Morgunblaðið - 23.05.1916, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.05.1916, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ fyrir skemstu, til þess að komastað einhverjum samningum um kaup á kolum til iðnaðar. Er það kunnugt að Þjóðvðrjar brugðust vel við og hétu að selja Dönum svo mikil kol, að þeir yrðu birgir til hausts. Viðbúnaður Rússa á Álandseyjum. Rússar hafa nýlega gert sér vígi á Alandseyjum, og stendur Svium af því eigi lítill stuggur. Fyrir skömmu kom einn þingmaður Svía, prófessor Steffens, með fyrirspurn til utanrikisráðherrans viðvíkjandi þessu máli, og síðan hefir ókyrðin í Sví- þjóð aukist að mun, og telja sum blöðin óskorað, að þetta atferli Rússa sé blátt áfram ógnun við Svía. »Dagens Nyheter* segja þó, að Rússar muni aðeins hafa gert vígi á Alandseyjum sér til varnar, og bendir til yfirlýsingar sem utanríkisráðherr- ann gaf í fyrra um það, að Rússar hefðu lofað því að taka allan her- búnað burtu af Alandseyjum að ófriðnum loknum. — En, segir blaðið, óvinsælni Rússa hér i landi leiðir sennilega til þess, að vér glötum hlutleysi voru og verðum að ganga inn í ófriðinn með Þýzkalandi. Sænskur hershöfðingi, er Axel Rappe heitir, hefir gefið út flugrit, er hann nefnir »Svíar á ófriðarþrösk- uldinum*, þar sem hann tekur það skýrt fram, að með víggirðingum Alandseyja hafi Rússar búið sig undir ásælni og varar landa sina við því að trúa því, þótt stjórnflækjumenn segi eitthvað annað. Tyrkir sækja í sig veðrið. Tyrkir hafa hafið grimmilega sókn á hendur Rússum í Litlu-Asíu og nrðið nokkuð ágengt. Hjá Chorok, sem er milli Trebizond og Erzerum, urðu Rússar að hörfa og taka sér oýjar stöðvar fjórum eða fimm míl- um nær Erzerum. Eftir það að Rússar náðu Erzerum tóku Tyrkir sér ramgerðar stöðvar hjá bæ þeitn, er Erzingen heitir. Þar drógu þeir að sér meira lið og vopn og hafa nú ráðist á Rússa og hrakið þá í áttina til Erzerum. Var sóknin ákaflega grimm, eDdi mistu Tyrkir svo margt manna, að þeir hafa orð- ið að hæita sókninni um hríð. Jón forseti kom inn í gær með fullfermi af fiski, þrátt fyrir það, þótt hann hefði óvana menn. Skipstjórinn ber hin- um nýju hásetum það orð, að þeir hafi reynst ágætlega. — Ennfremur kom Ymir inn til Hafnarfjarðar í gær, fullhlaðinn af fiski. Póstar: »Vindy« fer til Akureyrar í dag. jKristján IX.« fer til Blyth. DA0BÓRIN. Afmæli í dag. Sophia Hjaltested, húsfrú Jón Hermannsson, skrifstofustj. Þorv. Þorvarðarson, prentsmiðjustj. Veðrið í gær: Mánudaginn 22. maí. Vm. a. andvari, hiti 8.0 Rv. a. andvari, hiti 9.3 íf. logn, hiti 6.7 Ak. logn, hiti 6.0 Gr. s. kul, hiti 6.0 Sf. logn, hiti 4.5 Þh. F. sa. stinnings gola, hiti 7.8 Sólarupprás kl. 2.53 S ó 1 a r 1 a g — 9.57 Háflóð í dag kl. 9.54 f. b. og kl. 10.26 e. h. Þjóðmenjasafnið opið kl. 12—2. (Myndasafnið er í Alþingishúsinu opið á sama tíma). Lækning ókeypis kl. 1—2íKirkju- stræti 12. Tannlækning ókeypis kl. 2—3 í Kirkjustræti 12. Fróðlegan og skemtilegan fyrirlest- ur hólt Jón prófessor Helgason í fyrra kvöld um það, hverrnig Austurvöllur bygðist. Var þar talað um Austur- völl í rýmri merkingu, en það nafn hefir nú, því að fyrir einni öld náði Austurvöllur vestan frá Aðalstræti og austur að læk, norðan frá Hafnarsræti og suður að tjörn. Var þetta fram- hald á fyrirlestri þeim, er prófessoinn hélt í vetur. Aheyrendur gerðu góð- an róm að máli hans, enda segist hon- nm vel og skörulega frá. Hjónaefni. Ragnhildur Stefánsdóttir, Bókhlöðustíg 7, og Oddur Jónsson, Bakkakoti, Kjalarnesi. Flóra var á Önuudarfirði í gær. Ætlar þaðan til ísafjarðar og er vænt- anleg hingað á morgun, eða fimtudag- inn snemma. Sr. Jónnmndur Halldórsson hefir beðið um og fengið lausn frá embætti sínu á n eftirlauna. Sr. Sigurður Gunnarsson prófast- ur í Stykkishólmi hefir fengið lausn frá embætti sínu með eftirlaunum. Christian IX., skip Asgeirs Póturs- sonar á Akureyri, kom hingað í fyrra- kvöld frá útlöndum, hiaðið olíu. Far- þegi á skipinu var Geir Zoega verzl- unarmaður. Skipið hafði tekið póst í Danmörku, en Bretar tóku hann allan til rann- sóknar. Vonandi kemur sá póstur hingað með Botníu næst. Botnía fer í dag frá Kaupmanna- höfn um Lerviek til Vestmanneyja og Reykjavíkur. Island fer líklega ekki héðan fyr en á fimtudag. Fer þá beint til útlanda. Gullfoss fer vestur á firði annað- kvöld. Ingólfur fer til Borgarness í dag. Mannslát. Áttunda dag þessa mánaðar and- aðist í Kaupmannahöfn Johan OIi- varius, fulltrúi í innanríkisráðuneyt- inu danska. Maður þessi var sonur Olivariusar þess, sem um eitt skeið var sýslumaður I Múlasýslunum og heima átti á Eskifirði. Atti sýslu- maðurinn islenzka konu, Þorgerði, systur Tómasar heitins Hallgríms- sonar læknis. Johan Olivarius var dugnaðarmað- ur mikill og hafði með höndnm mörg trúnaðarstörf stjórnarinnar. Rit- störf fékst hann og við töluvert og hafði gefið út nokkrar bækur lög- fræðislegs efnis. ......... . g ■■■'■■ * ' 1 - ti ' -- Maður druknar. í símskeyti, sem hingað barst í fyrrakvöld frá Súgandafirði, er þess getið, að Ásgeir Bjarnason frá Reykja- vik hafi á fimtudagskvöldið fallið út úr vélbáti þar vestra og druknað. Hann var maður á bezta aldri og á hér systkini og aldraða móður, Rósamundu Guðmundsdóttur á Berg- staðastræti 22. Bandamenn i Grikklandi, Yfirgangur bandamanna í Grikk- landi fer dagvaxandi og er engu lík- ara en að þeir geri oft og tíðum leik til þess að særa Grikki. Þeir hafa nú tekið flestar eyjarnar, eða allar þær, sem þeir sjá sér nokkurn hag í að taka af Grikkjum; þeir hafa fært út kvíarnar í Saloniki; þeir hafa tekið land í Kavalla og miklu fleiri eru dæmin þessu lík. Grikkir geta ekkert sagt nema mót- mælt og það vita bandamenn ofur- vel.’ Hér skal sagt eitt dæmi um það hvað bandamenn gera sig heima- komna þar eystra. Borg heitir Florina, skamt frá landamærum Grikklands, austan við járnbrautina milli Saloniki og Mona- stir. Þangað kom franskt herlið skyndilega í öadverðum þessum mánuði og gerði það fyrst, að slíta alt símasamband við börgina. Síðan fór það milli húsa og handíók fjölda marga griska Múhameðstrúarmenn og ennfremur austurríkska konsúl- inn í Monastir, sem var á leið frá Aþenuborg og heim til sín, í leyfi Grikkja. Grísku yfirvöldin í Florina mót'' mæltu þessu athæfi, en hermennirn' ir kváðu það þýðingarlaust, því að þeir hefðu skýrar fyrirskipanir ftÁ hærri stöðum um það, að fara þann- ig fram ráði sínu. Síðan fóru þeh með herteknu mennina til Saloniki. Ræðismaður Austurríkismanna mót- mælti þessu athæfi við grísku stjórn- ina og hún hefir aftur borið sig upp undan þessum yfirgangi við stjórnir bandamanna. En það varð eigi til annars en þess að banda- menn tóku Florina á sitt vald. • Ráðuneyfis breyting í Þýzkalandi. »Times« segir frá því hinn ij- þ. mán. að Dr. Delbrúck innanríkis- ráðhena Þjóðverja sé farinn frá embætti. Er ástaðan til þess talin sú, að innanrikisráðuneytinu hafi mis- hepnast hrapallega að hafa eftirlit með matvælabirgðum landsins og úthlut- un matvæla. Varð þetta þeim mun tilfinnanlegra sem meira fór að sverfa að um skort á ýmsu. Kaitöflumálið er þegar fyrir löngu orðið illræmt þar í landi og kjöt- málið telur »Kölnische Zeitung* gott dæmi þess hvernig stjórnir eigi ekki að starfa. Innanrikisstjórnin hafði nóg á sinni könnu áður en henni var falið að hafa eftirlit með matbirgðum landsins. Og það et óheppilegt talið að henni skyldi vera: falið það, því að með því móti gátu allir haft hana að skotspæni. Það er eigi kunnugt hver taka muni við af Delbriick, en þýzku blöðin vilja helzt að það verði fjár- málaráðherrann sjálfur, dr. Helf' ferich, en aftur taki við af honum aðstoðarverzlunarmálaráðherra Prússa, sem Göppert heitir. Þá er og talað um það, að nú' verði stofnað sérstakt matvælaiáðu-’ neyti, eða að minsta kosti sérstakur matvælaráðherra, sem eigi sæti í innamíkisráðuneytinu. Er helzt til þess starfa nefndur von Batocki' greifi. Þjóðverjar ætla nú að gera gang' skör að þvi, að rannsaka hve mikil matvæli séu til f landinuý hve mikillar uppskeru meigi vænta og hve mikil matvæli þeir muni geta átt von á að fá frá útlöndum. Skipatjón bandamanna. Opinber tilkynning, sem gefin var út í Berlin um miðjan þenna máu' uð, segir, að í aprílmánuði hafi þýzktf og austurríkskir kafbátar sökt 9^ kaupförum fyrir bandamönnum. SatU' tals báru skip þessi 225 þús. smál-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.