Morgunblaðið - 04.08.2004, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 04.08.2004, Blaðsíða 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 2004 13 ● FJÓRIR fyrrverandi framkvæmda- stjórar hjá U.S. Foodservice, sem er einn angi hollensku stórversl- anakeðjunnar Ahold, hafa verið ákærðir fyrir verðbréfasvik og annað glæpsamlegt athæfi í tengslum við ráðabrugg til þess að fegra afkomu- tölur fyrirtækisins, en það er talið hafa kostað fjárfesta 6 milljarða doll- ara. Hinir ákærðu eru Michael Resnick fyrrum fjármálastjóri U.S. Food- service, Mark Kaiser fyrrum mark- aðsstjóri fyrirtækisins, Timothy J. Lee fyrrum aðstoðarinnkaupastjóri og William F. Carter sem einnig er fyrrverandi aðstoðarinnkaupastjóri. Tveir fyrrnefndu eru ákærðir fyrir verðbréfasvik, samsæri og fölsun skjala til bandaríska fjármálaeftirlits- ins SEC. Tveir síðarnefndu hafa þeg- ar játað á sig samsæri og verðbréfa- svik og hafa þeir heitið samvinnu um að upplýsa málið. Lee hefur að auki játað á sig innherjasvik og fölsun skjala til yfirvalda. SEC mun fara fram á að fyrrverandi stjórnendunum verði gert að end- urgreiða illa fenginn gróða með vöxt- um, greiða sekt og verði bannað að starfa sem forsvarsmenn fyrirtækja, að því er segir í Wall Street Journal. Fjórir fyrrum stjórn- endur Ahold ákærðir ● OLÍUVERÐ hækkaði mikið í gær þegar forseti OPEC, Samtaka olíu- útflutningsríkja, tilkynnti, að þau hefðu lítið svigrúm til að auka olíu- framleiðslu á næstunni. Þá hafði hryðjuverkaviðbúnaðurinn í Banda- ríkjunum einnig áhrif til hækkunar. Í New York fór verð á olíufati í 44,24 dollara snemma í gær og hef- ur aldrei verið hærra. Í London fór verð á Norðursjávarolíu í 40,45 doll- ara og hefur ekki verið hærra síðan í október 1990, í kjölfar innrásar Íraka í Kúveit, þegar það fór í 40,95 doll- ara. Purnomo Yusgiantoro, orku- málaráðherra Indónesíu og forseti OPEC, sagði í gær, að olíuverðið væri orðið „hreint brjálæði“ en ekki væri unnt að auka framleiðsl- una strax, það tæki tíma. Verðið væri nú það hæsta síðan nú- verandi verð- viðmiðanir hefðu verið teknar upp 1980. Aukinn viðbúnaður í Bandaríkj- unum vegna hugsanlegra hryðju- verkaárása hefur orðið til að ýta und- ir verðhækkun á olíunni og það sama er að segja um skemmdarverk á olíu- leiðslunni milli Kirkuk í Írak og Tyrk- lands. Olíuverð í hæstu hæðum Purnomo Yusgiantoro ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ingarfyrirtækinu Seymour Pierce, að yfirtaka á BFG sé ólíkleg. Þá er einnig haft eftir verð- bréfasala í Cardiff, að þar sem nokkrir af stjórnendum BFG hafi keypt hlutabréf í félag- inu að undanförnu, bendi það til þess að þeir hafi ekki vitneskju um hugsanlegt yfirtökutil- boð. Hefðu þeir slíka vitneskju myndu þeir ekki hafa heimild til kaupa á hlutabréfum í fé- laginu. Því sé yfirtaka ekki líkleg. Gengi hlutabréfa í BFG hefur lækkað tölu- vert frá því það fór hæst í um 180 pens á hlut í febrúar síðastliðnum, en það hefur verið rúm- lega 80 pens að undanförnu. Segir í greininni í SÉRFRÆÐINGAR á fjármálamarkaði í Bret- landi eru enn á ný farnir að spá því að yfirtaka á bresku smásöluverslanakeðjunni Big Food Group (BFG) sé hugsanlega yfirvofandi. Er talað um að stjórnendur félagsins hafi jafnvel í hyggju að bjóða í það. Í grein í breska blaðinu Observer um síðustu helgi segir að orðrómur í þessa veruna hafi heyrst á ný í síðustu viku, sem hafi gert að verkum að gengi hlutabréfa í samsteypunni hafi hækkað lítillega. Í frétt á vefmiðlinum IcWales, sem flytur fréttir sem tengjast Wales, en þaðan er BFG runnið, er haft eftir sérfræðingi hjá fjárfest- Observer að sú hækkun sem orðið hafi á geng- inu að undanförnu, í tengslum við orðróminn um hugsanlega yfirtöku stjórnenda félagsins, hljóti að hafa glatt Baug Group, sem á 22% hlut í BFG. Segir Observer að Baugur taki orðróm um hugsanlega yfirtöku stjórnenda BFG á félag- inu ekki mjög alvarlega því slíkur orðrómur hafi oft heyrst áður. Annars sé það af Baugi að frétta að félagið vilji fjárfesta í fimmtu kven- fataverslanakeðjunni, líklega Phase Eight, en fyrir á Baugur í Oasis, Karen Millen, Whistles og Coast. Orðrómur um hugsanlega yfirtöku á Big Food Group Morgunblaðið/Eggert Í yfirtökuhug? Orðrómur er á kreiki um að Bill Grimsey, forstjóri Big Food Group, og fleiri stjórnendur vilji kaupa fyrirtækið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.