Heilsuvernd - 01.05.1982, Blaðsíða 7
Læknir læknar sjálfan sig
af krabbameini
Frásögn af lækningu dr. Anthony Sattilaro’s af krabbameini.
Endurprentuð úr East West Jou rnal, maí 1980.
Rétt fyrir kl. 9 f.h. 25. septem-
ber 1979 kom forseti Methodist
Hospital í Philadelphiu, i skrif-
stofu sína og fór í einn af gömlu
læknasloppunum sínum, og bað
til Guðs að krabbameinið væri
horfið úr líkama sínum. Síðan
hraðaði hann sér eftir ganginum
að röntgendeildinni.
Fimmtán mánuðum fyrir
þennan septembermorgun höfðu
læknarnir séð að hinn 48 ára lík-
ami Dr. Anthonys Sattilaro’s
væri alsettur illkynja æxlum,
krabbameinið hafði breiðst til
hauskúpunnar, í hægri öxlina,
rifin, bringubeinið, hrygginn og
blöðruhálskirtilinn. Líkurnar
væru þær, að hann ætti um átj-
án mánuði ólifaða.
Nú, þegar dr. Sattilaro gekk
inn í röntgendeildina þennan
haustdag, baðst hann fyrir eins
og heilagur maður, enda þótt
hann innst inni væri vongóður.
Hann heilsaði öllum viðstöddum
og horfði á, meðan læknarnir
sprautuðu geislavirkum lit í æð-
ar hans. Síðan biðu þeir þess, að
beinin tækju það í sig, svo unnt
væri að taka beinamynd, eða
sneiðmyndir! Fjórum stundum
siðar var tæki, svipað geiger-telj-
ar, rennt yfir líkama hans, til að
finna, hvar litarefnið hefði sest
að og finna þannig krabbameins-
frumurnar. Allt var eðlilegt.
Nýjar athuganir, m.a. röntgen-
myndir staðfestu það: Sattilaro
var hreinn. Ekkert krabbamein
var eftir i líkama hans.
Læknar Methodist Hospital
voru furðu lostnir. Sattilaro
hafði læknað sig sjálfur, ekki
með venjulegum læknisfræðileg-
um aðferðum, heldur með því að
breyta um matarræði og lífsstíl.
Fimmtán undanfarna mánuði
hafði Sattilaro stundað makro-
biotics.
Áhrifa lækninga dr. Sattila-
ro’s gætir enn á Methodist Ho-
spital. Allmargir læknar og aðrir
starfsmenn þar hafa þegar breytt
matarvenjum sínum. Einkaritari
hans, Mari Ginnari, stundar
makrobiotics, og það gera fleiri
af starfsliðinu. En það, sem er
athyglisverðast, að áliti Satti-
laro’s og starfsliðsins, er að
lækning hans hefur leitt til tafar-
lauss endurmats á hlutverki
matarræðis í meðferð sjúkdóms-
ins.
Varaforseti Methodist Hospi-
tal, dr. John Giacobbo, sagði: Á
Methodist voru flestir sannfærð-
ir um að dr. Sattilaro væri dauð-
vona. Enginn sjúklingur með
þessa tegund sjúkdóms lifir í
fimm ár. En nú er hann fullkom-
lega heill og ég er undrandi. Ég
held, að mataræðið hafi valdið
þessu.
Dr. Sattilaro ólst upp i High-
land Park, New Jersey og nam
við Rutgers University og út-
skrifaðist 1953. 1957 útskrifaðist
hann frá Hanneman Medical
College, fór til Hartford Hospit-
al til að gerast svæfingalæknir
og starfaði síðan í flughernum til
1963. Skömmu áður en hann tók
við sem aðalframkvæmdastjóri
Methodist (í árslok 1957) sótti
hann Harvard Business School
og Public Health til að leggja
stund á stjórnun heilbrigðis-
mála. Sattilaro, sem er pipar-
sveinn, hefur starfað hjá Metho-
dist Hospital í s.l. fjórtán ár.
Þegar litið er á Sattilaro nú er
erfitt að trúa því, að fyrir rúmu
ári hafi hann gengið undir þrjár
brottnáms skurðaðgerðir og 70
kg þungi hans er jafndreifður
um grannan, 170 cm. háan lík-
amann. í svörtu hárinu vottar
varla fyrir gráu. Hann er sól-
brúnn, augu hans bera vott um
lífsþrótt og skíra hugsun. Starfs-
félagar hans hafa að undanförnu
haft orð á því, að hæglega mætti
telja hann undir fertugu.
Saga hans um baráttuna við
og sigurinn yfir einhverjum ógn-
vænlegasta sjúkdómi á Vestur-
löndum hefst í maí 1979, þegar
stjarna hans virtist í háþunkti.
Hann hafði verið aðalfram-
kvæmdastjóri Methodist í sex
mánuði og framundan var fyrsta
stóra eftirlit hans á sjúkrastofn-
uninni, sem hann bjóst við að
Ijúka með heiðri og sóma. Hon-
um virtist allt vera í fullkomnu
lagi og þetta væri heppilegur tími
til að fara í gagngerða læknis-
skoðun.
Eftir skoðunina hringdi rönt-
gensérfræðingurinn og sagði,, að
eitthvað væri óeðlilegt við út-
komuna. Röntgenmyndir sýndu
stórt æxli í vinstri síðunni. Dag-
inn eftir, fimmtudaignn 1. júní
1978, gerðu læknar Methodist
beinascan á Sattilaro. Útkoman
var slæm. ,,Það voru „rnein-
vörp“ (krabbamein) í hauskúp-
unni, hægri öxlinni, tveim
hryggbeinum, sennilega bringu-
beininu og stórt æxli í sjötta rifi
vinstra megin“, saðgi Sattilaro.
HEILSUVERND 5