Morgunblaðið - 17.06.1944, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 17.06.1944, Blaðsíða 15
15 í>JÓÐHÁTÍÐARBLAÐ 17. júní 1944 TA LAND Á MENN KUNNA ÆRINN AUÐ AÐ NOTA’ANN Nokkru fyrir aldamótin hóf fjelaus og heilsulítill sveitapiltur að nafni Halldór Guðmundsson, — ættaður úr Skaftafellssýslu, •— járnsmíðanám í Reykjavík og lýkur því árið 1898 þá 23 ára gamall. Árið 1899 siglir Halldór til Kaup- mannahafnar til þess að leggja stund á vjelfræði og þó að hann verði sjálfur að sjá sjer farborða með því að vinna að vjelsmíðum jafnframt náminu, lýk- ur hann þar prófi árið 1901 með á- gætri einkunn og öðlast sem fyrsti ís- lendingur rjettindi til þess að taka að sjer vjelstjórn á stærstu línuskipum. Ufn þetta leyti var rafmagnið að ryðja sjer til rúms meðal hinna helstu menningarþjóða og áhugi vaknar nú ‘hjá Halldóri fyrir því, að halda til Þýskalands til þess að nema þar hina nýju tækni, sem á eftir að gjörbreyta lifnaðarháttum þjóðanna — rafmagns tæknina. Hinn ungi maður hefir skilið það á undan flestum samlöndum sínum, að rafmagnið á ekki síst erindi til ætt- lands hans íslands. Umsókn sendri Alþingi — um styrk til að nema raffræði — er hafnað, þrátt fyrir ágæt meðmæli fjelags ís- lenskra iðnaðarmanna í Kaupmanna- Halldór Guðmundsson. \ höfn. En ekki verður þetta að fóta- kefli. Þrátt fyrir fjárskort og ýmsa aðra erfiðleika er námið hafið árið 1902 í Berlín og prófi lokið í raffærði 30. september 1903. Framundan blasti nú við hið ónumda framtíðarland: ísland með fossum og flúðum — þjóð er sat í myrkri og kulda. Nú skyldi beisla foss- ana og veita orkustraumum yls og ljóss inn á sem flest heimili og sjá iðn- aðinum fyrþ' hagnýtu hreyfiafli. Fyrstu vatnsaflsstöðvar eru nú reistar úti um sveitir landsins og smám saman tekur draumurinn að rætast . . . Hjer er ekki rúm til þess að rekja æfiferil brautryð j andans Halldórs heitins Guðmundssonar, fyrsta raf- magnsfræðings þessa lands. Fyrirtæki hans Halldór Guðmundsson & Co., er rak all-umfangsmikla starfsemi á sviði rafmagnsiðriaðar og verslunar, lagðist niður frá fráfall Halldórs árið 1924. ★ — Fyrirtæki vort, Gísli Halldórsson h.f., er einskonar áframhald af fyrir- tæki Halldórs Guðmundssonar og runnið af sömu rótum. Vjer viljum — eins og hann —- vinna að aukinni og bættri tækni í landinu. ★ — Á þessum hátíðisdegi íslensku þjóðarinnar hefir oss þótt rjett að minnast eins af brautry ð j endum hennar á verklega sviðinu. Mun það mála sannast, að í framtíðinni er eigi alllítið undir því komið að þjóðin megi eignast sem flesta slíka menn og kunna að meta þá og hugsjónir þeirra að verðleikum. Með nýjum,. hagnýtum og mikil- virkum vjelum mun hin íslenska þjóð lyfta þeim grettistökum, er liggja á vegum hennar í framtíðinni og skapa sjer á ný ódauðlega menningu. r VERKFRÆÐINGAR OG VJELASALAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.