Morgunblaðið - 18.08.2000, Blaðsíða 6
6 E FÖSTUDAGUR 18. ÁGÚST 2000
DAGLEGT LIF
MORGUNBLAÐIÐ
1
Hafíð bláa hafíð heillar marga en ekki þora allir að takast á við það. Lfney Sigurðardóttir
talaði við Eyþór Atla Jónsson sem hræðist ekki sjóinn en hann hefur stundað sjóböð í átján ár.
Ræðarínn Armann Kojic Jónsson kýs heldur að þjóta áfram á árabát en að bleyta sig.
Inga Rún Sigurðardóttir spjallaði við hann um kappróður á íslandi.
Betra er að róa
en reka undan
Hasarinn var mikill í hinu árlega Tölvumiðlunarmóti í kappróðri sem
fram fór í Nauthólsvíkinni síðastliðinn mánudag.
Kappróöur
SIGLING á árabáti á lygnu
vatni með nestiskörfu í far-
teskinu á ekkert skylt við
kappróðurinn sem Armann
Kojic Jónsson stundar.
„Þig langar ekki að fara aftur í ára-
bát eftir að hafa prófað kappróðrar-
bát,“ segir hann. Armann er vel
kunnugur kappróðri en æfíngarnar
voru fjórtán á viku þegar hann æfði
sem mest.
ítalinn Leone Tinganelli varð til
þess að Armann og nokkrir vinir
hans fóru að æfa róður fyrir sjö árum
þegar þeir voru á öðru ári í mennta-
skóla. „Leone var í ítalska landslið-
inu í kappróðri. Þegar hann ílutti
hingað til lands ákvað hann að byrja
með róðrardeild og auglýsti eftir
fólki. Við vorum átta vinirnir sem
mættum á kynningu og fórum að æfa
í kjölfarið.“
Ármann er félagi í róðrardeild
siglingafélagsins Brokeyjar í
Reykjavík en deildin var stofnuð árið
1992. Brokey hefur aðsetur á tveim-
ur stöðum í Reykjavík. Annars vegar
í Austurbugt í Reykjavíkurhöfn þar
sem kjölbátadeildin er staðsett og
hins vegar í Nauthólsvíkinni þar sem
róðrardeild og kaenudeild hafa aðset-
ur. Kappróður á Islandi hefur verið í
sókn að undanförnu en sem stendur
er róðrardeildin í Brokey eina sinnar
tegundar á landinu.
Kappróður á sér langa sögu
Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem
íslendingar kynnast kappróðri því
fyrsti skráði kappróður landsins fór
fram árið 1870 á Pollinum á Akur-
eyri. Ræðarar í Reykjavík hafa hins
vegar alla tíð haft aðstöðu í Naut-
hólsvíkinni. Árið 1920 var keppt um
„Kappróðrarhom íslands" en þá var
hægt að æfa róður hjá bæði KR og
Glímufélaginu Armanni. Árið 1940
var lokað fyrir umferð smábáta í
Fossvogi og Skerjafirði en þá lögðu
ræðarar árar í bát.
Eftir seinni heimsstyrjöldina
komst kraftur í kappróðurinn á ný.
Ludvig Ziemsen stofnaði Róðrarfé-
lag Reykjavíkur árið 1950 en síðast
var keppt um Kappróðrarhornið árið
1960. Leone átti því mikið verk fyrir
höndum þegar hann byrjaði með
róðrardeildina eftir meira en fjörutíu
ára hlé á kappróðri á Islandi. Leone
fékk Jón Magnús Jónsson í lið með
sér en hann stundaði kappróður á há-
skólaárum sínum í Bandaríkjunum.
Kappróður á sér langa sögu en á
14. öld var farið að keppa reglulega í
gondólaborginni góðkunnu, Feneyj-
um. Nútímakappróður getur rakið
rætur sínar til upphafs átjándu aldar
en það voru ferjumenn sem kepptu
reglulega á ánni Thames í Englandi.
Kappróður er mikið stundaður í
háskólum bæði í Bandaríkjunum og
Bretlandi. Frægust er hin árlega
róðrarkeppni milli háskólanna í
Oxford og Cambridge á Bretlandi en
hún fór fram á Thames í 146. skipti í
mars síðastliðnum. Hún gefur ekki
alveg rétta mynd af kappróðri að því
leyti að íþróttin er fjölbreyttari en
keppnin gefur til kynna. „Þarna er
keppt á átta manna bátum,“ segir
Armann og tekur svo til við að út-
skýra að einnig sé keppt á fjögurra
og tveggja manna bátum sem og ein-
særingi.
Bæði hóp- og einstaklingsíþrótt
Ekki er það þó eini valkosturinn
því einnig er misjafnt hvort notaðar
eru tvær árar eða ein en í seinna til-
vikinu er einnig notast við stýrimann
í bátnum. „Kappróður er óvenjuleg-
ur að því leyti að hann getur verið
bæði hóp- og einstaklingsíþrótt.
Núna æfum við í Brokey á einsær-
ingum. Við byggðum tíu emsæringa
fyrir fjórum árum og fengum mót frá
Þýskalandi til verksins og komumst
því vel frá verkinu fjárhagslega.
Mjög gott er að æfa í einsæringum
því í fjögurra eða átta manna bátum
þurfa allir að vera álíka miklir að
burðum. Hér er ekki auðvelt að ná
því takmarki vegna fámennis."
Bátarnir eru í eigu Brokeyjar
þannig að upprennandi ræðarar
þurfa ekki að eyða miklu fé í útbún-
að. „Þú þarft einungis íþróttaföt því
klúbburinn útvegar allt annað. Þegar
byrjandi kemur að æfa er hann sett-
ur í róðrarvél í tvö eða þrjú skipti áð-
ur en hann mætir á sjóæfingu. Það er
mikilvægt að tileinka sér réttu hand-
tökin því tæknin þarf að vera rétt.“
Einsæringamir em mjög mjóir og
að sama skapi valtir. „Mikilvægt er
að vita hvemig á að leggja árarnar í
bátinn og hvemig skal stíga í hann.
Árarnar era notaðar til að halda jafn-
vægi. Ekki allir átta sig strax á því og
detta út í á fyrstu sjóæfingunni."
Armann þjálfar hóp stráka í
kappróðri en þeir era á aldrinum
14-17 ára. „Þetta eru tólf ungir og
hraustir strákar. Hópurinn er góð-
ur og strákarnir eru mjög samrýnd-
ir. Við æfum í Nauthólsvíkinni
þrisvar sinnum í viku á sumrin. Ég
er með nokkra stráka sem gætu náð
langt með tíma og þjálfun. Leone
ætlar að koma aftur að þjálfa en
hann verður með þá sem ætla sér að
ná lengra," segir Armann. Hann
hefur haft stelpur í hópnum en þær
hafa ekki æft allt árið heldur aðal-
lega sótt æfingar á sumrin.
Sóttu mót á Englandi
Hópurinn sem Ármann þjálfar
hefur sótt mót á Englandi síðustu
sumur. „Við eigum gott samband
við Star Rowing Club í Bedford og
það er orðið að árlegum viðburði að
fara þangað á mót. Enski klúbbur-
inn er mjög hjálplegur og lánar okk-
ur báta. Okkur gekk mjög vel á mót-
inu í sumar og við komum heim með
þrettán bolla en aðeins vora veitt
verðlaun fyrir fyrsta sætið og vora
þau í formi bolla. Heimsóknin eflir
starfið hjá okkur því þarna sjá
krakkarnir af eigin raun hvernig
stór klúbbur starfar. Einn aðalkost-
urinn við kappróðurinn er sá að allir
keppa við jafningja vegna þess að
skipt er í flokka eftir getu. Allir geta
því haft gaman af mótunum."
Armann þekkir af eigin raun
hversu mikill munur er á því að
þjálfa kappróður sér til skemmtun-
ar og heilsubótar og að þjálfa til
þess að ná langt í keppnum. Armann
æfði kappróður af krafti í nokkur ár
en einbeitir sér nú að þjálfuninni.
Hann fór á um fimm mót á ári og
náði góðum árangri; á heimsmeist-
aramótinu árið 1996 komst hann í
undanúrslit á einsæringi en sá ár-
angur kom honum í átjánda sætið á
heimslistanum. „Mjög mikilvægt er
að fara á mót erlendis og keppa á
móti þeim bestu til að vita hvar mað-
Úrual spænskra
húsaaana
Spænskir
iampar í úrvali
HIÍSGÖGN
1
INNRÉTTINGAH
Síðumúla 13
Sími 588 5108
Aftur á toppinn?
Futurice hefur hleypt
nýju lífí í íslenska
tískuheiminn en í
framhaldi af sam-
nefndri sýningu um
síðustu helgi hefur
Topshop valið Aftur
til að hanna fatalínu
fyrir TS Reykjavík.
Inga Rún Signrðar-
dóttir kannaði málið.
ALÞJÓÐLEGA fatahönnun-
arsýningin Futurice fór
fram síðustu helgi í Bláa
, lóninu. Sýningin var sú
fyrsta sinnar tegundar á íslandi og
þótti hafa tekist vel. Breski hönnuð-
urinn Tristan Webber, sem var með
sýningu á Futurice, lýsti yfir ánægju
sinni með viðburðinn og tók sérstak-
lega fram að hann vildi sjá áframhald
á Futurice. Hvort Futurice verði að
árlegum viðburði eður ei skiptir e.t.v.
ekki mestu máli núna þar sem ennþá
á eftír að koma í Ijós hverju Futurice
2000 kemur til leiðar.
Futurice var í góðu samstarfi við
verslanakeðjuna Topshop en hún er
þekkt fyrir að styðja við bakið á ung-
um og upprennandi hönnuðum. Fut-
urice var engin undantekning því
Topshop ákvað að velja einn af hönn-
uðum sýningarinnar til að hanna sér-
staka línu fyrir TS Reykjavík sem
kemur í hillumar í Topshop næsta
vor. Caren Downie, sem er yfir hönn-
unardeild Topshop, tilkynnti vinn-
ingshafana en systumar Bára og
Hrafnhildur Hólmgeirsdætur í Aftur
urðu fyrir valinu.
Spennandi og sérstæð föt
Downie sagði að Aftur hefði verið
valið vegna „heildarhugmyndarinnar
á bak við línuna og hönnunarinnar,
sem fellur vel inn í stefnu Topshop
um að skapa ákveðinn lífsstíl fyrir
viðskiptavinina. Fötin þeirra era ung,
spennandi og sérstæð“. Ef allt geng-
ur eftir er það þó ekki hönnun undir
merkinu Áftur sem seld verður í
Topshop heldur myndu Hrafnhildur
og Bára hanna línu og vinna hug-