Fréttablaðið - 12.05.2006, Blaðsíða 26
12. maí 2006 FÖSTUDAGUR26
fólkið í landinu
Auðkúluhreppur í Arnarfirði náði
frá Langanesi til Sléttaness við
mynni fjarðarins en hann var sam-
einaður Þingeyrarhreppi árið 1990
en svo Ísafjarðarbæ árið 1996.
Aðeins er búið á fjórum bæjum
en nú síðast var búi brugðið á
Hrafnseyri og svo var bærinn að
Lokinhömrum lagður í eyði fyrir
þremur árum en hann er yst í firðin-
um. Fossinn Dynjandi prýðir fjörð-
inn sem hefur alið Íslendingum
sjálfstæðishetju en Jón Sigurðsson
fæddist og ólst upp á Hrafnseyri
eins og landsmenn vita. Steinsnar
frá er Auðkúla en þar búa þau
Hreinn Þórðarson og Hildigunnur
Guðmundsdóttir. Þeim þykir þó lítið
til þessa fornfræga sveitunga
koma.
Jón Sigurðsson var enginn guð
„Ég held að hann hafi verið ótta-
legur loftbelgur,“ segir Hildigunn-
ur en bítur svo á varirnar eins og
það sé ekki til siðs að hallmæla
hetjunni svo skammt frá fæðing-
arstað hennar. „Ég veit að mönn-
um hér þótti mikið til þess koma
að vera úr sömu sveit og hann en
ég er annarrar skoðunar,“ segir
Hreinn bóndi hennar. „Eflaust var
þetta merkilegur maður en hann
var enginn guð líkt og margir vilja
vera láta,“ bætir hann við. „Okkar
börn eru því ekki alin upp við það
að þurfa að sýna minningu hans
meiri lotningu en annarra,“ bætir
húsmóðirin við.
Sama sveit í þremur hreppum
En þó sveitin sé afskekkt á veturna
færist heldur betur líf í hana á sumr-
in þegar ferðamenn koma unnvörp-
um til að skoða fæðingarstað sjálf-
stæðishetjunnar.
Sveitungar fara heldur ekki var-
hluta af hræringum og hagræðingu
í sveitarstjórnarmálunum. „Þetta er
þriðja sveitarfélagið sem við búum í
þó við höfum aldrei flutt neitt,“
segir Hildigunnur. „Þegar ég kom
hingað frá Barðaströnd var þetta
Auðkúluhreppur en svo varð þetta
Þingeyrarhreppur og nú er þetta
Ísafjarðarbær. Svo erum við í síma-
skrá og hjá póstinum skráð á Bíldu-
dal sem tilheyrir svo Vesturbyggð
þannig að það eru sviptingar í þessu
þó maður fari ekki neitt,“ segir hún
og hlær við.
Einbúinn og athafnamaðurinn
Þokan er að hverfa og fossinn Dynj-
andi ber við fjarðarbotninn þegar
blaðamaður gerir sér leið um Dynj-
andisvog, eftir Mosdal og áleiðis að
Ósi til Þorbjarnar Péturssonar, sem
er betur þekktur sem Bjössi á Ósi.
Bjössi var úti í fjárhúsi þegar
blaðamann bar að enda sauðburður
hafinn. „Er ekki rétt að bjóða þér
kaffisopa,“ segir Bjössi og svo er
gengið í bæinn og hann hellir upp á
meðan farið er yfir sögu sveitarinn-
ar. „Mér var sagt að um miðja síð-
ustu öld hafi um 35 til 40 manns búið
hér í Mosdal en svo fór að fækka
verulega. Lengi vorum við tveir, ég
og Aðalsteinn á Laugabóli, en eftir
að bú hans brann 1993 var varla
nokkur búskapur þar. Svo fellur
hann frá 1998 og árið eftir kom Árni
Erlingsson og Auður Erlendsdóttir
frú hans. Þau eru með alveg feikna-
legt hestabú þarna með um sjötíu
hesta. En mér finnst Árni nágranni
minn hugsa heldur stórt. Ég held að
hann vilji leggja undir sig allan
Mosdalinn en honum verður ekki
kápan úr því klæðinu.“
Blaðamaður ákveður að taka hús
á þessum mikla athafnamanni og
nágranna einbúans að Ósi. Eftir að
hafa farið yfir ár og torfærur kemst
hann svo að því að Árni hefur lítið
yndi af blaðamönnum. Eftir kaldar
kveðjur frá Laugabóli er Bjössa
mætt öðru sinni og honum fengin
tíðindin af næsta bæ. „Þetta vissi
ég, við erum svolítið sérstakir hérna
í Mosdalnum,“ sagði Bjössi.
Það er glaðasólskin og blíða uppi á Dynjandisheiði þegar
Jón Sigurður Eyjólfsson skröltir holóttan veginn niður í
dalalæðuna sem hylur Arnarfjörð; forvitinn að komast að
því hvað menn séu að brasa við fjörðinn þar sem sjálfstæð-
ishetjan fæddist og Gísli Súrsson var veginn.
STAÐURINN
TÖLUR OG STAÐREYNDIR
Íbúafjöldi: 8
Sveitarfélag: Ísafjarðarbær
Sveitarstjóri: Halldór Halldórsson
Atvinna á svæðinu: Mjólkárvirkjun,
sauðfjárbúskapur á tveimur bæjum,
hestasetur á Laugabóli, æðarvarp.
Athyglisverðir staðir: Dynjandi,
Hrafnseyri - fæðingarstaður Jóns
Sigurðssonar
Næsta þéttbýli: Þingeyri
Vegalengd frá Reykjavík: 390, miðað
við Hrafnseyri.
Gamli
Auðkúluhreppur
Mjólkárvirkjun er í botni Borgarfjarðar í
Arnarfirði. Þrír starfa þar og vinna sex daga
í einu en fá svo fjögurra daga frí eftir fyrstu
vinnutörn en tvo eftir þá næstu. Það getur
þó verið hægara sagt en gert að bregða sér
í fjölskyldufaðm á veturna þegar menn eiga
frídaga en Hrafnseyrarheiðin er þá jafnan
illfær.
„Menn víla það ekkert fyrir sér að labba
yfir heiðina til að komast til Þingeyrar,“ segir
Steinar Jónasson stöðvarstjóri. „Í einu slíku
tilfelli var Jón Örn Arnarson tæknifræðingur
hætt kominn þegar lítil skriða féll á hann á
leiðinni en honum varð þó ekki meint af.“
Ekki var hann þó kominn á áfangastað þegar
til Þingeyrar kom því fjölskylda hans býr í
Reykjavík. Af sjálfsögðu vílar hann það ekki
heldur fyrir sér að aka þangað á sex daga
fresti. „Bílinn ratar þetta,“ segir hann af mikilli
hógværð. Bjössi á Ósi sveitungi þeirra kemst
jafnan þannig að orði að þeir búi á Mjólká en
geymi konurnar annars staðar.
Virkjað er frá Glámuhálendinu en þar eru
helstu ár Mjólká og Hófsá. Einnig er nokkuð
vatn fengið úr fönnum sem bráðna ekki að
fullu á sumrin. Þær minnka þó óðum líkt og
Gláma, sem telst ekki lengur til jökla. Fallhæð
vatnsins, sem kemur ofan af Glámuhálend-
inu uns það þenur vélarnar í virkjuninni, er
596 metrar og getur engin virkjun státað
af slíkri fallhæð á landinu. „Við verðum þó
að njóta þess vel að geta montað okkur af
þessu þar sem Kárahnúkavirkjun mun skjóta
okkur ref fyrir rass þegar hún verður komin í
gagnið,“ segir Steinar.
Nú er verið að endurbæta virkjunina og
því var fjölmennara á Mjólká en venjulega
þegar blaðamann bar að garði.
ATVINNUREKANDINN: MJÓLKÁRVIRKJUN
Geyma konurnar annars staðar
Skarphéðinn Hjálmarsson smiður, Jón Örn Arnarson, Stein-
ar Jónasson og Jón Pétursson. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
DYNJANDI Hann er tignarlegur fossinn sem
kórónar Arnarfjörð og gamla Auðkúlu-
hreppinn.
HJÓNIN FRÁ AUÐKÚLU Hreinn Þórðarson
og Hildigunnur Guðmundsdóttir standa úti
á hlaði með Tjaldanesfellið í baksýn.
ÞORBJÖRN PÉTURSSON FRÁ ÓSI Bjössi situr
í eldhúsi sínu og segir sögu sveitarinnar
meðan hann sýpur kaffi. Sú saga fjallar
síður en svo um samrýmda nágranna.
Þú gætir unnið:
• Ferð fyrir 2 á leikinn*
• PS2 tölvu
• PSP tölvu
• Fótbolta tölvuleiki
• Fullt af DVD og
tölvuleikjum og fleira!
*Ferðin á leikinn erdreginn 15. maí úr ölluminnsendum skeytum,vinningshafi verðurbirtur á www.gras.is
Carlsberg býður þér og vini þínum á
úrslitaleikinn í París að sjá
Arsenal vs. Barcelona 17.maí!
Sendu SMS skeytið JA MEF á númer
ið 1900 og þú
gætir unnið! Við sendum þér 2 spur
ningar.
Þú svarar með því að senda SMS ske
ytið JA A, B eða C
á númerið 1900.
S LEIKUR SMS LEIKUR SMS LEIKUR SM
S LEIKUR SMS LEIKUR SMS L
Úrslitaleikur
Meistaradeildarinnar í 100% beinni!
Henry vs. Ronaldinho
Arsenal vs. Barcelona
Evróp
ukepp
nin
í kna
ttspyr
nu
hefst
á PSP
!
Léttöl
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
tir
í
Sk
ífu
nn
i S
m
ár
al
in
d/
Kó
pa
vo
gi
. M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rtu
k
om
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
9. hver vinnur!
Ferð þú á leikinn?
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Lifað við
dynjandi fossanið
LITIÐ ÚT ARNARFJÖRÐ FRÁ DYNJANDISHEIÐI Dalalæðan huldi nær
allan Arnarfjörð að morgni en varð þynnri eftir því sem leið á dag-
inn. Þó stóðu Bauluhúsaskriður og Tjaldanesfell, sem þarna sjást,
ávallt upp úr. Þarna er horft frá Dynjandisheiði í átt að Auðkúlu.
FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR