Vísir - 26.01.1918, Blaðsíða 2

Vísir - 26.01.1918, Blaðsíða 2
V Ih IR Sjálfstjórn heldur kjósendafund * 1 Iönaöarmannahúsinu i livöld XslZL. 9. Til umræðu veröur Bsjarstjðraarkosningin. Uppboð á ýmiskonar varningi verður haldið á Hverfisgötn 50 mánndagmn 28. þ. m. kl. 2 e. h. Meðal anuars selt þar: Málverk Leirtau Leirvaskar Baktöskur B.egnkápur Hattar Olíufatnaður Búðargluggatæki Grassuðuvél og ýms önnur gastæki Leiðisgrindur Bj örgunarbátur Keðjur Jarðepli o. fl., o. fl. Stúlka, hraust og þrifin, getur fengið góða framtíðarstöðu sem ráðskona á stóru heimili hór í bænum. Gæti fengið styrk til að ganga á hússtjórnardeild kvenna- skólans áður ef á þyrfti að halda. Umsóknir með upplýsingum, merkt „ráðskona“ leggist inn á afgreiðslu þessa blaðs fyrir 29. þ. m. Mislita haustull kaupir hæsta verði O. J. Havsteen. Til minnis. Baðhftsið: Mvd. og ld. kl. 9—9. Bamalesstofan: Md., mvd., föd. kl. 4—6. Borgarstjðraskrifst.: kl. 10—12 og 1—3. Bæjarfðgotaskrifstofan: kl. 10—12 og 1—5 Bsejargjaldkeraskrifst. kl 10—12 og 1—5 Hftsaleigunefud: þriðjad., föstnd. kf 6 sd. Islandsbanki kl. 10—4. K. F. U. M. Alm. eamk. sannnd. 8 sd. K. F. K. B. Útl. md., mvd,, fstd. kJJ 6—8. Landakotaspít. Heimsöknart. kl. 11—1. Landsbankinn kl. 10—3. Landsbökasafn Útl. 1—3. Lándssjóður, 10—2 og 4—5. LandBSÍminn, v. d. 8—9, helgid. 10—8. Náttúrngripasafn sunnnd. 1‘/,—21/,- Pósthftsið 10—6, helgid. 10—11. Samábyrgðin 1—5. Stjðrnarráðsskrifstofumar 10—4. Vífilsstaðahælið: Heimsóknir 12—1. Þjóðmenjasafnið, sunnnd. 121/,—1*/,. Dýrtiðarhjálpin 09 alþýðnforkólfarnir. Menn minnast enn hamfara Olafs Friðrikssonar & Co. hér í haust, er þeim þótti of mikill dráttur vera orðinn á því af hálfu bæjarstjórnarinnar, að dýr- tíðarlög síðasta þings kæmust í framkvæmd. Fyrst var haldinn almennur fundur um atvinnubætur (rótt á eftir sykurmálsfundinum) og bæj- arstjórnin vítt mjög fyrir það, að hún hefði ekki enn byrjað á atvinnubótavinnu. Síðan var haldinn annar fundur (eftir að forsætisráðherra var kominn heim og bæjarstjórnin vítt fyrir það að hún væri ekki farin að veita nein dýrtíðarlán samkvæmt áður- nefndum lögum. J>að var nú á allra vitorði, að bæjarstjórninni hafði ekki tekist er fundir þessir voru haldnir, að fá nokkurt dýrtíðarlán hjá land- stjóminni, og að framkvæmd lag- anna var fyrst og fremst undir þvi komin, hvort stjórnin gæti útvegað fé til slíkra lána. Forkólfar alþýðuflokksins fnll- yrtu, að engin fyrirstaða væri á því, að þetta fé gæti fengist, og þóttust menn vita, að þá vissu hlytu þeir að hafa beina leið úr stjórnarráðinu. Og það var haft eftir einum ráðheiTanum, að nóg fé væri til, bæði til dýrtíðarlána og atvinnnbóta. Nú er það komið upp úr kaf- inu, að stjórnin þykist ekkert fé hafa til slíks og hefir hún getið út „opinbera tilkynningu“ um að engin dýrtiðarlán verði veitt. Með því or loku fyrir það skotið, að dýrtíðarlögin (iögin um almenna hjálp vegna dýrtíð- arinnar) geti orðið framkvæmd á þann hátt sem þingið ætlaðist til. Sveitastjórnir geta ekki ráð- ist í neinar atvinnubætur aðrar en þær, sem sveitaféiögin fyrir- sjáanlega geta risið undir bjálp- arlaust. Þær geta engin lán veitt með dýrtíðarkjörum. Það er efasamt hvort þeim ber nokk- ur skylda til að veita nokkra aðra „dýrtíðarhjálp11 en venju- legan sveitastyrk. Efasamt hvort þær hafa nokkra heimild til þess. Stjórnin hefir kipt grundvell- inum undan framkvæmd dýrtið- arlaganna, með því að neita að veita dýrtíðarlán. Stjórnin virðist hafa bygt þá neitun aðallega á skammsýnum skrifum stjórnarblaðanna um að engin þörf mundi fyrir slíka al- menna hjálp. Um þörfina ætti að vera nóg að vitna til ástandsins á ísafirði. — Og hve miklu betra er á- standið hér í Reykjavík? En hvað segja þeir Ó. F. & Co. nú? Nú halda þeir enga fundi. Nú þegja þeir eins og steinar. Keppast hver við ann- an í því að þegja eins og stein- ar. Því nú er það ekki bæjar- stjórnin, sem í hlut á, eða hagur fátæklinganna, sem þeir bera fyr- ir brjósti; það er 1 a n d s - stjórnin eða óstjórnm á landinu sem þeir metá meira. VÍSIR. Afgroiðala blaðains í Aðalatiætf 14, opin fi'ft fcl. 8—8 4 kverjum úegi, Skrifstofa á sama stoð. Sími 400. P. O. Box 367. Ritðtjórinn til viðtaiu frá fcl. 2—3. Prentsmiðjan & Laugaveg 4, 8Ími 188. Augiýiingum veitt móttaka i LanðS' stjörnnnni eftir fcl. 8 & kvöldin. Anglýsingaverð: 40 anr. hver cia dáiks í atærri angl. 4 aura orðið smfttnglýsingnm með öbreyttn Ietri. 400 Axiabönd seljast fyrir kr. 1,45 stk. Egill Jaeobsen 0* Dnglegur drengnr. Verðlasmavert afrek. Á þriðjudaginn var níu ára gamall drengur á skautum inn við Völundarbryggju en rann út af ísnum í sjóinn. Oat hann enga björg sór veitt, en það vildi honum til lífs, að annar dreng- ur, þrettán ára gamall, var þar nærri staddur og gat bjargað honum. Kastaði hann sér í sjó- inn og náði minni drengnum undir hönd sér og gat komið honum þaimig til lands. Þegar á land var komið, bað sá drengurinn sem bjargaði, menn sem hann hitti að koma hinum drengnum heim til hans, þvi að sjálfum var honum orðið kalt og var farinn að skjálfa, enda frost töluvert, og hljóp hann síðan sem fætur toguðu heim til sín. Þessi drengur heitir Halldór Guðjónsson og á heima í Bakka- búð. Er þetta í þriðja sinn sem hann hefir bjargað minni drengj- um frá druknun. í fyrra hafði hann bjargað dreng, sem steypt- ist út úr kænu á innri höfninni. Slík afreksverk eru ebki að eins þess verð, að þeim só haldið á lofti, heldur verðskulda þau opinbera viðurkenningu, og er þess að vænta, að þessum dreng verði einhver sómi sýndur. Litli drengurinn, sem hann bjargaði í þetta sinn, var orðinn talsvert þjakaður af kulda, þeg- ar hann kom heim og hefir legið síðan, en nær sór vonandi brátt aftur. Það var móðir hans, sem sagði Vísi þessa sögu, og bað hann að votta Halldóri litla hjartans þakkir sonar síns fyrir björg- unina.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.