Harmonikublaðið - 01.11.2004, Blaðsíða 10

Harmonikublaðið - 01.11.2004, Blaðsíða 10
Bréf HARMONIKUBLAÐIÐ Færeyjaferð Félags harmonikuunnenda við Eyjafjörð 8. - 15. júlí 2004 með Norrænu Frá torgi í Þórshöfn þar sem Ieikið var fyrir norska sjónvarpið. F.v. jóhann Sigurðsson, Guðmundur Sigurpálsson, Svanhildur Leósdóttir, Kristján Þórðarson, Sigurður Indriðason og upptökumaður norska sjónvarpsins. Um nokkurra ára skeið hafði verið rætt um ferð til Færeyja, en loksins varð úr því í þetta sinn. Egill jónsson frá Nes- kaupstað var fenginn til farar- stjórnar, en hann er búinn að fara margar ferðir með hópa til Færeyja, enda skipulagði hann ferðina frábærlega. Þá var jón Árni úr Mývatnssveit fenginn til að aka hópnum alla ferðina. Það var um kl. 6.00 þann 8. júlí sem 40 manna hópur lagði af stað frá Akureyri til Seyðisfjarðar, þar var farið um borð í ferj- una og komið sér fyrir. Farið var um kl. 12.00. Á leiðinni var renniblíða og engin hreyfing á skipinu. Þó nokkuð var spilað um borð á leiðinni út. Komið var til Fær- eyja um kl 6.00 að morgni 9. júlí. Þar tóku á móti okkur félagar úr ÁFH, sem er skammstöfun fyrir „Áhugafelag fyri För- oyskar Harmoniku- spælarar", og fóru með okkur til morg- unverðar í hús sem þeir hafa til umráða. Þar voru saman- komnir nokkrir félag- ar með hlaðborð, sem hefði sómt sér á hvaða hóteli sem var. Þarspiluðu bæði þeir og við. Síðan fórum við spilarar og lékum í beinni útsendingu í Útvarp Færeyjar. Þegar við komum til baka var gengið í skoðunarferð um Skansinn og Þinganes. Þá síðan spiluð- um við á torgi í miðbænum, en þar stóð yfir matarkynning hjá Norðmönnum og var upptaka frá norska sjónvarp- inu, sem við lent- um inná. Nú var farið á Hótel Færeyjar, en þar bjuggum við meðan á dvölinni stóð, og komum okkur fyrir. Um kl. 16.00 fórum við svo í SMS, sem er Kringla þeirra í Þórshöfn, og spil- uðum þar fyrirgesti og gangandi. Ekki var langur tími til hvíldar, því félagar í ÁFH buðu til kvöld- verðar í Fuglafirði. Þar fengum við rausn- arlegar veitingar og nokkuð spilað undir borðhaldi. Þar færði formaður okkar fé- lögum ÁFH myndband og bók frá Akur- eyri, sem Akureyrarbær hafði verið svo vinsamlegur að láta okkur í té, ásamt fána félags okkar. Eftir borðhaldið var svo dansleikur þar sem bæði við og Færey- ingar léku fyrir dansi. Að lokum var ekið til Þórshafnar, og þá var okkar fólk orðið nokkuð þreytt eftir erfiðan en skemmti- legan dag. Alla daga var farði í einhverjar skoðun- arferðir litið inn í fallegar kirkjur bæði nýjar og mjög gamlar og einnig safnið í Götu. Þess skal getið að tveir af félögum ÁFH, þeir Jónsvein Poulsen og ísak N. lacobsen fylgdu okkur annar hvor í skoð- sér um safnið í Götu. Úr kirkjunni í Tóftum. ŒfflP

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.