Morgunblaðið - 24.12.1936, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 24.12.1936, Blaðsíða 5
Fimtudagur 24. des. 1936. MORGUNBLAÐIÍ) iZ KVEHDJÓÐIN OQ HEIMILIN -—- Jólin eru komin. Jólin eru aðal hátíð ársins, og þau eru aðal hátíð barnanna. Á jólunum eru öll börn glöð og ánæg'ð. Þá fá þau að fara í bestu fötin sín, dansa í kringum jóla- trje, skreytt mörgum fögrum kert um, og fara í skemtilega jólaleiki. En hafa börnin gert sjer ljóst, Jhvaða manneskja það er, sem .mest hefir á sig lag't, til þess að gera þeim jólaliátíðina sem minni- stæðasta og gleðiríkasta 1 Það er auðvitað engm önnur en „húri mamma“l Síðustu dagana fyrir jól hefir hún verið önnum kafin við hinn mikla undirbúning jólanna. Margt þurfti að gera, til þess að alt yrði sem fullkomnast og heimilið gæti fengið þann hátíðalega gleðiblæ sem vera ber um jólin. Börnin þurftu að fá ílý jólaföt — enginn má klæða jólaköttinn —, alt átti að vera fágað og fínt á heimilinu, «g búrið að vera byrgt upp með alskonar krásum og' sælgæti. — Eoks kom að því skemtilega verki -að skreyta jólatrjeð og hengja á það jólaskrautið og pokana, sem börnin höfðu skemt sjer við að búa til. — Og svo upprennur sú stund, þegar kveikt er á jólatrjenu og öllurn jólakertunum. Jólin eru komin — og börn og fullorðnir safnast saman kringum jólatrjeð og syngja jólasöngva. Á hinum hátíðlegu og giaðlegu andlitum, sjer húsmóðirin, að • erfiði hennar hefir ekki verið til einskis og hún finnur gleðina við það að gleðja aðra. Gleðileg jól! Gleðileg jól!, 'hljómar á hverju heimili. Og Morgunblaðið óskar öllum lesendum sínum af alhug gleði- iegra jóla, og óskar þess hverri íslenskri húsmóður til handa, að 'henni megi takast að setja gleði- fsvip á heimili sitt um jólin. Samtal við Garbó. Greta Garbó þjáist af þunglyndi, í viðtali við frjettaritara „Tidens Kvinder“ í siðastl. mánuði, fárast hinni frægu kvikmyndaleikkonu — Gretu Garbo, sem sökum veikinda hefir orðið að draga sig í hlje frá Ieik- störfum um lengri tíma — orð eitthvað á þessa Ieið: ,,Kamiliufrúin“ of sorgleg. „. . . Þegar kvikmyndaf jelag mitt fór að æfa leikritið „Kam- ilíufrúna“, óaði mig við hlut- verki m;nu „Kamilíufrúin“, 'vegna þess, hve átakanlegt það er. En um annað leikrit var ekki að ræða, svo að ekki varð komist hjá því,# að jeg tæki þetta hlutverk . . .“. * „.. . Jeg hefi verið mjög veik um lengri tíma, og ef jeg á annað borð átti batavon, voru skilyrði hvergi betri en í hinu heilnæma loftslagi í Kaliforníu, þar sem sól er altaf hátt á lofti . . .“. Pratr tno og ro. „. . . Jeg óska nú einskis fremur en að fá að vera í friði og ró. Mjer hefir oft verið strítt með því, hve einræn jeg væri, og jeg hefi verið uppnefnd fyr- ir þær sakir. En mjer er al- vara, þegar jeg segi, að jeg þrái einveru. Ef jeg á nokkra góða kunningja, sem jeg get hitt við og við, er jeg ánægð, annars vænti jeg mjer ekki af framtíðinni . . .“. Framtíðin er óviss. „.. . Þegar æfingum á leik- ritinu „Kamilíufrúin“ er lok- ið, fer jeg líklega heim til Svíþjóðar. Greta Garbo. Vegna veikinda og óvissu um framtíðina ,get jeg ekkert sagt með vissu um það, hvort jeg muni leika í fleiri kvikmynd- um um æfina. En það eitt veit jeg, að jeg hefi ekki ákveðið neitt í því efni . ..“. H- ,,.. . Það verður dásamlegt að hvíla sig og fá að ganga um í hinni dásamlegu náttúrufeg- urð heima í ættlandi mínu — og vera ein með hugsanir mín- ar“. H Þannig talar Greta Garbo, sem er hin frægasta og mest dáða kvikmyndaleikkona í heimi. Orðin leið á lífinu. Maður getur lesið á milli lín- anna, hve innilega þreytt hún er orðin og leið á lífinu. Hún er komin á hátind frægðar sem kvikmyndaleikko.na og hefir ekki fleiri sigra að vinna á því sviði. Alla hefir hún mist, sem hún hefir í raun og veru kært sig um, eða elskað. T. d. John Gil- bert og Rouben Mamouilian, FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU. Snyrfing: Andlitsbað er hressandi. I. Gufubað. II. Klúturinn er lagður heitur yfir andlitið. III Andlitið er nuddað með ísmola. Snyrting og fegrun hefir orðið að sitja á hakanum upp á síðkastið hjá flestum, því að nóg annað hefir verið að gera fyrir jólin. En nú, þegar jólin eru komin, og með þeim það samkvæm- islíf er þeim fylgir, kemur það greinilega í ljós, að andlitshör- undið hefir beðið tjón við langvarandi vanrækslu. En þegar hör- undið er orðið þurt og skorpið, fyrir áhrif veðurs og vinds, er fátt, sem kemur betur að gagni en að næra það með góðu and- litssmyrsli. Gott andlitsbað og nudd hressir og styrkir slapt hörundið, og gefur andlitinu nýtt líf, áður en frekari andlits- snyrting er viðhöfð. Fyrst er hörundið gert móttækilegt fyrir hið nærandi smyrsl, þannig: Hreinsið andlit og háls með góðu hreinsunarsmyrsli. Takið andlitsgufubað yfir katli eða fati með sjóðandi vatni og breiðiö handklæði yfir höfuð, svo að vatnið nái vel að gufa upp í and- litið. Með þessu móti opnast svitaholurnar, og draga í sig hið nærandi smyrsl, en því er nú smurt á andlit og háls, og klapp- að og nuddað inn í hörudið. Vindið mjúkan klút upp úr heitu vatni og leggið hann yfir andlitið. Hitinn fær smyrslið til þess að smjúga inn í hörundið. Smyrjið síðan meira smyrsli á Irör- undið og klappið því og nuddið inn í húðina. Að lokum, þegar hörundið getur ekki tekið við meira smyrsli, er andlit og háls þurkað með bómull, sem undin er upp úr köldu vatni. Nú þarf að loka svitaholunum aftur, og það verður gert best með því móti að setja ísmola inn í lítinn, þunnan vasaklút og nudda yfir andlitið meS honum. Ef sprungnar háræðar eru í andlitinu, ber að sneiða fram hjá þeim, þareð þær þola ekki mikinn kulda. Nýfasfa hárgrctgsla: Hringlokkar eru mest í tísku. « OL Það skaðar ekki að breyta ofurlítið til endrum og öpn, hvort sem er í klæðaburði, hárgreiðslu eða öðru, það er offeði sjálfum manni og öðrum til ánægju. Um þessar mundir eru hringlokkar öllu meira í tísku en bylgjur og liðir, og við birtum hjer mynd af nýjustu hárgp^sÞ unni, sem væri tilvalin við samkvæmiskjólinn í samkvSSfflPuna um hátíðarnar. Skiftið hárinu í annari hliðinni frá enni og aftur í hnakkJia. Skiftið síðan hárinu og vindið það upp í, lokka, eins og tflynd II og' III sýnir. Til þess að þessi greiðsla hepnist vel, verður hárið helst að vera permanent-lokkað, eða liðað frá náttúrunnar hendi. Best er að setja krullupinna í hárið að kvöldlagi og láta þá vera í yfir nóttina. Sje hárið vætt, þegar pinnarnir eru settir i, verður það að vera orðið þurt, áður en þeir eru tekni úr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.