Morgunblaðið - 08.09.1925, Blaðsíða 4
4
h ORGL NBLAJÐIÐ
■nrrSfti wnm
Neftóbakið sem allir lofa, fyri-r
hve vel sje skorið, selur Tóbaks-
húsið, Austurstræti 17.
Tóbaksvörur hverju nafni sen
nefnast kaupa menn þar sem úr
mestu er að velja.
Tóbakshúsið, Austurstræti 17.
Tækifærisg'jafir, sem öllum kem-
ur vel að fá, eru fallegu konfekt-
kassarnir úr Tóbakshúsinu, Aust-
urstræti 17.
Gosdrykkjagerðaráhöld, alveg
ný, mjög hentug og ódýr, einnig
öll efni í Sódavatn og Límonaði,
af sjerstökum ástæðum til sölu
nú þegar. Upplýsingar í dag og
á morgun á Laugaveg 17 (bak-
húsinu).
2 ungar kýr, sem eiga að bera
um veturnætur, eru til sölu. Upp-
lýsingar hjá Guðmundi Sigurðs-
syni, Sólbakka. Sími 1329, frá kl.
8—10 e. m.
Mikið af fallegum legsteinum
fyrirliggjandi. — Gunhild Thor-
steinsson, Suðurgötu 5. Sími 688.
Mestur vanndinn er að fá vand-
aðar og fallegar leirvörur fyrir
lítið verð, en það tekst, ef kaupin
eru gerð í versluninni „Þörf“,
Hverfisgötu 56. — Sjálfra yðar
vegna ættuð þjer að líta þar inn
áður en kaup eru gerð á öðrum
stöðum.
Fundíff. MII
Jarpskjóttur hestur 5 vetra,
mark: gagnfjaðrað og gagnbitað,
hefir tapast. Sá, sem skildi verða
var við hest þennan, er beðinn
um að gera aðvart til Halldórs
R. Gunnarssonar, Aðalstræti 6. —
Sími 1318.
Gullarmbands-Ikeðja tapaðist
sunnudaginn annan en var á leið-
inni inn að Tungu. Fiafciandi vin-
samlega beðinn að skila henni á
Bræðraborgarstíg 1, gegn fundar-
launum.
BBSiTTS.æSi. inimii!i!i
Herbergi, helst með miðstöðvar-
hitun, óskast til leigu handa ung-
um reglusömum manni. A. S. í.
vísar á.
heiðarlegu og hollu lífi. Það ger-
ist ekki sjerlega mikið hjá þeim,
hver dagurinn er öðrum líkur; en
þó lifa þeir því lífi að ástæða er
til fyrir þá drengi, sem ekki kom-
ast burt úr bænum, að öfunda
ungu piltana, sem fengið hafa að
lifa heila viku frjálsir og glaðir
í dýrð sumarsins og við sveita-
fegurð lands vors.
Söngskemtun frú Strindberg
Uin síðari söngskemtun frú
Strindberg síðastl. fimtudags-
kvöld var engu síðri en hin fyrsta.
TTin mikla og fagra rödd frúar-
innar er svo örugg og hljómmikil,
að fylla myndi hún í miklu stærri
söngsal en Nýja Bíó. Söngur henn
ar er svo jafngóður, að erfitt er
að gera upp á milli einstakra við-
fangsefna hennar. Sterkustu tón-
arnir eru svo hljómmiklir og breið
ir, að líkast er sem kæmu þeir úr
ágætis hljóðfæri, minna helst á
fagra „Bratsch“-tóna. Frúin syng-
ui í síðasta sinni annað kvöld, —
verða þá síðustu forvöð að heyra
þessa ágætu söngkonu fara með
mörg og mikil viðfangsefni, engu
síðri en „Sylvelin“, „Svarta ros-
or“, og „Det gáller“, sem frúin
söng skínandi vel á fimtudaginn,
auk annara verkefna, sem hjer
verða ekki upptalin. Hin ágæta
rödd frúarinnar, ásamt góðri með-
ferð og skilning á verkefnunum,
er næg trygging fyrir áheyrend-
ur hennar hvenær sem er.
Á. Th.
GENGIÐ.
Reykjavík í gær.
Sterlingspund............ 24.00
Danskar krónur...........123.71
Norskar krónur...........107.01
Sænskar krónur...........132.93
Dollar................... 4.96%
Franskir frankar .. .... 23.51
DAGBÓK.
Áheit á Elliheimilið: Frá G. S.
kr. 5.00. G. L. 5.00. P. 13.00. —
Nettótekjur af gamalmennaskemt-
uninni urðu kr. 1500.00. Til við-
bótar hefi jeg veitt móttöku í
byggingarsjóðinn 'kr. 100.00 frá
Hn. — 7. sept. ’25. Har. Sigurðss.
Dr. Reinsch, þýski vatnafræð-
irtgurinn, er nú nýkominn úr rann-
sóknarferð um Borgarfjörð vestra.
Hefir áður nokkuð verið skýrt
fiá þeirri ferð hjer í blaðinu, en
verður betur gert innan skamms. 1
dag fer dr. Reinsch til Austur-
landsins á Esju. Hefir Búnaðar-
samband Austurlands beðið hann
að koma austur og rannsaka Lag-
aifljót. Er einnig í ráði að Lúð-
vík Guðmundsson náttúrufræðis-
kennari fari austur, en hann hefir
verið með dr. Reinseh undanfarið
og starfað að rannsóknunum, á-
samt Eiríki Einarssyni, stud. art.
Af síldveiðum að norðan komu
í gær „lsafold“ og „ísbjörninn“.
Hafði „ísbjörninn“ aflað rúm'l.
3000 tn., en „ísafold“ 2500 tn.
Af veiðum komu í gær: Menja
með um 90 tn. lifrar og Gull-
toppur með um 130 tn.
Á veiðar ætlar í dag ísfirski
togarinn Hafsteinn.
Flakið af „Inger Benedikte“,
sem björgunarskipið „Geir“ var
að sprengja, verður nú að liggja
á sínum stað fyrst um sinn, þar
eo „Geir“ er alfarinn til Hafnar.
Hafnarstjórn Rvíkur hafði samið
við „Geir“ að sprengja flakið og
ná kolunum upp, en „Geir“ á-
skildi sjer í þeim samningi rjett
tií þess að fara frá verkinu þegar
honum sýndist.. Hafði hann náð
ca. 150 smál. af kolum. Óþægindi
eru að því, að flakið skuli vera
þarna á innsiglingarleiðinni; það
þrengir innsiglinguna nokkuð og
verður að hafa aðvörunarmerki
úti á sundinu.
| skýrslu Gengisnefndarinnar
um útflutning ísl. afurða í ágúst í
Mbl. á sunnudaginn, eru þessar
villur:
Útflutt síld talin 98566 tunnur,
en á að vera 89566 tn.
Ullin er talin 354423 krónur, en
á að vera 354399 kr.
Over
og andre Fortællinger, fyrsta bók Lárusar
Sigurbjöinssonar fæst á 4 kr. í
Bókav. Sigfúsar Eymundssonar.
'>OOOOOOOC
Að eins heildsala.
Biðjið um tilboð.
Sclur timbur í stærri og smærri sendingum frá
Kaupmannahöfn. — Eik tM skipasmfða.
Einnig heila skipsfarma frá Svíþjóð.
P. [U. SacabsEn 5 Sön.
Timburverslun.
Kaupmannahöfn C,
Carl-Lundsgade.
Stofnuð 1824.
Símnefm: Granfuru.
New Zebra Gode.
_OOOOOOÓO<óOOOOOOOOOOÓOOOOOOOÓOOOOOOOj
Hessian,
Bindigarn, Saumgarn, Trawl-tvinni, Ullarballar, Merkiblek ot
mottur fyrirliggjandi.
L. Andersen
Austurstraetl 7.
Simar:
642
842
81 m am
24 verslmnin,
28 PouImu,
27 Fo««berg.
Klappxrstí* 29.
Skrúfsfykki
Esja fer í dag kl. 4 vestur og
norður um land í viku hraðferð
kring um land.
Lyra var væntanleg hingað
snemma í dag.
Björgunarskipið „Geir“ fór
hjeðan í gær áleiðis til Hafnar,
og er alfarið, að því er yfirmenn
skipsins sögðu. Ætlar útgerðar-
fjelag skipsins ekki að hafa skip
hjer framvegis, og þessi skjóta
ferð skipsins nú er vegna ágrein-
ings, er varð milli útgerðarfjel.
og bæjarstjórnarinnar hjer, um
útsvar það, er lagt var á skipið.
Þegar bæjarstjórnin á dögunum
synjaði kröfu útgerðarfjelagsins
nm það, að skipið yrði útsvars-
frítt, fjekk skipið símskeyti um
að koma til Hafnar samstundis
og hætta veru sinni hjer. Þegar
„Geir“ er farinn er ekkert björg-
unarskip til hjer við land, og mun
mlörgum finnast það illa farið.
„Geir“ er búinn að vera bjer í
15—16 ár, og var Ungerskov
lengst af skipstjóri á honum, og
Vittrup. næst á eftir. Voru þeir
háðir mjög vinsælir. Vittrup var
nýfarinn af skipinu, og nýr skip-
stjóri, Eriksen, tekinn við.
Útsala sú, er skóverslun Lárus-
ai G. Lúðvígssonar auglýsti hjer
í blaðinu síðastl. sunnudag vakti
almenna athygli bæjarbúa. Safn-
aðist fjöldi fólks saman við búð-
ardyrnar löngu áður en opnað
var í gærmorgun, og þegar opnað
var fyltist búðin á einu augna-
bliki og meira en það, — fjöldi
varð frá að hverfa, sem ekki
liomst inn, og fór svo, að loka
varð búðinni hvað eftir annað, en
altaf var margt manna við búðar-
dýrnar, og þegar fram á daginn
Fypirliggjandi i
Trawlgarn
frá London Spinning Co. Ltd,.
London.
HiWnaitL
Slml 720.
Flóra Islands
2. útgáfa, fæst &
Afgr. IHorgunbladsins.
þess að standa við búðardyrnar,
svo mikill var troðningurinn. —
Fór svo, að alt sem selja átti;
seldist upp á mjög stuttum tíma
Lúðrasveit Reykjavíkur spilaði
nokkur lög á Austurvelli í gær-
kvöldi. Var fjöldi áheyrenda.
Lagarfoss kom í gær" frá út-
löndum.
SPÆJARAGILDBAH
Svo rann vagninn af stað, og Duncombe og
Spencer stóðu einir eftir. Þeir gengu inn í setu-
stofuna eftir ofurlitla stund.
— Þú þekkir flesta menn í París, mælti Dun-
combe. Hefurðu nokkurntíma heyrt þessa manns
getið ?
— Blessaður vertu — St. Ethol er einn af nafn-
kendustu aðalsmönnum Frakka.
— Og enginn æfintýramaður ?
— Síður en svo! Þetta mál fer að verða merki-
legra og merkilegra.
XXV. KAFLI.
Guy Poynton.
— Þjer finst jeg vera frámunalega vanþakk-
látur, sagði Guy Poynton alvarlega. Þú hefir gert
alt til að hafa af mjer leiðindin, en þó get jeg ekki
neitað því, að mig hefir langað heim!. Þó ekki sje
hægt að bera litla húsið mitt saman við þetta, þá
er þar þó heimili mitt, og mjer hefir jafnan þótt
vænt um heimilið.
Henri de Berzillac kastaði alt í einu af sjer
tómlætissvipnum, hallaði sjer fram í legubekknum
og starði með athygli á vagn, sem kominn var í ljós
á veginum neðan við höllina.
— Hvert í heitasta, hrópaði hann, þarna er þá
hæstvirtur frændi minn á ferðinni. Jaques!
Þjónn 'kom í þessum svifum út á svalirnar.
— Hvað er það, herra minn?
— Hertoginn kemur, Jaques.
Guy varð nú engu minna hissa en Berzillac.
Hann benti á tvo ríðandi menn á eftir vagninum.
— Hermennirnir! hrópaði hann. Nú koma þeir
loksins að sækja mlig.
Berzillac hló dátt.
— Það kunna að vera hermenn, sagði hann, en
þeir koma áreiðanlega ekki til þess að sækja þig.
Hefi jeg ekki margsinnis sagt þjer, að þú ert frið-
helgur hjer. Gestir mínir eru hafnir yfir allan grun.
Nei, þetta eru fylgdarmenn æruverðugs frænda
míns og hins háæruverðuga gests, sem er með hou-
um í vagninum.
D» Berzillac hertogi var hár og fölur, með dökt
yfirskegg. Alt útlit hans sýndi að hann var aðals-
maður.
— Henri, mælti hann við frænda sinn, þegar
þeir höfðn heilsast. Ungi vinurinn þinn er víst hjá
þjer?
— Já, hann hefir aldrei farið frá augunum
á mjer síðan við komum hingað.
— Það er gott. Þú sást okkur 'koma. Nefnd-
urðu nokkuð við hann, að Grisson væri með mjerf
— Nei.
— Grisson vill ekki láta síns rjetta nafns getið-
Því hann ætlar að fá að heyra sögu unga rnannsinS
hjá honum sjálfum.
Sá sem var með hertogannm kinkaði kollí
Hann virðist vera einkar fámæltur. Lítill var; hantt