Fréttablaðið - 12.05.2006, Síða 74

Fréttablaðið - 12.05.2006, Síða 74
 12. maí 2006 FÖSTUDAGUR42 tonlist@frettabladid.is > Plata vikunnar Tool: 10.000 Days „Nýja Tool-platan er alveg jafn fullkomin og ég leyfði mér að vonast eftir. Í einu orði sagt, meistaraverk!“ - BÖS Í SPILARANUM HJÁ RITSTJÓRNINNI Red Hot Chili Peppers: Stadium Arcadium, Pearl Jam: Pearl Jam, Lára Rúnarsdóttir: Þögn, Jet Black Joe: Full Circle og Halli Reynis: Leiðin er löng. Ýmsir: Litla hryllingsbúðin „Skemmtileg plata þar sem hópur sterkra söngvara stendur fyllilega fyrir sínu. Andrea Gylfadóttir gnæfir þó upp úr sem plantan Auður II.“ FB The Fiery Furnaces: Bitter Tea Fjórða plata The Fiery Furnaces er alveg virki- lega pirrandi. Hvernig geta svona hæfileikaríkir krakkar mögulega skapað svona leiðinlega plötu?“ BÖS The Zutons: Tired of Hanging Around „Önnur breiðskífa stuðboltanna í The Zutons stenst allar væntingar, og gott betur. Ávísun á gott skap, dillandi mjaðmahreyfingar og töffaralegan lúftgítar.“ BÖS Ghostface Killah: Fishcale „Ghostface Killah er í fantaformi og fimmta sólóplata hans gæti vel verið hans besta til þessa. Fyrsta flokks austurstrandar hip hopp.“ BÖS Mammút: Mammút „Fyrsta plata Mammúts hefur að geyma fjölmörg ljúfsár en kraftmikil gítarrokklög og með frekari hljóðversvinnu getur hljómsveitin aðeins orðið enn betri.“ SHA Morrissey: Ringleader of the Tormentos „Morrissey fylgir bestu plötu sinni til þessa eftir með annarri ágætis plötu. Kappinn er fullur af sjálfsöryggi þessa dagana, og virðist njóta þess að vera til... en er samt auðvitað ennþá á bláu nótunum.“ BÖS The Vines: Vision Valley „Þriðja breiðskífa The Vines, og þeirra fyrsta sem tríó, er hin sæmilegasta plata. Öllu meira um ballöður en áður og Bítlaáhrifin leyna sér ekki.“ BÖS The Streets: The Hardest Way to Make an Easy Living „Þriðja breiðskífa The Streets er hrein og klár vonbrigði. Fljótfærnisleg útgáfa frá listamanni sem hefði frekar átt að bíða þangað til að hann hafði upp á eitthvað áþreifanlegt að bjóða, eins og góð lög og texta.“ BÖS 1. TOOLVICARIOUS 2. MAMMÚTÞORKELL 3. TONY THE PONY ARMY OF THE SUN 4. THE RACONTEURSSTEADY AS SHE GOES 5. RED HOT CHILI PEPPERSDANI CALIFORNIA 6. JAKOBÍNARÍNAHIS LYRICS ARE DISASTROUS 7. PEARL JAMWORLD WIDE SUICIDE 8. ANDELS AND AIRWAVESTHE ADVENTURE 9. A.F.I.MISS MURDER 10. DR. SPOCKPUMAS FOR SHARIF X-LISTINN TOPP TÍU LISTI X-INS 977 TOOL Rokksveitin Tool er á toppi X- listans með lagið Vicarious af nýju plötunni 10.000 Days. Aðdáendur Jethro Tull ætla að stytta sér biðina eftir tónleikum Ian Anderson í Laugardalshöll 23. maí með upphitun á Grand rokk í kvöld. Stiklað verður á stóru í sögu Jethro Tull og sýnd- ar fágætar upptökur af tónleikum hennar. Einnig mun Stefán Örn Gunnlaugsson, hljómborð- sleikari Buff, stíga á stokk og flytja nokkur Tull-lög, órafmagnað. Gestum verður boðið að taka þátt í Tull-getraunaleik með vinningum að verð- mæti alls um 100.000 krónur, þar á meðal aðgöngumiðum á tónleikana, geisladiskum og DVD-mynddiskum. „Fyrir mína parta er Tull ein af þessum hljómsveitum sem gleymast oft þegar verið er að tala um þessi stóru bönd frá þessum tíma,“ segir Guðlaugur Sigurgeirsson, einn af skipu- leggjendum kvöldsins. „Maður verður líka var við mikla virðingu fyrir þessari hljómsveit frá músíköntum. Ian Ander- son er náttúrulega Jethro Tull og ég upplifi Ander- son sem Frank Zappa Evrópu,“ segir hann. „Sviðs- framkoman er mögnuð hjá honum og hann á engan sinn líkan. Ég held að margir fatti ekki að Anderson er í svakalegu formi núna. Hann datt niður á milli 1990 og 2000 en tónleikarnir sem hann var að halda í fyrra, sem eru eins og þeir sem verða hérna, voru að koma rosalega vel út. Eins og Anderson sagði sjálfur þá krefst tónlist Jethro mikils af hlustandanum og líka þeim sem spila. Jethro Tull er eitthvað aðeins meira. Þetta er eins og ef þú ert með súkkulaði köku; með Jethro Tull er kominn rjómi á hana.“ Upphitunin í kvöld hefst klukkan 20.00 og eru allir Tull- aðdáendur gamlir sem nýir hvatt- ir til að láta sjá sig. Stiklað á stóru hjá Jethro Tull Kanadíski tónlistarmaðurinn Neil Young hefur gefið út plötuna Living With War. Platan, sem var fyrst eingöngu fáanleg til niður- hleðslu á netinu, hefur að geyma tíu lög þar sem Young er í miklum mótmælagír og gagnrýnir Íraks- stríðið harðlega. „Þessi plata snýst um að skipt- ast á hugmyndum,“ sagði Young. „Hún snýst um að koma skilaboð- um á framfæri og að hvetja fólk áfram. Ég veit að það eru ekki allir að hugsa nákvæmlega það sama og ég, en rautt og blátt er ekki svart og hvítt. Við erum öll í þessu saman. Þessi plata snýst um sam- einingu,“ sagði hann. Platan var samin og tekin upp á tveimur vikum. Young til aðstoðar var meðal annars. hundrað manna kór. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hinn sextugi Young er á pólitísku nótunum. Árið 2002 gaf hann út lagið Let´s Roll sem fjallaði um farþegana sem létust eftir að þeir yfirbuguðu flugræningja yfir Pennsylvaníu 11. september 2001. Árið 1970 gaf hann einnig út lagið Ohio með Crosby, Stills, Nash & Yong sem fjallaði um morð á bandarískum stúdentum. Neil Young mótmælir stríðinu NEIL YOUNG Kanadíski tónlistarmaðurinn hefur gefið út plötuna Living With War. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES SMS UM NÝJUSTU PLÖTURNAR S ta fg ön gu - o g lín us ka ut as ta fir Verð frá 4.900 kr. Platan Thank God For Silence með rokksveit- inni Sign, sem kom út hér á landi í fyrra, kemur út í Bretlandi þann 22. maí í samstarfi við breska plötufyrirtækið IC Records. Fimmta júní kemur síðan út smáskífan A Little Bit. Platan virðist leggjast vel í bresku rokkpressuna því í nýj- asta tölublaði þungarokktíma- ritsins virta Metal Hammer segir m.a.: „Hart rokk með frá- bærum gítarriffum, flottum lögum og hellingi af rokk og ról hugarfari.“ Tímaritið mælir með plötunni fyrir þá sem eru aðdá- endur Guns n‘ Roses, Velvet Revolver og íslensku rokkar- anna í Mínus. Í lok greinarinnar segist tíma- ritið vonast til að Sign komi til Bretlands til að spila þar því tónleikar sveitarinnar séu umtalaðir. Jafnframt er lagið When Demons Win á safndiski sem sent er út með tímaritinu, og er Sign í góðum félagsskap með þekktum böndum á borð við Motörhead og Killing Joke. Engir sérvirtingar Jákvæður dómur birtist einnig um plötuna í hinu þekkta mánaðarriti Rocksound sem segir að Sign sýni að það sé fleira að finna á Íslandi en sérvitra listamenn á borð við Björk og Sigur Rós. Í dómnum segir m.a.: „Blanda af Axl Rose, Bon Jovi, AC/CD gít- arriffum og glæsilegum gítarsóló- um benda til þess að þessir dreng- ir hafi alist upp á heilsusamlegum rokk og ról matseðli. Leynt aðdráttarafl þeirra liggur aftur á móti í nýrra fyrirbæri eins og Euro-popp hljómi finnsku hljóm- sveitarinnar HIM sem kemur til með að vinna Sign þá fjöldaathygli sem þeir stefna á, hvort sem það verður með þungarokkslaginu What You Don‘t Know eða ballöð- unni So Pretty.“ Tónlistarhátíð í Bretlandi Sign er á förum til Bretlands þar sem hljómsveitin spilar í boði tímaritsins Kerrang! á nýrri tón- listarhátíð í Brighton sem nefnist Great Escape. Hefst hún þann 19. næstkomandi. Eftir hátíðina fer Sign í viku- langa tónleikaferð með írsku hljómsveitinni, The Answer, sem spilar rokk í anda Deep Purple. Spila þær á Barfly-stöðunum sem eru í London, Birmingham, Liver- pool, Glasgow, York og Cardiff. „Þetta byggist mikið á því hvernig þeim gengur núna og það eru allir mjög jákvæðir. Byrinn er með okkur en þetta snýst allt um að selja plötur,“ segir Gísli Þór Guðmundsson, umboðsmaður Sign. Sign fór nýverið í stutta tón- leikaferð um Bandaríkin þar sem sveitin spilaði meðal annars á hinum fræga stað Viper Room í Los Angeles. Jacoby Shaddix, söngvari rokksveitarinnar heims- frægu, Papa Roach, var þar á meðal áheyrenda auk upptöku- stjórans Howards Benson, sem m.a. hefur tekið upp fyrir Motör- head, Sepultura og P.O.D. „Þessi ferð gekk ógeðslega vel og strák- unum var vel tekið, sérstaklega í New York,“ segir Gísli Þór. Upphitun um helgina Til að hita upp fyrir ferðina til Bretlands ætlar Sign að spila hér á landi um þessa helgi. Í kvöld verð- ur sveitin í Rósenborg á Akureyri og á morgun heldur hún tvenna tónleika á Gauki á Stöng, þá fyrri fyrir alla aldurshópa klukkan 17.00. Á sunnudag spilar sveitin síðan í grunnskólanum á Ísafirði. freyr@frettabladid.is Hrós frá Metal Hammer SIGN Rokksveitin Sign fær góða dóma í erlendum tónlistartímaritum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.