Morgunblaðið - 20.04.2003, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.04.2003, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 SUNNUDAGUR 20. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ Í fyrsta sinn hefur verið gefin út í einni bók efitirmynd af eina varðveita eigihandarriti Hallgríms Péturssonar að Passísusálmunum ásamt prentuðum texta þeirra: Einn mesti dýrgripur á íslenskri tungu í fallegri útgáfu sem verður ævarandi eign þess er hýtur. Bókin er í stóru broti, bundin í alskinn og hvergi sparað til þess að innihaldið fá notið sín sem best. Gjöf sem vex með fermingarbarninu Bókin fæst í Kirkjuhúsinu, Hallgrímskirkju , Landsbókasafni (í Þjóðarbókhlöðu) og helstu bókaverslunum. Passíusálmarnir - vönduð gjöf Ú RSLITIN í kosningabaráttunni eru að ráðast þessa dag- ana. Ekki í fjölmiðlum eða reykmettuðum bakher- bergjum stjórnmálaflokka heldur í fermingarveislum sem stofnað er til út um allan bæ. Þar komast sögur á kreik á meðan aðrar fjara út. Og örlög stjórnmálamanna og ráðast. Ábyrgð fermingarbarna er því mikil. En það virtist ekki íþyngja nein- um í borgaralegri fermingu í Ráðhúsinu um síðustu helgi. Ferming- arbörnin spiluðu sjálf á hljóðfæri og sungu. Predikunin var ekki flutt af sérlega skipuðum erindreka Guðs, þó verið geti að hann gangi á Guðs vegum, heldur las Einar Már Guð- mundsson rithöfundur hugleiðingu. Svo tíndust ferm- ingarbörnin í veislurnar. Það getur verið vandkvæðum bundið að sækja borg- aralega fermingju. Í sumum bókaverslunum eru nefni- lega ekki til fermingarkort nema með krossi. Furðu mörgum hefur þó tekist að finna heiðin kort, því nánast er troðið út úr dyrum í fermingarveislunni. Ekki þarf að undrast að í eldhúsinu er and- rúmið eins og á bráðavaktinni. – Ég er að sækja mjólk fyrir Jónas, segir stelpa og hugsar um litla bróður. – Hvar finn ég gosið? segir karlmaður og hallar sér upp að borði með Sinalco og Appelsíni. – Það þarf að þurrka upp í stofunni, segir húsmóðirin á heimilinu og er rokin af stað með tuskuna. – Var það nokkuð sonur minn? spyr ein móðirin áhyggjufull. Allt nokkuð týpískar spurningar fyrir bráðavakt í fermingarveislu, utan ein sem kemur dálítið eins og skrattinn úr sauðarleggnum. – Er einhver með gítarnögl í vasanum? En áður en kemur að skemmtiatriðunum kveður faðir ferming- ardrengsins sér hljóðs. Hann talar um hversu lánsamur sonur sinn hafi verið. Í fermingum í sumum löndum hefði hann verið látinn bjarga sér einn úti í frumskóginum dögum saman og í öðrum væri skorið í við- kvæma líkamsparta. Svo bætir hann við að reyndar sé það mikil mann- dómsraun að lifa af alla kossana og knúsin frá frænkum og frændum og hlusta á setningar eins og: – Ó, hvað þú ert orðinn stór. Síðast þegar ég sá þig varstu bara lítill gutti. Veistu að ég skipti á þér? Íbúðin er óskaplega fín eins og almennt gildir um íbúðir foreldra fermingarbarna. Nema hvað, það er trommusett í stofunni. Fyrr en var- ir er fermingardrengurinn sestur við trommurnar með bítlagreiðsluna sína og síðhærður vinur hans tekur sig vel út í strigaskóm, svörtum íþróttabuxum og sparijakka með rafmagnsgítar. Þetta eru frumlegir strákar og tónlistin er frumsamin. Rokk og ról. Og ekki er laust við að það fari um gamla konu frammi á gangi. – Ég er búin að vera með giftingarmynd af ykkur í tuttugu ár og þið hafið ekkert breyst, segir heldri kona í hrókasamræðum í eldhúsinu. – Ekki hún heldur? spyr maðurinn og setur upp undrunarsvip. – Ég fermdist ekki, segir langamma og rifjar upp að hún fékk ekki að sitja í kristinfræðitímum í skólanum í þá daga vegna þess að hún vildi ekki fermast. Hún var bara send út á skólaplan. Og er enn ósátt við það. Hún segist ekki hafa tölu á öllum þeim fermingum sem hún hafi sótt í gegnum tíðina. – Ég geng aldrei til altaris til að borða oblátu. Mér fannst það bara skrípaleikur. Ég kann ekki við það. Að borða líkama Krists og drekka blóðið hans. – Er einhver með startkapla? er kallað yfir veisluna. – Já, ég, segir herramaðurinn með myndavélina og hleypur til. – Hvað er enginn hérna? segir kona sem gengur inn í stofuna þegar gestirnir eru farnir að tínast út. – Er ég enginn? spyr maður á móti með kímnisvip. Foreldrarnir í veislunni fá fyrir hjartað þegar lítill drengur labbar að vini sínum og kyssir hann á kinnina. Mikið óskaplega er hann vel upp al- inn má lesa úr svipnum á þeim og hægt andvarp líður um stofuna. Svo rífur drengurinn bílinn af vini sínum og segir: „Ég á.“ Bannað er að opna gjafirnar fyrr en flestir gestanna eru farnir. Þann- ig að fermingardrengurinn verður að finna sér eitthvað annað til dund- urs. Hann ákveður að kveikja á nýja rafmagnsgítarnum, Rockwood Pro. – Finnurðu einhvern mun? spyr blaðamaður. – Mér finnst ég vera ríkari, svarar hann og brosir út í annað. Loks eru þrír tímarnir liðnir sem fermingardrengurinn hafði lofað að opna ekki pakkana sína. Þeir gestir sem eftir eru í veislunni setjast inn í herbergi og fylgjast með því þegar hann opnar pakkana og umslögin. – Nú er bara að telja, segir einn og ekki laust við að spenna myndist í herberginu á meðan umslögin fæða þúsundkallana af sér. – Ég er búinn að vera að bíða eftir þessum, segir fermingardreng- urinn og teygir sig eftir stærsta pakkanum. Þegar öllu er á botninn hvolft virðast borgaralegar fermingar ekkert frábrugðnar kristilegum fermingum. Pakkarnir eru stórir, umslögin þykk og unglingur er kominn í fullorðinna manna tölu. – Hann á pen- inga. Morgunblaðið/Sverrir Í fullorðinsvígslu SKISSA Pétur Blöndal fór í borg- aralega fermingu EIRÍKUR S. Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Kaldbaks, sagði að niðurstaða gerðardóms á heildar- verðmæti Norðurmjólkur væri von- brigði. „Við hefðum ekki áfrýjað þessu máli nema af því að við töldum að við ættum að fá meira fyrir okkar eignarhlut.“ Niðurstaða gerðardóms var að verðmæti Norðurmjólkur væri 824 milljónir króna. Áður höfðu dómkvaddir matsmenn komist að þeirri niðurstöðu að verðmæti allra hlutabréfa Norðurmjólkur væri 931 milljón króna, eða 107 milljónum króna hærri. Auðhumla, félag mjólkurframleið- enda í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, átti um þriðjungs hlut í Norðurmjólk en keypti um 67% hlut Kaldbaks í fé- laginu sl. sumar, með stuðningi fleiri aðila í mjólkuriðnaði. Ekki náðust samningar um kaupverð og fór svo að dómkvaddir matsmenn mátu verðmæti félagsins. Forsvarsmenn Kaldbaks sættu sig ekki við þá nið- urstöðu og töldu verðið of lágt. Málið fór því fyrir gerðardóm og er niður- staða hans bindandi fyrir báða aðila. Einn skilaði séráliti „Við áfrýjuðum málinu í upphafi vegna þess að við töldum að það hefðu verið verulegir annmarkar á vinnu matsmanna. Þá er dómur gerðardóms afskaplega veikur að mínu mati. Eini lögmaðurinn af þess- um þremur sem skipuðu dóminn, Margeir Pétursson, sem telst vera sérfræðingur í svona málum, skilaði séráliti og hann metur félagið 100 milljónum króna hærra en hinir tveir gera. Þeir meta okkar eignarhlut á 550 milljónir króna en Margeir met- ur hlutinn á 650 milljónir króna.“ Aðspurður hvort þetta væri samt ekki endanleg niðurstaða sagði Ei- ríkur svo vera, „nema við getum sýnt fram á það með einhverjum hætti að lög um gerðardóm hafi verið brotinn. Þá væri hægt að fara með málið fyrir dómstóla. Við eigum eftir að fara bet- ur yfir dóminn og því er alls óvíst með framhald málsins,“ sagði Eirík- ur. Auk Margeirs skipuðu þeir Sig- urður Tómas Magnússon og Ólafur Gústafsson gerðardóminn. Framkvæmdastjóri Kaldbaks um verðmæti Norðurmjólkur Niðurstaðan er vonbrigði NÆSTA haust mun nýr einkarekinn framhaldsskóli, Menntaskólinn Hraðbraut, taka til starfa í Hafnarfirði. Þar verður boðið upp á tveggja ára nám til stúdents- prófs og munu nemendur skólans því útskrifast átján ára, að sögn Ólafs Hauks Johnson, skólastjóra. Boðið verður upp á bóknám á tveimur brautum, nátt- úrufræði- og málabraut. Náminu verður stillt upp í 15 fimm vikna lotur og verða þrjár námsgreinar teknar fyrir í hverri lotu. „Kennsla fer eingöngu fram á mánu- dögum, miðvikudögum og föstudögum en hina virku dagana er gert ráð fyrir að nemendur mæti í skólann og sinni heimanámi í skólastofunum. Þá daga verða kennarar viðstaddir og veita aðstoð,“ útskýrir Ólafur. „Við lok hverrar fimm vikna lotu verða síðan próf og eftir það frí í viku fyrir þá sem ná en gert ráð fyrir að þeir sem falli noti vikuna til að bæta sig.“ Hann tekur fram að kennarar muni bera meiri ábyrgð á námi nem- enda en almennt gerist í framhaldsskólum. „Andinn á að vera þannig að þegar nemandinn er kominn í skól- ann verði allt gert til hjálpa honum sem mest og best í náminu.“ Sjö ára gömul hugmynd Ólafur er viðskiptafræðingur með kennsluréttindi frá Kennaraháskólanum og hefur unnið við kennslu í framhaldsskóla í 12 ár. Þá hefur hann rekið Hraðlestr- arskólann í 20 ár og Sumarskólann þar sem framhalds- skólanemendur hafa getað tekið framhaldsskólaáfanga á mánaðarlöngum námskeiðum á sumrin. Hann segist hafa fengið hugmyndina að Hraðbrautinni árið 1996 við rekstur Sumarskólans. „Ég hef verið með Sum- arskólann í 10 ár ásamt mági mínum og má segja að þar hafi ég verið að prufukeyra hugmyndina að þess- um nýja skóla.“ Skólaárið mun standa yfir frá miðjum ágúst og fram í miðjan júní eða um mánuði lengur en í öðrum fram- haldsskólum en á móti kemur að nemendur útskrifast með stúdentspróf tveimur árum fyrr en venja er. „Vinnuálag verður auðvitað nokkurt en á móti kemur að vinnunni verður hagað þannig að námið verði mjög markvisst. Fræðimenn sem hafa þróað hugmyndina að skólanum með mér hafa reiknað út að námið muni liggja vel fyrir um 15% nemenda í hverjum árgangi en gert er ráð fyrir að um 100 nemendur verði teknir inn í skólann á hverju hausti.“ Hann segir félagslíf skólans auðvitað mótast af því hversu lítill hann er. Þjóðhagslegur ávinningur Menntaskólinn Hraðbraut verður til húsa á Reykja- víkurvegi 74 þar sem Iðnskólinn í Hafnarfirði var áður. Húsið verður þó fyrst nánast endurbyggt og heilli hæð bætt ofan á það, að sögn Ólafs. Hann tekur fram að ásamt honum sjálfum muni fyrirtækið Nýsir hf. koma að rekstrinum. „Einnig verður Verzlunarmannafélag Reykjavíkur hluthafi, en félagið hefur sýnt því mikinn áhuga að stuðla að styttingu stúdentprófs.“ Hann nefn- ir að menntamálaráðuneytið hafi þegar veitt faglega viðurkenningu á náminu en auk þess hafi verið gerður samningur um fjárstuðning. „Skólagjöld verða um 190 þúsund krónur fyrir hvort árið og munu nemendur geta fengið lán fyrir þeirri upphæð frá viðskiptabönk- um. Það þarf síðan ekki að byrja að greiða niður fyrr en að afloknu háskólanámi.“ Hann bendir á að ávinn- ingurinn af því að fá stúdentspróf 18 ára sér marg- víslegur. „Nemendur komast fyrr út á vinnumarkaðinn sem skapar þeim meiri möguleika og tekjur fyrir þá. Þá er einnig þjóðhagslegur ávinningur af því að fá ungt fólk fyrr út í atvinnulífið.“ Skráning mun hefjast fljótlega en upplýsingar um skólann má nálgast á heimasíðunni hradbraut.is. Nýr einkarekinn framhaldsskóli í Hafnarfirði í haust Nemendur fá stúdentspróf átján ára Morgunblaðið/Sverrir Ólafur Haukur Johnson er skólastjóri Menntaskólans Hraðbrautar en hann mun útskrifa nemendur með stúdentspróf á tveimur árum. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt 23 ára karlmann í árs fangelsi fyrir tilefnislausa og fólsku- lega líkamsárás á Gauk á Stöng í júní 2001. Vegna hömlulauss dráttar á rekstri málsins hjá lögreglu, sem viðhlítandi skýring fékkst ekki á, var refsingin skilorðsbundin. Ákæra var gefin út um miðjan janúar á þessu ári, eða rúmum 19 mánuðum eftir brotið. Ákærði játaði sök. Í dómnum segir að við meðferð málsins hafi ákærði lagt fram gögn sem sýni að hann hafi frá því að brot- ið er framið sýnt verulegan vilja til að ná tökum á lífi sínu eftir mikla neyslu áfengis og vímuefna. Sé hann í sambúð og að verða faðir. Valtýr Sigurðsson héraðsdómari kvað upp dóminn. Verjandi ákærða var Ró- bert Árni Hreiðarsson hrl. Málið sótti Katrín Hilmarsdóttir fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík. Fangelsi fyrir árás
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.