Morgunblaðið - 20.04.2003, Blaðsíða 60
DAGBÓK
60 SUNNUDAGUR 20. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
prufutími fyrir þá sem
vilja. Uppl. á skrifstofu
GÍ, s. 530 3600.
Kattholt. Flóamark-
aður í Kattholti, Stang-
arhyl 2, er opinn
þriðjud. og fimmtud.
frá kl. 14–17. Leið 10
og 110 ganga að Katt-
holti.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga fást á eftirtöldum
stöðum á Suðurlandi:
Skóverslun Axels Ó.
Lárussonar, Vest-
mannabraut 23, Vest-
mannaeyjum, s. 481
1826 Mosfell sf., Þrúð-
vangi 6, Hellu, s. 487
5828, Sólveig Ólafs-
dóttir, Verslunin
Grund, Flúðum, s. 486
6633, Sjúkrahús Suður-
lands og Heilsugæslu-
stöð, Árvegi, Selfossi,
s. 482 1300, Verslunin
Íris, Austurvegi 4, Sel-
fossi, s. 482 1468,
Blómabúðin hjá Jó-
hönnu, Unabakka 4,
815 Þorlákshöfn, s. 483
3794.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga, fást á eftirtöldum
stöðum á Reykjanesi.
Bókabúð Grindavíkur,
Víkurbraut 62, Grinda-
vík, s. 426 8787 Penn-
inn – Bókabúð Kefla-
víkur, Sólvallagötu 2,
Keflavík, s. 421 1102
Íslandspóstur hf.,
Hafnargötu 89, Kefla-
vík, s. 421 5000 Íslands-
póstur hf., c/o Krist-
jana Vilhjálmsdóttir,
Garðbraut 69, Garður,
s. 422 7000 Dagmar
Árnadóttir, Skiphóli,
Skagabraut 64, Garð-
ur, s. 422 7059.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga fást í Reykjavík,
Hafnarfirði og Sel-
tjarnarnesi á Skrif-
stofu LHS, Síðumúla 6,
Reykjavík, s. 552-5744,
fax 562-5744, Hjá Hirti,
Bónushúsinu, Suður-
strönd 2, Seltjarn-
arnesi, s. 561 4256,
Bókabúð Böðvars,
Reykjavíkurvegi 66,
Hafnarfirði, s. 565
1630.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga fást á eftirtöldum
stöðum á Vesturlandi:
Penninn Bókabúð
Andrésar, Kirkjubraut
54 Akranesi, s. 431
1855, Dalbrún ehf.,
Brákarbraut 3, Borg-
arnesi, s. 437 1421,
Hrannarbúðin, Hrann-
arstíg 5, Grundarfirði,
s. 438 6725, Verslunin
Heimahornið, Borg-
arbraut 1, Stykk-
ishólmur, s. 438 1110.
Minningarkort barna-
deildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525-1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Í dag er sunnudagur 20. apríl,
110. dagur ársins 2003, páskadag-
ur. Orð dagsins: Og hann segir
við hann: Sannlega, sannlega segi
ég yður: Þér munuð sjá himininn
opinn og engla Guðs stíga upp og
stíga niður yfir Mannssoninn.“
(Joh 1. 51.)
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Danica Violet og Brú-
arfoss koma í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs er lokuð
vegna flutninga, hún
verður opnuð aftur 6.
maí í Fannborg 8, áður
húsnæði Bókasafns
Kópavogs, lesstofa á
jarðhæð.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur. Skrif-
stofa, s. 551 4349, opin
miðvikud. kl. 14–17.
Flóamarkaður, fataút-
lutun og fatamóttaka
opin annan og fjórða
hvern miðvikud. í mán-
uði kl. 14–17, s.
552 5277
Mannamót
Aflagrandi 40. Leik-
fimi hefst eftir páska
kl. 9 miðvikudaginn 23.
apríl.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Dans-
leikur verður síðasta
vetrardag, miðviku-
daginn 23. apríl, kl
20.30. Caprí Tríó leikur
fyrir dansi. Morg-
ungangan hefst á laug-
ardaginn, 26. apríl, kl.
10 frá Hraunseli.
Gönguklúbbur Hana-
nú. Morgunganga kl.
10 laugardagsmorgna
frá Gjábakka.
Krummakaffi kl. 9.
Ásatrúarfélagið,
Grandagarði 8. Opið
hús alla laugardaga frá
kl. 14.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
GA-fundir spilafíkla
kl. 18.15 á mánudögum
í Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtudögum í
fræðsludeild SÁA
Síðumúla 3–5 og í
Kirkju Óháða safn-
aðarins við Háteigsveg
á laugardögum kl.
10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl. 20
að Sólvallagötu 12.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
Oa samtökin. Átrösk-
un / Matarfíkn / Ofát.
Fundir alla daga. Upp-
lýsingar á www.oa.is og
síma 878 1178.
Gigtarfélagið. Leik-
fimi alla daga vikunnar.
Létt leikfimi, bakleik-
fimi karla, vefjagigt-
arhópar, jóga, vatns-
þjálfun. Einn ókeypis
Ekki er skafið utan afhlutunum í Morg-
unpósti VG, sem birtist á
kosningavef flokksins.
Það fer t.d. ekki á milli
mála að VG telur rík-
isstjórn núverandi stjórn-
arandstöðuflokka æski-
legustu stjórnina eftir
kosningar. Í pistlinum
„Velferðarstjórn“ sem
birtist í síðustu viku segir
Morgunpósturinn:
Samkvæmt skoð-anakönnun Gallup,
sem kynnt var í Rík-
isútvarpinu í gær, er að-
eins einn möguleiki á
tveggja flokka stjórn eftir
kosningarnar í vor: Sam-
fylkingin og Sjálfstæð-
isflokkurinn. Það er ekki
velferðarstjórn, það er al-
gjörlega á hreinu. Það er
uppvakningur Viðeyj-
arstjórnarinnar sálugu,
stjórn sem innleiddi álög-
ur á sjúklinga og hóf stór-
sókn markaðsaflanna inn
í íslensk stjórnmál. Stjórn
sem sló tóninn fyrir nú-
verandi ríkisstjórn. Þeirri
sem harðast hefur gengið
í því að rýra velferð-
arkerfið og setja peninga
ofar fólki.
Hins vegar þýða nið-urstöður skoð-
anakönnunar Gallup að
ríkisstjórnin er fallin. Það
er meginatriðið. Markmið
stjórnarandstöðu á hverj-
um tíma er einmitt að
fella sitjandi ríkisstjórn
og taka við stjórnartaum-
unum.
Í kosningakastljósi
sjónvarpsins í gærkvöldi
ákvað formaður Frjáls-
lyndra að taka tilboði
Steingríms J. Sigfússon-
ar, formanns Vinstri
grænna, um að mynda
ríkisstjórn eftir kosn-
ingar en Ingibjörg Sólrún
var aftur á móti ekki eins
afgerandi í svörum sínum
frekar en fyrri daginn.
Það kemur ekki á óvart
þar sem flokkurinn, eða í
það minnsta stór hluti for-
ystu hans, tók þátt í Við-
eyjarævintýrinu fyrir 12
árum. Það kann að vera
að Samfylkingin orni sér
við þær minningar en sú
stjórn skaðaði velferð-
arkerfið og var svoköll-
uðum jafnaðarmönnum til
skammar.“
Afstaða VG til tillagnaum skattalækkun fer
heldur ekki á milli mála
þegar Morgunpósturinn
er lesinn: „Skattafyllirí
loforðaflokkanna þriggja,
Samfylkingar, Sjálfstæð-
isflokks og Framsókn-
arflokks, gengur út á yf-
irboð og hlægilegt
kapphlaup um hylli kjós-
enda. […] Fyrir Vinstri-
hreyfingunni – grænu
framboði er skattastefnan
skýr. Spurningin er þessi:
Hvort viljum við halla
okkur meira að Banda-
ríkjunum sem fyrirmynd
eða Norðurlöndunum?
Fyrir okkur er svarið
ljóst; velferð er besta fjár-
festingin og skipar Íslandi
í hóp fyrirmyndarríkja.
Við höfum efni á því. Nú
er lag. Skilum pening-
unum til þeirra sem helst
þurfa á þeim að halda en
ekki til þeirra sem eiga
nóg af þeim fyrir.“
STAKSTEINAR
Velferðarstjórn eða
skattafyllirí
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI er kominn í sum-arskap. Það er ekki annað
hægt. Menn sjá fram á betri
tíð með blóm í haga. Veð-
urblíðan að undanförnu hefur
verið einstök – menn hafa unn-
ið vorverkin fyrr en áður,
mörgum vikum fyrr en til
dæmis síðastliðið ár, sem var
verðursælt. Fólk er byrjað að
spá í sumarið, enda sumardag-
urinn fyrsti á næstu grösum.
Er lengur hægt að tala um vet-
ur, sumar, vor og haust hér á
landi? Væri ekki rétt að ræða
um tvö tímabil – vor og haust?
Sumarið er yfirleitt vætusamt
og snjór sést varla lengur á
vetrum. Skíðalandsmót fóru yf-
irleitt fram um páska á árum áður,
en nú geta menn ekki rennt sér á
skíðum um páska nema með því að
fara upp á jökla. Á dögunum var
leikinn knattspyrnuleikur á grasi í
Mosfellssveit – í byrjun apríl. Það
hefði þótt saga til næsta bæjar fyr-
ir nokkrum árum. Já, það eru ekki
mörg ár síðan enska knatt-
spyrnuliðið Luton kom til Íslands
um hávetur til að leika knatt-
spyrnu í Laugardal, þegar ekki var
hægt að leika knattspyrnu í Eng-
landi vegna vetrarhörku.
x x x
ÞAÐ er ekki aðeins að breyt-ingar hafi orðið á veðurfari.
Breytingar hafa orðið á lifnaðar-
háttum fólksins hér á landi. Á ár-
um áður borðuðu landsmenn fisk á
föstudaginn langa og allt var
lokað. Af fréttum að dæma
bragðar æska landsins sjaldan á
fiski og veit ekki nöfnin á helstu
fisktegundum. Ótrúlegt, en
satt. Það vakti athygli Víkverja
á dögunum þegar ákveðið var í
skólum að bjóða æsku landsins
upp á fisk, til að kynna henni
hvað veiddist í sjónum í kring-
um landið. Rætt var við ung-
dóminn, sem vissi ekki hvaða
fisktegund var boðið upp á (ýsu/
þorsk), en viðmælendum fannst
fiskurinn ágætur á bragðið.
x x x
ÞEGAR Víkverji horfði á„barnamessu“ í þættinum
Viltu vinna vinna milljón? í sjón-
varpinu á dögunum rann upp fyrir
honum ljós að víða er pottur brot-
inn. Aðeins rúmlega 30% ung-
menna í sal svöruðu því að hangi-
kjöt væri af kind komið. Rúmlega
20% nefndu svín, sami fjöldi naut
og sumir nefndu hross.
Á þessu sést að breytingar hafa
orðið miklar hér á landi.
Morgunblaðið/Ómar
Ær með lamb. Stór hluti æsku landsins veit
ekki að hangikjöt er unnið úr kindakjöti.
12. apríl sl. héldu Senjórítur
Kvennakórs Reykjavíkur
sína fyrstu sjálfstæðu tón-
leika. Á efnisskránni voru
ýmis lög allt frá kirkjuleg-
um verkum til dægurlaga.
Það var hrein unun á að
hlusta á þessar ungu konur,
en þær eru á aldrinum frá
60 ára til rúmlega 80 ára,
syngja af þvílíkri innlifun að
við sem yngri erum, megum
læra mikið af framkomu
þeirra.
Sönggleðin geislaði af
þeim og það var bæði auð-
séð og auðheyrt að söngur-
inn er þeirra líf og yndi.
Ekki er verra að hafa kór-
stjóra sem geislar af lífs-
gleði og ánægju yfir því sem
hún er að gera, en það er
Sigrún Þorgeirsdóttir. Und-
irleikarar á tónleikunum
voru Aðalheiður Þorsteins-
dóttir á píanó og Hjörleifur
Valsson á fiðlu.
Meðan ungu konurnar
fengu að hvíla lúin bein,
spiluðu þau Aðalheiður og
Hjörleifur tvö lög og upp-
lýsti Hjörleifur okkur um að
nú væri akkúrat liðinn ald-
arfjórðungur síðan þau
spiluðu síðast saman. En
það var í Tónskólanum á
Húsavík.
Tónleikunum lauk með
því að konurnar gengu
syngjandi úr kirkju „Vertu
til er vorið kallar á þig“. Ég
held að allir viðstaddir hafi
gengið út með gleði og fullir
eftirvæntingu um hvað þær
bjóða okkur upp á næsta
vor.
Kæru Senjórítur, kærar
þakkir fyrir frábæra tón-
leika. Áfram stelpur.
Árný Albertsdóttir.
Karlar eru
konum verstir
ÞEIR voru í meirihluta,
karlarnir, eins og venjulega,
í útsendingu á umræðum
forystumanna stjórnmála-
flokkanna í einu af Kosn-
inga-Kastljósum Sjónvarps-
ins. Þar var rætt um hvaða
framkvæmdir þeir myndu
ráðast í fyrir þjóðina á
næsta kjörtímabili, ef þeir
næðu völdum. Þeir kepptust
við að bjóða okkur kjósend-
um vasapening fyrir að
kjósa sinn flokk. Nú eru all-
ir svo ríkir á Íslandi, fyrir
utan þá fátæku, að svona
smáupphæðir breyta raun-
verulega engu, miðað við
alla þá milljarða sem sól-
undað er í óþarfa, eins og
heyra má í fréttum á hverj-
um degi, til dæmis hið rán-
dýra sendiráð í Berlín.
Ég heyrði ekki betur en
að eina konan sem þarna
var, og talaði fyrir sinn flokk
– Samfylkinguna, hafi valt-
að yfir alla hina flokkana
með einu orði: „Jafnrétti“.
Aðalheiður Guðmunds-
dóttir.
Tapað/fundið
Skartgripur
í óskilum
SKARTGRIPUR úr gleri
fannst í Grasagarði Reykja-
víkur með nafninu SARA.
Þetta er hvítur og blár höfr-
ungur. Upplýsingar í síma:
849 5227
Gleraugu týndust
GLERAUGU í grænum
umgjörðum týndust föstu-
daginn 11. apríl. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 553 1422.
Bíllykill týndist
BÍLLYKILL á brúnni
hringlaga fjarstýringu
týndist líklega í miðbænum
eða Kringlunni sl. föstudag.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 568-2249.
Kveikjari og vasa-
hnífur týndust
ZIPPO kveikari, merktur
Haraldur Torfason, týndist
sl. þriðjudag á leiðinni frá
Hátúni niður á Hlemm og
inn á Gunnarsbraut. Eins
týndist rauður vasahnífur
fyrir 2 vikum. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
552 5465.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Tónlistar-
veisla í
Háteigskirkju
Morgunblaðið/RAXGleðilega páska!
LÁRÉTT
1 gerðarleg, 8 reikar, 9
pésa, 10 starf, 11 froða,
13 tómar, 15 lítils skips,
18 klöpp, 21 frost-
skemmd, 22 pjatla, 23
ávinnur sér, 24 bundin
eiði.
LÓÐRÉTT
2 gretta, 3 skepnan, 4
rás, 5 kvenkynfruman, 6
farandkvilli, 7 hæðir,
12 ótta, 14 reyfi, 15 gleði,
16 gæsarsteggur, 17
virki, 18 ferma, 19
styrkti, 20 fæða.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 hamra, 4 hamli, 7 lifur, 8 lokki, 9 sút, 11 aumt,
13 frán, 14 örlar, 15 hníf, 17 úrar, 20 smá, 22 létta, 23
metum, 24 róast, 25 nárar.
Lóðrétt: 1 halla, 2 máfum, 3 aurs, 4 holt, 5 mokar, 6 ið-
inn, 10 útlim, 12 töf, 13 frú, 15 halur, 16 ístra, 18 ritur,
19 rómar, 20 satt, 21 áman.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16