Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.05.2006, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 12.05.2006, Qupperneq 28
 12. maí 2006 FÖSTUDAGUR28 Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 5.518 +0,82% Fjöldi viðskipta: 273 Velta: 2.888 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 63,10 +0,64% ... Alfesca 3,75 -1,06%... Atorka 5,72 -0,69% ... Bakkavör 50,40 +0,60% ... Dagsbrún 5,19 -0,77% ... FL Group 18,10 +2,26% ... Flaga 4,07 +0,00% ... Glitnir 16,80 +0,60% ... KB banki 748,00 +0,95% ... Kögun 74,50 +0,00% ... Landsbankinn 21,50 +2,87% ... Marel 70,30 +0,00% ... Mosaic Fashions 17,40 -0,57% ... Straumur- Burðarás 16,70 -0,60% ... Össur 106,00 +0,00% * í gær kl. 14.15 MESTA HÆKKUN Landsbankinn +2,87% FL Group +2,26% KB banki +0,95% MESTA LÆKKUN Alfesca -1,06% Dagsbrún -0,77% Atorka -0,69% Danskir fjölmiðlar gerðu fundi Árna Mathiesen fjármálaráðherra í Kaup- mannahöfn talsverð skil. Árni Mathiesen fjármálaráðherra kynnti ásamt Þorsteini Þorgeirs- syni, hagfræðingi í fjármálaráðu- neytinu, stöðu íslenskra efnahags- mála fyrir dönsku fjármálafólki og blaðamönnum. Almennt virðist fundurinn hafa fallið í góðan jarðveg og umfjöllun um hann yfirveguð. Börsen fjallar um spá fjármálaráðuneytisins sem gerir ráð fyrir að mjúk lending náist í hagkerfinu og viðskiptahallinn minnki með veikingu krónunnar. Börsen hefur áhuga á krónunni og dregur fram að fjármálaráðherra hafni því að festa gengi krónunnar við evru. Börsen ræðir einnig við Davíð Oddsson seðlabankastjóra sem boðar einnig mjúka lendingu og hagvöxt á næsta ári þrátt fyrir að hann verði ekki mikill. Davíð segir útlán bankanna of mikil, en áréttar fjárhagslegan styrk þeirra og bend- ir á hagnað þeirra og mikil erlend umsvif. Umfjöllun Berlingske Tidende sker sig nokkuð úr umfjöllun ann- arra danskra fjölmiðla. Fyrirsögn á grein um fjármálaráðherra er „Dýra- læknirinn á bak við fjármál Íslands“. Þar segir að það sé gráglettni örlaganna að þegar Íslendingar ryk- sugi fjárfestingar í Norður-Evrópu og krónan sé í hrunadansi sé fjár- málaráðherrann dýralæknir og sér- fræðingur í fisksjúkdómum. Síðan er miklu púðri eytt í að ættfæra ráð- herrann og gera grein fyrir mægð- um hans við Þórð Friðjónsson, for- stjóra Kauphallarinnar, og tengslum við áberandi fólk í íslensku þjóðlífi. Berlingske tekur yfirlýsingum fundarins með miklum fyrirvara og svarar í blaðamannstexta tilvitnun- um í ráðherrann. Þeir ræða síðan við Carsten Valgreen hjá Danske Bank sem er sömu skoðunar og fyrr um stöðu íslenskra efnahagsmála. Blendin umfjöllun ÁRNI MATHIESEN FJÁRMÁLARÁÐHERRA Danskir fjölmiðlar gerðu málflutningi Árna góð skil. Berlingske Tidende var þó afar neikvætt og gerði mikið úr því að íslenski ráðherrann væri dýralæknir að mennt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Faxafen 12 - Reykjavík Opið fimmtudag og föstudag 10-18, laugardag 10-16, sunnudag 12-17. Lager á 2. hæð Faxafeni 12, fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag sala Kínverjar fá pílur út af gengismálum Alþjóðabankinn hefur þrýst á Kínverja að leyfa gengi renminbisins (sem er jú kínverska og þýðir „gjald- miðill alþýðunnar“) að styrkjast hraðar en raunin er. Kínverski gjaldmiðillinn er líka kallaður júan. Bankinn taldi æskilegt að styrking kæmi fram áður en skýrsla kæmi frá fjármálaráðuneyti Banda- ríkjanna því talið var líklegt að tilkynnt yrði að Kína ráðskaðist óeðlilega með gjaldeyrismarkaðinn. Skýrslan kom hins vegar út í gær og var ekki tekið svo djúpt í árinni, þótt kvartað væri yfir hægagangi í endurbótum á gengisstefnu. Þetta hefur vakið hörð viðbrögð gagnrýnenda sem telja ráðuneytið hafa misst af tækifæri til að þvinga Kínverja að samninga- borðinu. Styrking renminbisins skiptir Bandaríkin miklu máli vegna við- skiptahalla landsins. Kínverjar segjast hins vegar standa við áætlanir sínar, sem miðist við hag lands og þjóðar. Gull í nýju aldarfjórðungshámarki Enn hækkar gull í verði og náði í gær nýju hámarki á nokkrum dögum. Viðmiðunarverð á markaði í New York hækkaði um tvö prósent og kostaði únsan á hádegi í gær 720 Bandaríkjadali. Verðhækkunin er sögð skýrast af miklum gull- kaupum á mörkuðum, en gullið hefur orð á sér fyrir að vera traust fjárfesting. Órói á fjármálamörkuðum verður þannig gjarnan til þess að menn sækja í „öruggari“ fjárfestingar og ýtir það undir viðskiptin. Með auknum viðskiptum hækkar verðið, í takt við lögmál um framboð og eftirspurn. Gullverð hefur að sögn ekki verið hærra síðan í september 1980, en í þeim mánuði slógust Jimmy Carter og Ronald Reagan í kosningabaráttu í Bandaríkj- unum og á tennisvellinum áttust við Björn Borg og John McEnroe. Í sama mánuði dó John Bonham, trommari Led Zeppelin. Peningaskápurinn... Ísland er í fyrsta sæti hvað varðar samkeppnis- hæfni landa í Evrópu og í fjórða sæti samanborið við 60 lönd. Það sem stendur í vegi fyrir fyrsta sæti er íbúafjöldinn á Íslandi. Viðskiptaráð Íslands og Glitnir banki kynntu niðurstöður árlegrar alþjóðlegrar könnunar IMD við- skiptaháskólans í Sviss á sam- keppnishæfni Íslands fyrir árið 2006 í gær. Í könnuninni kom fram að Ísland er í fjórða sæti yfir sam- keppnishæfni ríflega 60 landa og stendur í stað á milli ára en í fyrsta sæti samanborið við önnur lönd í Evrópu. Bandaríkin eru í efsta sæti, Hong Kong í öðru sæti og Singapúr í því þriðja. Þá er Ísland jafnframt í fjórða sæti þegar litið er á skilvirkni hins opinbera en löndin í efstu sætum eru Hong Kong, Singapúr og Dan- mörk. Ísland var í sjötta sæti á síð- asta ári og færist upp um tvö sæti á milli ára. Því er að þakka lítilli skriffinnsku og sveigjanleika á vinnumarkaðnum hér á landi, að sögn Halldórs Benjamíns Þor- bergssonar, sem kynnti niðurstöð- ur könnunarinnar. Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Glitnis banka, sagði könnunina mikilvægt inn- legg í umræðuna um efnahagsmál hér á landi og vísaði til illa ígrund- aðra umfjallana erlendra aðila um stöðuna. Ástæðan fyrir því að Ísland nær ekki hærra í könnun- inni sagði hann vera þá að ekki sé hægt að keppa við stærri hagkerfi hvað íbúafjölda varðar. „Stærð hagkerfisins er stór mínus en við getum ekki breytt því,“ sagði hann og benti á að Íslendingar væru ein- faldlega of fáir miðað við milljóna- þjóðirnar sem ofar væru, s.s. Bandaríkin og Singapúr. Þá sagði Ingólfur að auka yrði framleiðni hér á landi en benti á að Íslending- ar gætu lært mikið af þeim þjóð- um sem væru í þremur efstu sætum könnunarinnar. jonab@markadurinn.is FRÁ KYNNINGU KÖNNUNARINNAR Í GÆR Erlendur Hjaltason, formaður stjórnar Viðskipta- ráðs, Ingólfur Bender, forstöðumaður Glitnis banka, og Halldór Benjamín Þorbergsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs. MYND/HÖRÐUR SVEINS. Ísland samkeppnishæfast Vísitala neysluverðs mælist nú 258,9 stig og hækkaði um 1,45 pró- sent frá fyrri mánuði samkvæmt nýjum tölum sem Hagstofan birti í gær fyrir maímánuð. Niðurstað- an er yfir meðalspá greiningar- deilda viðskiptabankanna, sem gerði ráð fyrir hækkun frá 1,1 til 1,5 prósenta. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 239,6 stig og hækk- aði um 1,48 prósent frá aprílmán- uði. Verðbólgan mælist nú 7,6 pró- sent og er langt yfir verðbólgu- markmiði Seðlabankans, sem er 2,5 prósent. Undanfarna þrjá mán- uði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,8 prósent en það jafngildir 15,9 prósenta verðbólgu á ári. Gengislækkun krónunnar og verðhækkanir á bílum og elds- neyti eiga stærstan þátt í hækkun vísitölunnar. Samkvæmt greiningardeildum viðskiptabankanna styðja nýjar verðbólgutölur enn við spár þeirra um að Seðlabankinn muni enn hækka stýrivexti sína hinn 18. maí næstkomandi um 50 til 75 punkta. Í Hálf fimm fréttum Greiningar- deildar KB banka segir að síðast- liðin tvö ár hafi hækkun fasteigna- verðs keyrt verðbólguna áfram en nú hafi orðið kaflaskil þar sem greina megi verðbólguþrýsting í öllum undirliðum vísitölunnar. Verðbólgutölurnar nú hljóti að vera áfall fyrir framgang verð- bólgumarkmiðsins og trúverðug- leika Seðlabankans. - hhs Verðbólgan ótamin LÍTILL ÞÚSUNDKALL Eftir því sem verðbólgan eykst þá minnkar verðgildi peninganna, þótt ekki skreppi þeir saman líkt og þúsundkrónaseðillinn hér fyrir ofan. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI MARKAÐSPUNKTAR... Verðbólga á Írlandi mældist 3,8 prósent í apríl. Stjórnarandstæðingar sökuðu ríkis- stjórn landsins um að halda ekki aftur af verðbólgunni, sem hafi farið úr böndun- um og sé meiri en á evrusvæðinu. Icelandic Asía, dótturfélag Icelandic Group, hefur skrifað undir viljayfirlýsingu um kaup á 51 prósents eignarhlut í fyrir- tæki í eldi og vinnslu í Kína. Áætlanir eru um að tvöfalda afkastagetu á næstu tólf mánuðum og að velta félagsins muni nema um 25 milljónum Bandaríkjadala. Hagnaður Tryggingamiðstöðvarinnar hf. (TM) nam 626 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi. Á sama tíma í fyrra nam hagnaðurinn 1,43 milljörðum króna. Rekstrartap af vátryggingastarf- semi á tímabilinu nam 215 milljón- um króna en skýrist af tapi á rekstri ökutækjatrygginga. HÆKKUN VÍSITÖLU NEYSLUVERÐS - SPÁR VIÐSKIPTABANKANNA Glitnir 1,50% Kaupþing banki 1,10% Landsbankinn 1,10% Raunhækkun 1,45% ICEX-15 5.518 +0,82% Fjöldi viðskipta 273 Velta 2.888 milljón- ir Mesta hækkun Landsbankinn +2,87% FL Group +2,26% KB banki +0,95% Mesta lækkun Alfesca -1,06% Dagsbrún -0,77% Atorka -0,69% ACTAVIS 63,10 +0,64% ... Alfesca 3,75 -1,06%... Atorka 5,72 -0,69% ... Bakkavör 50,40 +0,60% ... Dagsbrún 5,19 -0,77% ... FL Group 18,10 +2,26% ... Flaga 4,07 +0,00% ... Glitnir 16,80 +0,60% ... KB banki 748,00 +0,95% ... Kögun 74,50 +0,00% ... Lands- bankinn 21,50 +2,87% ... Marel 70,30 +0,00% ... Mosaic Fashions 17,40 -0,57% ... Straumur- Burðarás 16,70 -0,60% ... Össur 106,00 +0,00% * í gær kl. 14.15
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.