Þjóðviljinn - 12.11.1942, Blaðsíða 2
2
ÞJÓÐVILJÍNN
Fimmtudagur 12. nóv. 1942.
Æ. F. K.
Æ. F. R.
Fundiir
verður haldinn fimmtudaginn 12. nóv. 1942 ó Amt-
mannsstíg 4, kl. 9 e. h.
DAGSKRÁ:
1. Félagsmál.
2. Upplestur: Jón Óskar, rithöf.
3. Kosning á þing Æ. F.
4. Erindi: Lúðvík Jósepsson, alþingismaður.
5. Marx.
Félagar! Mætið stundvíslega. Komið með gesti og
nýja félaga.
STJÓRNIN.
Independence
eldspýfur
Kosta 12 aura
stokkurinn
Tflkynniog
Fimmtudaginn 12. þ. m. hækka lítilsháttar nokkrir verð-
skrárliðir Rakarameistarafélags Reykjavíkur.
Frá og með sama tíma greiðist 50% hærra verð fyrir vinnu
þá, sem unnin er eftir lokun rakarastofanna.
Rakarameistarafélag Reykjavíkur.
Frá haustmarkaði Kron
Éeykt trippa og folaldakjöt:
Læri kr. 6.00 pr. kíló.
Frampartar kr. 5.40 pr. kíló.
Gulrófur kr. 15.00 hálfpoki.
Gulrætur 5 kg. pakkar á kr. 7.50 stk.
Fólk er vinsamlega beðið að athuga, að við söltum
aðeins þessa viku.
Haustmarkaður KRON
Skólavörðustíg 12.
eBccjaz y>á>hviítvn
Mnnið
Kaffísðluoa
Hafnarstrwtí 16
Gerizt
áskrifendur
Þjóðviljans!
Fyrirspurn um kirkjugjaid
o. fl.
Herra ritstjóri!
Fyrir nokkru síðan barst mér
skattreikningur,- hvar á eru þessir
liðirii
a. Prestsgj. 1./6. '41—1./6. '42 kr. 1,50
b. Kirkjugj. 1./6.—31./12. ’41 —5,00
c. Kirkjugj. l./l— 31./12. '42 kr. 10,00
Kr. 16,50
Vill ekki Þjóðviljinn.skýra alla
þessa liði. Hvaða munur er á prests-
gjaldi og kirkjugjaldi? Hvernig stend
ur á hinu tvöfalda kirkjugjaldi, sem
nær yfir lVz ár?
Á reikningnum er líka kirkjugarðs
gjald kr. 4. Það hlýtur að vera all-
rífleg fúlga, sem bæjarbúar borga
til kirkjugarðsins. Hve há er hún
og hvernig er hún notuð? Þetta
kunna að þykja barnalegar spurning-
ar, þar eð liðirnir skýri sig sjálfir.
Eg vil leyfa mér að bæta nokkrum
spurningum við: Heimtar kirkjan
þau gjöld af öllum, er náð hafa 16
ára aldri, eða' er miðað við 21 árs
aldur? Hvernig er gjöldum utan-
kirkjumanna ráðstafað? Eg veit, að
þau eiga að renna til háskólans, en
ég veit eigi, hvort þau skiptast milli
hinna ýmsu deilda í einhverjum á-
kveðnum hlutfölium.
Öll þessi atriði varða almenning.
Og ég býst við, að fleiri en mig fýsi
að vHa nokkru nánari skil á þeim en
reikningarnir greina. Þess vegna
æski ég skýringa á opinberum vett-
vangi og vænti þess að blaðið ljái
mér rúm fyrir þær athugasemdir, er
ég síðan kann að gera.
Skattþegn.
Svar ritstjóra,
Með lögum nr. 40 frá 1909 var
ákveðið að „hver maður sem er 15
ára og eldri, hvort heldur er karl eða
kona, og hváða stöðu sem er, skuli
greiða í prestlaunasjóð 1 kr. 50 aura
á ári“. Undanþegnir eru þó þeir, sem
eru í einhverju kirkjufélagi utan
þjóðkirkjunnar, ef það hefur fengið
konunglega staðfestingu. Þetta gjald
var kallað prestgjald, og rann í presl
launasjóð. En eftir að prestar fóru
að taka laun sín einvörðungu frá
rikinu, var prestlaunasjóðúrinn ekki
annað en bókhaldsform innan ríkis-
sjóðsins.
Á síðastliðnu ári var prestsgjald
numið úr lögum, og verður þetta því
væntanlega í síðasta sinn, sem
„skattþegn" sér þennan lið á skatt-
reikningi sínum.
Um kirkjugjaldíð er það hinsvog-
ar að segja, að það rennur beint til
hlutaðeigandi kirkju, það er nef-
skattur, og eru allir skattskyldir sem
eru 15 ára eðá eldri.
Safnaðarfundur getur breytt upp-
hæð þessara gjalda.
Ástæðan fyrir því að skattþegn
er krafinn um kirkjugjald fyrir 1 lé
ár, getur naumast verið' önnur en
sú, að hann hafi átt vangoldið fyrir
hálft árið 1941.
Varðandi kirkjugarðsgjald er þetta
íram að taka:
Heimilt er, að lögum, að leggja á
gjald til kirkjugarðs, er nemi allt að
2% af útsvörum manna. Samkvæmt
ráðherraúrskurði hei*ur þetta verið
framkvæmt þannig, að þetta gjald
hefur aðeins verið lagt á einstak-
linga en ekki félög, og hefur þannig
tekizt að velta þessari gjaldabyrði
af herðum stærstu gjaldendanna yfir
á herðar hins snauðari íjölda.
Kostnaður við kirkjugarðinn hér í
Reykjavík er orðinn mikill. Mikið fé
hefur farið í að girða Kirkjugarðinn
í Fossvogi, ræsa landið o. fl., og við-
hald garðsins er mjög kostnaðar-
samt. Ekki hefur Bæjai-pósturinn
aflað sér tæmandi upplýsinga um
þctta efni, en þær er auðvitað hægt
að fá. Reikningar kirkjugarðanna
eru opinber plögg.
Um gjöidin til háskólans er það
að segja, að þau renna í svokall-
aðan ,,prófgjaldasjóð“, en í sjóð
þennan renna prófgjöld stúdenta og
fleiri smá tekjur, sem háskólanum
áskotnazt. Verkefni sjóðsins er að
styðja stúdenta til ýmiskonar
fræðsluiðkana við háskólann.
í mjólkurbúð 11. nóv. 1942.
Herra ritstjóri!
Þótt oft sé kvartað um slæma
aígreiðslu í búðum hér í Reykjavík
síðan þeir góðu tímar hófust, að alla
hluti er hægt að selja á hvaða
verði sem er og búðarstúlkurnar
þurfa ekki einu sinni að brosa leng-
ur, þá finrist mér hvergi jafn bölvað
að koma og í mjólkurbúðirnar.
Eg er ekkja og hefi fyrir barni
að sjá. En eins og kunnugt er, verða
konur f þeirri aðstöðu, þrátt fyrir
öll kvenréttindi, að vinna fjölda-
mörg ólaunuð aukastörf, meðal ann-
ars það, að gera innkaup á mjólk
handa börnum sínum.
í morgun fór ég 2 ferðir fyrir
hádegi út í mjólkurbúð, en hitti svo
illa á, að í hvorugt skiptið var til
mjólk, en það er í seinni tið orðið
jafn hversdagslegt og að merki sé
gefið um loftárásahættu. Kl. 12 V2
fór ég þriðju ferðina. Engin mjólk.
Kl.. 2 ákvað ég að gera enn eina
tilraun. Þá var mjólkin nýkomin og
biðu nokkrar konur eftir afgreiðslu.
Þegar ég hafði beðið þarna ca. 10
mín. býðst kunningjakona mín til
þess að taka við mínu mjólkuríláti
og spara þannig bæði tíma og gólf-
pláss búðarinnar, sem óðum fylltist.
Líkaði mér þetta vel og fór til
vinnu. Að nokkrum mínútum liðnum
kemur hún til mín og segir sínar far-
ir ekki sléttar: Það fær enginn af-
greiðslu á mjólk fyrir aðra. Bregð
ég nú skjótt við, en líst ekki á blik-
una, því nú er hópurinn langt út úr
dyrum, en ég ekki mjög dugleg að
olnboga mig áfram, og sízt, þegar ég
hcfi barn á handleggnum. En að
hika er sama og tapa.
Nú vantar klukkuna 10 min í þrjú.
Kona fyrir framan mig réttir fram 2
heilflöskur og fær mælt á þær og
síðan þriðju flöskuna, en segir um
leið að það sé fyrir aðra. Eg skil,
hvíslar afgreiðslustúlkan, með við-
eigandi tittlingadrápi, um leið og
hún mælir á þi-iðju flöskuna. Gera
þær sér nú líka mannamun, hugsa
ég. Nú er eftir að afgreiða nokki’a
krakka, sem með vaxtarlagi sínu
hafa komizt inn fyrir borðið. Svo
rennur upp sú iarigþráða stund, að
röðin er komin að mér að fá af-
greiðslu. „Því miður er öll mjólk
búin í dag“. Þá sló kl. 3, og svo er
saga þessi ekki lengri.
Nú geta þeir sem vilja reiknað
það út, í hlutfalli við sínar tekjur
auðvitað, hvað hún kostaði sú rnjólk,
sem ég ekki fékk.
Það er aukaatriði, að í dag hækk-
aði mjólkin upp í kr. 1.75.
Kona.
Stúkan Mínerva nr. 172.
Fundur í kvöld kl. 8,30.
1. Inntaka nýliða.
2. Innsetning embættismanna.
3. - Sigurður Guðmundsson
sýnir kvikmynd.
4. Kaffi.
, f/J2ó cíellius ‘
Vctrarkjólar úr ull, 1 af hverri teg.
„IIarella“ vetrarkápur og frakkar.
ICnskir greiðslusloppar úr ull.
Euskar kvcntöskur, nýjasta tizka.
Itarna ullarsokkar og Uosur.
Matrosföt, Blússuföt og samfest-
ingar. — Telpu- og unglingakápur.
Vesturgötu 12.
Hafið þið náð ykkur
í eintak af bókinni
25 m
ráðstjórn
Höfundar hennar eru:
Halldór Kiljan Laxness.
Einar Olgeirsson.
Sverrir Kristjánsson.
Þórbergur Þórðarson.
Halldór Stefánsson.
Jóhannes úr Kötlum.
Ólafur Jóh. Sigurðsson.
Hallgrímur Hallgrímss.
Þóra Vigfúsdóttir.
Laufey Valdimarsdóttir.
Ingibjörg Benediktsd.
Upplagið er ekki stórt, en
eftirspurnin mikil. Fæst í öll-
um bókaverzlununi og í
skrifstofu Sósíalistaflokksins,
Skólavörðustíg 19.
rvr
rrrrTtT-i-m
„Ríchard"
til Patreksfjarðar og Bíldudals.
„Ottó"
til Flateyrar og Bolungarvíkur.
„Fagraiics"
’til Isafjarðar.
Tekið á móti flutningi í öll
skipin á morgun (föstudag) til
hádegis. ______________
Gullmunir
handunnir — vandaðlr
Steinhringar, plötuhringar
0. m. fl.
Trúlofunarhringar
alltaf fyrirliggjandi.
Aðalbjöm Pétursson,
gullsm., Hverfisgötu 90.
Sírni (fyrst um sinn) 4603.