Morgunblaðið - 20.04.2003, Side 72

Morgunblaðið - 20.04.2003, Side 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 20. APRÍL 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Buxnadagar Vinnufatabúðin EINMUNA veðurblíða var víða um land á föstudag og fór hitinn á tveimur stöðum norðaustanlands upp í 21 gráðu. Hlýindin vöruðu þó ekki lengi því í gær hafði kólnað um allt land og var súld eða rign- ing sums staðar. Var von á vætu norðan- og austanlands á morgun, annan í páskum. Akureyringar nutu þess að vera í fríi á föstudaginn langa en þá fór hitastigið upp undir 20 gráður. Bæjarlífið bar þess glöggt merki og fjöldi fólks lagði leið sína í Kjarnaskóg og Sundlaug Akureyr- ar. Bæjarbúar léku við hvern sinn fingur og margir sleiktu sólina inni á milli runna í skóginum, í sundlaugargarðinum eða heima við hús. Nokkuð hvasst var í veðri og því var Hlíðarfjall lokað. Vorverkin snemma á ferð Að sögn Stefáns Gunnarssonar, yfirverkstjóra garðyrkjumála hjá Akureyrarbæ, er gróðurinn í bæn- um búinn að taka mjög vel við sér og því tími vorverkanna óvenju snemma þetta árið. „Veturinn hef- ur verið mjög snjóléttur og því höf- um við getað byrjað fyrr að klippa og snyrta,“ segir Sefán en garð- yrkjudeildin sér um fegrun og hirðingu gróðurs í bænum. „Gróð- urinn hefur vegna veðursins farið óvenju snemma af stað, svona um mánuði fyrr en venjulega er. Það vantar ekki vætu enn sem komið er en ef þetta veður heldur áfram fer að vanta rigningu.“ Stefán seg- ir að garðyrkjudeildin fái liðsauka í vor en þá koma unglingar á veg- um Vinnuskólans til vinnu. Haraldur Eiríksson, veðurfræð- ingur á Veðurstofu Íslands, segir óvenju hlýtt hafa verið norðaust- anlands miðað við árstíma á föstu- dag. Hann bendir þó á að hlýindi sem þessi geti orðið annað veifið og jafnvel um miðjan vetur. Ástæða veðurblíðunnar nú má rekja til hlýs lofts sunnan úr höf- um sem streymdi yfir landið á föstudag með tilheyrandi hita. Morgunblaðið/Kristján Hiti komst í 21 gráðu á tveimur stöðum á Norðausturlandi á föstudaginn langa Kólnandi í kjölfar hlýinda Fólk á Norðurlandi lék við hvern sinn fingur og naut sólarblíðunnar í sundlaugunum og í hvers kyns útiveru. GUÐJÓN A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segir að komi til þess að flokkurinn fari í ríkisstjórn eftir al- þingiskosningarnar muni hann ekki gefa eftir fiskveiðistefnu sína. Flokkurinn myndi ekki una því að taka þátt í stjórn- arsamstarfi þar sem ekki yrði inni í mynd- inni að breyta núverandi fiskveiðistjórn- unarkerfi. „Það er klárt skilyrði af okkar hendi. Við viljum koma af stað breytingum varð- andi kvótakerfið.“ Guðjón segir einnig að taki flokkurinn þátt í ríkisstjórn myndi hann sækjast eftir sjávarútvegsráðuneyt- inu. „Það verður erfitt að semja okkur út úr sjávarútvegsráðuneytinu. Fiskveiði- stefnuna munum við ekki gefa eftir.“ Kveðst ekki gefa eftir fiskveiði- stefnuna  Fiskveiðistefnuna/10 FÆKKAÐ hefur um 150 manns á atvinnu- leysisskrá á höfuðborgarsvæðinu frá því um síðustu mánaðamót. Meiri hreyfing er á fólki út og inn af skrá en áður var. Starfs- menn vinnumiðlana segja aukinnar bjartsýni gæta hjá þeim sem til þeirra leita. Liðlega sex þúsund manns voru á atvinnu- leysisskrá á landinu öllu nú fyrir páskana sem er mjög svipað og um síð- ustu mánaðamót. Miðað við skráningar hjá Vinnumálastofnun má ætla að atvinnuleysi sé nú um 4,2% á lands- vísu. Starfsmenn Vinnumálastofnunar taka þó fram að meiri hreyfing sé á fólki og auk- innar bjartsýni gæti um ástandið á vinnu- markaði. Þótt heildarfjöldi atvinnulausra á landinu öllu hafi lítið breyst virðist aftur á móti vera farið að draga úr atvinnuleysi á höfuðborg- arsvæðinu. Í lok mars voru rúmlega fjögur þúsund manns á skrá hjá Vinnumiðlun höf- uðborgarsvæðisins en í gær voru þar 3.863 skráðir án atvinnu og hefur atvinnulausum á höfuðborgarsvæðinu því fækkað um hér um bil 150 manns á um hálfum mánuði. Fækkað um tugi manns á dag Hugrún Jóhannesdóttir, forstöðumaður Vinnumiðlunar höfuðborgarsvæðisins, seg- ir að undanfarna daga hafa fækkað um nokkra tugi á atvinnuleysiskrá á dag. „Það má kannski segja að þetta séu ákveðin tíma- mót. Talan fór lengi vel upp á við en var svo um tíma í um fjögur þúsund manns en nú er þetta allt í einu farið að síga niður á við. Það eru ákveðin tímamót og það er nýtt að svona margir hverfi af skrá eins og verið hefur undanfarna daga.“ Hugrún segir stærsta hópinn á skrá vera ófaglært fólk en nú bjóðist því fleiri störf. Hún segir stofnunina halda mörg námskeið fyrir atvinnulausa: „Það eru t.d. yfir sextíu manns búnir að vera á vinnuvélanáskeiði núna en þau námskeið eru orðin feikilega vinsæl. Það er greinilegt að menn horfa til framkvæmda sem standa fyrir dyrum á næstunni.“ Færri atvinnu- lausir á skrá MOKFISKIRÍ af ýsu hefur verið hjá Eyjabátum að undanförnu og er togbáturinn Drangavík VE þar fremstur í flokki. „Það hefur hreinlega verið mokveiði af ýsu og ufsa undanfarnar vikur. Ég hef ekki séð aðra eins ýsugengd í 15 ár sem ég hef verið skipstjóri,“ segir Magnús Ríkarðsson, skip- stjóri á Drangavíkinni. Drangavíkin er komin með um þúsund tonn frá áramótum og í marzmánuði einum var aflinn 405 tonn. Aflaverðmæti frá áramótum er 103 milljónir og eru 10 manns á. Ógeðslegt veður „Það er alveg ótrúlegt hve vel okkur hefur gengið, því veðrið hefur hreinlega verið ógeðslegt síðan um mánaðamótin janúar febrúar. Þetta hefur nánast verið stöðug bræla. Undanfarnar vikur vorum við mest á Selvogsbanka og vorum að fiska mjög vel, mjög góða ýsu og ufsa. Vegna páska- stoppsins fóum við svo út á Eld- eyjarbanka og þar var sama mok- ið. Við höfum stytzt verið úti í einn sólarhring að fylla skipið, en við höfum oftast verð með fullfermi, 45 tonn í túr. Þetta er mikið álag á mannskapinn að gera að þessu öllu svo það er nánast staðið allan túrinn. Það er handleggur að gera að þessu öllu,“ segir Magnús. Hann segir að það sé ýsa um allt fyrir Suðurlandi og ufsi líka svo það væri svo sannarlega ástæða til að auka kvótann og að ósekju mætti auka ýsukvótann strax. Það kæmi öllum til góða. „Það eru allir að fiska vel af ýs- unni núna og gengur á kvótann hjá mörgum.“ Lágt verð Fiskurinn af Drangavíkinni hef- ur ýmist farið til vinnslu í Eyjum, verið seldur á mörkuðum eða fluttur ferskur utan í gámum. Magnús segir að það skyggi á góð- an árangur við veiðarnar að verð á ýsu hafi lækkað töluvert frá því í fyrra. „Markaðirnir eru slakir um þessar mundir og verð ytra líka lágt. Það skýrist sjálfsagt að ein- hverju leyti af mikilli veiði, bæði hér við land, hjá Færeyingum og Norðmönnum,“ segir Magnús. Síðasti löndunardagur fyrir páska var hjá flestum Eyjabátum mánudaginn fyrir páska. Þá fengu sjómenn langþráð frí í nokkra daga, en bátar munu halda til veiða að kveldi annars í páskum. Hef ekki séð aðra eins ýsugengd í fimmtán ár Magnús Ríkarðsson skipstjóri á Drangavíkinni mokar upp ýsunni á Selvogsbanka og við Eldey Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Landað úr Drangavíkinni eftir síðustu veiðiferð fyrir páska. ATLI Eðvaldsson, landsliðs- þjálfari í knattspyrnu, stefnir að því að hafa kjarnann úr landsliðinu saman á æfingum í þrjár til fjórar vikur fyrir Evr- ópuleikina mikilvægu gegn Færeyjum og Litháen í júní. Atli sagði við Morgunblaðið að hann hefði mikinn hug á að fá leikmennina sem spila með enskum liðum hingað heim strax og ensku deildakeppninni lýkur hinn 11. maí. „Ég er byrjaður að ræða við þá um að koma strax heim til æfinga. Við myndum þá æfa þrisvar til fjórum sinnum í viku fram að leikjunum og síðan bætast leikmennirnir frá Belg- íu og Þýskalandi við þegar deildakeppninni þar lýkur. Ef þetta gengur eftir, fæ ég mun betri tíma með liðið en nokkru sinni áður. Þá verður hægt að fylgjast með líkamlegu ástandi þeirra og bæta úr því eftir þörf- um, og eins getum við farið mun betur en áður í leikræn atriði.“ Lands- liðsmenn æfa í maí Morgunblaðið/Kristinn Eiður Smári Guðjohnsen og Atli Eðvaldsson bregða á leik á æfingu í Glasgow. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.