Morgunblaðið - 26.06.1930, Page 51

Morgunblaðið - 26.06.1930, Page 51
i mosqonblaðið (4k4k44k4kákdkákák4k4k4kák4k&4k dkák&k&k&kákákJ^ák&t&dká&ák FisKiveiðahlutafjelagið „Alliance" r Elsta og stærsta togaraútgerðarstarfsemi d Islandi. Fiskverkunar- og lýsisbræðslustöð Alliance á Þormóðsstöðúm. Fiskiveiðahl.utafjelagið „Alli- ance“ var stofnað áríð 1906. Voru stofnendur þess: Thor Jensen kaupmaður, og skip- stjórarnir: Jón Ólafsson, Jón Sigurðsson, Halldór Kr. Þor- steinsson, Magnús Magnússon, Kolbeinn Þorsteinsson og Jafet Ólafsson. Fjórir þessara skip- stjóra höfðu áður gert með sjer fjelag og keypt kúttera árið 1904, en þilskipaútgerð stóð þá hjer í mestum blóma. í páska- veðrinu 7. apríl 1906 fórst Jafet Ólafsson, ásamt mörgum öðr- um, en árið 1910 seldi Thor Jensen hlut sinn og gekk úr fjelaginu. Þegar h/f. ,,Alliance“ var stofnað, höfðu íslendingar litla þekkingu á togaraútg/erð og enga reynslu á því sviði. Að vísu höfðu verið keyptir tveir togarar hingað til lands frá Englandi, en þeir voru báðir gamlir og mjög ófullkomnir, enda varð árangurinn eftir því. í febrúar 1907 kom fyrsta skip fjelagsins, „Jón forseti“, hingað til lands, og stýrði hon- um Halldór Kr. Þorsteinsson skipstjóri, sem þá hafði dvalið á annað ár í Englandi til þess að kynna sjer botnvörpuveiðar. „Jón forseti“ var smíðaður í Glasgow svo fullkominn, sem þá var frekast kostur. Var hann fyrsti togari, er Islendingar ljetu smíða, og má því segja, að með komu hans hefjist tog- araútgerð Islendinga. Það kom strax í ljós, að tog- araútgerð gæti, ef skynsamlega væri að farið, orðið arðvænlegur atvinnuvegur fyrir landsmenn, enda fóru menn þá óðum að feta í fótspor þessara manna og liefir togurum síðan fjölgað ár frá ári, uns Islendingar eiga nú 40 togara. Fjelagið hefir eignast 6 tog- ara, en af þeim mist tvo, þá Skúla fógeta, bygðan 1911, fórst hann í Norðursjónum í byrjun ófriðarins, 26. ág. 1914, og Jón forseta, sem strandaði á Stafnestöngum 27. febr. 1928; á það því nú 4 togara. Auk þess eiga stofnendur „Alliance“, þeir sem enn eru í fjelaginu, 4 aðra togara að nokkru eða öllu leyti, og hafa þannig umráð yfir Vs hluta af togaraútgerð lands- manna. Fjelagið hefir komið sjer upp fullkomnum fiskþurkunarstöðv- um með tilheyrandi húsakynn- um og getur það nú breitt til þurkunar í einu ca. 600,000 kg. fiskjar. Auk þess hefir fjelagið bygt fiskþurkunarhús, sem af- greiðir að meðaltali 10,000 kg. af fullþurum fiski á sólarhring. Árið 1929 voru útfluttar af- urðir h/f. „Alliance“ og þeirra fjelaga, sem það hefir umsjón með, sem hjer segir: Verkaður saltfiskur 3180 þús- und kg. Óverkaður saltfiskur 2080 þús. kg. ísfiskur kr. 675.000. Lýsi kr. 358.800. Sama ár flutti fjelagið inn 14,000 smál. kol og 7,000 smál. salt. Mestan hluta veiðarfæra lætur fjelagið vinna á vinnu- stofu sinni við Tryggvagöttr, og er unnið að netagerð o. fl. alt árið. Hjá fjelaginu voru sama ár unnin: Á skipunum 50.000 dagsverk. Við fiskverkun 27.600 dags- verk. Netagerð 1.460 dagsverk. Uppskipun. 7.880 dagsverk. önnur störf 7.070 dagsverk, og hafa þannig verið unnin 314 dagsverk að meðaltali hvern virkan Mag ársins. Stjórn fjelagsins hafa þeir alla tíð skipað: Jón Ólafsson, Halldór Kr. Þorsteinsson, Magn- ús Magnússon, Jón Sigurðsson, og Jón Ólafsson, sem jafnan hefir verið framkvæmdastjóri þess. Netahnýtingarstofa Alliance við Tryggvagötu. Fiskþvottur á fiskverkunarstöð Alliance í Ánanaustvm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.