Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.05.2006, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 12.05.2006, Qupperneq 48
■■■■ { heilsa og útivist } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■12 Rannveig Oddsdóttir byrjaði að hlaupa reglulega vorið 1998. Síðan þá hefur hún náð góðum árangri, hlaupið nokkur maraþon og nælt í ýmsa titla. Hún er formaður lang- hlauparadeildar Ungmennafélags Akureyrar og var til í að gefa nokk- ur góð ráð til þeirra sem langar að byrja að hlaupa. „Það sem mestu skiptir fyrir þá sem eru að byrja er að fara ekki of geyst af stað. Það er betra að byrja á því að hlaupa stuttar vegalengd- ir, setja sér raunhæf markmið og lengja síðan leiðina eftir því sem maður finnur að þolið eykst,“ segir Rannveig. „Í rauninni er ekki hægt að nefna neina sérstaka kílómetra- tölu en ef þú ert algjör byrjandi er nóg að fara svona þrjá til fjóra kílómetra. Ef maður nær ekki að skokka þá er líka gott að hlaupa og labba til skipis og reyna síðan að skokka alltaf meira og labba minna.“ Rannveig segir að það taki ekki langan tíma að koma sér í ágæt- is hlaupaform. „Ef fólk hleypur svona þrisvar í viku og fer hæfi- lega langt í senn ætti þolið að hafa aukist til muna eftir einn til tvo mánuði. Aðalmálið er að koma sér vel af stað og halda sig við efnið. Þegar maður er að byrja að byggja upp þolið er það fljótt að fara og ef þú sleppir því að hlaupa í eina eða tvær vikur ertu kominn aftur á byrjunarreit. Flestir gefast upp á fyrstu vikunum en ef þú heldur það út að hlaupa reglulega í svona tvo mánuði ættir þú að vera kom- inn upp á lagið,“ segir Rannveig og bendir á að það reynist mörgum vel að æfa með hóp. „Hópurinn veitir visst aðhald og það getur líka verið góður félagsskapur. Þegar fólk hleypur eitt hættir því frekar til að fresta hlaupunum og þá er auðvelt að gefast upp. Það er mikilvægt að ælta sér ákveðinn tíma í hlaupin og setja þau inn í stundaskrána.“ Það að fara út að hlaupa er lík- lega ein einfaldasta íþrótt sem hægt er að stunda og Rannveig segir að það sé einmitt það sem geri hlaup- in svo þægilegt. „Þú þarft ekki að læra einhver flókin spor og þú ert ekki bundinn stað og tíma. Þú getur tekið sportið með þér hvert sem þú ferð og það eina sem þú þarft er vilji og góðir skór. Fyrir þá sem eru að byrja er algjör óþarfi að kaupa sér heilt hlaupadress, mestu skiptir að vera á góðum skóm og það er ágætt að hafa í huga að hlaupa- skór eru líka góðir gönguskór svo fjárhagslegt tap er ekki mikið þótt maður gefist upp á hlaupunum,“ segir Rannveig og hlær. Rannveig viðurkennir að hlaup- in verði að hálfgerðri bakteríu með tímanum „Ég er oft spurð að því hvernig ég nenni að hlaupa svona mikið. Þetta snýst ekkert um að nenna, ég bara verð að fara og mér líður illa ef ég sleppi því. Fyrir þá sem hlaupa mikið skiptir útiveran líka miklu máli og ég tími alls ekki að sleppa henni,“ segir Rannveig. Ekki fara of hratt af stað Með vilja og seiglu á ekki að vera flókið að koma sér í ágætis hlaupaform. Hlaup er góð íþrótt sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Rannveig á hlaupastígnum ásamt dóttur sinni, Kolbrá, sem fær stundum að fara út að hlaupa með mömmu. FRÉTTABLAÐIÐ/KRISTJÁN Nokkur góð ráð frá Rannveigu ■ Farðu að lágmarki tvisvar í viku út að hlaupa og ekki oftar en þrisvar sinnum fystu vikurnar. ■ Ekki fara of geyst af stað. Fyrstu vikurnar skaltu hlaupa rólega og það er allt í lagi að labba inni á milli. ■ Ætlaðu þér ákveðinn tíma í hlaupin og stattu við þá áætlun. Ekki sleppa hlaupunum þótt veðr- ið sé vont eða tíminn lítill. ■ Veldu tíma sem þér hentar. Ef þú ert þung/ur í gang á morgn- ana skaltu ekki láta þér detta í hug að ætla að fara á fætur eld- snemma og hlaupa áður en þú mætir í vinnuna. Sumum hentar morgunninn, öðrum hádegið, seinni parturinn eða kvöldið. ■ Ekki gefast upp þótt þú sért þreyttur og/eða stirður eftir fyrstu æfingarnar og þér finnist þú heldur fara aftur en fram. Þreytan er merki þess að þú hafir tekið vel á og skilar sér með tímanum í bættu þoli. Taktu rólega æfingu þegar þú ert þreyttur og gerðu svo betur næst. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Sunddeild Breiðabliks og Þríþrauta- félag Reykjavíkur, ÞRÍR, standa fyrir þríþraut næstkomandi sunnu- dag við gömlu laugina í Kópavogi. Keppnin hefst á 400 metra sundi, þá eru hjólaðir tíu kílómetrar og að lokum hlaupa þátttakendur 2,5 kíló- metra. Keppnin hefst klukkan 9.30 og hægt er að skrá sig til þátttöku á heimasíðunni www.triceland.net. Hjólað, synt og hlaupið C M Y CM MY CY CMY K Húlahopp er ekki bara fyrir börnin, því það er frábær líkamsrækt fólg- in í því að húla. Það er gott fyrir mjaðmirnar, neðra bak og maga- vöðvana auk þess sem það reynir á þolið að húla í góða stund. Húla- hopp hringir eru ódýrir og tilvalið að eiga einn hring í garðinum sem hægt er að grípa í. Húlahopp
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.