, og ættu
ungir drengir ekki að setja sig
úr færi að læra þessa skemmti-
legu íþrótt. Þá skal á það bent, acj
allir, sem hafa í huga að æfa,
ættu að láta innrita sig strax j
skrifstofu félagsins, sem er j
íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar,
sími 3356, opin á hverju kvöldi.
„N AUÐS YNLEGT!“
Skipshafnir á 48 fiskiskipum
færeyskum hafa sent landsstjórn
inni orðsendingu og skorað á
hana að láta lögregluliðið hverfa
frá Klakksvík — en landsstjórn-
in hefur neitað og sagt að vera
þess þar sé nauðsynleg til að
koma á friði og ró í landinu.
Viggo Kampmann hugðist
fljúga til Hafnar í dag, en för-
inni er frestað til morguns vegna
smábilunar í flugbátnum. Hann
átti að gefa danska þinginu
skýrslu um málið. Þess í stað
sendir hann H. C. Hansen skýrslu
um málin, og mun forsætisráð-
herrann ræða Færeyjadeiluna í
setningarræðu sinni í þinginu, en
þingið danska kemur saman eftir
sumarfríið á morgun (þriðju-
dag).. , . .j. .. __.
Björgun jarðýtanna
í Mjóafirði undirbúin
Eina lcibin að draga þœr upp
af burðarmiklu skipi
NÆSTU DAGA verður reynt að draga upp af hafsbotni ýturn<
ar tv'ær, sem féllu af pramma og sukku í Mjóafirði við ísa<
fjarðardjúp. Vonast menn til að ýturnar séu ekki mikið skemmdar,
þótt þær hafi legið í söltum sæ, þar sem þær voru vel smuröar,
Sjór hefur og verið kyrr síðan óhappið varð. ;
-□
1 - X - 2
ÚRSLIT getraunaleikjanna í gær
urðu:
Arsenal 1 — Aston Villa 0 1
Birmingham 3 Tottenham 0 1
Blaekpool 2 — Cardiff 1 1
Bolton 2 — Wolves 1 1
Chelsea 2 — Manch.City 1 1
Huddersf. 2 — Preston 2 x
Manch.Utd 3 — Luton 1 1
Newcastle 1 — Everton 2 2
Portsmouth 2 — Sunderland 1 1
Sheff.Utd 1 — Burnelv 2 2
W.B.A. 3 — Carlton 3 x
Blackburn 1 — Doncaster 1 x
D-
-□
GAFUST UPP VID AÐ AKA
ÝTUNUM
Ætlunin hafði verið að ýtur
þessar væru fluttar landveginn
fram í Ögursveit, en ýtustjórarn-
ir gáfust upp á að aka þeim,
vegna þess að fjallshlíðarnar
voru ógreiðfærar. Skyldi því nú
flytja þær á prammanum sjóleið-
is. En þá tókst svo 'lla til, að
flotholt í flekanum bilaði -með
þessum afléiðingum.
STÓRT SKIP ÞARF
Ýturnar liggja á um 10 faðma
dýpi innanvert við Eyri í Mjóa-
firði. Er sýnilegt að þær verða
ekki dregnar upp nema frá
skipsbómu. En til þess þarf stórt
skip. Vegagerð ríkisins hefur útx
búið björgunarframkvæmdir, svö
sem að kanna dýpi til að sjá
hvort siglingaleiðin sé fær stærra
skipi og kafari hefur farið niðut
að ýtunum til að rannsaka hvern,
ig ýturnar liggja á botninum o,
fl.
i
KOMA ÞARF ÞEIM
í HREINSUN 1
Takist að draga ýturnar upp,
er þýðingarmest að koma þeinS
sem fyrst í hreinsun. Því að slíM
tæki munu ekki ryðga né skemns
ast verulega á hafsbotni, heldujs
þegar þau hafa verið dregin upp
og verða fyrir áhrifum loftsinj
með salti og raka á sér. ; j