Vísir - 18.01.1956, Blaðsíða 6

Vísir - 18.01.1956, Blaðsíða 6
6 r»«>‘ Miðvikudaginn 18. janúar l&ód áS&Wk'' ■*&&&& W&jZ m Skf: BfSw ‘d-..?4 --<$Í DAGBLAÐ Ritstjóri: Hersteinn Pálsson. Auglýsingastjóri: Kristján Jónsson. Skrifstofur: Ingólfsstræti 3. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Sími 1660 (fimm línur) Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Lausasala 1 króna. Félagsprentsmiðjan h.f. loddaranna. SíSan Ijóst varð að útgerðin mundi stöðvast um áramótin vegna aukins framleiðslukostnaðar og kauphækkana, hefur formaður kommúnista á Alþingi ekki þreyzt á því að bera fram fyrirspurnir til ríkisstjórnarinnar um það hvernig hún ætlaði að leysa úr vandanum. Fljótt ó litið kann mönnum ekki að þykja þessar fyrir- spurnir óeðlilegar, en þegar málið er athugað í heild hlýtur hverjum manni að verða Ijóst hvílíkan loddaraleik hér er verið ©ð leika frammi fyrir þjóðinni. Vinnudeilumar og íiinar miklu kauphækkanir á síðasta ári, sem nú hafa siglt atvinnumálunum í strand, eru verk kommún- ista, að hnitmiðuðu og yfirlögðu ráði. Þetta gátu þeir með því að fá á mála hjá sér mann sem Alþýðuflokkurinn trúði ekki, Hannibal Valdimarsson. Með aðstoð hans og óheilíndum náðu kommúnistarnir yfirráðum í Alþýðusambandinu. Þá var mark- inu náð sem þurfti til að nota hagsmunamál verkalýðsins í þág'u valdabaráttu kommúnistanna. Enginn flokkur taldi þaS virðingu sinni samboðið, að vinna jpeð þeim, leynt eða ljóst. Kommúnístarnir voru einangraðir. Og þeir fundu sárt til þess. Enda féll af þeim fylgið. Þá fundu þeir snjallræðið til að neyða lýðræðisflokkana til samvinnu við sig, beint eða óbeint. Til þess notuðu þeir nú Alþýðusam- bandið. Þar höfðu þeir náð í verkfærið. Annað verkfæri höfðu þeii' einnig, sem þeir notuðu til að stjórna herförinni. Það var „herforingirm“ Hannibal. Hann lét nota sig án þess hann vissi til hvers hann var raunverulega notaður, Áhlaup konsmúnisíanna, með Alþýðusambandið í. taumi, beindíst að sjálfsögðu að þeim málum, sem þjóðinni voru við- kvæmust, atvinnumálum hennar. Undir því yfirskini að rétta við hag verkalýðsins var hinam stórkostlegu vinnudeilum hrundið af stað í marz síðasta ár. Árangurinn varð mikil kaup- hækkun í framleiðslunni sem svo breiddist út um allt efnahags- kerfi landsins. Verðhækkunin kom fram á öllum sviðum og þurrkaði að síðustu út þær kauphækkanir sem náðst höfðu méð langri baráttu. Verkalýðurinn vann ekkert. Hann tapaði. En kommúnistar komust skrefi nær takmarkinu. Kauphækkanírnar höfðu gert útfluíningsframleiðsluna óstarfhæfa. Nú höfðu þeir skákað stóru lýðræðisfiokkunum. Til þess að rétta við útflutn- ingsframleiðsluna eftir þetta áfall þurfti sterk átök og óvin- sælar ráðstafanir. Þá sögðu kcmmúnisíarnir: „Reynið nú að skilja, að ekki er hægt að stjórna Ianídinu óm okkar!“ Hótunin hreif. Sumir fóru að skilja og skrifuðu langlokur um, að „vinstri stjórn“ og ekkert annað gæti bliðkað ,,verkalýðinn“ og stjórnað landinu. En sá ,,verkalýður“, sem þurfti að bliðka, var ekki sá hópur vinnandi manna og kvenna í landinu sem kommúnistamir höfðu blekkt og féflett í verkfallinu mikla. Það var hinn rauði hnefi kommúnismans, sem stóð út úr ermi Hannibals Valdi- marssonar, sem þurfti að blíðka. En vesalings Hannibal veit ekki .enn hvaða hlutverk honum er ætlað. Kommúnistum er Ijóst, að þeir unnu mikið á í síðasta verk- faili. Þeir hafa stöðvað framleiðsluna og þeir hafa fengið þá deigustu úr „vinstri“ fylkingunni til þess að biðja um gott veður. Hugleysið hefur ætíð verið vatn á þeirra myllnu. Fyrsta á- fanganum var náð með tiltölulega lítilli fyrirhöfn. Nú láta þeir hverh heyra sem viil, að leikurinn verði endurtekinn, kaup- hækkuii skal fjlgja á eftir kauphækkun þangað til efnahags- kerfi þjóðarinr ir er iiðað í sundur eða kommúnisminn verður látinn ráða. ,,Þ’ð getið ekki stjórnað áii okkar.“ Slíkt heróp hefur fallið í -góoari jarðveg hjá.þeim blauðu. Hirih' láta ekki gífuryrðin skelfa sig. Nu- síendur Eúutr' Olgeirsson daglega í ræðustól á Alþingi og spyr ríkissíjórnina með hjartnæmum orðum hvernig hún ætli að koma framleiðslunni af stað, framleiðslunni sem irommuaistar hafa stöðvað. Með þessu nær loddaraleikur kommúnistanna hámarki sínu á Alþingi íslendinga. En aílt er þeíía hjá þeim af róðum gert. Að tjaldabaki vinna hrellir og uppgefnir menn, er hlusta eftir hverri hótun og ieita ráða til að bliðka hinn rauða hnefa, sem nú er áspart haldið á loft. Það er erfitt hlutverk, en vera má að þeim takist að kaupa sér hlutieysi hans í svípinn, Hlutleysi og hugleysi fer oft saman. Hvar á rá&húsð ab standa? Hafnarfirði, 7./1. 1956. Vísir hefur látið skipulags- mál töluvert til sín taka og leyfi eg mér að leggja orð í belg um eitt aðal áhugamál manna um þessar mundir. Ráðhúsið í Reykjavík er að allra dómi eitt. af helztu áhuga- málum borgarbúa og jafnvel fleiri landsmanna. Nú hefur svo til tekist, að allir flokkar í bæjarstjóm hafa jánkað þeirri tillögu, sem lengi hefur verið otað að lýðnum, að ráðhúsið verði sett niður við norðurenda tjainai'innar. Grein argerðir þeirra, sem hafa stað- ið að þessari samþykkt, benda þó til þess, að flestir ef ekki allir eru mjög óánægðir með staðarvaLið. Sú breyting hefur orðið á þessu máli síðan það var síðast til almennrar umræðu, í sam- bandi við samkeppni um stað- arvalið, að nú er ráðhúsinu ekki ætlað að rúma nema nokk- urn hluta af starfrækslu borg- ai'innar, og hefur það þess vegna minnkað töluvert frá fyrri á- æt.lun. Ekki fylg'ir nein greinargerð um það, hvort ráðhúsið í þeirri mynd. sem nú er reiknað með eða t.úrninn verði talinn hættu- legur flugumferð til borgar- innar eins og áður var talið, vegna þess að ein aðal flug- brautin stefnir beint á vænt- anlegt hússtæði. , : Þar sem ráðhúsinu er nú fyrst og fremst ætJað að verða skrauthýsi og setja svip á borgina, þá finnst mér og sjálf- sagt mörgum fleirum^ að stað- arvalið sé ennþá þýðingarmeira nú. en áður. Eg ætla ekki að orðlengja meira um þörfina fyrir betra staðarváli, en leyfi mér hér með að benda á stað fyrir hið nýja skrauthýsi, sem mér finnst að taki þessum fyrirhugaða stað langt fram. Eins og kunnugt er, er nú byrjað á tveim stórfram- kvæmdum í skipulagi miðborg- arinnar, þ. e. Tjarnargötu og Lækjargötu. Tjarnargatan verður nokkurs konar innsti kjarni borgarinnar og þegar sú framkvæmd er komin lengra á- leiðis munu menn sjá betur, hvereu ákjósanlegur staður, svæðið fyrir suðurenda Tjarn- argötu verður fyrir stórhýsi. Eg' geri þess vegna að tillögu minni, að ráðhúsið verði bvggt., þar sem það mun blasa beint við Tjarnargötu (þvert yfir Tjarnargötu, þar sem gatan hækkar við ráðheiTabústaðinn og Tjarnarborg), með skraut- garð (nú kirkjug.) á aðra hlið ög tjörn á hina. Svæðið sem taka þarf fyrir ráðhúsið er- frá og með ráð- herrabústaðnum að Skothús- vegi og framlengingu af Bjark- argötu (nú afgirt.) að Suður- götu. Tjarnargatan beygir þarna og verður ísbjörninn að víkja, svo hægt sé að komast í samband við Hringbrautina. Umferð úr austurhlutanum færi um. Hringbraut úr miðborginni um Tjarnargötu og úr vestui'- hlutanum um Melatorg og Suðurgötu. Bifreiðarstæði mætti hafa á Melatorgi, Ðjarkargötu og Skothúsvegi og víðar. Ráðhúsið stæði þarna 5—6 metrum hærra en við norður- enda tjarnarinnar frjálst og ó- þvingað á þrjá vegu. Að vísu eru nýleg hús að austanverðu við Skothúsveg, en þau hús hyrfu að mestu í skugga ráð- hússins. S. Ó. WWWWWWVkfVW^WWWVVVIWWWWWWWVVWWtfWW Cifif" Riíssa var tæknihá- skéfi í Rangoon. - «p|öf BtBrsraia - raot- i-slS O að grelða hann. Bandaríski blaðamaðurinn Welles Hangen segir í New York TirnéS, að rússneskir valdhafar hafi aldrei lagt það í vana sinn, a@ taka neitt úr auðlindiun síiuun, er þeir hafa not fyrir sjálfir, oy láta öðrum í té, neana þcir hafi vissu fyrir að fó að minnsta kosíi eins mikið í staðinu. Hangen bendir á, að hið mjög umrædda loforð Rússa um að koma upp tækniháskóla í Rangoon sem „gjöf“ hafi raun- verulega ekki verið nein gjöf, því að í móti hafi komið ,,gjöf“ frá Burma, þ. e. hrísgrjóna- birgðir álíka að verðmæti og rússneska gjöfin. Allt er mjög óljóst um 100 millj. dollara lánið, sem Afghanista.n var boðið upp á — uin skilmálana, j vexti, afborganir o. fl. er ekk- í ert kunnugt Hangen dregur mjög £ efa I að Rússar Siafi getu til að flytja út nokkuð að réði af j vélum til Asíulanda, án I þess að draga úr sííkri fram- Ieiðslu til barfa heima fyrir. Hann segir, að mjög muni reyna á framleiðslugétu Rússa til þess að ná því marki, sem •sett er með nýju fimm ára áætluninni (hinni sjöttu) sem kemur til framkvæmda á næsta ári — og Rússar vildu gjarn- an flytja inn vélar frá vest- 1-ænu löndunum til að full- nægja þörfum sínum á þessu sviði. Minnist hann og á það, að Moiotov hvatti ákaft til þess á Genfarfundinum, að afnumd- ar væru hömlur á slíkunl ut- flutningi til Ráðstjórnarríkj- anna. En hvað sem öllu líður muni Rússar hvorki senda tæknilega sérfræðinga né vöf- ur til Asíulanda, nema það sem fæst í staðinn vegi þar fyllilega upp á móti. Blaðið Minneapolis Morning Nev/s segir um „sölumeistarann" Krusjev, að hann hafi rausað þar eystra eins og drukkinn sjó- maður. Það verður ýmsum tíðrætt um slysin, sem fer hér í bæ fjölg- andi með aukinni umferð, fjölg- un faratækja o. s. frv. Bergmál hefur borizt eftirfarandi athuga- semd frá einum er nefnir sig „Athugari". „I Vísi i dag, 14. jan. 1956, er getið um umferðarslys er verði helzt á aðalgötúm í út- hverfum. Væri ékki góð tillaga. að aðalbrautir væru merktar með 2—3 gulum þverslám, segj- um 10 sm. breiðumí ca. 1 metr. hæð frá götu við allar hliðar- götur við alalbrautir, er nái frá götubrún gangstéttar hliðargöt- unnar og liðlega yfir breidct gangstéttarinnar, eða sem svar- ar þar sem engin gangstétt er?" Þessu megi sérfróðir menn velta fyrir sér og saklaust er að koma tiliögunni á framfræi. Margar orsakir. Það gæti verið rétt að merkja aðalbrautir sérstaklega, en verða slysin vegna þess að menn vita ekki um að þeir eru að koma inn 'á aðalbrautir? Orsakir slysana eru margvíslegar, og oft að- gæzluleysi um að kenna. Það þarf ekki til, að menn séu ekki vissir um hvort þeir eru að koma inn á aðalbraut eða ekki. Oft má rekja árekstra til þess að öku- maður hefur aðeins treyst á að ekkert ökutæki væri í nánd, én síðan orðið of seinn til þess að hemla, þegar annað ökútæki birtist fyrirvaralaust. Það ætti að vera meginregla allra öku- manna að aka ætíð varlega víð götumót, hvort sem um aðal- brautir er að ræða eða ekki og hvort sem raenn eiga réttinn eða- ekki. Það'er'of seint að ákalla rétt sinn, þegar maður heíur orðið íyrir slysi, þótt það geti orðið sárabót í eftirmálanum, Þungúr róður. Það virðist vera þungur róður að levsa vandamál bátaútvegs- ins. Ekkert heyrist enn um að- bátar hef ji róðra en nú fara dag- arriir að verða dýi-mætir. Þao var um það talað í 'fyrra urr; þetta leyti, áð nauðsyn beri til að bátar yrðu látnir hefja. róðra, enda þótt ekki væri end- anlega leyst úr hvei-nig færi um hag þeirra, eða með öðrum orð- um að hve miklu leyti þeir fengju styrki til þess að stunöa róðra. Það gildir sami sannleiki í ár og endranær; að það er úti- lokað að stöðva alla bátana tll eilífðar og fyrr eða síðar kemur að því að bátarnir verða að fará út. Ríkissjórninni ætti undir slik- um kringumstæðum að vera veitt það vald, að fyrirskipa að bátar hefji róðra, því það verður ekki lengur með sanni sagt að' bátaútvegurinn stjórnist lengur af einkaframtaki, þegar allir landsmenn taka óbeint á sig byrgðarnar af þeim halla, sem verður af rekstrinum. Róðrarbanh. Stöðvunin nú á öllum bátum. á rót sína að rekja til róðra- banns, sem sett er á bátana. Það verðúr að skiljast svo að tíl séu bátaeigendur, sem treysta sér til þess að hefja róðra með hagnaði miðað við þá styrki, er þeim eru þegar ætlaðir. En þeir fá ekki að hefja róðra, því-þeir. eru bundnir af samtökum sínum. sem vilja knýja enn fram meirl styrk af hendi rikisstjóraaijrir. - ar. Frekari styrkur myndi vænt- anlega feiast í því að fleiri vörir.- yrðu settar á bátagjaldeyrislista. slik tilfærsla varanna innait tollakerfisins er beinar álögur á alla..—kr.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.