Morgunblaðið - 20.04.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 20. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SPARA 120 MILLJÓNIR
Kostnaður Vegagerðarinnar
vegna snjómoksturs verður vænt-
anlega hátt í fjórðungi undir áætlun
vegna mildrar tíðar og er gert ráð
fyrir að sparnaðurinn vegna þessa
geti numið um 120 milljónum króna.
Verða stúdentar átján ára
Nýr einkarekinn menntaskóli,
Menntaskólinn Hraðraut, mun taka
til starfa í Hafnarfirði á hausti kom-
anda. Þar verður boðið upp á
tveggja ára nám til stúdentsprófs
og geta nemendur því útskrifast við
átján ára aldur. Boðið verður upp á
bóknám á tveimur brautum, nátt-
úrufræði- og málabraut.
Vottuð öryggisstjórnun
Alcan er fyrsta fyrirtækið hér á
landi sem hefur fengið staðfest að
öryggis- og vinnuumhverfisstjórnun
þess standist alþjóðlega staðalinn
OHSAS 180001. Staðallinn er kröfu-
lýsing og á að tryggja að öryggis-
og heilbrigðismál séu órjúfanlegur
þáttur í mats- og ákvörðunarferli
við fjárfestingar og framkvæmdir.
Hernámsliðið fari frá Írak
Utanríkisráðherrar grannríkja
Íraks hvöttu í gær hernámslið
Bandaríkjanna og Bretlands til að
fara frá Írak eins fljótt og auðið
væri. Ráðherrarnir sögðu einnig að
Sameinuðu þjóðirnar ættu að gegna
lykilhlutverki við endurreisn lands-
ins og myndun nýrrar stjórnar. Þeir
lögðu áherslu á að íraska þjóðin
ætti sjálf að taka við stjórn landsins
sem fyrst og ákveða hvernig nýta
ætti olíuauðlindir þess.
Fimm Írakar handteknir
Fimm af 55 Írökum, sem Banda-
ríkjamenn leggja mesta áherslu á
að taka til fanga, hafa nú verið
handteknir og vonast er til að þeir
veiti upplýsingar um meinta ger-
eyðingarvopnaáætlun Saddams
Husseins. Þeirra á meðal eru fyrr-
verandi fjármálaráðherra Íraks,
Hikmat al-Azzawi, hálfbróðir Sadd-
ams, Barzan Ibrahim al-Tikriti, og
Samir Abul Aziz al-Najim, einn af
helstu forystumönnum Baath-
flokksins.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Hugsað upphátt 51
Erlent 20 Myndasögur 48
Listir 28/35 Bréf 58/59
Af listum 28 Dagbók 60/61
Forystugrein 36 Krossgáta 63
Reykjavíkurbréf 36 Leikhús 64
Skoðun 38/39 Fólk 64/69
Umræðan 40/46 Bíó 66/69
Minningar 48/51 Sjónvarp 62/70
Hugvekja 48 Veður 71
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir auglýsingablaðið „Borgarveisla
– Haust 2003“ frá Úrvali-Útsýn.
Blaðinu er dreift um allt land.
EF KJÓSENDUR gefa núverandi
stjórnarandstöðu meirihluta á þingi
ber stjórnandstöðuflokkunum
skylda til þess að reyna stjórnar-
myndun. Ljóst er þó að stjórnar-
meirihlutinn verður ekki felldur
nema Frjálslyndi flokkurinn fái 5–8
þingmenn kjörna. Samfylkingin og
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
hafa aldrei náð meirihluta í skoð-
anakönnunum.
Þetta var meðal þess sem fram
kom í máli Sverris Hermannssonar,
fyrrverandi formanns Frjálslynda
flokksins, á kveðjufundi fundi með
flokksfélögum á Ísafirði í liðinni
viku. Hann segir þetta hafa verið
síðustu opinberu pólitísku ræðu
sína.
Sverrir sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hann hefði lýst þeirri
skoðun sinni að ef ríkisstjórnar-
meirihlutinn félli væri það vantraust
á núverandi stjórn og um leið dóm-
ur kjósenda um að nýir menn,
stjórnarandstaðan, ætti að taka við.
„Ég lét þess getið að það væri
kannski ekki auðvelt verk en menn
ættu ekki að láta sér liggja neitt á í
þeim efnum. Menn vita um megin-
þætti í okkar stefnu og að þá stefnu
getum við ekki yfirgefið. Ég sagði
að það ætti þó ekki að vera óbrúan-
legt bil á milli stjórnarandstöðu-
flokkanna en það væri ekkert
áhlaupaverk. Ég sagði einnig að ég
sæi ekki hvernig við í Frjálslynda
flokknum, ef þannig skipuðust mál,
gætum samið við Sjálfstæðisflokk-
inn vegna þess að ég sæi ekki
hvernig hann myndi geta komið
fram og fallist á þau höfuðsjónarmið
sem við berjumst fyrir.“
Sverrir segist einnig hafa lýst
þeirri skoðun að stjórnarandstaðan
myndi aldrei fella núverandi ríkis-
stjórn frá völdum nema Frjálslyndi
flokkurinn fengi 5–7 þingmenn, í
bestu skoðanakönnun hafi Samfylk-
ingin og Vinstrihreyfingin ekki náð
meirihluta. Þetta hafi legið fyrir í
langan tíma.
Sverrir Hermannsson kvaddi
flokksfélaga sína á Ísafirði
Stjórnarandstöð-
unni ber að reyna
myndun stjórnar
HELGI Hróbjartsson, sem starfað
hefur um áratugaskeið við kristni-
boðs- og hjálparstörf í Eþíópíu, verð-
ur aðalskipuleggjandi neyðarhjálpar í
héraðinu El Kere á vegum Hjálpar-
starfs kirkjunnar í samvinnu við yf-
irvöld og lútersku kirkjuna þar í landi.
Helgi hefur ásamt samstarfsmönnum
sínum flogið milli svæða en hann hef-
ur sjálfur flugpróf og notar fjögurra
sæta Cessna-flugvél sem hann fékk
frá Íslandi, gömlu „Frúna“ sem var í
eigu Ómars Ragnarssonar frétta-
manns. „Það hefur sparað okkur mik-
inn tíma að geta farið um svæðið í
flugvél og þannig getum við mun bet-
ur fylgst með og stýrt starfinu,“ sagði
Helgi í samtali við Morgunblaðið.
El Kere er lítið og afskekkt hérað í
suðausturhluta Eþíópíu þar sem búa
um 9 þúsund manns, bændur og hirð-
ingjar. Þar hefur úrkoma verið með
minnsta móti og uppskera því ónóg.
Fæða er af skornum skammti og
kornverð hefur farið mjög hækkandi.
Hafa margir flutt sig til annarra land-
svæða vegna ástandsins. Með söfnun-
inni er stefnt að því að geta útvegað í
það minnsta 1.500 börnum, mæðrum
með börn á brjósti og barnshafandi
konum tveggja kílóa matarskammt í
viku hverri næstu þrjá mánuði.
Lendingarstaðir ekki vandamál
Helgi sagðist hafa ekið að meðaltali
fimm til sex þúsund km á mánuði en
hann hefur aðalbækistöð í Waddera
sem er í um 500 km fjarlægð frá El
Kere. Hann sagði ekki vandamál að
finna lendingarstaði, landið væri há-
slétta og víða væri nóg að tína burt
steina, nokkur tré og fylla í holur.
Kveðst hann finna lendingarstaðina
sjálfur og fá heimamenn til að lagfæra
þá með sér og fara síðan fyrstu ferð-
ina á nýjan stað einn í flugvélinni.
Eldsneyti kvað hann ekki heldur
vandamál og flugvirki hans sér um
reglulegt viðhald.
„El Kere er á svokölluðu Sómalíu-
svæði í Eþíópíu og þar hefur löngum
verið harðbýlt og oft þurft að stunda
þar hjálparstörf síðustu 10 til 15 ár-
in,“ sagði Helgi ennfremur. Hann hef-
ur síðustu 30 árin sinnt kristniboðs-
og hjálparstarfi víða í Eþíópíu, bæði á
vegum Sambands ísl. kristniboðs-
félaga og Norðmanna. Haft er fyrir
satt að fólk sem hann starfar á meðal,
ekki síst múslimar, kalli hann „númer
þrjú“ næstan á eftir Allah og Múham-
eð. Eins og fyrr segir efnir Hjálpar-
starf kirkjunnar nú til söfnunar vegna
þessa verkefnis og munu landsmönn-
um berast næstu daga gíróseðlar með
upplýsingum og ósk um framlag. Jón-
as Þ. Þórisson framkvæmdastjóri
segir söfnunarféð verða notað til
kaupa á matvælum, útsæði og lyfjum
og að kosta flutning til neyðarsvæð-
anna.
Helgi Hróbjartsson er hér við gömlu „Frúna“, fjögurra sæta Cessna 182,
sem Helgi segir hafa komið sér vel í hjálparstarfinu í suðurhluta Eþíópíu.
Helgi Hróbjartsson skipuleggur neyðarhjálp frá Íslandi í suðurhluta Eþíópíu
Notar flugvél
frá Íslandi í
hjálparstarf
ANDRÉSAR Andar-leikunum á
skíðum hefur verið aflýst vegna
snjóleysis en keppni átti að hefjast
í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar sum-
ardaginn fyrsta. Gísli Kristinn Lór-
enzson, einn forsvarsmanna leik-
anna, sagði að ákvörðun um að
aflýsa 28. leikunum hefði verið erfið
en óumflýjanleg. Um 650 börn voru
skráð til leiks að þessu sinni á
þetta stærsta skíðamót landsins ár
hvert en flestir hafa keppendur
verið 850.
Gísli Kristinn sagði að þegar að-
stæður hefðu verið skoðaðar í Hlíð-
arfjalli á föstudaginn langa hefði
mætt þeim 15–16 stiga hiti og
sunnanþeyr. „Það er ábyrgðarhluti
að stefna hátt í eitt þúsund manns
á þennan litla snjóskafl sem eftir er
í fjallinu.“
Þessi niðurstaða er mikið áfall
fyrir þau fjölmörgu börn sem skráð
voru til leiks svo og ferðaþjónustu-
aðila á Akureyri því hátt í 2.000
manns hafa komið til bæjarins í
tengslum við leikana. „Það er vissu-
lega leiðinlegt hvernig þetta fór en
við höldum hér leikana með glæsi-
brag að ári,“ sagði Gísli Kristinn.
Andrésar Andar-
leikunum aflýst
TALIÐ er að yfir 11 milljónir íbúa
Eþíópíu þurfi hjálp á þessu ári.
Þörf er fyrir rúmlega 1,4 milljón-
ir tonna af matvælum, einkum
korn. Á síðustu átta árum hafa
íbúar í El Kere iðulega mátt búa
við uppskerubrest og hung-
ursneyð. Með 100 kg af maís sem
kostar sem svarar 1.600 ísl. krón-
um má fæða fjölskyldu í tvo mán-
uði. Sameinuðu þjóðirnar hafa
skilgreint nokkur héruð í Eþíópíu
sem neyðarsvæði.
Yfir 11 milljónir
íbúa þurfa hjálp
MENN frá siglingaklúbbnum Brokey voru mættir til vinnu í Reykjavík-
urhöfn eldsnemma í gærmorgun að setja upp flotbryggjur félagsins og
gera klárt fyrir sumarið. Brokey hefur haft aðstöðu við varðskipsbryggj-
una við Ingólfsgarð í 20 ár en að sögn Jóns Búa Guðlaugssonar, stjórn-
armanns í félaginu, er mikil hreyfing á þessum stað í höfninni og olli hún
því að fara þurfti út í kostnaðarsamar viðgerðir á bryggjunum. Hann segir
að félagið vonist til þess að það fái í framtíðinni betri og hagstæðari að-
stöðu.
Morgunblaðið/RAX
Siglingaklúbbur gerir
klárt fyrir sumarið