Þingtíðindi um starf Sósíalistaflokksins á Alþingi - 07.05.1941, Blaðsíða 1

Þingtíðindi um starf Sósíalistaflokksins á Alþingi - 07.05.1941, Blaðsíða 1
x ÞINSTIBINDI UM STARF SÓSÍALISTAFLOKKSINS A ALÞINGI Ábyrgðarmaður: ísleifur Högnason. Reykjavík 7. maí 1941. I. árgangur. 1. tölublað. Verð 25 aura. limnii niHir MiiHningi EUars Mmr, Siaiúsar anr- llanirsmar ig Slgurðar Eilmundssonar ig iangl gegn PlUðulllaiin Píngmenn Sósíalístaflokhsíns gera hröfu tíl að stjórnarandstöðunni verðí leyft að gefa út málgagn Inngangur Vegna þess að þingmenn Sósíal- istaflokksins hafa ekki eins og sak- ir standa neinn aðgang að blaði, sem birta vill afstöðu flokksins til þingmála, en með öllu óvið- unandi að þjóðstjórnin ein hafi einkarétt í gegnum blöð sín, að skýra frá gangi mála eins og henni hentar bezt, hefi ég ráðist í að gefa út þingtíðindi þessi og mun gera mér far um að skýra málin með þeim hætti, sem ég tel réttastan út frá sjónarmiöi flokks míns. Jafnvel þótt tíðindum þessum sé þröngur stakkur skorinn, ættu þau að geta orðið að nokkru liði, fyrir sósíalista að minnsta kosti, til að átta sig á málunum. — Verð þingtíðinda þessara er hærra en dagblaðanna, en mun lækka jafnskjótt sem ríki, bæjar- félag og opnberar stofnanir, sýna blaðinu þá lýðræðisást sína, sem aðstandendur þessara stofnana aldrei þreytast á að básúna, með því að birta í því auglýsingar sínar eins og í öðrum blöðum. ísleifur Högnason. Daginn eftir að hin miklu tíðindi og illu gerðust, að Þjóðviljinn og öll blöð, er gerð yrði tilraun til að gefa út í hans stað og hverskonar „andbrezkur“ áróður' var bannað- ur af brezku herstjórninni, jafn- framt því, sem all'ir starfsmennirn- ir við ritstjórn Þjóðviljans, þeir Einar Olgeirsson, alþm., formaður Sósíalistaflokksins, Sigfús Sigur- hjartarson varaformaður Sósíal- staflokksins og Sigurður Guð- mundsson blaðamaður, voru hand- teknir og fluttir til Bretlands, kom Alþingi saman á lokaðan fund og að honum loknum var samþykkt í einu hljóði eftirfarandi mótmæla- ályktun: „Um leið og það er vitað, að rík- isstjómin mótmæli við brezk stjórnarvöld hinni nýju handtöku og brottflutningi íslenzkra þegna og banni á útkomu íslenzks dag- blaðs, ályktar Alþingi að leggja fyr- ir ríkisstjómina og bera fram sér- staklega eindregin mótmæli Alþing- is gegn handtöku og brottflutningi íslenzks alþingismanns, og vitna í því efni til verndar þeirrar, er al- þingismenn njóta samkvæmt st j órnar skr ánni“. i Öll dagblöð bæjarins, að Alþýðu- blaðinu undanteknu hafa tekið ein- dregið undir þessi mótmæli Alþing- is. Alþýðublaðið hefur að vísu ekki gengið beinlínis á móti ályktun Al- þingis, en tekur að öðru leyti mál- stað brezku herstjórnarinnar í einu og öllu, og þykir það eitt að, að ís- lenzk stjórnarvöld skuli ekki fyrir löngu vera búin að framkvæma þá ráðstöfun, sem brezka herstjórnin hefur nú gripið til. Enda hefur Al- þýðublaðið krafizt þess um langa hríð að Þjóðviljinn og starfsemi Sósíalistaflokksins væri bönnuð, og hefur brezka herstjórnin því fram- kvæmt eina af aðalkröfum blaðs- ins, með þessum aðgerðum. Skrifum Tímans um þetta mál, svipar að ýmsu leyti til skrifa Al- þýðublaðsins. Öll önnur blöð hafa harðlega for- dæmt Alþýðublaðið fyrir þessa af- stöðu, sem þau telja þjóðarsmán. Jóhannes skáld úr Kötlum hefur nú tekið sæti Einars Olgeirssonar á Alþingi. Út af banninu gegn útkomu Þjóðviljans hafa þingmenn Sósíal- istaflokksins sent ríkisstjóminni eftirfarandi bréf: Reykjavík, 3. maí 1941. Alþingi hefur með samþykkt þingsályktunar þann 28. f. m. falið ríkisstjórninni að mótmæla hand- töku og brottflutningi þriggja ís- lenzkra ríkisborgara og ennfremur banni við útgáfu íslenzks dagblaðs, og er þar átt við aðalmálgagn flokks okkar ,,Þjóðviljann“. LANDSbÓKASABl Jfú 150113 ..IGLANDS j

x

Þingtíðindi um starf Sósíalistaflokksins á Alþingi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þingtíðindi um starf Sósíalistaflokksins á Alþingi
https://timarit.is/publication/1804

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.