Fréttablaðið - 12.05.2006, Side 88

Fréttablaðið - 12.05.2006, Side 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 ���������� ��������������������� Einkennilegt pláss Kósóvó. Virk-ar á mann eins og utan við allan veruleika. Samt ótal sögur. Eins og af karlinum sem á veitingahúsið Marco Polo. Af einhverjum ástæð- um var þessi maður, sem býr lengst inni í landi, sjómaður hér áður fyrr. Meira að segja útgerðarmaður. Átti sinn bát og allt. EINN daginn var bátnum stolið en stuttu síðar frétti karlinn af honum einhvers staðar í á sem gengur í Miðjarðarhafið. Hann samdi við jaxla í sínu landi um að sækja dall- inn og greiddi þeim væna fúlgu fyrir. Þeir fundu dallinn og mis- munuðu honum niður eftir ánni en á leiðinni heim, hittu þeir athafna- menn sem buðu þeim hærra verð fyrir hann en upphaflegur eigandi hafði greitt þeim fyrir að sækja hann. Auðvitað seldu þeir hæstbjóð- anda skektuna sem þeir áttu ekkert í. Mánuði seinna frétti fyrrverandi útgerðarmaðurinn að báturinn hefði sokkið í Miðjarðarhafið. NÚ rekur hann veitingahús sem býður upp á þurrt, grátt ket eins og svo margir staðir í Kósóvó. Lítur út eins og úrbeinaður hryggur en er svo fíngert að maður getur eigin- lega ekki ímyndað sér að það komi af stærra dýri en ketti. Búið að bjástra við að steikja það lengi dags svo skósólafílíngurinn blívi. Kalla þetta nautaket. Franskar með. Biðji maður um sósu, er auðvitað alveg sjálfsagt að maður fái sveppasósu. Sósan sú er gúllassúpa sem nokkrum sneiðum af dósasveppum hefur verið fleygt út í. FYRIR utan veitingahúsið nokkur stykki úr herskara flökkuhunda sem ganga um Pristínaborg að kjamsa í sig það sem gestir leifa. Ærinn skammtur. Þeir eru lúsugir, skítugir og með hundaæði. Plága í plássinu. Ekki alls fyrir löngu, þegar innfæddir voru farnir að vera nokkuð til friðs og hættir að plaffa hver annan niður á öllum götuhorn- um, var hluti af alþjóðahernum, norski hlutinn, fenginn til þess að nýta rólega daga í að fækka í liði flökkuhunda. Þeir réðust í málið af þaulhugsaðri herkænsku – en nokkrum dögum seinna fréttist heim til Noregs að herinn þeirra væri að slátra hundum, saklausum dýrum, í Kósóvó. Það varð allt vit- laust og herinn steinhætti að skjóta hunda. Nú fjölgar þeim ört. MÁTTUR dýraverndarsamtaka í hinum vestræna heimi hefur heila- þvegið lýðinn svo gersamlega með sinni pólitísku rétttrúnaðarstefnu að það er vísast að innan tíðar verð- um við öll étin af albönskum flökku- hundum og hvölum úr gæludýra- fjölskyldunni Keikó. Kattahryggir og flökkuhundar KIA umboðið á Ís landi er í e igu Heklu hf . Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5000 KIA Picanto 393 kr. KIA Picanto 1,0 LX 5 gíra beinskiptur 5 dyra H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA á dag* Ótrúlegt en satt KIA Picanto er lipur, fallegur og nútímalegur og sparneytinn smábíll með skynsamlegri rýmisnýtingu og veglegum aukabúnaði. Það sakar svo ekki að verðið á sér ekki hliðstæðu. KIA Picanto fimm dyra kostar aðeins 1.195.000 kr. Picanto er einnig fáanlegur sjálfskiptur, einn fárra smábíla. Fæst einnig með aflmikilli 75 hestafla og sérlega sparneytinni dísilvél. Taktu þátt í HM leik KIA og þú átt möguleika á frábærri ferð fyrir tvo á úrslitaleik HM í sumar. Allir sem kaupa KIA bíl hjá KIA umboðinu til 15. júní eiga möguleika á þessari frábæru ferð. *11.807 kr. á mánuði m.v. 30% útborgun og bílasamning hjá SP fjármögnun í 84 mánuði. A u ka b ú n að u r á m yn d : á lfe lg u r KIA umboðið er eini viðurkenndi sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi. 3 ára ábyrgð. 10-11 Hjarðarhaga 10-11 Lágmúla 10-11 Langarima 10-11 Engihjalli 10-11 Staðarbergi ...sólarþríhyrninginn! Opið allan Alltaf opið!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.