Morgunblaðið - 06.11.1942, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 06.11.1942, Blaðsíða 7
Föstudagur 6. nóv. 1942. 7 Pjetur Hjaltested úr- smíðameistari 75 ára T71INN af elstu og merkustu ^ borgurum Reykjavíkur, Pjetur Hjaltested á Sunnuhvoli á 75 ára afmæli 1 dag. Pjetur er borinn og barn- fæddur Reykvíkingur, sonur Einars Hjaltested söðlasmiðs og konu hans Önnu Kristjönu Guðmundsdóttur. Faðir hans dó þegar Pjetur var ungur, en Pjetur var elstur systkina sinna. Þurfti hann snemma að sjá fyr- ir sjer sjálfur og vera um leið stoð og stytta móður sinnar og systkina. Kom það brátt í ljós að kjarkur Pjeturs og fyrir- hyggja var meiri en alment ger ist meðal unglinga. Komungur varð Pjetur fyrir því slysi að meiða sig í hnje. Fekk hann' upp úr því berkla í hnejð og varð að liggja rúm- fastUr lengi. En svo mikill dug- ur og sinna var í drengnum, að hann fekkst lengi við smíðar rúmliggjandi og vann með því að nokkru leyti fyrir heimilinu. Pjetur var fyrsti lærisveinn Mag'núsar Benjamínssonar, hins þjóðkunna hagleiksmanns og siyllings. Áð afloknu úrsmíða námi setti hann upp úrsmíða- stofu á Laugavegi 19, en fekk síðar stærri og betri húsa- kynni á Laugavegi 20. Er kom fram um aldamót hafði Pjetur komið sjer vel fyrir efnalega. Iðn hans og verslun stóð með miklum blóma. En undir eins og hann hafði tök á því. að leggja fram.fje í annað eri verslun sína, tók hann að leggja stund á jarðrækt, Varð túnrækt og búskapur að- al áhugamál hans. — Byrjaði hann fyrst á túnbletti inn við EF LOFTUR GETUR ÞAÐ EKKI-----ÞÁ HVER? öskjuhlíð. En síðar tók hann á erfðafestu hið gamla mógrafa land Reykvíkinga, reisti þar fyr irmyndarbú er hann nefndi Sunnuhvol. Varð túnrækt hans, er hann ræktaði úr mestu ó- ræktarjörð um 100 dagsláttur. Var hann um skeið með mestu og fremstu jarðræktarmönnum hjer um slóðir, og þó víðar væri leitað. Fyrir 20 árum hætti Pjetur verslun og gaf sig eingöngu að búskap á Sunnuhvoli. En nú hef vr bærinn fyrir skömmu keypt úr erfðafestu öll tún hans og er hann hættur búskap. Pjetur er við góða heilsu og unir vel hag sínum, Getur hann litið yfir langa og stranga starfs æfi, og glaðst yfir þeim miklu verklegu framförum sem orðið hafa síðan hann lagði út í lífið bláfátækur af öllu öðru en inni- legri starfslöngun og trú á að jhonum mætti takast að ryðja j sjer braut og almenningi mætti jtakast að bæta hag sinn og kjör. Pjetur er maður glaður og reifur í viðmóti og hinn skemi- legasti fjelagi. Enda hefir hann eignast marga vini um æfina, er þakka honum ánægjulega sam- vinnu- og samverustundir. Frá Haustmarkaði KRON Seljum nú tryppa og folalda- kjöt í smástykkjum. Verðið óbreytt. Haustmarkaður KRON Aifvörun Fólk, sem dvelur hjer í Reykjavík nú, og telur sig hjer heimilisfast, en hefir hvergi verið talið í manntali, ,er alvarlega ámint um að tilkynna manntalsskrifstofunni, Pósthússtræti 7, heimilisfang sitt nú þegar. Sömuleiðis eru húseigendur og húsráðendur áminntir um að tilkynna þegar í stað, ef láðst hefir að skrá fólk við manntalið, sem búsett er í húsum þeirra. Sektarákvæðum verður beitt ef út af þessu er brugðið. Borgariljórinn MORGUNBLAÐIÐ -. i * ■■■ .....-.—l Astralfumenn nálgast Buna C regnir í gærkvöldi hermdu *• að Ástralíumenn hjeldu enn áfram sókn sinni á hendur Japönum fyrir norðan Kokoda, og segir að hersveitir þeirra sjeu nú aðeins 15 mílur frá Buna, aðalbækistöð Japana þarna. Ástralíumenn eiga þó örðug-, an þröskuld að yfirstíga, þar sem Yarobifljótið er. Yfir fljót þetta er aðeins ein brú, og hefir hún verið eyðilögð í loftárás- um. Bendir margt til þess, að Japanar munu hyggja á vöm handan árinnar. Þá er sagt frá því í frjettum, að Ástralíumen sjeu þegar farn ir að nota sjer flugvöll þann í nánd við Koköda, er þeir tóku af Japönum fyrir skemstu. Dagbóh «MMOMIM« I. O. 0. F. I = 1241168V2 = 9.1II Unglingar óskast til að bera Morgunblaðið til kaupenda. — Hækkað kaup. * Næturlæknir er i nótt Kjartan Guðmundsson, Sólvallagötu 3. Sími 5351. Næturvörður í Ingólfs apóteki f dag eru 100 ár liðin frá fæð- ingu frú Bjargar sál. Jónsdóttur, konu Márkúsar Bjarnasonar, fyrsta skólastjóra Sjómannaskól- ans. ftrein nm þessa merku konu birtist hjl*r í blaðinu síðar. Hjónaefni. Nýlega hafa opin- berað trúlofun sína, frk. Margrjet Einarsdóttir, Linnetsstíg 12, Hafn arfirði og Olafur Björnsson sjó- maður, Keflavík. Við kosninguna í Kirkjuráð hinnar íslensku Þjóðkirkju, sem getið vár í blaðinu í gær, fjellu atkvæði þannig á hina kjörnn (en kosningin gildir til 5 ára): Við atkvæðagreiðslu á hjeraðsfundum í prófastsdæmum landsins (þar kjósa safnaðarfulltrúar og prest- ar) hlutu Oísli Sveinsson sýslu- maður 132 atkv., Matthías Þórðar- son þjóðminjavörður 71 atkv. (aðrir fengu miklu færri atkv.). Við atkvæðagreiðslu meðal klerk- dómsins hlutu Asniumhu- Guð- mundsson prófessor 49 atkv., Þor- stéinn Briem prðfástur 40 atkv. Ymsir aðrir fengu fá atk’væði. Noregssöfnunin, afhent Morgun bláðinu : Þórdís Arngrímsdóttir 20 kr. Y. J. 20 kr. Skipshöfnin á Ægi 500 kr. Útvarpið í dag: 12.10—13.00 Hádegisutvarp. 15.30—16.00 Miðdegisútvarp. 18.30 íslenskukensla, 2. flokkur. 19.00 Þýskukensla, 1. flokkur. 19.25 Hljómplötur: Harmóniku- lög. 20.00 Frjettir. 20.30 Útvarpssa'gan : 21.00 Strokkvartett útvarpsins: kvartett í Es-dnr eftir Sehu- bert. 21.15 íþróttaþáttur (Benedikt G. W aage). 21.30 Hljóm])lötur: íslenskir söngvarar syngja. 21.50 Frjettir. 1 AUGLtSING er gulls ícrildi Stór íbtíð í skíftum fyrír mínní Hálft nýtísku steinhús á góðum stað í Vesturbæn- um, með lausri 4 hebergja íbúð, til sölu í skiftum fyrir 2—-3 herbergja nýtísku íbúð, helst í Austur- bænum. Tilboð með greinilegum upplýsingum legg- ist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir 8. þ.‘ mán., merkt „St'feinhús — 666“. Vnglingar óskast 2 tftl aO bera blaOlO tll kaupenda í nokkur hverfi í Austurbænnm. Hœkkað kaup! orðmthlaéið <^^M**<*4«*»«**^4«»MV*M*M*M*M*M*M*M*H*«»*«**»»*«4*0*M*H*M*«»*M*««*»«*MV*»«V*M**«*H*MtM*M*»»*M*M*M*»«?««?M.*M**«?*«*»^^^| V V I I Hugheilar þakkir til allra þeirra, sem með gjöfum,, heim- sóknum og heillaskeytum, sýndu mjer vináttu á átttugasta afmælisdegi minum. Sjerstaklega þakka jeg Bakarameistara- og Bakarasveinafjelagi íslands fyrir höfðinglegar gjafir. Grímur Ólafsson bakari, Hávallagötu 35. Skrifstofum vorum verður lokað allan dagftnn i dag vegna farðarffarar. Striðstryggingarfjelag fsienskra skipshafna dóttir okkar and^Sist í dag, 5. nóvember 1942. Kristín Þorvarðsdóttir, Ólafur Helgason. Garðastræti 33. Jarðarför mannsins mins, föður og téngdaföður, JÓHANNS HELGASONAR, fer fram frá Fríkirkjunni laugardaginn 7. nóvember kl. 1 e. h. Valgerður Þorsteinsdóttir. Helgi Jóhannsson. Margrjet Pjetursdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda hluttekningu við andlát og jarðarför KARÍTASAR TORFADÓTTUR. Sigríður Pjetursdóttir. Sigþrúður Pjetursdóttir. Gissur Pálsson. Sigurður Pjetursson. Berta Árnadóttir. Jeg þakka af hjarta öllum þeim er við fráfall mannsins míns, SIGURJÓNS SUMARLIÐASONAR, sýndu mjer samúð og vináttu. — Sjerstaklega þakka jeg alla þá fjárhagslegu aðstoð, er Keflvíkingar, starfsfjelagar manns- ins míns og aðrir, hafa veitt mjer með gjöfum sínum. Guð blessi ykkur öll. Keflavík, 31. október 1942. Margrjet Guðleifsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.